Fréttablaðið - 10.08.2012, Page 30
8 • LÍFIÐ 10. ÁGÚST 2012
týndur og hún kærði sig ekkert um
að leita að honum eða sýna þær
myndir. Ári síðar barst talið aftur
að myndakassanum og Hrafnhild-
ur færðist undan og vildi lítið tala
um kassann.
Daginn eftir var bankað heima
hjá mér, ég fór til dyra og viti menn
þar stóð Hrafnhildur glottandi með
myndakassann og sagði ,„Hér er
kassinn og ég treysti þér.“ Ég varð
svo glöð að ég hljóp inn og náði í
símann minn til taka mynd af þessu
„momenti“, ég bara varð að festa
þetta á filmu. Ég var afar þakk-
lát fyrir traustið sem hún sýndi mér
og við fórum í gegnum myndirnar
og allar þær erfiðu minningar sem
þeim fylgdi.
Voru einhverjar sérstakar hindranir á
veginum við gerð myndarinnar? Það
kom mér á óvart þegar ég hóf fjár-
mögnun myndarinnar fyrir fjórum
árum hversu mörg fyrirtæki vildu
ekki tengjast myndinni því hún væri
um transfólk – það gæti skaðað
ímynd fyrirtækisins. Mér krossbrá
því fyrir mér var þetta mannrétt-
indamál og stuðningur við hóp sem
hafði ekki notið réttinda í kerfinu.
Það kom mér líka á óvart hversu
erfitt var að fá fagfólk í viðtöl fyrst
um sinn. Heilbrigðisstarfsmenn
voru hræddir, ég upplifði þessa um-
ræðu sem mikið „tabú“ þegar ég
byrjaði. Umræðan hefur hins vegar
breyst gríðarlega á síðasta ári sem
er gleðilegt.
Var Hrafnhildur aldrei hrædd við að
opinbera þetta ferðalag sitt? Hrafn-
hildur var óviss frá upphafi hvort
það væri rétt fyrir hana að opinbera
ferðalag sitt með þessum hætti.
Þegar ég spurði hana fyrst hvort ég
mætti fylgja henni eftir í gegnum
ferlið sagði hún nei. Þegar við svo
ræddum um tilgang myndarinnar
skipti hún um skoðun.
Hún vildi segja sögu sína til að
hjálpa öðrum.
Hvernig leið henni er hún horfði á
myndina? Hrafnhildur sá mynd-
ina fyrst á frumsýningunni! Ótrú-
legt en satt. Þegar ég var búin að
grófklippa myndina bauð ég henni
að horfa á hana en þá fannst henni
hún ekki tilbúin að sjá hana. Svo
leið tíminn og hún ætlaði alltaf að
sjá myndina þegar hún væri næst-
um fullunnin.
Hún treysti sér hins vegar aldrei
til þess og að lokum ákvað hún að
horfa bara á hana á frumsýning-
unni.
Hvaða þýðingu hefur þessi mynd
fyrir transfólk á Íslandi yfir höfðuð?
Ég held að myndin hafi mikla þýð-
ingu. Það hefur lítið verið rætt um
málefni transfólks undanfarin ár, að
undanskildu þessu ári. Réttinda-
barátta transfólks er rétt að hefjast
hér á landi og nú í júní tóku gildi
lög um réttindi þess.
Eigum við mögulega von á fleiri
heimildarmyndum eftir þig? Já, ég
er nú þegar byrjuð á nýrri mynd
en það kemur í ljós síðar um hvað
hún er.
Haustið á RÚV– munum við halda
áfram að sjá þig á skjánum þar?
Þessa dagana er ég að klára upp-
tökur á Ísþjóðinni sem eru þættir
um ungt afreksfólk.
Ég er einmitt á leiðinni á
Ólympíu leikana til þess að fylgja
maraþonhlauparanum Kára Steini
Karlssyni eftir en hann verður einn
af viðmælendum Ísþjóðarinnar í ár.
Hefur gengið vel að sameina fjöl-
skyldulífið og óreglulegan vinnu-
tíma í kringum sjónvarpsstarfið og
heimildarmyndina? Það er auðvitað
stundum erfitt að sameina þetta
allt en það gengur með góðum
manni.
Eitthvað að lokum? „Að þora er að
missa fótanna um stund, að þora
ekki er að tapa sér að eilífu,“ lífs-
speki úr dagbók Hrafnhildar sem
hefur fylgt mér síðan við kynnt-
umst.
UPPÁHALDS
HREYFINGIN Hlaup og hitt og þetta
MATUR Nautasteik
VEITINGASTAÐUR Hereford
HVAÐA SNYRTIVÖRUR NOTAR ÞÚ DAGLEGA Harmony kinnalit
frá Mac og maskara frá Estée Lauder
HÖNNUÐUR Enginn sérstakur
TÍMARIT Vogue
SJÓNVARPSÞÁTTUR Allir þættir Stephen Fry.
FRAMHALD AF SÍÐU 7
www.ils.is | Sími: 569 6900 | Grænt númer: 800 6969 | Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Lán til íbúðarkaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa
Ráðgjöf og úrræði í greiðsluvanda
MYND/ELENA LITSOVA