Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 2
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
Sveinn Rúnar, þarf ekki að
fara að berja þessi ber augum?
Jú, annars verða ekki ber allt árið.
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berja-
áhugamaður, segir allt stefna í að haustið
verði eitt það albesta hvað berjaupp-
skeru varðar.
... og rjómi
KRINGLAN Maðurinn var grunaður um
þjófnað og veittist að öryggisverði.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÖGREGLUMÁL Karlmaður var hand-
tekinn í Kringlunni um klukkan
eitt í gær. Öryggisvörður hafði
afskipti af manninum, sem er um
þrítugt, vegna gruns um þjófn-
að. Maðurinn brást hinn versti
við og er meðal annars grunaður
um að hafa slegið öryggisvörð-
inn í bringuna samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Fleiri öryggisverðir komu til
aðstoðar og yfirbuguðu manninn.
Lögreglan kom síðar á vettvang og
færði hann á næstu lögreglustöð.
Lögreglan kölluð í Kringluna:
Þjófur veittist
að öryggisverði
Með þýfi á stolnu hjóli
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði í fyrrinótt tvo menn á bifhjóli.
Hjólið var númerslaust, farþegi án
hjálms og ökumaður án ökuskírteinis.
Síðar kom í ljós að hjólið var stolið
og einnig fannst fartölva á ökumanni,
sem grunur lék á að væri þýfi.
Ónæði vegna gleðskapar
Lögregla leysti upp gleðskap utandyra
í miðborginni aðfaranótt fimmtudags.
Þar hafði nokkur fjöldi safnast saman á
almenningssvæði eftir lokun skemmti-
staða og haldið gleðskap áfram með
„tilheyrandi skvaldri“ eins og segir í
tilkynningu lögreglu, en einnig höfðu
einhverjir með sér hljóðfæri.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Í FALLEGUM FJÖÐRUM Það verður greini-
lega enginn hægðarleikur að velja hin
fegurstu úr fögrum hópi á laugardaginn.
DÝRALÍF Félagar í Eigenda- og
ræktendafélagi landnámshænsna
(ERL) ætla á laugardag að bregða
sér með hænsn sín í Húsdýra-
garðinn. Gefst þá gestum tæki-
færi til þess að kynnast þessum
fiðurfénaði sem kom hingað með
landnámsmönnum okkar Íslend-
inga.
„Þarna verður skrautlegur
söfnuður,“ segir Júlíus Már Bald-
vinsson, formaður ERL. „Það
verður líka kosið um fallegasta
hanann og fallegustu hænurnar
og eigendur vinningshafanna fá
verðlaunapening, vonandi verða
þeir ekki monthanar við það,“
segir hann kankvís. - jse
Landnámshænur fara á stjá:
Velja á fegurstu
hænu og hana
BÚRMA, AP Nóbelsverðlaunahaf-
inn Aung San Suu Kyi hefur und-
anfarið forðast að svara spurn-
ingum blaðamanna um vanda
minnihlutahóps í Búrma.
Hún hefur fyrir vikið hlotið
gagnrýni mannréttindafrömuða,
sem er harla óvenjulegt í hennar
tilviki því hún hefur venjulega
talað mikið um vanda minni-
hlutahópa í landinu.
Minnihlutahópurinn nefnist
Rohingía og er múslimar. Flestir
landsmenn eru búddistar, sem
margir hafa horn í síðu múslim-
anna. Suu Kyi hefur verið sökuð
um að vilja ekki styggja væntan-
lega kjósendur sína. - gb
Suu Kyi gagnrýnd:
Talar ekki um
vanda múslima
MANNLÍF Sveitarfélagið Fljóts-
dalshérað hefur skipað þrettán
manna sannleiksnefnd til að
skera úr um hvort Hjörtur Kjer-
úlf hafi í raun og veru náð mynd
af Lagarfljótsorminum.
Ef svo er verður hann hálfri
milljón ríkari. Bæjarstjórn
Egilsstaða, sem þá var og hét,
efndi til samkeppni árið 1997
þar sem þeirri upphæð var heit-
ið þeim sem tækist að festa orm-
inn á filmu. Engum tókst það þá
en bæjarstjórnin brást við með
því að heita þeim sem það tæk-
ist í framtíðinni að vitja verð-
launanna. Nú hefur Hjörtur farið
til bæjaryfirvalda með mynd-
band upp á vasann sem sýnir
orminn á svamli, að því er hann
fullyrðir.
„Það var maður sem benti mér
á þetta svo ég ákvað að spyrja
þá hvort þetta myndband mitt
væri verðlaunanna virði,“ segir
Hjörtur.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir að þessu
máli sé tekið alvarlega en hann
er þó ekki of sannfærandi. „Við
brugðumst við með því að skipa
þessa sannleiksnefnd en ég legg
ríka áherslu á að hún taki sér
þann tíma sem hún þarf,“ segir
hann. „Líklegast verður sann-
leiksnefndin að störfum út kjör-
tímabilið,“ bætir hann við og
hlær en ítrekar svo aftur að yfir-
völd á Héraði taki þessu máli af
mikilli alvöru.
Bæst hefur við verkefni nefnd-
arinnar en eftir útspil Hjartar
tók Sigurður Aðalsteinsson frá
Vaðbrekku á Jökuldal við sér og
sendi mynd sem hann segir vera
af Lagarfljótsorminum. „Það
hlýtur að gilda það sama um þá
mynd og myndbandið hans Hjart-
ar,“ segir bæjarstjórinn.
Þegar Hjörtur er spurður hvort
hann trúi því virkilega að þarna
sé Lagarfljótsormurinn á ferð
svarar hann. „Þórbergur Þórð-
arson sagði það einkenni Héraðs-
búa að þeir tryðu aldrei því sem
þeir sæju. En ég er ekki þannig.“
Myndbandið hefur verið á You-
tube-vefnum frá því í febrúar og
eru skráðar á það fjórar og hálf
milljón heimsóknir. Fjölmiðla-
menn hafa líka leitað til Hjartar.
„Það komu hingað bandarískir
sjónvarpsmenn til að taka upp
fyrir þáttaröð sína og vildu endi-
lega fræðast um Lagarfljótsorm-
inn,“ segir hann. „Þetta hefur
verið góð kynning fyrir svæðið,
ég held við séum bara komnir í
bullandi samkeppni hér á Héraði
við þá í Loch Ness á Skotlandi.“
jse@frettabladid.is
Lagarfljótsormurinn
fyrir sannleiksnefnd
Fimmtán árum eftir að verðlaunum var heitið fyrir hvern þann sem næði
að mynda Lagarfljótsorminn kemur tökumaður fram og gerir tilkall til verð-
launanna. Málið fer fyrir sannleiksnefnd skipaða af yfirvöldum á Héraði.
ÚR MYNDBANDI HJARTAR Bæjarstjórinn segir Héraðsmenn ekki efast um tilveru
Lagarfljótsorms en hins vegar gæti þetta verið eitthvert afkvæmi þarna á ferð. Mynd-
bandið er á Youtube. MYND/HJÖRTUR KJERÚLF
VIÐSKIPTI Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins, segir
að ummæli Hermanns Guðmunds-
sonar, fráfarandi forstjóra N1, um
að olíufyrirtækið hafi ekki lækk-
að eldsneytisverð af virðingu við
slæma stöðu keppinauta sinna séu
allrar athygli verð. „Samkeppnis-
eftirlitið mun gaumgæfa hvort í
þeim felist vísbendingar um sam-
keppnislagabrot,“ segir hann.
Hermann var í viðtali við Við-
skiptablaðið í gær þar sem hann
sagði: „Okkur bar skylda til þess
að virða ákveðið ástand sem var
á markaðnum, þ.e. að félögin voru
misvel sett.“ Í viðtalinu má skilja
Hermann svo að N1 hafi haft mark-
aðsráðandi stöðu og til þess að
hún yrði ekki misnotuð hafi verið
ákveðið að lækka ekki verðið.
Páll Gunnar segir að þetta þurfi
að skoða sérstaklega, þ.e. hvort
félagið hafi raunverulega haft
markaðsráðandi stöðu og einn-
ig hvort samkeppnislagabrot hafi
verið framin með því að lækka ekki
bensínverð.
Í yfirlýsingu frá stjórn N1 segir
að samkeppni félagsins við önnur
olíufélög sé mjög virk og hafi meðal
annars birst að undanförnu í háum
tímabundnum afsláttum, aukinni
þjónustu og afsláttum til neytenda
í gegnum tryggðarkerfi.
„Stjórnin, í samvinnu við nýráð-
inn forstjóra, stjórnendur og starfs-
fólk um land allt, mun tryggja að
fyrirtækið láti ekki sitt eftir liggja
í áframhaldandi samkeppni og
verði í fararbroddi heilbrigðra við-
skiptahátta,“ segir í tilkynningu frá
stjórninni.
Hermann sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem hann segir að
með ummælum sínum í Viðskipta-
blaðinu hafi hann verið að vísa
til tímabilsins frá bankahruni og
að þeim tíma þegar fjárhagslegri
endurskipulagningu þúsunda fyr-
irtækja lauk. Í dag hafi öll félögin
burði til að stunda harða sam-
keppni.
Segja fyrirtækið ekki hafa lækkað olíuverð af tillitssemi við keppinautana:
Skoðað hvort N1 hafi brotið lög
HERMANN GUÐMUNDSSON Segir í yfir-
lýsingu hafa verið að vísa til tímabilsins
fyrir efnahagshrun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Börkur Birgisson, dæmdur
ofbeldis maður, fékk afrit af myndbands-
upptökum af skýrslutökum lögreglunnar
yfir brotaþolum, vitnum og ákærðu í máli
hans og tólf annarra karlmanna. Einn verj-
enda í málinu segir ákæruvaldið mismuna
verjendum í málinu. Saksóknari segir að
Börkur hafi komist yfir myndböndin fyrir
mistök.
Börkur er ákærður, ásamt Annþóri
Kristjáni Karlssyni og ellefu öðrum, fyrir
líkamsárásir og skipulagða glæpastarf-
semi. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjaness í gær.
Mynddiskarnir sem sýna skýrslutökur
lögreglu yfir málsaðilum eru 31 talsins.
Ákærðu í málinu fengu ekki að vera við-
staddir vitnaleiðslur til þess að hlífa vitn-
um. Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, einn
verjenda í málinu, segir aðra verjendur
árangurslaust hafa beðið um að fá mynd-
diskana afhenta.
Hann segir Börk hafa fengið aðstöðu á
Litla-Hrauni til að horfa á myndböndin.
Verjandi hans hafi svo einn fengið aðgang
að diskunum.
Við fyrirtökuna í gær kröfuðst allir verj-
endur í málinu að fá aðgang að myndbands-
upptökunum. Ákærðu voru ekki viðstaddir
fyrirtökuna, enda þurfa þeir þess ekki þar
sem allir hafa tekið afstöðu til ákæranna.
- bþh
Dæmdur ofbeldismaður fékk mynddiska með upptökum af skýrslutökum lögreglu afhenta fyrir mistök:
Börkur sat einn að upptökum á Hrauninu
SITUR INNI Börkur fékk næði á Litla-Hrauni, þar sem
hann afplánar dóm, til þess að horfa á upptökurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Líklegast verður
sannleiksnefndin að
störfum út kjörtímabilið.
BJÖRN INGIMARSSON
BÆJARSTJÓRI FLJÓTSDALSHÉRAÐS