Fréttablaðið - 21.06.2012, Page 29

Fréttablaðið - 21.06.2012, Page 29
| FÓLK | 3TÍSKA Þórfríður Soffía Haraldsdóttir hefur haft margt fyrir stafni síðastliðin ár. Eftir menntaskóla nam hún myndlist í fornáminu í Myndlistarskól- anum í Reykjavík en sneri sér í kjöl- farið að hjúkrunarfræði. Í millitíðinni átti hún sitt fyrsta barn og nú eru þau orðin tvö. Það er því nóg að gera en hún lætur það ekki á sig fá og heldur ótrauð áfram. Henni er margt til lista lagt og hefur nú í rúm tvö ár framleitt hálsmen sem hún selur á Facebook-síðu sinni, Fresh Fringe Design. Þar getur fólk skoðað myndir af alls konar háls- menum og pantað sér það sem því líst best á. Hálsmenin hafa verið gríðarlega vinsæl og stundum svo að Þórfríði hefur þótt nóg um. „Já, ég hef oftar en einu sinni næstum verið hætt við þetta allt saman.“ ■ halla@365.is BÝR TIL KÖGURHÁLSMEN SITUR EKKI AUÐUM HÖNDUM Þórfríður Soffía Haraldsdóttir lætur ekki duga að vera tveggja barna móðir í fullu námi heldur framleiðir hálsmen eftir pöntun. FJÖLBREYTT Þórfríður reynir að framleiða aðeins fáein hálsmen af hverri gerð. Hálsmenin hafa verið svo vinsæl að Þórfríði hefur þótt nóg um. Hnefaleikakappinn Muhammad Ali er nýjasta andlit nýju Louis Vuitton-auglýsingaherferðarinnar „Core Values“ ásamt barnabarni sínu. Ali, sem er þrefaldur heimsmeistari í hnefaleikum, var myndaður af ljós mynd- aranum heimsfræga, Annie Leibovitz. Slagorð herferðarinnar er „Sumar stjörnur vísa þér veginn, Muhammad Ali og upprennandi stjarna.“ Yves Carcelle, stjórnarformaður Louis Vuitton, segir að Muhammad hafi verið fullkominn í auglýsinguna þar sem hann er lifandi goðsögn og góð fyrirmynd. Mu- hammad fetar í fótspor stórstjarnanna Angelinu Jolie, Keith Richards og Bono sem öll hafa setið fyrir í „Core Values“- herferð. Þær eiga að sýna alvöru fólk á stöðum sem skiptir það miklu máli. Tískuhúsið Louis Vuitton var stofnað árið 1854 af Frakkanum Louis Vuitton Malletier. Merkið er þekktast fyrir LV-munstrið sem er á flestum vörum fyrirtækisins. Fyrstu árin framleiddi LV aðeins ferðatöskur en á þeim tíma voru þetta framúrskarandi góðar töskur sem margir reyndu að gera eftirlíkingar af. Árið 1867 hóf Vuitton að berjast gegn eftirlíkingum á töskunum sínum og enn í dag er fyrirtækið í baráttu gegn eftirlík- ingum. Lögmannateymi og rannsóknar- menn vinna við að stöðva þessar eftirlík- ingar. Til að forðast eftirlíkingar hannaði Vuitton LV munstrið sem gerði síðar töskurnar eina af helstu tískuvöru heims. Frá upphafi hefur fyrirtækið markaðs- sett sig sem lúxusfyrirtæki og í ár var Louis Vuitton merkið verðmætasta lúxusmerkið sjöunda árið í röð. Fyrirtæk- ið sérhæfir sig í töskum úr leðri og eru þær enn handgerðar að mestu leyti. Það tekur um það bil 60 klukkustundir að gera eina stóra ferðatösku. Viðurinn sem notaður er í töskurnar er 30 ára gamall þurrkaður viður. Einkenni þeirra eru, eins og svo margir vita, gylltu LV-stafirnir á brúna bakgrunninum. Stærsta Louis Vuitton-búðin er stað- sett á frægustu verslunargötu heims, Champs Elysees í París, en sú búð var opnuð árið 1913 og er enn í dag tekjuhæsta búðin. Í dag eru Louis Vuitton-búðir um allan heim og stendur til að opna fyrstu flugvallarbúðina í Suður-Kóreu. Í dag er Marc Jacobs, fatahönnuðurinn frægi, listrænn stjórnandi og hefur þróað fyrirtækið upp á nýtt stig. Hann hannaði fyrstu skartgripalínuna ásamt fatalínu fyrir merkið og hefur Louis Vuitton aldrei gengið betur en í dag. ■ gunnhildur@365.is MUHAMMAD ALI NÝTT ANDLIT LOUIS VUITTON FLOTT FYRIRMYND Boxarinn Muhammad Ali var myndaður ásamt barna- barni sínu af Annie Leibovitz. ÆTTARSVIPUR Muhammad og barna- barn hans voru mynd- aðir á heimili hins fyrr- nefnda. Brúðkaups og útskriftarkjólar Ný sending 20% afsl. af öllum vörum Nýtt kortatímabil Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Ný sending af sumarkjólum Stærðir 40-56 HANNAR HÁLSMEN Þórfríður Soffía hannar hálsmen í tugatali og selur á Facebook.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.