Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 18
18 15. júní 2012 FÖSTUDAGUR
Í næstu viku munu veraldarleið-togar hittast að máli á þýðing-
armiklum fundi, ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun í Rio de Janeiro. Verður
þetta árangursríkur fundur? Að
mínu mati, já. Samningaviðræð-
ur hafa staðið yfir lengi. Meira að
segja á þessari stundu er meiru
ólokið en gengið hefur verið frá
í svokölluðu „lokaskjali” fundar-
ins. Á hinn bóginn er lokaskjalið
í raun ekki einhlítur mælikvarði
á árangur. Mest er um vert að
Rio ráðstefnan hefur þegar skil-
að umtalsverðum árangri. Og sá
árangur er að skapa heimshreyf-
ingu í þágu breytinga.
Rio+20 markar vegamót á
langri leið. Sjálfbær þróun komst
á dagskrá heimsstjórnmála á
hinum fræga Jarðar-fundi árið
1992. Í dag er skilningur okkar
breiðari og blæbrigðaríkari á
þeirri jafnvægislist sem við þurf-
um að ná tökum á. Sífellt fleiri
jarðarbúar þarfnast þróunar
sem hefur að markmiði að skila
ávöxtun velmegunar og kröft-
ugs hagvaxtar til allra. Á sama
tíma verður að vernda dýrmæt-
ustu auðlindir jarðar: land, loft og
vatn. Í Rio bætast yfir 100 leið-
togar ríkja og ríkisstjórna í hóp
tuttugu og fimm þúsund þátttak-
enda sem leita réttrar framvindu.
Við höfum allt of lengi talið að
brennsla og neysla sé eina leið-
in til bjargálna. Þessi leið hefur
endað í blindgötu.
Í Ríó verðum við að leita nýrrar
leiðar; nýs vegvísis fyrir 21. aldar
hagkerfið. Við höfnum þeirri goð-
sögn að hagvöxtur þurfi að vera
á kostnað umhverfisins. Það er
vaxandi skilningur á því að með
snjallri stefnumörkun geta rík-
isstjórnir eflt hagvöxt, dregið
úr fátækt, skapað mannsæm-
andi störf og hraðað félagslegri
þróun með þeim hætti að virðing
sé borin fyrir takmörkuðum auð-
lindum jarðar.
Í þessum víðari skilningi held
ég að hreyfingin í þágu breyt-
ingar verði ekki brotin á bak
aftur. Sönnunargögnin eru hvar-
vetna og leynast ef vel er að gáð
á meðal stórra þjóða og smárra,
ríkra jafnt sem fátækra. Mörg
ríki hafa tekið „grænan vöxt“
upp á sína arma sem felur í sér að
nota takmarkaðar náttúrulegar
auðlindir á skilvirkari hátt til að
skapa störf og efla kolefnasnauða
þróun. Kína hefur skuldbundið
sig til að sækja sextán prósent
orkuþarfar sinnar til endurnýj-
anlegra orkugjafa fyrir 2020 og
stefnir að því að fjárfesta fyrir
andvirði 450 milljarða Banda-
ríkjadala í endurnýtingu sorps
og hreinni tækni í nýjustu fimm
ára áætlun sinni.
Í Brasilíu skapar endurnýt-
ing sorps meira en hálfa milljón
starfa, aðallega á meðal þeirra
sem höllustum standa fæti. Ind-
land borgar nú fólki fyrir að nýta
betur náttúrulegar auðlindir svo
sem skóga og ferskvatn.
Ríkisstjórnir og þjóðríki eru
ekki ein á báti. Yfir þúsund odd-
vitar úr atvinnulífinu frá öllum
heimshornum koma saman í Ríó
og tala einum rómi: við getum
ekki látið sem ekkert sé.
Orkumál verða í öndvegi í Ríó.
Ég hef kallað orkumál „gullna
þráðinn“ sem hnýtir saman hina
sjálfbæru framtíð. Orka er lyk-
illinn að þróun, félagslegri sam-
heldni og verndun umhverfisins,
þar á meðal loftslagsbreyting-
um. Af þessum sökum hleypti ég
af stokkunum árið 2011, frum-
kvæði sem nefnist Sjálfbær orka
fyrir alla. Markmið okkar er að
tryggja þeim fimmtungi jarðar-
búa sem ekki njóta þess þegar að
fá aðgang að nútíma orkuþjón-
ustu. Þetta ber að gera með því
að draga úr orkusóun, með því
tvöfalda skilvirka nýtingu og tvö-
falda hlut endurnýjanlegrar orku
í orkunotkun á heimsvísu.
Sjálfbær orka fyrir alla er fyr-
irmyndar félagsskapur í þágu
framtíðarinnar. Grundvallar-
hugmyndin er einföld en áhrifa-
rík: Sameinuðu þjóðirnar nota
einstætt afl sitt til að fylkja liði
í þágu almannahagsmuna. Þegar
öllu er á botninn hvolft er þetta
einmitt það sem Rio+20 snýst
um. Já, vissulega eru samninga-
viðræðurnar þýðingarmiklar.
Samkomulag þar sem skuldbind-
ingar hafa verið færðar til bókar,
mótar umræður morgundagsins.
En Rio+20 er meira en þetta eða
tjáning öflugrar hreyfingar í
þágu breytingar og stórt skref í
átt til þeirrar framtíðar sem við
viljum.
Augu margra Íslendinga þola illa sólarljós. Geislar sólar-
innar eru oft sterkir hér á landi
og sólin liggur oft lágt á lofti, sem
þýðir að geislarnir fara beint í
augu. Sjómenn verða einnig fyrir
miklu endurkasti sólarinnar af haf-
fletinum og útivistarfólk af snjó.
Vegna mikillar umræðu um áhrif
sólarljóss á húð er fólk almennt
farið að nota sólarvörn á sólríkum
stöðum. Minna hefur verið rætt um
mikilvægi þess að nota sólgleraugu
til að hlífa augunum. Staðreyndin
er þó sú, að ef það er einhver sem
þarf á sólarvörn fyrir augun að
halda, þá er það hinn dæmigerði
ljóseygi Íslendingur. Íslendingar
eru oft með gráblá augu, sem þýðir
einfaldlega að lítið er af litarefni í
lithimnu augans. Svertingjar eru
með margfalt meira litarefni í lit-
himnunni, sem gerir augu þeirra
dökkbrún. Slík augu hlífa auga-
steininum og sjónhimnunni fyrir
stórum hluta geislunarinnar. Bláu
augun gera það miklu síður. Litar-
efni í augnbotnum (sjónhimnu)
tekur til sín sólarljós. Á sama hátt
er miklu minna af litarefni í augum
ljóshærðra eða skolhærðra heldur
en í augum þeirra sem eru með
dökkt hár og sérstaklega þeirra
sem eru þeldökkir.
Hinir ósýnilegu útfjólubláu (UV)
geislar sólarinnar eru helstu skað-
valdarnir. Þeir geta valdið bruna
á yfirborði augans, ekkert ósvipað
sólarbruna. Þeir sem hafa fengið
svokallaða snjóblindu eða rafsuðu-
blindu þekkja þetta og gleyma því
aldrei, þar sem sársaukinn er gríð-
arlegur til viðbótar tímabundinni
sjónskerðingu sem af því hlýst.
Þetta gerist t.d. hjá þeim sem nota
ekki geislavörn á meðan þeir eru
að rafsjóða eða uppi á jökli. Allir
þekkja það að það má ekki horfa
beint í sól, þar sem það getur skað-
að sjónhimnu og valdið blindu.
Langvarandi útfjólublá geisl-
un er líka varasöm. Augnlok geta
orðið fyrir skaða eins og húð ann-
ars staðar á líkamanum. Hrukkur
myndast auðveldlega í þunnri, við-
kvæmri húðinni í kringum augun
og hefur það aukist mjög að augn-
læknar og lýtalæknar sprauti botox
í svæðin til að minnka hrukkur og
skera burt húðfellingar. Í sumum
tilvikum getur krabbamein mynd-
ast á augnlokum, oftast á hvarmi.
Stundum er hægt að nema það
brott án þess að valda meiru en
minniháttar óreglu í augnlokinu,
en fyrir kemur að stærri útlitsgalli
verður eftir. Þá getur verið erfitt
að loka auganu, sem leiðir til þess
augað verður þurrt og ber jafnvel
skaða af.
Langvarandi geislun frá sólinni
getur líka valdið því að óeðlilegur
vöxtur verði frá slímhimnu yfir
á hornhimnuna. Þá myndast grá-
hvítur þríhyrningur inn á horn-
himnu sem kallað er „pterygium“,
eða hornhimnuvængur á íslensku.
Þessi vefur verður oft rauður og
talsvert útlitslýti á auganu. Þetta
er ekki algengt hér á landi en sést
oftar í sólríkum löndum nær mið-
baug.
Augasteinninn er viðkvæmur
fyrir sólarljósi. Ský á augasteini
myndast oftar og fyrr hjá þeim
sem eru í mikilli sól. Nýleg íslensk
augnrannsókn leiddi þetta m.a.
í ljós. Sjónhimnan er einnig við-
kvæm fyrir sól, og er aldursbund-
in augnbotnahrörnun (macular
degeneration) mun algengari hjá
þeim sem hafa fengið mikla geisl-
un í auga.
Ský á augasteini og aldursbund-
in augnbotnahrörnun valda sjón-
skerðingu og jafnvel blindu. Hægt
er að nema brott ský á augasteini,
en aldursbundin augnbotnahrörn-
un er erfiðari viðfangs, þótt ýmis
meðferðarúrræði hafi komið fram
á undanförnum árum. Best er þó
að fyrirbyggja skaða á augum, ekki
síst þar sem margar skemmdir eru
óafturkræfar. Hvetja þarf börn til
að nota sólgleraugu, þar sem stór
hluti þessara skaða er uppsafnaðar
skemmdir á vefjum augans. Nokkr-
ar rannsóknir á Vesturlöndum hafa
leitt í ljós að meir en helmingur
barna notar aldrei sólgleraugu.
Hvetja þarf til meiri sólgleraugna-
notkunar hjá börnum, ekki síður en
að vernda húð þeirra fyrir sólar-
geislum með sólarvörn.
Bent skal á að ýmis lyf, s.s.
sýklalyf, getnaðarvarnarpillan,
róandi lyf og ýmis lyf sem notuð
eru til að meðhöndla psoriasis og
bólusjúkdóma í húð (acne) geta
aukið á skaða sólarinnar bæði í húð
og í augum.
Góðir Íslendingar: Notið sólgler-
augu og hvetjið börnin til að nota
þau líka.
Hvetja þarf til meiri sólgleraugnanotkunar
hjá börnum, ekki síður en að vernda húð
þeirra fyrir sólargeislum með sólarvörn.
Við höfum allt
of lengi talið að
brennsla og neysla sé
eina leiðin til bjargálna.
Þessi leið hefur endað í
blindgötu.
Heimshreyfing í
þágu breytinga
Bláu augun þín
Á undanförnum árum hefur Félag íslenskra sjúkraþjálf-
ara (FÍSÞ) staðið fyrir samfélags-
verkefnum til að hvetja almenn-
ing til aukinnar hreyfingar. Eitt
þeirra er verkefnið „Að brúka
bekki“, framkvæmt í samvinnu
við félög eldri borgara og sveitar-
félög.
Hugmyndin gengur út á að
kortleggja stuttar gönguleiðir,
sem henta þeim sem lakir eru til
gangs, gjarnan í námunda við fjöl-
býlishús eldri borgara. Vissulega
eru bekkir víða, en þessar leiðir
eru þannig hannaðar að tryggt er
að ekki séu meira en 200-300 m
á milli bekkja, sem er forsenda
þess að fjölmargir treysti sér til
að ganga úti.
Sjúkraþjálfarar á Akureyri riðu
á vaðið og vígðu fyrstu tvær leið-
irnar árið 2010. Nú eru þar fjórar
leiðir sem liggja úr frá fjölbýlis-
húsum eldri borgara við Lindar-
síðu, Víðilund, Hlíð og Mýrarveg.
Verkefnið hefur hlotið góðan
hljómgrunn víðar. Á Húsavík eru
tvær leiðir út frá dvalarheim-
ilinu Hvammi ásamt einni leið í
suðurhverfi bæjarins og á Kópa-
skeri er gönguleið við sjávarsíð-
una. Í Garðabæ liggja tvær leiðir
frá Sjálandi og upp að verslunar-
miðstöðinni Litlatúni. Gönguleið-
ir af þessu tagi eru einnig komn-
ar í Hamraborg, Gullsmára og
við Boðaþing í Kópavogi. Í Mos-
fellsbæ er verið að setja upp tvær
leiðir út frá miðbæjarkjarnanum,
auk þess sem verkefnið er í undir-
búningi í Hafnarfirði og á Raufar-
höfn.
Kort hafa verið gerð með stað-
setningu bekkjanna og má nálg-
ast þau á vef FÍSÞ, www.physio.is.
Yngri aðstandendur eru hvattir til
að aðstoða hina eldri við að finna
kortin á vefsíðunni, prenta út og
jafnvel ganga með þeim fyrsta
hringinn.
Sjúkraþjálfarar vonast til þess
að íbúar í nágrenni þessara leiða
notfæri sér bekkina óspart og
láti takmarkaða göngugetu ekki
hindra sig í að drífa sig út í sum-
arið. Það er stutt í næsta bekk!
Brúkum bekkina
Sjálfbær þróun
Ban Ki-moon
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna
Heilbrigðismál
Unnur Pétursdóttir
formaður
Norðurlandsdeildar FÍSÞ
Heilbrigðismál
Jóhannes Kári
Kristinsson
augnlæknir
AF NETINU
Óvissuferð um Vaðlaheiði
Vaðlaheiðargöng fengu brautar-
gengi í þingsal í dag. Tæplega
níu milljarða ábyrgðarlán frá
ríkinu til opinberra aðila og
þó er fyrirbærið flokkað sem
einkaframkvæmd. Þingmenn
svæðisins voru allir með þessum
fjárútlátum, óháð flokkum.
Enn og aftur fetar ríkisstjórnin
þannig braut aukinna opinberra
skuldbindinga með tilvísun í
atvinnusköpun. Framundan er
svo uppáhellingur sparisjóðs
Keflvíkinga upp á 25 milljarða,
lífeyrissjóðslán til byggingar
háskólaspítala upp á 50 milljarða,
Norðfjarðargöng, Dýrafjarðargöng,
1.000 milljarða snjóhengja í
Seðlabankanum og skuldavandi
heimilanna. Eins gott að olían
finnist.
http://www.dv.is/blogg
Lýður Árnason
ÚTIVISTARKREM
Hentugt í sól og gegn
endurkasti sólar af snjó og
vatni þar sem það inniheldur
náttúrulega sólvörn. Tilvalið í
göngur sumarsins.
SÍTRUSSÆLA
Líkamsolía sem djúpnærir,
styrkir neðri húðlögin og
dregur úr flögnun eftir sólböð.
Sítrussælan er vítamínrík
olía með ferskum sítrusilmi
til daglegra nota fyrir allar
húðgerðir.
NÆRANDI
MORGUNFRÚAROLÍA
Mild og nærandi olía með
morgunfrú. Frábær fyrir
viðkvæma, þurra húð og
barnshafandi konur til varnar
sliti. Sérlega góð á psoriasis
og fyrir þurran hársvörð.
20%
afsláttur
15.-30. júní
SÓLARSÆLA
Olían er sérblönduð fyrir
útivistafólk og þá sem
vilja fallegan húðlit. Hún
örvar melonín í húðinni
og gefur gullin lit.
Inniheldur náttúrulega
sólarvörn (SPF 5-7).
NÁTTÚRULEG SÓLARVÖRN