Fréttablaðið - 21.06.2012, Síða 26
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR BJÖRG EGGERTSDÓTTIR
Skjólvangi 6, Hafnarfirði,
sem lést 10. júní sl. verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju mánudaginn 25. júní kl. 13.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa.
Guðmundur Geir Jónsson
Jón Eggert Guðmundsson
Jóhannes Geir Guðmundsson Pamela Perez
Björgvin Guðmundsson
og barnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför ástkærs sonar míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SVAVARS KRISTJÓNSSONAR
Eikjuvogi 17, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk 13E á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir hlýhug
og góða umönnun.
Guðný Ásbjörnsdóttir
Guðný Svavarsdóttir Sveinn Óttar Gunnarsson
Jörundur Svavarsson Sif Matthíasdóttir
Erla Kristín Svavarsdóttir Sigríkur Smári Ragnarsson
Lilja Steinunn Svavarsdóttir Bjarni Jónsson
Auður Ólína Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTVEIG SKÚLADÓTTIR
Hlíðarvegi 45, Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 23. júní kl. 14.00.
Steinþóra Vilhelmsdóttir Atli Benediktsson
Ágúst Vilhelmsson Hildur M. Egilsdóttir
Jakobína Vilhelmsdóttir Ólafur Ólafsson
Auður Vilhelmsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
FINNBOGI REYNIR GUNNARSSON
Langeyrarvegi 20, Hafnarfirði,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 14. júní verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22. júní kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag
nýrnasjúkra, s. 561 9244 .
Þórdís Egilsdóttir
Gunnar Egill Finnbogason Halla Jónsdóttir
Málfríður Finnbogadóttir Jóhannes Tómasson
Reynir Þór Finnbogason Kristín Waage
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN INGIBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR
frá Fáskrúðsfirði,
Lækjasmára 6, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudag
13. júní. Jarðsett verður frá Digraneskirkju
föstudaginn 22. júní kl. 13.00.
Eggert Oddur Össurarson
Sigurður Þórir Eggertsson Ingileif Kristinsdóttir
Valdimar Eggertsson Ásta Sigurjónsdóttir
Guðbjörg Eggertsdóttir Ásmundur Karl Ólafsson
Ásdís Eggertsdóttir
Gunnar Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,
EIRÍKUR MUSSIMA
QUAN-BIRGISSON
fæddur 4. janúar 2003,
dáinn 16. júní 2012,
lést eftir stutt veikindi.
Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 26. júní
frá Keflavíkurkirkju, kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð
sem stofnaður hefur verið til minningar um Eirík, sem nýttur
verður til góðgerðarmála tengt barnastarfi Sameinuðu þjóðanna;
kt.: 120769-3679, banki: 0542-14-3679.
Birgir Guðbergsson Sike Quan
Jóna Kristín Birgisdóttir Jóhannes Stefánsson
Hjálmtýr Birgisson Tinna Rósantsdóttir
Gunnar Birgisson
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
ÓLAFÍA KRISTÍN HANNESDÓTTIR
sjúkraliði,
Drekavöllum 26, Hafnarfirði,
áður Bólstaðarhlíð 33, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 22. júní kl.15.00.
Auðlín Hanna Hannesdóttir Ólafur G. Vigfússon
Þosteinn Óli Hannesson Ágústa Guðmundsdóttir
og aðrir vandamenn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA HELGADÓTTIR (DIDDA)
Rjúpufelli 42,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 22. júní kl. 13.00. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á
slysavarnadeild kvenna í Reykjavík.
Árni Jón Konráðsson
Pálína Kristín Árnadóttir Guðbrandur Ingimundarson
Sigríður Árnadóttir Kristmar O. Höskuldsson
Ásta Árnadóttir Sigurjón Jónsson
Valgerður Árnadóttur Baldvin Skúlason
Konráð Árnason Svandís Ölversdóttir
Hafliði Ingibergur Árnason
Árni Árnason Lilja Björk Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, bróðir og mágur,
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON
húsgagnasmíðameistari,
Suðurhlíð 38C, Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut laugardaginn 16. júní, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
22. júní kl. 11.00.
Áslaug Emilía Jónsdóttir
Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir Örn Halldórsson
Sif Arnardóttir
Halldór Smári Arnarson
Kjartan Sigurjónsson Bergljót S. Sveinsdóttir
Sigurjón Bolli Sigurjónsson Jóhanna E. Vilhelmsdóttir
Bryndís Sigurjónsdóttir Guðmundur Þorgeirsson
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR SVEINSSON
tæknifræðingur, Hagaseli 32,
lést mánudaginn 18. júní á Landspítalanum.
Útför hans fer fram frá Seljakirkju miðviku-
daginn 27. júní kl. 13.00.
Ingibjörg Jónsdóttir
Hanna Ólafsdóttir
Guðríður Ólafsdóttir Ársæll Már Arnarsson
Freydís Sif Ólafsdóttir Árni Már Rúnarsson
Þórdís Jóna Ólafsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
SVERRIR GUÐMUNDUR HESTNES
Sundstræti 34, Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Ísafirði
þann 15. júní 2012. Útför fer fram frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 23. júní 2012
klukkan 14.00.
Guðmundína Þorláksdóttir Hestnes
og aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA S. GUÐRÖÐARDÓTTIR
Ögri,
lést á Kvennadeild Landspítalans 18. júní
síðastliðinn. Jarðarför auglýst síðar.
Halldór Halldórsson
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir
Leifur Halldórsson Steinunn Einarsdóttir
Hafliði Halldórsson Heiða Sigurbergsdóttir
Harpa Halldórsdóttir
Guðmundur Halldórsson Auður Marteinsdóttir
Halla María Halldórsdóttir Þórólfur Sveinn Sveinsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir minn og afi,
HINRIK AÐALSTEINSSON
áður til heimilis að Mýrarseli 3,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk að kvöldi
laugardagsins 16. júní. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju miðvikudaginn 27. júní
kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Klara Berta Hinriksdóttir
Róbert Arnar Sigurþórsson
Miðhraun 22 b, 210 Garðabæ, Sími 571 0400 granit@granit.is
„Þessi áfangi leggst vel í mig, en hann er líka svolítið fyndinn.
Einu sinni hélt ég að ég yrði einhvern tíma fullorðinn og
myndi þá alltaf taka réttar ákvarðanir, en núna er að renna
upp fyrir mér að það mun aldrei gerast. Ég verð aldrei þannig
fullorðinn. Þessi elli er í raun bara einhvers konar dulargervi
til að láta mann líta betur út,“ segir rithöfundurinn Huldar
Breiðfjörð sem er fertugur í dag.
Í tilefni tímamótanna ákvað Huldar að leggjast í ferðalög,
en slíkir áfangar hafa áður kallað á svipaðar æfingar hjá
skáldinu. „Þegar ég varð þrítugur var ég til dæmis staddur á
Kínamúrnum. Núna er ég nýkominn aftur í bæinn eftir hálfs-
mánaðarlangt ferðalag um landið. Ég ferðaðist um Vestfirði
og Norðurland og var í Hrísey í nokkra daga, þessari eyju sem
Hallgrímur Helgason hefur kallað sníp Íslands. Ég skil hann
mjög vel því það er unaðslegt að vera í Hrísey, þar sem engin
umferð er og tempóið hægt og þægilegt. Það eina sem gefur
vísbendingu um að tíminn líði í Hrísey er ferjan sem siglir
yfir fjörðinn á tveggja tíma fresti.“
Sjálfum afmælisdeginum eyðir Huldar í miðborg Reykja-
víkur og segist lítið hafa velt fyrir sér plönum varðandi hann.
„En svo er ég á leiðinni til útlanda. Ég ætla upp í Pýrenea-
fjöllin og flakka svo um Spán og Suður-Frakkland. Ég hlakka
til og er ánægður með að fagna fertugsafmælinu á þennan
hátt,” segir Huldar, sem vinnur þessa dagana að bók sem hann
hyggst gefa út haustið 2013, leikriti og kvikmyndahandriti.
„Ég er aðeins að sigla út úr því sem ég hef verið að gera í
síðustu bókunum mínum,” segir Huldar. kjartan@frettabladid.is
HULDAR BREIÐFJÖRÐ RITHÖFUNDUR: FAGNAR FERTUGSAFMÆLI SÍNU Í DAG
Þessi elli er bara dulargervi
FERTUGUR Huldar Breiðfjörð rithöfundur leggst í ferðalög í kringum
fertugsafmælið. Þannig finnst honum skemmtilegast að fagna slíkum
áföngum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MICHEL PLATINI, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka í knattspyrnu og formaður UEFA, á afmæli í dag.
„Suma leiki vinnur maður, sumum tapar maður og í sumum gerir maður jafntefli.“56
Lúvísa Sigurðardóttir