Fréttablaðið - 17.08.2012, Síða 46

Fréttablaðið - 17.08.2012, Síða 46
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR30 30 menning@frettabladid.is Bækur ★★★★ ★ Hugsjór Jóhann Hjálmarsson JPV Heimurinn mun farast Jóhann Hjálmarsson hefur lengi verið afkastamikill rithöfundur, blaðamaður og bókmenntagagnrýnandi. Fyrsta ljóðabók hans, Aungull í tímanum, kom út árið 1956 þegar hann var aðeins sautján ára gamall. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar – en síðasta bók Jóhanns, Vetrarmegn, kom út árið 2003. Sennilega hafa unn- endur ljóða Jóhanns Hjálmarssonar beðið nokkuð lengi eftir nýju efni frá sínu skáldi og því hlýtur Hugsjór að kæta margan manninn. Hugsjór skiptist í þrjá kafla; Hugsjó, Bæheimska morgna og Afórur. Ljóðin eru 57, flest knöpp í formi, stutt og hnitmiðuð. Yrkisefnin eru landslagið hið ytra og innra, skáldskapurinn og líf manneskjunnar. Ljóðmælandi er oft á ferðalagi – enda „lítur skáldið yfir lífsins vegferð“ væri hægt að segja ef maður vildi vera voða tilgerðarlegur. Dauðinn er enn fremur sífellt nálægur, sem hin hliðin á lífsmyntinni. Svartþröstur flýgur á rúðu, svala flýgur á spegil, Jaroslav Hasek er týndur og við verðum öll gleymd skáld. Hið óumflýjanlega verður Jóhanni oft að yrkisefni. Líkt og í ljóðinu Það eina: Það eina sem við getum reitt okkur á er að heimurinn muni farast. Augunum glaðværu frá í gær verður lokað í dag orðin verða þögn eins og jökull sem hopar og kemur ekki aftur. Við getum reitt okkur á það. (45) Sum ljóðanna eru ívið myrk og bölsýn, fjalla um hugsjónirnar sem reyndust ekki skila því sem vonir stóðu til: Hér brenndi Jan Palach sig lifandi fyrir mannúðlegan sósíalisma sem reyndist ekki til. (51) Síðasta ljóðið, Skógganga, er fagurt bæði og napurt í senn, en þar er hjartalæknirinn sem ráðleggur gönguferð í heilsubótarskyni sjálfur Karon, ferjumaðurinn sem að lokum flytur hina dauðu yfir til undirheima. Og þar sem hinn tékkneski Franz Kafka kemur nokkrum sinnum fyrir í Hugsjó, þá má nefna að hver lesandi má gera þær kröfur til bókmennta- verka að þau hreyfi við honum, poti í hann … „séu öxin á freðið hafið í okkur“, eins og Kafka sagði. Undirritaður lesandi varð ekki fyrir slíkri upp- lifun við lestur þeirrar bókar sem hér er um rætt. Hitt er annað mál að ljóðin eru unnin af natni og aðdáunarverðri fagmennsku og það ber að lofa. Lítið er um skarkala eða glymjandi í Hugsjó og lesendum skal ráðið frá því að reyna að ösla yfir bókina á einhverju hundavaði. Nostrað hefur verið alúðlega við hverja einustu ljóðlínu og þótt stundum megi kenna ákveðna þreytu hjá ljóðmælandanum, sem horfir oft vonlítill yfir farinn veg, þá er hreint engin þreyta í skáldskap Jóhanns Hjálmarssonar. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Niðurstaða: Vel heppnuð og fagmannlega unnin ljóðabók, þar sem roskið skáld horfir yfir sviðið; veltir fyrir sér lífinu, dauðanum og flestu þar á milli. Myndhöggvarafélagið í Reykjavík á 40 ára afmæli í dag. Auk afmælissýningar og ýmissa uppákoma gefur félagið út bók sem inniheld- ur yfir hundrað hugmyndir að myndlistarverkum í almannarými. Afmælissýning Myndhöggvara- félagsins í Reykjavík verður opnuð í Kling og Bang galleríi í dag en félagið var formlega stofn- að á þessum degi árið 1972. Sýnd verða verk sem hafa þróast beint eða óbeint fyrir tilstilli félagsins í gegnum tíðina. Um leið kemur út bók sem fjallar um sögu félagsins undanfarna fjóra áratugi og inni- heldur hugmyndir að verkum í almannarými. Jóna Hlíf Halldórs- dóttir er formaður Myndhöggvara- félagsins. „Við ákváðum fyrir um það bil ári að gefa út bók í tilefni þess- ara tímamóta,“ segir hún. „Hug- myndin var að bjóða öllum félags- mönnum eina opnu til að setja fram hugmynd að verki í almannarými, annað hvort skissu eða verk sem hefur verið sett upp.“ Myndhöggvarar létu ekki segja sér það tvisvar. Af 160 félagsmönn- um tóku 102 þátt í bókinni. „Þetta er öll flóran, bæði stofn- félagar og fólk sem gekk í félagið í ár,“ segir Jóna Hlíf. „Fyrir vikið er bókin skemmtilegur vitnisburð- ur um þróunina sem hefur átt sér stað. Listamenn af eldri kynslóð- inni senda gjarnan inn hugmynd- ir að skúlptúrum úr járni og steini en þeir yngri vinna meira með þrí- vídd.“ Í bókinni rekur Æsa Sigurjóns- dóttir listfræðingur sögu Mynd- höggvarafélagsins og mikilvægi þess fyrir íslenska myndlist, sem Jóna Hlíf segir hafa verið mikið. „Könnun sem við létum gera leiddi í ljós að um 40 prósent af þeim verkum sem sýnd eru á listasöfnum á Íslandi má rekja til Myndhöggv- arafélagsins. Þar gegnir verkstæði félagsins, það eina sinnar tegundar hér á landi, stóru hlutverki og hefur verið sannkallaður suðupunktur listframleiðslu á Íslandi.“ Jóna Hlíf segir markmið sýning- arinnar og bókarinnar ekki síður að vekja almenna athygli á hlutverki listar sem hluta af almannarýminu. „Umhverfið skiptir okkur svo miklu máli en því miður finnst mér ekki ríkja nógu mikill skilningur á því hversu stóru hlutverki listin gegnir í því sambandi. Í borgar- skipulagi er það til dæmis yfirleitt síðast á dagskrá hvort það eigi að vera listaverk við tiltekið mann- virki, frekar en að huga að því strax frá upphafi.“ Jóna Hlíf segir aðrir þjóðir á Norðurlöndum, sérstaklega Svía, hafa áttað sig á kostum þess að auka hlut listaverka í almannarýminu. „Það hefur verið sýnt fram á að fólki líður almennt betur í slíku umhverfi, þetta hefur jákvæð áhrif á túrisma og bara nú í vikunni var verið að ræða í fréttum um að fal- legt umhverfi gæti dregið úr tíðni afbrota og skemmdarverka.“ Hún segir margar merkilegar hugmyndir í bókinni og vonast til að sjá sumar þeirra verða að veru- leika. „Það væri óskandi ef Reykja- víkurborg sæi sér fært að kaupa að minnsta kosti eitt verk og setja það upp við til dæmis Tjörnina eða Kringluna – möguleikarnir eru í sjálfu sér óþrjótandi.“ bergsteinn@frettabladid.is SAGAN KLÖPPUÐ Í STEIN Auk sýningarinnar í Kling og Bang og bókaútgáfunnar stendur Myndhöggvara- félagið fyrir fleiri viðburðum í tilefni 40 ára afmælisins: 18. ÁGÚST Verkstæði Myndhöggvarafélagsins, Nýlendugötu 14, verður opið á menningarnótt. Þar mun heiðursfélaginn Gísli Kristjánsson sýna myndbandsverk og Andrew Baldwin vinna við að breyta bátnum sínum í bíl. 8. SEPTEMBER Minning um myndlist: Sýning í Listasafni ASÍ um útimyndlistar- sýningarnar fimm á Skólavörðuholti 1967 til 1972, sem brutu blað í sögu högg- myndalistar á Íslandi og voru jafnfram kímið að stofnun Myndhöggvarafélagsins. 15. SEPTEMBER Ljósdraugar: Innsetning eftir Eygló Harðardóttur í Höggmynda- garðinum við Nýlendugötu 17a. Höggmyndagarðurinn er opinbert rými sem sniðið er sérstaklega fyrir þrívíða samtímamyndlist og er nýjung hér á landi. FLEIRI VIÐBURÐUR FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20 2. sýn: Föstudaginn 26. október 3. sýn: Laugardaginn 27. október 4. sýn: Sunnudaginn 4. nóvember 5. sýn: Laugardaginn 10. nóvember 6. sýn: Laugardaginn 17. nóvember Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is - sími 528 5050 - midasala@harpa.is WWW.OPERA.IS TÓNLISTARSKÓLINN Í REYKJAVÍK Gagnrýnendur í Noregi fara lof- samlegum orðum um skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karitas án titils, sem kom út í norskri þýðingu fyrir skömmu. Gagnrýnandi Verdens gang gefur bókinni fullt hús stiga, sex af sex mögulegum, og segir bók- ina kröftuga og litríka frásögn af listamanni sem sé uppfullur af löngun, efa, gleði og togstreitu, Gagnrýnandi Adresseavisen í Þrándheimi tekur í svipaðan streng; hann segir bókina marg- slungna og sverja sig í ætt við verk á borð við Sölku Völku og Sjálfstætt fólk. Þá segir gagnrýn- andi Dagbladet að Karítas án titils búi yfir öllu sem góð saga þurfi að búa yfir. Karitas án titils kom fyrst út árið 2004. Í henni segir frá Karit- as Jónsdóttur, sem fæðist á Íslandi í upphafi 20. aldar en flytur til Kaupmannahafnar til að gerast listamaður. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs fyrir hönd Íslands árið 2006. Ári síðar kom framhaldsbók- in Óreiða á striga út. Kristín sendi síðast frá sér skáldsöguna Karlsvagninn 2009 en von er á nýrri bók frá henni fyrir jól. Karitas fær lofsamlega dóma KRISTÍN MARJA Sendir frá sér nýja skáldsögu í haust. Í KLING OG BANG Jóna Hlíf Halldórsdóttir lengst til hægri ásamt Halldóri Úlfarssyni, Söru Riel, Oddnýju Daníelsdóttur, Höllu Björk Kristjánsdóttur, sýningarstjórum afmælissýningarinnar í Kling og Bang. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SÁLMAFOSS Sex klukkutíma samfelld tónlistardagskrá undir yfirskriftinni „Sálmafoss“ verður í Hallgrímskirkju á menningarnótt. Þetta er í sjötta skipti sem Sálmafoss er haldinn og fimmta árið í röð sem hluti af dagskrá menningarnætur. Dagskráin hefst klukkan 15 og stendur til klukkan 21.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.