Fréttablaðið - 21.06.2012, Blaðsíða 44
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR32 32
menning@frettabladid.is
MINJASAFN REYKJAVÍKUR býður gestum og gangandi til sögugöngu í kvöld klukkan 20. Lagt verður
upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Gengið verður um miðborgina og athygli göngumanna vakin á
skrautlegum húsum. Allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis.
Mexíkóski rithöfundurinn
Carlos Fuentes lést í maí,
83 ára að aldri. Fuentes var
einn virtasti rit höfundur
Rómönsku-Ameríku og
þekktur bæði fyrir skáld-
sögur og ritgerðir um stjórn-
mál og menningu. Hjónin
Kristín Guðrún Jónsdóttir
og Jón Thoroddsen fara yfir
feril Fuentes.
Söknuðurinn kom á óvart. Það
var ekki fyrr en við andlátsfregn
Carlosar Fuentes að við gerðum
okkur grein fyrir því hversu
miklu máli rödd hans hafði skipt
okkur. Hvað okkur þótti í raun
vænt um hann. Já, okkur var
brugðið. Dauða hans bar brátt að,
hann hafði ekki verið alvarlega
veikur og því kom fréttin eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Samt
var hann orðinn 83 ára gamall og
við slíku að búast. En hann var
sívinnandi fram í andlátið; sama
dag og hann lést birtist grein
eftir hann í dagblaðinu Reforma
um forsetakosningarnar í Frakk-
landi.
Aðalsprautan í „búmm“
Fuentes fæddist árið 1928 og
var einn helsti rithöfundur sem
Mexíkó hefur alið. Hann nam
lögfræði en krókurinn beygðist
snemma í átt að ritstörfum.
Fyrsta verk hans var smásagna-
safnið Los días enmascara-
dos, sem kom út 1954, en hann
er þekktastur fyrir skáldsögur
sínar, sem eru ótrúlega marg-
breytilegar, og ritgerðir um
menningu, listir og stjórnmál.
Einnig hefur hann samið leikrit,
kvikmyndahandrit og vinsæla
sjónvarpsþætti um sögu Spánar
og Rómönsku-Ameríku og listir í
Mexíkó.
Fyrsta skáldsaga hans kom
út 1958 þegar hann var 29 ára
gamall; það var tímamóta verkið
La región más transparente:
margradda mynd af Mexíkóborg
sjötta áratugarins, með sterka
tilvísun í forsögu og framtíð
landsins. Segja má að við útkomu
bókarinnar hafi margir rithöf-
undar álfunnar vaknað af dvala.
Eftir Fuentes liggja hátt í sextíu
verk, má þar nefna skáldsögurnar
La muerte de Artemio Cruz og
Terra nostra.
Við þetta má bæta að Fuentes
var aðalsprautan í samfélagi rit-
höfunda frá þessum heimshluta
þegar þeir urðu áberandi á heims-
vísu á sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar og eru kenndir við
hið svonefnda „búmm“.
Fuentes bjó víða í æsku, en
faðir hans starfaði í utanríkis-
þjónustunni. Hann dvaldi á ung-
dómsárum sínum m.a. í Argent-
ínu, Ekvador, Úrúgvæ, Brasilíu
og Síle ásamt Bandaríkjunum.
Aftur á móti var hann á sumrin
í Mexíkó og hélt með því móti
tengslum við land sitt. Þegar
hann var 15 ára gamall flutti
hann alfarið til heimalandsins.
Þessi ár utan landsins hjálpuðu
honum að horfa á heimaland sitt
úr fjarlægð og með gagnrýnum
augum.
Skoðaði allt
með gagnrýnu hugarfari
Margir hafa bent á hversu víðtæk
menntun og áhugamál Fuentesar
voru og tíðum er orðið endurreisn-
armaður notað í því sambandi.
Ekkert virtist honum óviðkom-
andi. Að því leyti var hann ekki
ólíkur landa sínum, Nóbelskáld-
inu Octavio Paz. Fuentes var legið
á hálsi fyrir að reyna að koma öllu
fyrir í verkum sínum,
og má kannski segja að
það hafi komið niður
á listbrögðum hans.
En fyrir öðrum eykur
þetta á lífsþorstann sem
bækur hans vekja með
lesendum. Þessi mikla
þekking gerir Fuentes
kleift að hjálpa lesand-
anum að velta fyrir sér
nánast öllum mögulegum
sjónarhornum viðfangs-
efnisins. Oftar en ekki
spilar hann með minnið
og minningarnar með
þeim alvarlega undir-
tóni að sá sem ekki lítur
til fortíðar kveður upp
dauðadóm yfir fram-
tíðinni.
Hann var oft orðaður
við Nóbelsverð launin
og hefði verið vel að
þeim kominn en kannski
réði einhverju þar um
að landi hans Paz hlaut
þau árið 1990. Aftur
á móti hlaut Fuentes
mörg önnur virt bók-
menntaverðlaun svo
hann fór ekki slyppur frá viður-
kenningunum. Undir lok síðustu
aldar urðu vinslit milli þessara
tveggja skáldjöfra vegna póli-
tískra skoðana. Paz þótti sem
Fuentes væri fastur í úreltum
vinstri hugmyndum. En vera má
að dómur sögunnar reynist mál-
stað Fuentes hliðhollur þegar
hugað er að lýðræðinu. Ef lýðræði
á að vera heilbrigt verður það að
búa við átök andstæðra skoðana
og hagsmuna. Vinstri hugmyndir
hans voru alltaf hluti af samræðu
en ekki endanlegar og lokaðar. Á
endanum urðu stjórnmálaskoð-
anir Paz full einhæfar og ekki í
takt við lýðræðisþróun í landinu.
Fuentes var í mun að allir jaðar-
hópar fengju rödd sína viður-
kennda í samfélaginu. Nægir þar
að nefna Zapatistana og hreyf-
ingu þeirra. Þetta sama hugarfar
gerði að verkum að Fuentes var
bæði stuðningsmaður og gagn-
rýnandi kúbönsku byltingarinnar.
Það var ekki til neitt svart-hvítt í
hans huga; allt varð að skoða með
sama gagnrýna hugarfarinu frá
mismunandi sjónarhornum.
Eins og minnst var á hér að
ofan er höfundarverk hans ótrú-
lega metnaðarfullt. Skáldsögur
hans eru ekki aðeins margradda,
heldur takast á í þeim margir
tímar og margar leiðir
til að skynja tímann
og ólík söguskeið.
Hann vekur lesandann
sífellt til umhugsunar
með spurningum sem
hafa ekki einhlítt svar
en varða þó líf okkar
mannanna. En það er
sama hversu flókið við-
fangsefni hans er, það
verður aldrei þvælið í
meðförum hans. Þarna
hjálpar til hversu skýr
í hugsun Fuentes var.
Stundum bar mælgin
hann kannski ofurliði
vegna þess að hann kom
ekki hugmyndum sínum
fyrir í lifandi persónu-
sköpun. Þetta verður
ef til vill að skrifast á
stöðugar stíltilraunir
hans.
Skýr hugsun og skáld-
leg sýn
Þegar mikill listamaður
og hugsuður eins og
Fuentes er kvaddur er
orðið þakklæti efst í
huga. Hann hélt lesendum sínum
á jörðinni með því að hefja sig
hvað eftir annað upp yfir hana.
Hann stillti okkur upp gagn-
vart spurningunni hvernig við
upp lifum samtímann. Erum
við fórnarlömb óviðráðanlegra
aðstæðna eða náum við að skynja
okkur sem hluta í stóru heildar-
samhengi þar sem tilfinningum
og persónu er gefin hlutdeild
í atburðum? Þessu nær mikill
skáldskapur, sérstaklega þegar
saman fer skýr hugsun og skáld-
leg sýn. Hann gerði heiminn sem
við lifum í persónulegan og skáld-
legan og hjálpaði okkur að móta
afstöðu gagnvart honum.
Fuentes þótti einkar glæsi-
legur maður. Síðastliðið haust
sátum við að kvöldverði með
landa hans, ljóðskáldinu Alberto
Blanco, sem var hér gestur á bók-
menntahátíð, og hann sagði sögur
af persónulegum samskiptum
við ýmsa listamenn Mexíkó. Ein-
hverju sinni var Blanco staddur
í New York skömmu fyrir jól
Þetta sama
hugarfar gerði
að verkum að
Fuentes var
bæði stuðn-
ingsmaður og
gagnrýnandi
kúbönsku
byltingarinnar.
Það var ekki
til neitt svart-
hvítt í hans
huga; allt varð
að skoða með
sama gagnrýna
hugarfarinu frá
mismunandi
sjónarhornum.
CARLOS FUENTES
KVADDUR
CARLOS FUENTES „Skáldsögur hans eru ekki aðeins margradda, heldur takast á í þeim margir
ólík söguskeið. Hann vekur lesandann sífellt til umhugsunar með spurningum sem hafa ekki e