Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 8
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR8
Stjórnmálamenn í ýmsum
flokkum hafa átt óform-
leg samtöl sín á milli um
mögulegt stjórnarsamstarf
á næsta kjörtímabili. Evr-
ópumál eru vinstri grænum
erfið og það hvort Jóhanna
verður áfram formaður
mun ráða miklu um kúrs
Samfylkingar.
Kosið verður til Alþingis í vor og
stjórnmálamenn í öllum flokkum
eru farnir að velta möguleikum
á stjórnarsamstarfi fyrir sér.
Ljóst er að vilji forystumanna
Vinstri grænna og Samfylkingar
stendur til áframhaldandi sam-
starfs. Skoðanakannanir benda
hins vegar ekki til þess að meiri-
hluti fáist til þess. Einstakir
flokksmenn hafa því átt í við-
ræðum við félaga sína í öðrum
flokkum.
Ýmislegt hefur gengið á í
stjórnarsamstarfinu og margoft
hefur stjórnin virst komin að
því að springa. Formenn flokk-
anna, Jóhanna Sigurðardótt-
ir og Steingrímur J. Sigfússon,
hafa hins vegar náð vel saman
og sameinast um að halda sam-
starfinu til streitu. Ekki hafa þó
allir flokksmenn jafn einbeittan
vilja til þess.
Hvað gerir Jóhanna?
Það skiptir því miklu um mögu-
legt framhald á samstarfi flokk-
anna hvort Jóhanna Sigurðar-
dóttir gegnir áfram formennsku
í Samfylkingunni eður ei. Enn
er óvíst hvað Jóhanna ætlar sér,
en kosið verður til formanns á
landsfundi í febrúar.
Skemmst er að minnast þess
að níu félagsmenn Samfylk-
ingarinnar lögðu fram tillögu
í janúar um að landsfundinum
yrði flýtt. Sögðu þeir mikilvægt
að skipta um forystu vel fyrir
næstu kosningar, en flutnings-
menn enduðu á því að draga til-
löguna til baka.
Þá sagði Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra í ára-
mótablaði Viðskiptablaðsins að
nauðsynlegt væri að skipta um
forystu í flokknum fyrir kosn-
ingar.
Þau sem helst hafa verið
nefnd til sögunnar sem arftak-
ar Jóhönnu eru Árni Páll Árna-
son og Katrín Júlíusdóttir. Óvíst
er hvort þau bjóði sig fram gegn
Jóhönnu, ákveði hún að gefa
áfram kost á sér.
Viðræður við Sjálfstæðisflokk
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að nokkrir innan Sam-
fylkingarinnar hafi átt í óform-
legum viðræðum við flokksmenn
Sjálfstæðisflokksins um mögu-
legt samstarf á næsta kjörtíma-
bili. Ljóst er að slíkt samstarf
yrði Jóhönnu lítt að skapi.
Sjálfstæðismenn eru Sam-
fylkingunni hins vegar enn
reiðir, eftir ákæru á hendur
Geir H. Haarde. Ólíklegt er
að sú reiði hamli stjórnarsam-
starfi, en líklega er samstarf
við Framsóknar flokkinn alltaf
fyrsta val Sjálfstæðismanna.
Flokkurinn telur hins vegar
mjög mikilvægt að komast í
ríkis stjórn.
Þá má ekki gleyma því að sam-
setning Alþingis gæti breyst
umtalsvert eftir kosningar með
nýjum framboðum, þó reyndar
blási ekki byrlega fyrir þeim
samkvæmt skoðanakönnunum.
Evrópumálin erfið
Þingflokkur vinstri grænna
hefur breyst töluvert frá síð-
ustu kosningum, þegar flokkur-
inn fékk 21,7 prósent atkvæða,
bætti við sig 7,3 prósentustigum
og fimm þingmönnum. Þrír hafa
yfirgefið flokkinn og einn gengið
til liðs við hann.
Í flokknum hafa lengi logað ill-
deilur. Margir flokksmenn hafa
tekið því illa að þurfa að gefa
eftir gagnvart samstarfsflokkn-
um í ákveðnum málum. Þar ber
Evrópumálin hæst á góma.
Þeirri skoðun vex fiskur um
hrygg innan Vinstri græns að
draga beri aðildarumsókn að
ESB til baka. Trauðla mun Sam-
fylkingin samþykkja það og
áframhaldandi samstarf flokk-
anna gæti ráðist á því hve langt
ferlið verður komið fyrir næstu
kosningar.
Það eru kannski óþarfa áhyggj-
ur hjá flokksmönnum, þar sem
fylgi ríkisstjórnarinnar hefur
minnkað umtalsvert.
Framsókn í viðræðum
Fréttablaðið hefur einnig heim-
ildir fyrir því að einstaka þing-
menn og áhrifamenn Framsókn-
arflokksins hafi átt í óformlegum
viðræðum við þingmenn annarra
flokka, bæði til hægri og vinstri.
Um mjög óformlegar viðræður
er að ræða og heimildarmönnum
blaðsins er til efs að formaður
flokksins sé alltaf hafður með í
ráðum. Það þýði þó ekki að hann
sé mótfallinn viðræðunum.
Framsóknarflokkurinn gæti
komist í lykilstöðu að loknum
næstu kosningum, líkt og svo
oft áður, og valið sér samstarfs-
aðila. Gera verður að því skóna
að afstaða til Evrópumála ráði
nokkru þar um, en andstaða
flokksins gagnvart ESB hefur
farið harðnandi.
Útkoma nýju framboðanna
getur einnig haft úrslitaáhrif
á það hvernig ríkisstjórn tekur
við völdum. Ljóst má vera að
næstu mánuðir munu einkenn-
ast af kosningaskjálfta þar sem
ýmsir verða mátaðir saman í
ríkisstjórn.
FRÉTTASKÝRING: Pólitíkin
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
FISLÉTT ÚR FARSÍMA
EÐA SPJALDTÖLVU
MEÐ EINFALDRI
STROKU BEINT Á
SJÓNVARPSSKJÁINN
ideas for life
WWW.SM.IS
Þreifingar hafnar um stjórnarmyndun
ALÞINGISKOSNINGAR Á ýmsu hefur gengið síðan í síðustu Alþingiskosningum og
hefur Ólafur Ragnar Grímsson forseti fimm sinnum setið fyrir á mynd með ríkisráði
vegna breytinga á ráðherrum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Félagið SF1 slhf. sem er í
eigu lífeyrissjóða og annarra fag-
fjárfesta hefur nýtt sér kauprétt á
20,6 prósenta eignarhluta Eigna-
safns Seðlabankans (ESÍ) í Sjóvá.
SF1 eignaðist meirihluta í
félaginu á síðasta ári þegar það
keypti 52,4 prósenta hlut af ESÍ
en þá var einnig samið um kaup-
réttinn sem nú hefur verið nýtt-
ur. Eftir kaupin á SF1 samtals 73
prósent eignarhlut í Sjóvá. Aðrir
eigendur eru Íslandsbanki með
9,3 prósenta hlut og SAT eignar-
haldsfélag með 17,6 prósenta hlut
en SAT er óbeint í eigu Glitnis.
SF1 greiðir um 2,5 milljarða
króna fyrir nýja hlutinn sem er
um 25 prósentum hærra verð á
hlut en félagið greiddi þegar það
keypti í félaginu í fyrra. Heildar-
kaupverðið á 73 prósent hlutnum
er því um 7,4 milljarðar.
Eignarhlut Seðlabankans í Sjóvá
má rekja til 11,6 milljarða fjár-
framlags ríkisins til Sjóvár árið
2009. Framlagið var veitt til að
tryggingarekstur félagsins gæti
haldið áfram eftir áfallið sem
félagið varð fyrir í bankahruninu.
Eins og sjá má af kaupverði SF1 er
tap hins opinbera vegna fjárfram-
lagsins nokkurt.
Sjóvá er vátryggingafélag með
ríflega 28 prósenta markaðshlut-
deild og sjötíu þúsund viðskipta-
vini. Stefnt er að því að skrá Sjóvá
á hlutabréfamarkað á seinni hluta
næsta árs.
Stærstu eigendur SF1 eru Gildi
lífeyrissjóður, SVN eignafélag
sem er í eigu Síldarvinnsl unnar
hf., fagfjárfestasjóðurinn SÍA
I sem er undir stjórn rekstrar-
félagsins Stefnis, Frjálsi lífeyris-
sjóðurinn, LSR, Stapi lífeyrissjóð-
ur og fagfjárfestasjóðurinn ÍS-5.
- mþl
Félagið SF1 hefur eignast 73 prósent í Sjóvá:
SF1 kaupir afgangs-
hlut Seðlabankans
SJÓVÁ Ríkið lagði í Sjóvá 11,6 milljarða króna til að tryggingafélagið gæti haldið áfram
rekstri eftir bankahrunið. Eignarhlutur hins opinbera hefur nú verið seldur. MYND/E.ÓL
milljarðar króna
er verðið sem
SF1 greiðir fyrir
hlutinn nú en það er fjórð-
ungi hærra en verð á hlut
sem félagið greiddi fyrir hlut í
Sjóvá í fyrra.
2,5