Fréttablaðið - 21.06.2012, Qupperneq 40
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hæfileika, 6. kringum, 8. blundur,
9. gras, 11. íþróttafélag, 12. deyfa, 14.
einkennis, 16. vörumerki, 17. gagn,
18. auð, 20. eyrir, 21. ógæfa.
LÓÐRÉTT
1. uss, 3. málmur, 4. sýklalyf, 5. dýra-
hljóð, 7. planta, 10. óvild, 13. vöntun,
15. baklaf á flík, 16. arinn, 19. hef
leyfi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. um, 8. lúr, 9. sef,
11. kr, 12. slæva, 14. aðals, 16. ss, 17.
nyt, 18. tóm, 20. fé, 21. ólán.
LÓÐRÉTT: 1. suss, 3. ál, 4. fúkalyf, 5.
urr, 7. melasól, 10. fæð, 13. van, 15.
stél, 16. stó, 19. má.
Þeir eru búnir að
endursýna þetta í allan
dag! Þetta er Bjarni
sem rúllar yfir Obama
ekki satt? Hrædd-
ur um
það!
Það er sem betur
fer í lagi með bæði
Obama og Bjarna
en þeir líta málið
mjög alvarlegum
augum!
Slappaðu af!
Kanarnir hljóta
að skilja að þetta
er bara áttavilltur
hundur að
viðra sig!
Ég vona
það! Yes!
It´s my
dog!
Bjarni!
Donuts,
anyone?
Hversu mörg kíló
tekur vélin?
Hann er
búinn að vera
á fullu síðan
ég gaf honum
garnhnykil
þegar hann
var kettlingur.
Hvað ertu að hugsa
um, Hannes?
Að Batman sé svalasta
ofurhetjan, að allt
hlaup ætti að vera
rautt og hvers vegna
sófar smakkast öðru-
vísi en stólar…
…Allt á
sama tíma!
Jafnvel þegar þú hvílir þig
nærðu að þreyta mig.
Hvenær ætlarðu svo að skrifa alvöru bók?“ voru algengustu viðbrögðin sem
ég fékk þegar fyrsta unglingabókin mín
birtist í hillum verslana fyrir nokkrum
árum. Ég gerði mér grein fyrir að ég hafði
valið mér ranga hillu. Ég hefði átt að velja
þá sem kennd er við fegurð; skrifa James
Joyce-íska hugflæðið sem kom eitt sinn
til mín í draumi um einbúa á eyðibýli sem
tekur ástfóstri við þúfu en deyr svo í snjó-
flóði. Halló tilnefning til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna!
TÖLUVERT hefur verið rætt um lestur ís-
lenskra barna í kjölfar greinar Bryn hildar
Þórarinsdóttur, rithöfundar og dósents við
Háskólann á Akureyri, í nýjasta hefti Tíma-
rits Máls og menningar. Greinin sem ætti
best heima í hrollvekjuhillu bóka verslana
er sláandi lesning: Íslensk börn lesa æ
minna sér til skemmtunar; lesskilningur
þeirra minnkar; þau lesa minna en börn
gera að meðaltali í Evrópu.
EN ÞEGAR bóklestur barna á
Íslandi fer hnignandi stendur grein
barna- og unglingabókmennta hins
vegar með miklum blóma víða
erlendis. Svo mikil er gróskan
til að mynda á hinu enska mál-
svæði að þar hefur orðið til ný
bókmenntagrein. Í bókabúðum
í Bretlandi og Bandaríkjunum
spretta nú upp nýjar hillur merkt-
ar YA. Um er að ræða epískar
„ dystópíur“ og drungaleg ævintýri fyrir
„Young Adults“. Það eru hins vegar ekki
aðeins unglingarnir sem rífa bækurnar í
sig heldur virðast foreldrarnir einnig undir
álögum þeirra. Íslenskir lesendur hafa
getað notið einstaka titils greinarinnar á
hinu ástkæra ylhýra. Má þar nefna bóka-
bálkinn Hungurleikana eftir Suzanne
Collins sem hefur notið vinsælda í íslenskri
þýðingu. Nýverið hlaut önnur bók Hungur-
leikanna lofsamlegan dóm í Fréttatímanum
en í gagnrýninni víkur Páll Baldvin Bald-
vinsson einmitt orðum að umræddu ung-
lingabókaæði: „Kjósi forráðamenn að halda
bókum að ungum lesendum er tækifærið
núna. Fárið er rétt að komast á skrið hér og
því ekki að nýta sér það?“
AUÐVITAÐ ætti að nýta það. Til þess að
svo megi verða þarf þó að yfirstíga eina
stærstu hindrun sem barna- og unglinga-
bókmenntir standa frammi fyrir á Íslandi:
Viðhorfið. Hér á landi þykja barnabækur
ekki alvörubókmenntir. Íslensku bók-
menntaverðlaunin eru ekki veitt í flokki
barna- og unglingabókmennta. Barnabóka-
höfundar þurfa að láta sér nægja mylsnuna
sem hrýtur af borðum meintra meistara
þegar kemur að úthlutun listamannalauna.
Hvernig er hægt að ætlast til að ungir
lesendur taki bókmenntirnar sem þeim
stendur til boða alvarlega ef hinir fullorðnu
gera það ekki? Erum við búin að gleyma
málshættinum það læra börnin sem fyrir
þeim er haft?
Mylsnan af borðum meistaranna