Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 22
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SÓLEYJAR ODDSDÓTTUR Hrísmóum 1, Garðabæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar, Vífilsstöðum, fyrir góða umönnun og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. Sigurveig Sæmundsdóttir Oddur Sæmundsson Jóna Sæmundsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, INGÓLFS EINARSSONAR frá Snjallsteinshöfða, Karlagötu 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild V-2, Dvalar-og hjúkrunarheimilinu Grund, fyrir góða umönnun. María Eggertsdóttir Jóhann Teitur Ingólfsson Halldóra Ingólfsdóttir Kjartan Birgisson Hildur Kjartansdóttir María Kjartansdóttir Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BERGÞÓRU GUNNBJARTAR KRISTINSDÓTTUR Þykkvabæ 5, Reykjavík. Svava Benediktsdóttir Guðmundur Birgir Salómonsson Ágúst Benediktsson Sigríður Margrét Sigurðardóttir Gréta Benediktsdóttir Kristján Knútsson Ásta Benediktsdóttir Sigmar Arnar Steingrímsson Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, GUÐNÝ BERGRÓS JÓNASDÓTTIR fyrrum húsfreyja í Norður-Hvammi í Mýrdal, síðar Smáratúni 20, Selfossi, sem lést á Hjallatúni í Vík 8. júní sl. verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 16. júní kl. 11.00. Erla Eyþórsdóttir Brynjólfur Ámundason Gísli Sævar Hermannson Hólmfríður Sigurðardóttir Sjöfn Hermannsdóttir Jónas Smári Hermannsson Anna Droplaug Erlingsdóttir Hreiðar Hermannsson Ágústa Jónsdóttir Svanhvít Hermannsdóttir Almar Sigurðsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY SIGURÐARDÓTTIR Mýrarvegi 111, Akureyri, sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 8. júní, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. júní kl. 13.30. Elsa Jónasdóttir Sigursteinn Kristinsson Gylfi Jónasson Guðný Kr. Kristjánsdóttir Heiðdís Sigursteinsdóttir Jón Víkingur Árnason Hjördís Sigursteinsdóttir Brynjar Finnsson Jónas Leifur Sigursteinsson Ragnheiður I. Ragnarsdóttir Sævar Jóhann Sigursteinsson Sigurbjörg Þórey Ólafsdóttir Jóhannes Karl Sigursteinsson Harpa Þorsteinsdóttir Katrín Gylfadóttir Hjörtur Geirmundsson Kristján Rúnar Gylfason Helga Svava Arnarsdóttir Ómar Ingi Gylfason Aníta Einarsdóttir og langömmubörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓRUNN SIGRÍÐUR THORLACIUS Hjaltabakka 22, Reykjavík, lést á Dvalarheimilinu Grund mánudaginn 11. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Sigtryggsdóttir Ágúst Lárusson Arnkell Sigtryggsson Tina Nielsen Sigurbjörg Sigtryggsdóttir Brynjar Sigtryggsson Sigþóra O. Sigþórsdóttir Guðmundur Sigtryggsson Anna Magna Bragadóttir Guðrún Sigtryggsdóttir Guðmundur Guðlaugsson Elva Sigtryggsdóttir Þórður Björnsson Óðinn Sigtryggsson Tipsuda Param barnabörn og barnabarnabörn. PÉTUR GUNNARSSON rithöfundur á 65 ára afmæli í dag. „Við erum auðvitað öll samsett úr fortíðinni, fortíðin lifir í okkur.“ 65 Þennan dag árið 1926 lögðu dönsku konungshjónin hornstein að byggingu Landspítala Íslands. Það var að frum- kvæði reykvískra kvenna sem ráðist var í að reisa spítalann. Árið 1915 var frumvarp samþykkt á Alþingi sem veitti konum kjörgengi og kosningarétt til jafns við karla. Þessa merka atburðar í baráttusögu kvenna vildu konur minnast með því að hefja söfnun fyrir spítala í Reykjavík. Stofnaðir voru tveir sjóðir, annars vegar Minningargjafasjóður Landspítala Íslands, sem styrkja átti sjúklinga í fjárhags- vandræðum. Hins vegar Landspítala- sjóður Íslands, sem var byggingasjóður. Framlög úr honum áttu drjúgan þátt í að koma upp elstu byggingu Landspítalans, húð- og kynsjúkdómadeild og eldri hluta kvensjúkdómadeildar. Fimmtán árum eftir að byrjað var að safna fjármunum fyrir byggingu landspítala Í Reykjavík var fyrsti sjúklingurinn lagður inn á spítalann, þann 20. desember 1930. Heimild: Landspítali Íslands ÞETTA GERÐIST: 15. JÚNÍ 1926 Hornsteinn lagður að Landspítala „Ég var að vinna á framkvæmda- og veitusviðinu hér í Hveragerði fyrir fjórum árum. Þá sá ég meðal annars um umhverfið hérna í kringum gistiheim- ilið og var auðvitað búin að taka eftir því. Undanfarin tvö ár hef ég eingöngu unnið í pólitíkinni í Árborg, en mér fannst kominn tími til að minnka við mig þar. Þegar ég sá að Frost og funi var til sölu fannst mér liggja beint við að gera tilboð,” segir Elfa Dögg Þórð- ardóttir, bæjarfulltrúi á Selfossi og nýr eigandi gistiheimilisins Frosts og funa í Hveragerði. Frost og funi stendur innan um lif- andi hveri á rólegum og fallegum stað á bökkum Varmár. Elfa hefur miklar hug- myndir um möguleika gistiheimilisins, sem í framtíðinni verður hótel, fáist leyfi fyrir því. „Ég ætla mér mikið með þetta. Hér hef ég mjög flottan grunn sem byggir bæði á umhverfinu og list- inni. Hér eru listamannahús nefnd eftir ákveðnum listamönnum, þar sem verk þeirra hanga uppi. Mig langar að halda áfram með þetta, enda margir mjög hrifnir af þessu,” segir Elfa Dögg. Á meðal þeirra listamanna sem herbergi eru nefnd eftir í Frosti og funa eru Karl Kvaran, Georg Guðni, Óskar Magnús- son og fleiri. Unnendur vatns og heitra potta myndu líkast til una sér vel á gisti- heimilinu. „Hér eru náttúruleg gufu- böð, heitir pottar og sundlaug. Áin sem rennur hér fyrir neðan er líka oft heit. Ég sé fyrir mér að byggja í kringum ána og bjóða upp á einhvers konar leir- böð, en leirinn er mjög einkennandi fyrir þetta svæði,“ segir Elfa, sem er enn að taka fyrstu skrefin í breytinga- átt, enda ekki nema um hálfur mánuð- ur frá því eigendaskiptin gengu í gegn. Samfara breytingum á gistiheimilinu stefnir hún á aukna markaðssetningu, sem hún segir mikil tækifæri í, og jafn- vel stækkun í framhaldinu. Hún segir tækifærin vissulega mikil í síauknum straumi erlendra ferða- manna á sumrin, en hún líti ekki síður til Íslendinga og vetrarferðamennsku. Þar sem gistiheimilið sé skammt frá höfuðborgarsvæðinu henti staðsetn- ingin vel fyrir saumaklúbba eða aðra hópa sem vilja gera sér glaðan dag eða smærri fyrirtæki í hópefli eða funda- höldum, þar sem góð fundaraðstaða sé á staðnum. „Það er líka mikið af dags- gönguleiðum hér í kring og auðvitað veiði í ánni. Hingað koma líka oft pör og njóta þess að slaka á í pottunum og eiga góðar stundir saman,“ segir Elfa að lokum. holmfridur@frettabladid.is ELFA DÖGG ÞÓRÐARDÓTTIR: NÝR EIGANDI FROSTS OG FUNA Í HVERAGERÐI Ég ætla mér mikið með þetta VIÐ SUNDLAUGARBAKKANN Elfa Dögg Þórðardóttir er nýr eigandi gistiheimilisins Frosts og funa í Hveragerði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1219 Valdimar sigursæli Danakonungur leggur Eistland undir sig. 1752 Benjamin Franklin uppgötvar að elding er rafmagn. 1829 Kambsránsmenn eru dæmdir í hæstarétti og hljóta sex þeirra hýðingu (allt að 81 högg) en einn er dæmdur í ævilanga þrælkunarvinnu. 1926 Almannafriður á helgidögum þjóðkirkjunnar er lögfestur. 1952 Byggðasafn er opnað í Glaumbæ í Skagafirði. 1985 Á Bæ í Lóni er afhjúpaður minnisvarði um Úlfljót lög- sögumann, sem tók saman fyrstu lög íslenska þjóðveldisins. Merkisatburðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.