Fréttablaðið - 21.06.2012, Side 45
FIMMTUDAGUR 21. júní 2012 33
tímar og margar leiðir til að skynja tímann og
einhlítt svar en varða þó líf okkar mannanna.”
ásamt Patriciu Revah konu sinni.
Hann var ánægður yfir því
að geta horfið í mannhaf stór-
borgarinnar, að verða að engu,
þurfa ekki að svara fyrir neitt.
En þar sem þau hjón eru á gangi
í jólaösinni eftir einu breiðstræt-
inu sjá þau hvar birtist skyndi-
lega út úr einni versluninni
maður klæddur skósíðum loð-
feldi, hlaðinn pinklum. Eitthvað
könnuðust þau við hann: þetta
var landi þeirra, enginn annar
en vinur þeirra Carlos Fuentes.
Fuentes nemur staðar þegar hann
sér hið hógværa skáld Alberto
ásamt Patriciu og öll verða þau
vandræðaleg um stund, en þau
hjón ákveða að láta sem ekkert
sé og halda áfram göngu sinni.
En þá kallar Fuentes eftir þeim
stundarhátt: „Nú munt þú yrkja
ljóðið It Was on Fifth Avenue.“
Ekki er því að neita að Fuentes
hafði vissulega húmor fyrir eigin
hégómaskap. Leikaraeðlið var
honum samgróið og það hjálpaði
honum í hvers konar opinberum
viðburðum. Þeir sem komu fram
með honum segja að hann hafi þó
aldrei skyggt á aðra heldur veitti
þeim hlutdeild í því andrúmslofti
sem hann töfraði fram. Þetta
örlæti við aðra kom einnig fram
í því að hann tók verk yngri rit-
höfunda alvarlega og greiddi götu
þeirra.
Fuentes kvæntist eftirlifandi
konu sinni, blaðakonunni Silviu
Lemus, eftir að hann skildi við
fyrri konu sína, leikkonuna Ritu
Macedo, en með henni átti hann
dótturina Celiu sem lifir föður
sinn. Fuentes eignaðist tvö börn
með Silviu, Carlos (f. 1973) og
Natöshu (f. 1976), sem létust langt
fyrir aldur fram, eða þegar þau
voru 25 og 30 ára. Skáldið hefur
lítið tjáð sig um harmrænan dauð-
daga barna sinna en hefur til-
einkað þeim mörg verka sinna.
Eftir jarðarför hans í Mexíkóborg
þann 16. maí, þar sem borgarar
gátu vottað honum virðingu sína,
var Fuentes brenndur og aska
hans flutt til Parísar þar sem
börn þeirra hjóna hvíla.
Heimurinn hefur misst mikið
með þessum gáfaða mannvini.
Kristín Guðrún Jónsdóttir er
greinarformaður í spænsku,
Deild erlendra tungumála við
Háskóla Íslands. Jón Thoroddsen
kennir heimspeki í Laugalækjar-
skóla.
Leita styrkja fyrir sýningarferð
„Við nennum ekki að sitja heima og bora í
nefið,“ segir leiklistarneminn Dagur Snær
Sævarsson, eða Daily Snow líkt og hann er
kallaður erlendis, sem ferðast um landið í
sumar með frumsaminn einleik ásamt Magn-
úsi Þór Ólafssyni gítarleikara. Dagur nemur
leiklist við leiklistarskólann í Holberg og
Magnús er á kandídatsári við Konunglega
danska Konservatoríið. Leikritið ber heitið
Pabbi er dáinn og er fyrsta leikritun Dags.
Verkið segir frá 26 ára gömlum Kára sem
vitjar leiðis föður síns, mánuði eftir andlát
hans, til að tala við hann eftir tuttugu ára
aðskilnað.
„Hér er litla vinnu að fá og þetta var
hið eina sem kom til greina,“ segir Dagur
um ástæðu hringferðarinnar. „Við viljum
kynna okkar vinnu fyrir Íslendingum og
safna í leiðinni peningum fyrir áframhald-
andi námi.“ Stefna þeir á að sýna á fimmtán
stöðum víðs vegar um landið á tímabilinu
14. júlí til 8. ágúst og er ókeypis inn á flestar
sýningar. Að leggja upp í slíka sýningar-
ferð er kostnaðarsamt. „Við höfum leitað að
styrkjum hjá sjóðum og fyrirtækjum en því
miður eru ekki mörg fyrirtæki spennt fyrir
því að styrkja óþekkta nema,“ segir Dagur,
sem leitar því til almennings við fjáröflunina.
„Ef 700 manns styrkja okkur um þúsund
krónur verður ferðin möguleg.“
Listnemarnir munu yfir sumarið setja
þætti á veraldarvefinn þar sem fylgjast má
með framleiðslunni, æfingum, og svo loks
hringferðinni sjálfri. - hþt
FYRSTA LEIKVERK Dagur túlkar og skrifar leikritið
Pabbi er dáinn, sem hann vonast til að sýna á fimm-
tán stöðum um landið.