Fréttablaðið - 21.06.2012, Page 62
21. júní 2012 FIMMTUDAGUR50
SUMARFRÍIÐ
Íslenskir og erlendir ferðalangar geta núna
tekið þátt í ævintýralegri „fjársjóðsleit“ hér á
landi tengdri kvikmyndum. Geochase er vin-
sæl alþjóðleg „fjársjóðsleit“ eða ratleikur sem
styðst við GPS-tækni. Leikurinn gengur út á
að hver sem er getur falið „fjársjóðsbox“ hvar
sem er í heiminum í gegnum síðuna Geochas-
ing.com.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Eysteinn Guðni
Guðnason hefur komið fyrir fjórtán kvik-
myndaboxum víðs vegar um Ísland. „Þemað
var að fela þetta á frægustu tökustöðunum.
Þetta eru bæði víðförlir staðir og líka úr leið,“
segir Eysteinn Guðni. Um er að ræða tökustaði
mynda á borð við Batman Begins, Prometheus,
Flags of Our Fathers og Die Another Day sem
voru allar teknar upp að hluta til hér á landi,
auk mynda eins og Börn náttúrunnar, Pappírs
Pési og Nói albínói. „Þetta er mjög skemmti-
leg leið til að fara á staði sem maður fer annars
ekki á,“ segir hann. „Þetta eru líka staðir sem
maður fer kannski oft á án þess að vita að þar
voru teknar upp frægar bíómyndir.“
Í boxunum sem hann útbjó eru gestabók,
útprentaðar ljósmyndir úr kvikmyndunum og
minjagripir. „Þetta vekur athygli á íslenskri
kvikmyndasögu og nú þegar eru margir útlend-
ingar byrjaðir að taka þátt í leiknum.“
Þátttakendum er bent á að fara inn á síðuna
Kvikmyndir.is/geotrail til að hefja leikinn. Á
Kvikmyndir.is er einnig hægt að finna töku-
staði íslenskra og erlendra kvikmynda hér á
landi með aðstoð Google Maps, eins og Frétta-
blaðið hefur áður greint frá. - fb
Felur „fjársjóði“ á tökustöðum
Á TÖKUSTAÐ Eysteinn Guðni Guðnason með eitt
boxanna sem hann faldi á tökustað Batman Begins á
Svínafellsjökli.
„Ég er svolítið stressuð en aðallega
bara rosalega spennt,“ segir hin
18 ára gamla Tara Þöll Danielsen
Imsland sem mun keppa fyrir hönd
Íslands í European Song Competi-
tion á Írlandi dagana 27. - 29. júní.
European Song Competition
er alþjóðleg söngvakeppni fyrir
fólk með þroskahömlun og er
þetta í fyrsta skipti sem Ísland
tekur þátt. Keppnin fer fram í
Cork borg á Írlandi og eru um
20 þátttakendur víðs vegar að úr
Evrópu sem mæta til leiks. Tara
Þöll hefur aldrei æft söng en seg-
ist þó hafa sungið mikið í gegnum
tíðina. „Ég hef oft tekið þátt í alls
kyns söngvakeppnum í skólanum
og Hinu húsinu, en aldrei í neinni
jafn stórri og þessari,“ segir hún.
Tara mun syngja lagið Bad Rom-
ance með Lady Gaga við undirspil
sinfóníuhljómsveitar og verður án
efa glæsileg á sviði íklædd kjól
frá Arfleið. „Hún Ágústa í Arfleið
gaf mér kjólinn sem hún hannaði
sérstaklega handa mér. Hann er
alveg í mínum stíl og meðal annars
gerður úr hreindýraleðri og fiski-
roði,“ segir Tara.
Það er Hitt húsið og List án
landamæra sem standa fyrir þátt-
töku Íslands í keppninni í ár. Haldin
var forkeppni síðasta haust þar sem
Tara Þöll fór með sigur af hólmi og
var í kjölfarið valin til þátttöku af
aðstandendum keppninnar úti, en
ekki komust allir þar að sem sóttu
um. Hún segir undirbúninginn hafa
verið mikinn undanfarna daga, en
sjálf heldur hún utan þann 21. júní
í nokkurra daga frí með foreldrum
sínum áður en hún hittir hópinn í
Cork.
Keppnin er hálfgert ígildi Euro-
vision-söngvakeppninnar nema
fyrir þroskaskerta og segist Tara
vera mikill Eurovision-aðdáandi.
„Ég hef fylgst vel með Eurovisi-
on síðan árið 2000 og á mér mörg
uppáhalds lög,“ segir hún. Greta
Salóme og Friðrik Ómar, Eurovisi-
onfarar með meiru, hafa hitt Töru
Þöll á æfingum og lagt sitt af mörk-
um til að hjálpa henni að undirbúa
sig undir það sem koma skal. „Ég
er mjög þakklát Gretu og Friðriki
fyrir að gefa sér tíma til að hjálpa
mér. Mér finnst Greta alveg frá-
bær og finnst hún og allur hópur-
inn hafa staðið sig rosalega vel í
Eurovision í ár,“ segir Tara Þöll að
lokum. tinnaros@frettabladid.is
TARA ÞÖLL DANÍELSDÓTTIR: ALDREI TEKIÐ ÞÁTT Í JAFN STÓRRI KEPPNI
Greta og Friðrik Ómar
hjálpa til við undirbúning
MIÐLA ÞEKKINGU SINNI Eurovision-fararnir Greta Salóme og Friðrik Ómar hittu Töru Þöll og miðluðu reynslu sinni og þekkingu til
hennar til að hjálpa henni að undirbúa sig fyrir keppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Það var verið að auglýsa eftir
listamönnum til að taka þátt í sýn-
ingunni og ég ákvað að senda inn
nokkrar myndir. Almenningur kaus
svo um það hverjir kæmust áfram
og ég náði þeim kvóta sem til þurfti
og fékk því að vera með,“ út skýrir
Björn Árnason ljósmyndari en
myndir eftir hann voru sýndar á
Times Square í New York á mánu-
dag.
Að sýningunni stóðu samtökin
Artists Wanted sem vinna að því
að koma á samböndum milli lista-
manna og alþjóðlegra áhorfenda.
Mikill fjöldi listamanna sendi
inn verk og voru nokkur
þúsund valin til sýningar
að lokinni vinsældakosn-
ingu. Myndunum var
síðan varpað á fjölda skjáa
sem búið var að koma fyrir
á hinu fræga Times torgi
í miðborg New York.
Inntur eftir því
hvort hann telji að
þátttaka sín í sýningunni muni skila
honum frægð og frama segist Björn
óviss um það. „Ég veit ekki hvort
sýningin sjálf muni gera nokkuð
fyrir mig, það er frekar að fólkið
sem skoðaði myndirnar á Netinu
og gaf mér atkvæði sitt muni skila
mér einhverju. Mig langar að halda
áfram að reyna að byggja upp sam-
bönd og vekja athygli á verkum
mínum úti,“ segir Björn sem lauk
námi við Ljósmyndaskólann í vor.
Hann hefur stundað ljósmyndun
undanfarin sjö ár og hyggst gefa út
sína fyrstu ljósmyndabók á næstu
misserum.
„Lokaverkefni mitt frá Ljós-
myndaskólanum var að mynda
Reykjanesið og ég ætla að halda
áfram með það núna og stefni
svo á að gefa út bók með verk-
unum,“ segir hann að lokum.
Áhugasömum er bent
á heimasíðu Björns
www.bjornarnason.
com. - sm
Myndirnar á á Times Square
Á TIMES SQUARE Ein myndanna eftir
Björn Árnason sem sýndar voru á Times
Square í New York á mánudag.
MYND/BJÖRN ÁRNASON
BJÖRN ÁRNASON
BYLGJULESTIN Í SUMAR
Á laugardaginn verður
Ævintýraeyjan með Hemma
Gunn og Svansí á Bylgjunni.
Boðið verður upp á frábær
tónlistaratriði og uppákomur
fyrir alla fjölskylduna.
Vertu með Bylgjunni og Olís
um helgina.
ÆVINTÝRAEYJAN MEÐ
HEMMA GUNN OG SVANSÍ
BYLGJULESTIN verður á ferð
og flugi út um allt land í sumar.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Á FERÐINNI
UM LANDIÐMAGNÚS OG JÓHANN
ÞÓRUNN ANTON
ÍA
DÚNDURF
RÉ
TT
IR
VIÐ VERÐUM
Í HVERAGERÐI
UM HELGINA
á Garðyrkju- og
blómasýningunni
Blóm í bæ
9. JÚNÍ Selfoss
16. JÚNÍ Hafnarfjörður
23. JÚNÍ Hveragerði
30. JÚNÍ Bolungarvík
7. JÚLÍ Vestmannaeyjar
14. JÚLÍ Flúðir
21. JÚLÍ Blönduós
28. JÚLÍ Siglufjörður og
Fáskrúðsfjörður
11. ÁGÚST Dalvík
18. ÁGÚST Reykjavík
„Við erum að fara fjölskyldan
í íbúðaskipti til Barcelona.
Þetta er í fyrsta skipti sem við
heimsækjum borgina og það er
mikil stemning fyrir þessu.“
Valur Freyr Einarsson, leikari og leikskáld.