Fréttablaðið - 10.08.2012, Page 8

Fréttablaðið - 10.08.2012, Page 8
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR8 Stjórnmálamenn í ýmsum flokkum hafa átt óform- leg samtöl sín á milli um mögulegt stjórnarsamstarf á næsta kjörtímabili. Evr- ópumál eru vinstri grænum erfið og það hvort Jóhanna verður áfram formaður mun ráða miklu um kúrs Samfylkingar. Kosið verður til Alþingis í vor og stjórnmálamenn í öllum flokkum eru farnir að velta möguleikum á stjórnarsamstarfi fyrir sér. Ljóst er að vilji forystumanna Vinstri grænna og Samfylkingar stendur til áframhaldandi sam- starfs. Skoðanakannanir benda hins vegar ekki til þess að meiri- hluti fáist til þess. Einstakir flokksmenn hafa því átt í við- ræðum við félaga sína í öðrum flokkum. Ýmislegt hefur gengið á í stjórnarsamstarfinu og margoft hefur stjórnin virst komin að því að springa. Formenn flokk- anna, Jóhanna Sigurðardótt- ir og Steingrímur J. Sigfússon, hafa hins vegar náð vel saman og sameinast um að halda sam- starfinu til streitu. Ekki hafa þó allir flokksmenn jafn einbeittan vilja til þess. Hvað gerir Jóhanna? Það skiptir því miklu um mögu- legt framhald á samstarfi flokk- anna hvort Jóhanna Sigurðar- dóttir gegnir áfram formennsku í Samfylkingunni eður ei. Enn er óvíst hvað Jóhanna ætlar sér, en kosið verður til formanns á landsfundi í febrúar. Skemmst er að minnast þess að níu félagsmenn Samfylk- ingarinnar lögðu fram tillögu í janúar um að landsfundinum yrði flýtt. Sögðu þeir mikilvægt að skipta um forystu vel fyrir næstu kosningar, en flutnings- menn enduðu á því að draga til- löguna til baka. Þá sagði Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra í ára- mótablaði Viðskiptablaðsins að nauðsynlegt væri að skipta um forystu í flokknum fyrir kosn- ingar. Þau sem helst hafa verið nefnd til sögunnar sem arftak- ar Jóhönnu eru Árni Páll Árna- son og Katrín Júlíusdóttir. Óvíst er hvort þau bjóði sig fram gegn Jóhönnu, ákveði hún að gefa áfram kost á sér. Viðræður við Sjálfstæðisflokk Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að nokkrir innan Sam- fylkingarinnar hafi átt í óform- legum viðræðum við flokksmenn Sjálfstæðisflokksins um mögu- legt samstarf á næsta kjörtíma- bili. Ljóst er að slíkt samstarf yrði Jóhönnu lítt að skapi. Sjálfstæðismenn eru Sam- fylkingunni hins vegar enn reiðir, eftir ákæru á hendur Geir H. Haarde. Ólíklegt er að sú reiði hamli stjórnarsam- starfi, en líklega er samstarf við Framsóknar flokkinn alltaf fyrsta val Sjálfstæðismanna. Flokkurinn telur hins vegar mjög mikilvægt að komast í ríkis stjórn. Þá má ekki gleyma því að sam- setning Alþingis gæti breyst umtalsvert eftir kosningar með nýjum framboðum, þó reyndar blási ekki byrlega fyrir þeim samkvæmt skoðanakönnunum. Evrópumálin erfið Þingflokkur vinstri grænna hefur breyst töluvert frá síð- ustu kosningum, þegar flokkur- inn fékk 21,7 prósent atkvæða, bætti við sig 7,3 prósentustigum og fimm þingmönnum. Þrír hafa yfirgefið flokkinn og einn gengið til liðs við hann. Í flokknum hafa lengi logað ill- deilur. Margir flokksmenn hafa tekið því illa að þurfa að gefa eftir gagnvart samstarfsflokkn- um í ákveðnum málum. Þar ber Evrópumálin hæst á góma. Þeirri skoðun vex fiskur um hrygg innan Vinstri græns að draga beri aðildarumsókn að ESB til baka. Trauðla mun Sam- fylkingin samþykkja það og áframhaldandi samstarf flokk- anna gæti ráðist á því hve langt ferlið verður komið fyrir næstu kosningar. Það eru kannski óþarfa áhyggj- ur hjá flokksmönnum, þar sem fylgi ríkisstjórnarinnar hefur minnkað umtalsvert. Framsókn í viðræðum Fréttablaðið hefur einnig heim- ildir fyrir því að einstaka þing- menn og áhrifamenn Framsókn- arflokksins hafi átt í óformlegum viðræðum við þingmenn annarra flokka, bæði til hægri og vinstri. Um mjög óformlegar viðræður er að ræða og heimildarmönnum blaðsins er til efs að formaður flokksins sé alltaf hafður með í ráðum. Það þýði þó ekki að hann sé mótfallinn viðræðunum. Framsóknarflokkurinn gæti komist í lykilstöðu að loknum næstu kosningum, líkt og svo oft áður, og valið sér samstarfs- aðila. Gera verður að því skóna að afstaða til Evrópumála ráði nokkru þar um, en andstaða flokksins gagnvart ESB hefur farið harðnandi. Útkoma nýju framboðanna getur einnig haft úrslitaáhrif á það hvernig ríkisstjórn tekur við völdum. Ljóst má vera að næstu mánuðir munu einkenn- ast af kosningaskjálfta þar sem ýmsir verða mátaðir saman í ríkisstjórn. FRÉTTASKÝRING: Pólitíkin Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is FISLÉTT ÚR FARSÍMA EÐA SPJALDTÖLVU MEÐ EINFALDRI STROKU BEINT Á SJÓNVARPSSKJÁINN ideas for life WWW.SM.IS Þreifingar hafnar um stjórnarmyndun ALÞINGISKOSNINGAR Á ýmsu hefur gengið síðan í síðustu Alþingiskosningum og hefur Ólafur Ragnar Grímsson forseti fimm sinnum setið fyrir á mynd með ríkisráði vegna breytinga á ráðherrum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Félagið SF1 slhf. sem er í eigu lífeyrissjóða og annarra fag- fjárfesta hefur nýtt sér kauprétt á 20,6 prósenta eignarhluta Eigna- safns Seðlabankans (ESÍ) í Sjóvá. SF1 eignaðist meirihluta í félaginu á síðasta ári þegar það keypti 52,4 prósenta hlut af ESÍ en þá var einnig samið um kaup- réttinn sem nú hefur verið nýtt- ur. Eftir kaupin á SF1 samtals 73 prósent eignarhlut í Sjóvá. Aðrir eigendur eru Íslandsbanki með 9,3 prósenta hlut og SAT eignar- haldsfélag með 17,6 prósenta hlut en SAT er óbeint í eigu Glitnis. SF1 greiðir um 2,5 milljarða króna fyrir nýja hlutinn sem er um 25 prósentum hærra verð á hlut en félagið greiddi þegar það keypti í félaginu í fyrra. Heildar- kaupverðið á 73 prósent hlutnum er því um 7,4 milljarðar. Eignarhlut Seðlabankans í Sjóvá má rekja til 11,6 milljarða fjár- framlags ríkisins til Sjóvár árið 2009. Framlagið var veitt til að tryggingarekstur félagsins gæti haldið áfram eftir áfallið sem félagið varð fyrir í bankahruninu. Eins og sjá má af kaupverði SF1 er tap hins opinbera vegna fjárfram- lagsins nokkurt. Sjóvá er vátryggingafélag með ríflega 28 prósenta markaðshlut- deild og sjötíu þúsund viðskipta- vini. Stefnt er að því að skrá Sjóvá á hlutabréfamarkað á seinni hluta næsta árs. Stærstu eigendur SF1 eru Gildi lífeyrissjóður, SVN eignafélag sem er í eigu Síldarvinnsl unnar hf., fagfjárfestasjóðurinn SÍA I sem er undir stjórn rekstrar- félagsins Stefnis, Frjálsi lífeyris- sjóðurinn, LSR, Stapi lífeyrissjóð- ur og fagfjárfestasjóðurinn ÍS-5. - mþl Félagið SF1 hefur eignast 73 prósent í Sjóvá: SF1 kaupir afgangs- hlut Seðlabankans SJÓVÁ Ríkið lagði í Sjóvá 11,6 milljarða króna til að tryggingafélagið gæti haldið áfram rekstri eftir bankahrunið. Eignarhlutur hins opinbera hefur nú verið seldur. MYND/E.ÓL milljarðar króna er verðið sem SF1 greiðir fyrir hlutinn nú en það er fjórð- ungi hærra en verð á hlut sem félagið greiddi fyrir hlut í Sjóvá í fyrra. 2,5

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.