Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 1

Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Föstudagur skoðun 18 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Lífið veðrið í dag 17. ágúst 2012 192. tölublað 12. árgangur PLÖNTUR Í FÓSTURMæðgurnar Elsa Pétursdóttir og Rakel Steinarsdóttir bjóða fólki að koma með plöntur eða tré úr garðinum sínum og setja í fóstur í Mæðragarðinum í Lækjargötu milli 14 og 17 á menningarnótt. Mæðragarðurinn er á milli Miðbæjarskóla og MR. M atreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson sér um þáttinn Eldað með Holta á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þar matreiðir hann skemmtilega og litríka rétti úr Holta-kjúklingi frá Reykjagarði. Á föstu-dögum birtast þessar uppskriftir hér á forsíðu Fólks. Í dag er Kristján með uppskrift að hvítlauksmarineruðum kjúklingabringum ásamt kirsuberja-tómötum á spjóti, graslaukssósu og nýuppteknum íslenskum kartöflum. Hægt er að fylgjast með Kristjáni matreiða þennan girnilega rétt í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þættirnir eru endursýndir yfir helgina en einnig er hægt að horfa á þá á hei- masíðu ÍNN, www.inntv.is. ELDAÐ MEÐ HOLTAHOLTA KYNNIR Sjónvarpskokkurinn Kristján Hlöðversson í þáttunum Eldað með Holta á ÍNN gefur kjúklingauppskriftir alla föstudaga. Hér er hann með hvítlauksmarineraðar kjúklingabringur, graslaukssósu og grillaðar kartöflur. MARINERING OG K Ú HVÍTLAUKSMARINERAÐAR HOLTA BRINGUR MEÐ GRASLAUKSSÓSU OG GRILLUÐUM ÍSLE TILBOÐSDAGAR 15-30% AFSLÁTTURAF BLOMBERG HEIMILISTÆKJUMOfnar, helluborð, uppþvottavélar, kæliskápar og fleiri heimilistæki frá Blomberg á frábærum tilboðsverðum. Blomberg BEO9444X BÖKUNAROFN Áður 109.990 Nú 89.990 Blomberg GUN3200X UPPÞVOTTAVÉL / STÁL Blomberg MIN54306NSPANHELLUBORÐ Áður 99.990 Nú 79.990 Blomberg WNF7462A20ÞVOTTAVÉL 7kg / 1600sn Áður 119 990 Nokkur verðdæmi 17. ÁGÚST 2012 FRÆGIR FLYTJA TIL BARCELONA VÍTAMÍN OG SAFAR FYRIR HAUSTIÐ MADONNU-AÐDÁANDI UPPLIFÐI DRAUMINN EFI / MORGUNBLAÐIÐ „... stórtíðindi öllum unnendum myndlistar.“ P B B / F R É T T A T Í M I N N Í S L E N S K L I S T A S A G A Boðið heim Íbúar í miðborginni bjóða gestum heim í vöfflur, kaffi og skemmtiatriði á menningarnótt. Mark í hverjum hálfleik Kolbeinn Sigþórsson raðar inn mörkum með fótboltalandsliðinu. sport 40 Ráðleggingar til hlaupara Kári Steinn gefur hlaupurum 10 góð ráð fyrir Reykjavíkurmaraþonið. lífsstíll 34 Frelsið besta vopnið Joakim Hammerlin ræðir um lærdóma af hryðjuverkunum í Noregi. föstudagsviðtalið 16 DÁLÍTIL VÆTA Í dag verður strekk- ingur með SA-stöndinni en annars fremur hægur vindur. Dálítil súld A- og S-til og stöku skúr síðdegis V-lands. Skýjað að mestu N-til. Hiti 10-20 stig. VEÐUR 4 14 17 17 14 13 VIÐ ÆGISÍÐU Þessi fjölskylda nýtti góða veðrið til hlaupa á Ægisíðunni í gær. Um alla borg mátti sjá hlaupara taka síðustu æfinguna fyrir stóra hlaupadaginn á morgun. Metfjöldi hefur skráð sig í Reykjavíkurmaraþonið að þessu sinni, eða rúmlega tíu þúsund manns. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÆKNISFRÆÐI Sjúklingar sem taka þátt í lyfjarann- sóknum upplifa oft og tíðum aukaverkanir lyfja, jafn- vel þó þeir taki ekki lyfin sjálf heldur lyfleysu. Þýsku prófessorarnir Paul Enck og Winfried Häuser skrifa grein um málið í New York Times. Þar segja þeir frá 31 rannsókn sem sýni fram á þetta. Lyfleysa er kölluð placebo á erlendum tungum og þau áhrif sem prófessorarnir lýsa eru nefnd nocebo. Ein rannsókn sýnir að ellefu prósent þeirra sem fengu lyfleysu í rannsókn á lyfjum við taugasjúkdómi sögðu sig frá henni, vegna aukaverkana. Einn þátttakandi í rannsókn á þunglyndislyfjum reyndi að fremja sjálfsmorð með því að gleypa 26 töflur af lyfleysu. Þrátt fyrir skaðleysi taflanna féll blóðþrýstingur viðkomandi niður fyrir hættumörk. Prófessorarnir segja að sjúklingar finni frekar fyrir aukaverkunum ef þeir viti af þeim. Helmingi karla sem tóku lyf við stækkun blöðruhálskirtils var sagt frá því að risvandamál gætu orðið við töku lyfjanna, en hinum ekki. Af þeim sem vissu um vandamálið upplifðu 44 pró- sent það, en aðeins fimmtán prósent hinna. - kóp Upplýsingar um aukaverkanir lyfja auka líkur á að sjúklingar finni fyrir þeim: Fá aukaverkanir af lyfleysum NEYTENDUR „Við erum bara í sjöunda himni,“ segir Jóhannes Jónsson, eigandi matvöruverslanakeðjunn- ar Iceland. „Þetta er alveg æðis- gengið.“ Iceland mældist oftast með lægsta verðið í nýjustu verðkönn- un verðlagseftirlits ASÍ. Er þetta í fyrsta sinn sem verslunin tekur þátt í könnuninni, enda var hún einung- is opnuð fyrir nokkrum vikum hér á landi. ASÍ kannaði matvöruverð í átta lágvöruverðsverslunum og stór- mörkuðum á þriðjudag. Jóhannes segist hafa haft ákveð- inn grun um að Iceland myndi mæl- ast með lægsta verðið, en verslan- ir Bónuss, sem Jóhannes stofnaði og átti um árabil, hafa oftast verið ódýrastar samkvæmt könnunum ASÍ. Af þeim 96 vörutegundum sem skoðaðar voru, var Iceland með lægsta verðið á 45 tegundum en Bónus kom þar á eftir með lægsta verðið á 24 tegundum. Samkaup- Úrval var oftast með hæsta verðið, en þar á eftir kom Nóatún. Kostur og Víðir neituðu að taka þátt í könn- uninni. Aðspurður hvort það stefni nú í verðstríð á lágvöruverðsmarkaðn- um svarar Jóhannes: „Það er nátt- úrlega verðstríð alla daga. En það er fljótt að étast upp ef maður er með þrjátíu búðir. Það þarf meira til,“ segir hann. „Ég tel mig vera kom- inn á þá braut sem ég ætla mér.“ Hann stefnir á að opna fleiri Ice- land-verslanir hér á landi, en segir þó ekkert liggja á. „Ég sé ekki betur, eins og móttökurnar hafa verið, en að það sé réttlætanlegt að þenja sig eitthvað út.“ „Svo árum skiptir hefur munstr- ið verið það að Bónus er ódýrastur og Krónan kemur rétt á eftir,“ segir Snorri Már Skúlason, deildarstjóri upplýsinga- og kynningarmála ASÍ. „Iceland er með lægsta verðið í meira en helmingi tilfella og það er staða sem Bónus hefur ekki lent í ansi lengi.“ Lengi vel var verðstefna Bónuss sú að vera lægstur og svara öllum tilraunum keppinauta til að bjóða hagstæðara verð. Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í desember 2008 voru Hagar, móðurfélag Bón- uss, hins vegar sektaðir um 315 milljónir króna fyrir undirverð- lagningu í verðstríði við Krónuna. Samkeppniseftirlitið mat það þá svo að með undirverðlagningunni hefðu Hagar „í raun fest í sessi það orðspor sitt að engum keppinautum muni líðast til frambúðar að bjóða neytendum vörur á lægra verði en boðið er í verslunum Bónuss.“ Var sektinni ætlað að koma í veg fyrir slíkt í framtíðinni. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í gær í Guðmund Mar- teinsson, framkvæmdastjóra Bón- uss, eða Finn Árnason, forstjóra Haga, til að svara því hvort Bónus hygðist lækka verð til að mæta sam- keppni Iceland. sunna@frettabladid.is „Það er verðstríð alla daga“ Lágvöruverðsverslunin Iceland mælist með lægra vöruverð en Bónus í verðkönnun ASÍ. Verslunin var með lægsta verðið í helmingi tilfella. Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Iceland, stefnir að opnun fleiri verslana. Iceland er með lægsta verðið í meira en helmingi tilfella og það er staða sem Bónus hefur ekki lent í ansi lengi. SNORRI MÁR SKÚLASON DEILDARSTJÓRI UPPLÝSINGA- OG KYNNINGARMÁLA ASÍ. ÍÞRÓTTIR Rúmlega tíu þúsund hafa þegar skráð sig til leiks í hið árlega Reykjavíkurmaraþon sem ræst verður á morgun í Lækjar- götu. Það er sex prósenta fjölgun þátttakenda á milli ára en í fyrra var sett þátttökumet. Átta hundruð manns ætla að hlaupa heilt maraþon, 1.934 ætla að hlaupa hálft maraþon og 4.431 ætlar að hlaupa tíu kílómetra. Hlaupið er um miðbæ Reykja- víkur, út á Seltjarnarnes og þeir sem lengst ætla að hlaupa taka krókinn inn í Laugardal. Forskráningu lauk klukkan 16 á miðvikudag. Í dag fer svo skráningarhátíð hlaupsins fram í Laugar dalshöllinni. Þar verða keppnisgögn gefin út og seinir hauparar fá tækifæri til að skrá sig. Reykjavíkurmaraþonið hefur verið haldið ár hvert síðan 1984. Eftir að Reykjavíkurborg hóf að halda menningarnótt árið 1996 hefur verið hlaupið sama dag. - bþh Reykjavíkurmaraþon 2012: Aldrei hafa fleiri skráð sig

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.