Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 39
FÖSTUDAGUR 10. ágúst 2012 23
Meðlimir pönksveitarinnar Fræbbblarnir munu koma saman og troða
upp á opnun málverkasýningar Guðrúnar Benediktu Elíasdóttur á Kex-
inu í kvöld. Nokkrir meðlimir sveitarinnar eru í matarklúbbi ásamt Guð-
rúnu sem kallaður er Goutons Voir.
„Maðurinn minn var með þeim í menntaskóla og við höfum verið
saman í matarklúbb frá áttatíu og eitthvað,“ segir Guðrún Benedikta og
bætir við: „Þetta byrjaði reyndar sem víngerðarklúbbur, sem útskýrir
nafnið Goutons Voir, en svo hefur þetta þróast út í matarklúbb með árun-
um.“ Guðrún Benedikta segist ekki vera vön að hafa tónlistaratriði eða
aðrar uppákomur á sýningum sínum en að þetta hafi verið sameiginleg
hugdetta hennar og meðlima Fræbbblanna. Það var þó ekki einfalt starf
að samræma dagskrá Kexins, hljómsveitarmeðlimanna og hennar. „Nei,
það tók margar vikur að finna hentuga dagsetningu enda þurfti að sam-
ræma dagskrána á Kexinu, heila hljómsveit í sumarfríi og mig.“
Guðrún Benedikta mun sýna átta stór verk í Gym og Tonic-sal Kexins
en fjögur verkanna voru áður til sýnis á hinni virtu Cal-sýningu í Lúxem-
borg, þar sem Guðrún hefur verið búsett síðustu sjö ár.
Sýningin opnar klukkan 22 í kvöld og stendur til 16. ágúst. - sm
Fræbbblarnir rokka á málverkasýningu
PÖNK Á OPNUN Listakonan Guðrún Benedikta Elíasdóttir opnar listasýningu á Kexinu í
kvöld. Pönksveitin Fræbbblarnir mun stíga á stokk í tilefni þess. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Ben Affleck er í samræðum við
Warner Bros um að leikstýra
nýrri ofurhetjumynd um The
Justice League. Þessu heldur vef-
síðan Empireonline.com fram.
Affleck er enginn nýgræðingur
þegar kemur að ofurhetjum því
hann lék sem kunnugt er orðið
Daredevil fyrir rúmum áratug
síðan. Hann ætti því að vera
öllum hnútum kunnugur ef að
því kæmi að hann tæki að sér að
leikstýra ofurhetju-
mynd Warner Bros.
Affleck leikstýrði
síðast spennu-
myndinni The
Town og myndin
Argo, sem hann
leikstýrir
einnig, er
væntan-
leg innan
skamms.
Leikstýrir
ofurhetjum
LEIKSTÝRIR
Ben Affleck
gæti leikstýrt
nýrri ofur-
hetjumynd
Warner Bros.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Jennifer Aniston og Justin Ther-
oux gætu verið hætt saman ef
marka má nýjustu fréttir. Parið
hefur ekki sést saman í þó nokk-
urn tíma og velta nú slúðurmiðlar
þar vestra því fyrir sér hvort þau
séu hætt saman.
Hollywood Life telur að parið
sé vissulega hætt saman og að
ástæðan hafi verið það hversu
tregur Theroux er til að bind-
ast Aniston. Tímaritið heldur
því einnig fram að parið hafi
snætt saman þann 11. júlí og
tekið þá ákvörðun að enda sam-
band sitt. „Máltíðin stóð ekki
lengi og þau yfirgáfu staðinn í
skyndi og gengu út hvort í sínu
lagi. Þegar þau komu í bílinn
sátu þau hvort í sínum endan-
um og Jennifer faldi andlit sitt í
höndunum,“ hafði tímaritið eftir
sjónarvotti. Annað tímarit hefur
eftir heimildarmanni sínum að
Aniston hafi heimtað hjónaband
og þegar kærastinn tók því fálega
ákvað hún að slíta sambandinu.
Hætt saman
ERFIÐLEIKAR? Slúðurmiðlar vilja meina
að Jennifer Aniston og Justin Theroux
séu hætt saman. NORDICPHOTOS/GETTY