Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 56

Fréttablaðið - 17.08.2012, Side 56
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR40 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson var enn á ný á skotskónum með íslenska landsliðinu á Laugardalsvellinum á miðvikudagskvöldið. Þessi 22 ára strákur er búinn að skora 8 mörk í fyrstu 11 landsleikjum sínum og miðað við afgreiðslur hans í síð- ustu landsleikjum þá er von á miklu fleiri mörkum á næstu árum. Það eru liðin sextíu ár síðan framherji byrjaði landsliðsferil sinn með jafnmiklum látum og sá hinn sami, goðsögnin Ríkharður Jónsson, átti markamet landsliðsins í 59 ár. Kolbeinn finnur sig greinilega afar vel í leikkerfi Lars Lager- bäck sem veðjaði strax á hann sem aðalframherja íslenska landsliðs- ins. Mörkin hans tvö á móti Fær- eyjum voru augnakonfekt; blanda af útsjónarsemi og heimsklassa afgreiðslu. Frábærir hæfileikar í teignum „Kolbeinn er búinn að skora fjög- ur mörk í fjórum hálf- leikjum og hann hefur frábæra hæfileika í víta- teignum. Hann gerði frá- bærlega í fyrra mark- inu og seinna markið kom eftir góða fyrirgjöf. Hann er frábær,“ sagði Lars Lagerbäck um Kol- bein eftir Færeyjaleik- inn. Það er full ástæða fyrir landsliðsþjálfarann að hrósa framherjanum sínum sem hefur skorað fjögur mörk á aðeins 193 mínútum síðan Svíinn tók við eða mark á 48 mínútna fresti. Kolbeinn lenti í erfiðum meiðslum á síðasta tímabili og auk þess að missa af stærstum hluta tímabilsins með Ajax þá var hann ekki með í tveimur fyrstu leikjun- um undir stjórn Lars Lagerbäck. Setti hann strax í byrjunarliðið Kolbeinn skoraði sigurmarkið á móti Kýpur á Laugardalsvellin- um 6. september í fyrra en vegna meiðslanna liðu átta mánuðir þar til hann klæddist landsliðstreyjunni á ný. Kolbeinn var í byrjunarliði Lag- erbäck á móti Frökkum 27. maí síð- astliðinn og var búinn að skora eftir aðeins 34 mínútur. Lagerbäck vildi passa upp á hann og skipti honum út af í hálfleik til að spara hann fyrir Svíaleikinn þremur dögum síðar. Kolbeinn mætti ferskur til leiks í Svíaleikinn og skoraði laglegt skallamark á 26. mínútu. Hann fékk 58 mínútur að þessu sinni og þurfti að bíða þar til í fyrrakvöld til þess að klára heilan leik undir stjórn Lars Lagerbäck. Það skilaði sér, því seinna mark Kolbeins kom á lokamínútu Færeyja-leiksins. Kolbeinn hefur nú skorað í fjór- um landsleikjum í röð og er farinn að ógna meti sem var sett aðeins 25 dögum eftir að Kolbeinn kom í heiminn snemma árs 1990. Pétur Pétursson á metið yfir mörk í flest- um landsleikjum í röð en Pétur skoraði í fimm leikjum sínum í röð á árunum 1987 til 1990. Afdrifarík brúkaupsferð Pétur skoraði í 2-1 sigri á Norð- mönnum í september 1987 en ósætti við landsliðsþjálfarann Sig- fried Held urðu til þess að hann spilaði ekki oftar fyrir Þjóðverj- ann. Pétur gaf ekki kost á sér í síðustu leikjum ársins 1987 vegna brúð- kaupsferðar en Held var ósáttur og setti hann í bann. Næsti landsleikur Pét- urs var því ekki fyrr en tveimur árum seinna þegar Guðni Kjartansson tók tímabundið við liðinu fyrir leik á móti Tyrkj- um. Guðni setti Pétur beint inn í byrjunarliðið og Pétur svaraði kallinu með því að skora tvö mörk í frá- bærum 2-1 sigri. Pétur var áfram sjóðheitur í fyrstu leikjum liðsins undir stjórn Svíans Bo Johansson og skoraði í þremur fyrstu leikjum ársins 1990. Pétur var því búinn að skora í fimm landsleikjum í röð á þrjátíu mánuð- um en tókst ekki að skora í leik á móti Albaníu í lok maí 1990. Eiður Smári Guðjohnsen er markahæsti landsliðsmaðurinn frá upphafi og hefur enn sextán mörk í forskot á Kolbein. Eiður Smári þarf þó líklega að bæta við mörkum á lokaspretti síns landsliðsferils ætli hann ekki að missa markametið til Kolbeins þegar fram líða stundir. Til að byrja með verður spennandi að sjá hvort Kolbeini takist að jafna met Péturs þegar Norðmenn koma í heimsókn. ooj@frettabladid.is ALFREÐ FINNBOGASON skrifaði í gær undir þriggja ára samning við hollenska úrvalsdeildarfélagið Heeren- veen sem hollenska goðsögnin Marco van Basten þjálfar. Flest benti til þess í upphafi vikunnar að Alfreð væri á leið til sænska félagsins Helsingborg en samningar tókust ekki á milli sænska liðsins og Lokeren. Heerenveen var aftur á móti til í að greiða uppsett verð fyrir Alfreð sem fór utan í morgun og gekk frá sínum málum um kvöldið. 193 Kolbeinn hefur skorað fjögur mörk á 193 mínútum undir stjórn Lagerbäck. FRÁBÆR FRAMHERJI Kolbeinn Sigþórsson átti flottan leik á móti Færeyjum og sýndi styrk sinn í teignum með því að skora tvö flott mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kolbeinn Sigþórsson er sá fljótasti í sögunni til þess að skora sitt áttunda mark fyrir íslenska A-landsliðið. Þegar skot Kolbeins þandi marknetið á lokamínút- unni í sigrinum á Færeyjum var hann aðeins búinn að spila í 740 mínútur í landsliðsbúningnum en kominn með átta mörk í 11 leikjum. Kolbeinn gerði þar betur en Ríkharður Jónsson sem skoraði sitt áttunda A-landsliðsmark eftir 780 mínútur. Kolbeinn var því 40 mínútum fljótari en Ríkharður upp í átta A-landsliðsmörk en Ríkharður náði því reyndar í sínum tíunda A-landsleik. Kolbeinn var líka að skora í sínum sjöunda landsleik á miðvikudagskvöldið en Ríkharður skoraði „bara“ í fjórum af fyrstu ellefu landsleikjum sínum. Kolbeinn á skotskónum Kolbeinn Sigþórsson er búinn að skora í öllum þremur leikjum sínum fyrir Lars Lagerbäck og alls í fjórum landsleikjum í röð. Ísland–Kýpur 1-0 Laugardalsvöllur 6. september 2011 Skoraði á 4. mínútu Frakkland–Ísland 3-2 Valenciennes, 27. maí 2012 Skoraði á 34. mínútu Svíþjóð–Ísland 3-2 Gautaborg, 30. maí 2012 Skoraði á 26. mínútu Ísland–Færeyjar 2-0 Laugardalsvöllur 15. ágúst 2012 Skoraði tvö mörk, á 30. og 90. mínútu Metið hans Péturs Pétur Pétursson skoraði í fimm lands- leikjum í röð á árunum 1987 til 1990. Hann var ekki valinn í landsliðið í sextán leikjum frá 1987 til 1989. Ísland-Noregur 2-1 Laugardalsvöllur 9. september 1987 Skoraði á 21. mínútu Ísland-Tyrkland 2-1 Laugardalsvöllur 20. september 1989 Skoraði tvö mörk, á 52. og 69. mínútu Lúxemborg-Ísland 1-2 Esch 28. mars 1990 Skoraði á 16. mínútu Bermúda-Ísland 0-4 Hamilton 3. apríl 1990 Skoraði tvö mörk, á 4. og 88. mín. (víti) Bandaríkin-Ísland 4-1 St. Louis 8. apríl 1990 Skoraði á 85. mínútu (víti) PÉTUR PÉTURSSON Skorar hér annað marka sinna í sigurleik á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í september 1989 í sínum fyrsta landsleik í tvö ár. Pepsi deild kvenna: Breiðablik - Þór/KA 1-2 1-0 Björk Gunnarsdóttir (7.), 1-1 Rebecca Johnson (42.), 1-2 Kayle Grimsley (77.). Afturelding - Selfoss 2-2 0-1 Guðmunda Óladóttir (37.), 1-1 Erica Henderson (42.), 1-2 Melanie Adelman (80.), 2-2 Carla Lee (86.) STAÐAN Þór/KA 14 11 2 1 40-14 35 Stjarnan 14 9 2 3 42-18 29 ÍBV 14 9 1 4 40-20 28 Valur 14 8 2 4 38-19 26 Breiðablik 14 7 3 4 34-17 24 FH 14 4 2 8 20-39 14 Selfoss 14 3 4 7 26-56 13 Fylkir 14 3 2 9 17-34 22 Afturelding 14 3 3 8 14-34 12 KR 14 1 3 10 14-34 6 1. deild karla: Leiknir R. - Haukar 2-2 Ólafur Hrannar Kristjánsson, Pétur Már Harðarson - Árni Vilhjálmsson, Gunnlaugur Fannar Guð- mundsson. Fjölnir - Víkingur R. 1-1 Haukur Lárusson - Hjörtur Júlíus Hjartarson. Tindastóll - KA 0-0 Þróttur R. - Víkingur Ó. 4-1 Halldór Arnar Hilmisson 2, Guðfinnur Þórir Ómars- son 2 - Guðmundur Magnússon. *úrslit frá urslit.net. ÚRSLIT Í GÆR FÓTBOLTI Þór/KA er komið með sex stiga forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 2-1 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvellinum í gærkvöldi. Breiðablik komst yfir í upphafi leiks en Þór/KA liðinu tókst að jafna í lok fyrri hálfleiks og sig- urmarkið kom síðan úr víti 13 mín- útum fyrir leikslok. „Ég er rígmontinn af þeim,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnars- son, þjálfari Þórs/KA kátur í leiks- lok. Fyrirliðinn Arna Sif Ásgríms- dóttir átti góðan leik. „Við erum ákveðnar í að landa þessum titli. Við erum búnar að fá ansi neikvæða umfjöllun upp á síðkastið og það hvetur okkur bara áfram. Menn eru að tala um að það skilji enginn af hverju við séum á toppnum og að við séum alltaf heppnar. Við erum búnar að sýna það í síðustu leikjum að það er ekki rétt,“ sagði Arna Sif og þjálfarinn segir umfjöllunina úti í bæ auð- velda honum starfið. „Fyrir mig sem þjálfara þá er þessi umræða frábær því ég þarf ekki að segja neitt inn í klefa. Þær ætla bara að sanna sig og eru harð- ar í því. Það sést í dag þegar þær koma til baka á móti einu sterk- asta liði landsins. Þær eru bara að segja fólki hvað þær ætla að gera,“ sagði Jóhann. Björk Gunnarsdóttir kom Blik- um í 1-0 eftir sjö mínútur en eins og oft áður í sumar féllu hlutirn- ir ekki með liðinu í lokin. „Þetta hefur gerst í nokkrum leikjum hjá okkur í sumar en svona er bara fótboltinn. Þetta datt bara þeirra megin í dag en það þurfti víti til. Ég ætla ekki að dæma um hvort að þetta hafi verið víti eða ekki því ég er ekki dómari en mér fannst hún sparka í boltann,“ sagði Björk um vítið sem skilaði Þór/KA sigur- markinu í leiknum. Hin 17 ára Sandra María Jes- sen er í baráttunni um gullskóinn. Hún náði ekki að bæta við marki í gær en réði engu að síður úrslit- um leiksins með því að búa til bæði mörkin. „Þetta skilar okkur vonandi í lokin því þetta voru mjög mikil- væg þrjú stig sem við vorum að vinna hérna. Maður nær ekki allt- af að skora og stundum er nóg að gefa fyrir. Ég var í því hlutverki í dag og það var mjög gaman,“ sagði Sandra María sem fékk þó færi til að skora í gær. „Vonandi næ ég líka gullskón- um en ég verð mjög ánægð ef við vinnum deildina. Það er númer eitt og það er bara bónus ef ég næ líka þessum gullskó,” sagði Sandra María. - óój Þór/KA vann Breiðablik í Kópavogi í gær og er komið með sex stiga forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna: Við erum ákveðnar í að landa þessum titli TITILLINN Í AUGSÝN Liðsmenn Þórs/KA sóttu þrjú stig í Smárann í gær og eru langt komnir með að vinna fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 40 mínútum á undan Ríkharði í 8 mörk MARK Á 48 MÍNÚTNA FRESTI Kolbeinn Sigþórsson er nálægt því að jafna met Péturs Péturssonar sem skoraði í fimm landsleikjum í röð. Kolbeinn er búinn að skora fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum undir stjórn Lars Lagerbäck.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.