Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 44
10. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR28
lifsstill@frettabladid.is
KYNLÍF Ég fór í bíó í vikunni og sá
mynd sem snerti við hjartanu í mér.
Myndin var einlæg frásögn ungrar
konu, Hrafnhildar, sem vildi fá
tækifæri til að vera hún sjálf. Ætli
það sé ekki markmið okkar flestra
en setja mætti spurningarmerki við
hversu margir raunverulega ná því.
Stúlka þessi var fædd í röngum lík-
ama og fæddist því með karlkyns
kynfæri og hormóna eftir því. Í
gegnum allan sinn uppvöxt upplifði
hún sig í röngum líkama og bar það
leyndarmál ein. Þessi sálar- og lík-
amsflækja var henni þungur baggi
og er manni gersamlega ómögu-
legt að setja sig í hennar spor og
reyna að skilja hversu erfitt þetta
hefur verið. Þó snertir einlæg frá-
sögn hennar við manni og gott ef
eitt lítið tár fær ekki að trítla niður
kinnina. Hún er nefnilega þannig
manneskja að mann langar bara að
knúsa hana, kjafta um lífið og til-
veruna og hvetja til dáða.
Ég upplifi alltof oft að fólk hengi
allt sitt trúarlega kerfi á kyn. Þú átt
að hegða þér á ákveðinn hátt, hafa
ákveðin áhugamál, laðast að gagn-
stæðu kyni og ekki vera með neitt
vesen. Ekki vera frávik, það er svo
óþægilegt fyrir kassalagaðan hugs-
anahátt. Það er stundum líkt og
persónuleg breyting, lítil eða stór,
storki öðru fólki. Það tekur upplif-
un annarra persónulega og bregst
ókvæða við. Kannski erum við bara
hrædd við breytingar og það sem
við þekkjum ekki. Þess vegna er
þessi mynd mikilvæg. Svo þú getir
skilið betur hvað sá sem gengur í
gegnum kynleiðréttingu upplifir,
svo þú getir séð manneskjuna sem
einstakling óháð líffræðilegu kyni.
Kyn, kynfæri, staðalímyndir og
kynhneigð eiga ekki að vera þættir
sem stýra því hvernig okkur þykir
einstaklingur vera eða eiga að vera.
Við eigum að geta horft lengra og
tekið fólki eins og það er, þó það sé
ólíkt okkur sjálfum.
Ég hvet þig til að fara í bíó með
fólki sem þér þykir vænt um, börn-
um og eldri borgurum, og fagna því
að einstaklingur hafi hugrekki og
þor til að vera hin besta útgáfa af
sjálfri sér. Þó það sé öðruvísi eða
óalgengt eða jafnvel sumum þyki
það skrýtið. Kannski verður þetta
þér hvatning til að gera eitthvað í
þínum málum eða styðja þína nán-
ustu til að vera eins og þeir eru.
Fögnum fjölbreytileikanum og fólki
sem sigrast á erfiðleikum, um það
snýst þetta líf!
Að hugsa út fyrir kassann
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
PRÓSENT af árstekjum hönnuðarins Michaels Kors koma af sölu fylgihluta. Þetta er einnig tilfellið hjá öðrum hönn-
uðum og tískuhúsum eftir að harðna tók í ári. Konur eyða heldur fjármunum í góða skó eða tösku en í dýrar flíkur.75
HEILSA Heiðarleiki hefur jákvæð
áhrif á andlega og líkamlega
líðan fólks. Rannsókn sem
kynnt var á ráðstefnu American
Psychological Association leiddi
þetta í ljós.
„Bandaríkjamenn ljúga að
meðaltali um ellefu sinnum á
viku og við vildum komast að
því hvort heiðarleiki hefði bein
áhrif á heilsu fólks,“ sagði Anita
E. Kelly, sálfræðiprófessor við
Notre Dame-háskólann
Alls tóku um 110 manns á aldr-
inum 18 til 71 árs þátt í rannsókn-
inni. Helmingnum var ætlað að
hætta að ljúga í tíu vikur á meðan
hinn helmingurinn átti ekki að
breyta neinu hvað viðkom lygum
og ýkjum. Vikulega tóku þátttak-
endur lygapróf til að komast að
því hvað þeir höfðu logið oft á síð-
ustu dögum og voru einnig látn-
ir gangast undir heilsufars próf.
Bein tenging þótti vera milli
færri lyga og betri heilsu.
Hreinskilni er góð
EKKI LJÚGA Færri lygar bæta heilsu fólks
og sambönd þeirra einnig.
NORDICPHOTOS/GETTY
Rakel Húnfjörð lét draum-
inn rætast nú í júlí og opn-
aði umhverfisvænu lífs-
stílsverslunina Radísu í
gömlu húsi í Hafnarfirði.
HÖNNUN „Það eru til nokkr-
ar lífsstílsverslanir hérlendis
en engin sem er eingöngu með
umhverfisvæna hluti, svo Rad-
ísa er alveg ein sinnar tegundar,“
segir Rakel Húnfjörð sem opnaði
verslunina Radísu í Hafnarfirði
í júlí.
Radísa er umhverfisvæn lífs-
stíls- og heilsuverslun með fjöl-
breytt úrval vara, allt frá barna-
vörum og fatnaði í snyrtivörur,
skrautmuni og nytjavörur. „Þetta
er svona ekta konubúð, þó karlar
séu að sjálfsögðu hjartanlega vel-
komnir líka,“ segir Rakel og hlær.
Allar vörur verslunarinnar eru
umhverfisvænar og mikið til end-
urunnar, endurvinnanlegar eða
handgerðar og stór hluti þeirra er
með Fair Trade sanngirnisvottun.
„Með opnun Radísu er ég að láta
langþráðan draum rætast. Ég er
búin að vera mjög áhugasöm um
allt svona náttúrulegt og heilsu-
tengt frá því að miðjusonur minn,
sem nú er 14 ára, fæddist. Hann
fékk mikið í eyrun þegar hann
var lítill svo ég ákvað að prófa
að breyta mataræðinu heima
fyrir og þá fór boltinn að rúlla,“
segir Rakel sem fór í kjölfarið í
svokallað Naturopathic nutrition
nám í Englandi þar sem hún lærði
meira um þennan heim.
Hún segir lífræna lífsstílinn
vera orðinn að ástríðu hjá sér og
hún hafi rosalega gaman af því að
miðla reynslu sinni og þekkingu
til annarra.
„Þetta er svo æðislegur og
æskilegur lífstíll og með honum
finnst mér ég vera að leggja pínu-
lítið á vogarskálina í átt að betri
heimi. Þessi ástríða blundar alltaf
í mér og ég losna ekkert við hana
þó ég myndi vilja, sem ég geri
samt ekki,“ bætir hún við og hlær.
Rakel stendur sjálf á bak við búð-
arborðið í Radísu svo viðskipta-
vinir geta notað tækifærið og
fengið alls kyns ráðleggingar og
álit hjá henni á meðan þeir versla.
Radísa er til húsa í litlu gömlu
húsi að Strandgötu 17 í Hafnar-
firði og er opin alla virka daga frá
klukkan 12 til 18 og frá 10 til 14
á laugardögum. „Þetta er alveg
mega krúttleg búð. Hún er bara
um tuttugu fermetrar sem er
mjög passlegt fyrir svona versl-
un. Hún er eiginlega bara alveg
fullkomin,“ segir Rakel að lokum.
tinnaros@frettabladid.is
LÍFRÆN LÍFSSTÍLSVERSLUN
LÍFRÆN ÁSTRÍÐA Rakel hefur lengi haft áhuga á öllu náttúrulegu og heilsutengdu og
segir opnun verslunarinnar vera langþráðan draum að rætast hjá sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í versluninni Radísu eru til sölu Fair
Trade-sanngirnisvottaðar vörur.
Margir þekkja hugtakið án þess þó
að vita fyrir hvað það stendur.
Í stuttu máli er Fair Trade leið til
að berjast gegn fátækt í heiminum
og stuðla að auknum mannrétt-
indum. Vörur sem bera merkið eru
unnar af vinnufólki sem fær sann-
gjörn laun fyrir vinnu sína, eru ekki
unnar af börnum í þrældómi, eru líf-
rænt ræktaðar og stuðla að jafnrétti.
Með kaupum á vöru merktri Fair
Trade er alþjóðleg barátta bænda
og framleiðanda um sanngjörn laun
fyrir vöru þeirra studd. Smábændur
í þriðja heims ríkjum eiga til að
mynda oft erfitt með að fóta sig á
heimsmarkaði þar sem oft er milli-
liður að viðskiptunum sem eigna
sér hagnaðinn. Fair Trade samningur
útilokar þessa milliliði.
Fair Trade Labelling Organizations
International (FLO) er alþjóðlegur
úttektaraðili merkisins sem er veitt
með leyfi frá The International
Fairtrade Organization, alþjóðlegum
samtökum sann-
girnisvottunar.
Úttekt fer fram
árlega og
jafnvel oftar ef
þörf er á.
HVAÐ ER FAIR TRADE?
FAIR TRADE
Allar Fair
Trade-vott-
aðar vörur
bera þetta
merki.
Breidd: 187 cm
Dýpt: 95 cm
Heilsudýna:
140x200 cm
Frá vegg: 240 cm
Senseo 2ja sæta svefnsófi
ÁGÚST-TILBOÐ Kr. 329.600,-
Verð áður 412.000,-
TILBOÐSDAGAR Í ÁGÚST
ÁTTU VON Á GESTUM?
268 cm, Dýpt: 95 cm
Tunga: 163 cm
Frá vegg: 240 cm
Heilsudýna: 1 40x200 cm
Senseo tungusófi
ÁGÚST-TILBOÐ Kr. 446.250,-
Verð áður 595.000,-
25%
afsláttur
í ágúst
RAGNHILDUR STEINUNN OG HRAFN-
HILDUR. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR