Fréttablaðið - 15.06.2012, Page 8

Fréttablaðið - 15.06.2012, Page 8
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR8 E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 9 2 6 Ergo vill aðstoða þig við að eignast farartæki Með því að lækka lántökugjöld um 50% vill Ergo auðvelda þér að taka lán fyrir farartækinu sem þig dreymir um. Á ergo.is finnur þú nánari upplýsingar um bílalán, græn lán og ferðavagnalán. Reiknaðu með Ergo. 50% lægri lántökugjöld* Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is *Tilboðið gildir til 15. júlí 1. Hvað tapaði SpKef miklum peningum á árunum 2008 til 1010? 2. Hversu margir hundar eru skráðir í Reykjavík? 3. Hvað heita stjórnendur Hrað- frétta, sem verða hluti af Kastljósi næsta vetur? SVÖR: 1. 50 milljörðum 2. 2.277 3. Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson BOÐSKAPUR FRIÐAR Dr. Mutlaq Elgarawi, aðstoðarráðherra í Kúveit, kom hingað til að kynna boðskap friðar. Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslíma, er hér í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TRÚMÁL „Eitt af okkar markmið- um er að svara þeirri spurningu hvernig við getum breytt hugar- fari múslíma til að haga sér með þeim hætti að það gefi góða og rétta mynd af íslam.“ Þetta segir Dr. Mutlaq Elg- arawi, aðstoðarráðherra í trú- málaráðuneyti Kúveit. Hann var staddur hér á landi í byrjun viku til að hitta trúbræður sína í Félagi múslíma á Íslandi en hann hitti jafnframt biskup Íslands og forsvarsmenn innanríkisráðu- neytisins á meðan dvöl hans stóð. Dr. Elgarawi er í forsvari fyrir átaki stjórnvalda í Kúveit til að leggja áherslu á hófsemi í iðkun íslams og að leysa ágreiningsmál milli ólíkra samfélagshópa með samræðum á grundvelli sameig- inlegra gilda og hófsemi. „Hófsemi þýðir gæska, umburðarlyndi, réttlæti, friður og ást. Allt þetta liggur að hinu sama. Við höfum borið þennan boðskap út til margra landa þar sem múslímar búa með öðrum hópum, bæði múslímum og öðrum. Okkar stefna er að virða þá sem eru annarrar skoðunar en við og vinna með þeim.“ Átakið hófst fyrir um fjórum til fimm árum þegar stjórnvöld í Kúveit horfðu upp á aukna rót- tækni í hópi unga fólksins þar í landi. „Við sáum að ekki gekk að taka á þessum málum með hörku og ákváðum þess í stað að ræða vandamálið við unga fólk- ið á grundvelli trúar og gilda. Við settumst niður með þeim og það gekk afar vel og út frá því ákváðum við að nota þessa aðferð víðar.“ Dr. Elgarawi segir verkefnið hafa gengið afar vel. Meðal ann- ars hafi hann nýlega hitt fólk í Tsjetsjeníu og Rússlandi, þar sem öfgahópar hafa fundið skoðun- um sínum frjóan jarðveg. Fyrir þeirra atbeina hafi verið reist miðstöð um hófsemi í Moskvu og í síðustu viku undirritaði Elg- arawi viljayfirlýsingu við forseta Tsjetsjeníu um að reyna að sætta stríðandi öfl með samræðum. Elgarawi sagði að ekki þyrfti að vera flókið að stilla til friðar og bæta heiminn. „Aðrir hópar eru líka manneskjur og frænd- ur okkar, afkomendur Adams og Evu. Í íslam eru góð gildi alveg eins og í kristni, gyðingdómi og búddisma. Við getum unnið saman í gegnum þessi grundvall- argildi. Ég virði trú annarra og býst við að þeir virði mína, en okkar sýn er sú að við getum öll unnið saman á grundvelli þes sem sameinar okkur.“ thorgils@frettabladid.is Þarf ekki að vera flókið að stilla til friðar Dr. Mutlaq Elgarawi, aðstoðarráðherra frá Kúveit, heimsótti á dögunum Félag múslíma á Íslandi og biskup Íslands. Hann er í forsvari stjórnvalda í Kúveit sem leggja áherslu á hófsemi í iðkun Íslam. NEYTENDUR Mikilvægt er að lán- takar með óverðtryggð húsnæðis- lán geti brugðist við sveiflum í greiðslubyrði. Þá skiptir máli fyrir lántaka með verðtryggð lán að kaupmáttur lántaka og raunverð íbúðahúsnæðis haldist nokkurn veginn í hendur á lánstímabilinu. Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi Íslandsbanka og VÍB, eignastýringarþjónustu bankans, um óverðtryggða og verðtryggða vexti húsnæðislána og sparnaðar. Á fundinum ræddi Jón Finn- bogason, aðstoðarframkvæmda- stjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, verðtryggð og óverðtryggð húsnæðislán. Benti hann á að verðtryggð húsnæðislán hafa þann kost að greiðslubyrði þeirra er hlut- fallslega létt í upphafi lánstím- ans sem getur hentað ákveðnum hópum, til dæmis ungu fólki. Þá er meiri stöðugleiki í greiðslubyrði en á móti þarf lántaki að sætta sig við hægari eignamyndun. Þá sagði hann enn fremur mikilvægt fyrir þá sem taka verðtryggð lán að kaupmáttur lántaka og raunverð íbúðahúsnæðis haldist nokkuð í hendur á lánstímabilinu. Þá sagði hann þá sem taka óverðtryggð húsnæðislán njóta mun hraðari eignamyndunar en þurfa á móti að sætta sig við þyngri greiðslubyrði í upphafi og mögulegar sveiflur í greiðslu- byrði. Lántakar með óverðtryggð lán þurfi því að geta brugðist við sveiflum í greiðslubyrði. Myndband af fundinum í gær er aðgengilegt á vefsíðu VÍB. - mþl Kostir og gallar verðtryggðra og óverðtryggðra húsnæðislána til umræðu hjá VÍB: Lántakar geti brugðist við sveiflum JÓN FINNBOGASON DANMÖRK Hæstiréttur Danmerkur hefur dæmt að rangt hafi verið að lækka bætur til 31 árs konu vegna læknamistaka á þeirri forsendu að hún ætti ekki langt eftir. Konan fékk brjóstakrabbamein en lækn- um yfirsást meinið sem dreifðist, samkvæmt fréttavef Politiken. Stofnunin sem úrskurðaði bætur til konunnar vegna mis- takanna, Patientskadenævnet, lækkaði þær um þriðjung vegna þess hversu stutt konan ætti eftir. Bætur til fleiri sjúklinga hafa verið lækkaðar af sömu ástæðu. Hæstiréttur í Danmörku: Ekki lægri bæt- ur til deyjandi VEISTU SVARIÐ? Ég virði trú annarra og býst við að þeir virði mína … DR. MUTLAQ ELGARAWI AÐSTOÐARRÁÐHERRA Í KÚVEIT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.