Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 58
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR42
FÓTBOLTI KR-ingar leika til úrslita
þriðja árið í röð en minningarn-
ar frá úrslitaleikjunum eru þó
blendnar. Liðið steinlá gegn FH
4-0 árið 2010 en vann kærkominn
2-0 sigur gegn sprækum Þórsurum
fyrir ári.
„Ég man hreinlega ekki eftir
leiknum. Við unnum leikinn og ég
held að flestir muni eftir því nema
kannski hörðustu Þórsarar,“ segir
Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR-
inga léttur.
„Þórsararnir voru góðir í þeim
leik og við mjög heppnir. En á end-
anum unnum við og það er það sem
situr eftir.“
KR-ingar og sér í lagi Bjarni
urðu fyrir miklu áfalli í upphit-
un úrslitaleiksins í fyrra þegar
ljóst varð að hann gæti ekki spil-
að stærsta leik sumarsins sökum
meiðsla. Hann segist klár í slaginn
núna, engin meiðsli séu að angra
hann og reiknar hann með jöfnum
og skemmtilegum leik.
„Við lítum ekki svo á að við
séum að verja okkar titil heldur
ætlum við að vinna hann. Það var
eitt af markmiðum okkar í sumar
að vinna hann aftur og við erum
komnir vel á veg,“ segir Bjarni.
Tölfræðin vinnur ekki með
Stjörnunni. Liðið leikur til úrslita
í fyrsta skipti í sögu karlaliðs
félagsins auk þess sem liðið hefur
aldrei lagt KR að velli í deildar-
eða bikarleik. Garðar Jóhannsson,
framherji og reynslumesti leik-
maður Stjörnunnar, lítur þó ekki
þannig á að Stjarnan sé litla liðið.
„Kannski er það þannig en mér
líður ekki þannig. Þeir hafa unnið
titilinn oft og spilað um hann síð-
ustu þrjú ár. En við höfum gert
fjögur jafntefli gegn þeim í síð-
ustu fjórum deildarleikjum lið-
anna svo ég held að þetta sé bara
50/50 leikur,“ segir Garð-
ar sem viðurkennir að
spennu gætir í herbúð-
um Stjörnumanna fyrir
leikinn.
„Auðvitað eru menn
spenntir fyrir leiknum.
Fæstir okkar hafa spil-
að svona stóra leiki svo
spennan er óhjákvæmi-
leg.“
Þjálfararnir
kunna á bikarinn
Þjálfararnir Bjarni
Jóhannsson og Rúnar
Kristinsson þekkja báðir
hvað þarf til þess að vinna sigur í
bikarkeppninni. Bjarni gerði ÍBV
að bikarmeisturum árið 1998 auk
þess sem hann stýrði Fylkismönn-
um til síns fyrsta titils árið 2002.
Rúnar gerði KR-inga að bikar-
meisturum í fyrra auk þess sem
hann skoraði annað marka KR í
úrslitaleiknum 1994. Sá titill batt
enda á 26 ára eyðimerkurgöngu
KR-inga.
Bæði lið hafa þó farið halloka
undanfarið. Tveir tapleikir í síð-
ustu leikjum liðanna í deildinni
hafa að margra mati kostað liðin
möguleikann á Íslands-
meistaratitilinum.
„Þeir hafa greinilega
verið með hugann við
bikarinn í síðustu leikj-
um líkt og ég hallast að
að við KR-ingar höfum
gert líka. Því miður
hefur það komið niður
á báðum liðum. Vonandi
ná bæði að lyfta sínum
leik og sýna betri knatt-
spyrnu en í tveimur síð-
ustu leikjum,“ segir
Rúnar.
Ólíkur undirbúningur
Rúnar ætlar að hóa leikmönnum
KR saman í morgunverð á morg-
un en að öðru leyti verður undir-
búningur liðsins hefðbundinn.
„Maður veit aldrei hvernig þetta
mun þróast. Við töpuðum 4-0 gegn
FH fyrir tveimur árum. Fyrir
þann leik var maður voðalega
bjartsýnn, búinn að spá í spilin og
leggja ákveðnar línur. En við skít-
töpuðum. Hlutirnir breytast þegar
leikirnir byrja alveg sama hvern-
ig maður leggur þetta upp,“ segir
Rúnar.
Bjarni Jóhannsson hristi aðeins
upp í undirbúningi Stjörnulið-
sins sem skellti sér í hraðbáts-
ferð í gær. Fyrirhugað var að liðið
myndi gista saman á hóteli en mik-
ill fjöldi ferðamanna hér á landi
varð til þess að Stjörnustrákarnir
fengu hvergi inni.
„Það er tími til kominn að
Stjarnan vinni titil og vonandi
tekst okkur að klófesta hann,“
segir Bjarni sem finnst sínir menn
hafa verið annars hugar í síðustu
leikjum.
„Það er svipað á komið og ég
held að menn hafi verið með hug-
ann við þennan leik, bæði hvað
spjöldin varðar og að forðast
meiðsli. Það er kannski bara hluti
af þessu. Menn verða þeim mun
klárari í úrslitaleikinn,“ segir
Bjarni.
Meiðsli í herbúðum beggja liða
Lykilmenn beggja liða glíma
við meiðsli. Vinstri bakvörður-
inn Hörður Árnason glímir við
meiðsli og sömuleiðis kantmaður-
inn danski Kennie Chopart. „Þeir
verða báðir klárir,“ segir Bjarni en
Rúnar Kristinsson er ekki alveg
jafnbjartsýnn á þátttöku sinna
leikmanna sem verið hafa frá.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson og
Kjartan Henry Finnbogason voru
hvorugir í leikmannahópi KR í 3-2
tapinu gegn Val á dögunum.
„Það eru meiri líkur á því að
Kjartan verði heill en Grétar sem
er mjög tæpur. Gunnar Þór (Gunn-
arsson) er líka tæpur og kemur í
ljós á föstudag hvort hann geti
klárað æfinguna að fullu,“ segir
Rúnar.
Úrslitaleikurinn fer fram á
Laugardalsvelli á morgun klukkan
16. Hann verður í beinni útsend-
ingu og í opinni dagskrá bæði á
Stöð 2 Sport og Vísi. - ktd
KR með hreðjatak á Stjörnunni
Stjarnan og KR mætast í úrslitaleik Borgunarbikars karla í knattspyrnu á morgun. KR á titil að verja en
Stjarnan hefur aldrei áður leikið til úrslita. Von er á spennandi leik enda hefur þremur síðustu leikjum
liðanna lyktað með jafntefli. Stjarnan hefur þó aldrei lagt KR að velli hvort sem er í deild eða bikar.
FYRIRLIÐANA LANGAR Í NÝJA BIKARINN Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörnunnar, og Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, með nýja bikarinn
sem keppt verður um í fyrsta skipti í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bikarmeistarar fyrri ára
Félag Fjöldi titla
KR 12
ÍA, Valur 9
Fram 7
ÍBV, Keflavík 4
Fylkir, FH 2
Breiðablik, ÍBA, Víkingur 1
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Vaka Sif Tjörvadóttir er
ekki nema fjögurra ára en
er þrátt fyrir það byrjuð að
hanna föt og fylgihluti fyrir
dúkkurnar sínar
FÓTBOLTI „Fjárhagslegar aðstæður
félagsins hafa breyst og ég er einn
af launahæstu leikmönnum félags-
ins. Þeir þurfa að skera niður og
spurðu mig að því hvort við gætum
ekki komist að samkomulagi um
starfslok,“ sagði varnarmaðurinn
Rhys Weston sem er á förum frá
KR.
Hann skrifaði undir tveggja ára
samning við KR en hefur ekki þótt
standa undir væntingum. Weston
segir þó að hann sé ekki að fara af
því hann hafi verið slakur heldur
af því KR hafi ekki efni á honum.
„Þeir segja mér að ástæðan sé
fjárhagsleg. Ég verð að trúa því
sem þeir segja mér. Það eru samt
engin leiðindi á milli okkar og ég
skil vel að reksturinn sé erfiður.“
Það mátti heyra á Weston að
þessi málalok eru honum mikil
vonbrigði.
„Auðvitað er ég mjög vonsvik-
inn enda hef ég notið mín á Íslandi.
Ég vil ekkert endilega fara aftur
heim en ég skil að félagið sé mikil-
vægara en einn leikmaður. Liðið
hefur ekki staðið undir vænting-
um og hlutir þurfa að breytast.
Ég er fórnarlamb þess því miður.
Engu að síður óska ég KR alls hins
besta.“
Weston verður hér á landi fram
yfir helgi og hann veit ekki hvort
hann verður í leikmannahópi KR í
bikarúrslitaleiknum.
„Ég vil vera á leiknum og hvetja
strákana sama hvort það er úr
stúkunni eða á bekknum. Rúnar
verður að taka ákvörðun um þetta
mál. Það veltur á því hvort mitt
andlega ástand verði nógu gott
til þess að spila. Ég er miður mín
yfir þessu en ekki reiður. Ég skil
hvernig boltinn er.“ - hbg
KR-ingar reyna að ganga frá starfslokasamningi við varnarmanninn Rhys Weston:
Er miður mín en ekki reiður út í KR
OPINN FYRIR ÖLLU Weston útilokar ekki
að spila með öðru félagsliði á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
24
Stjarnan hefur
ekki unnið
sigur á KR
í öllum 24
viðureignum
liðanna í deild
og bikar
FÓTBOLTI Sænskir fjölmiðlar
greindu frá því í vikunni að LdB
Malmö, lið Söru Bjarkar Gunn-
arsdóttur og Þóru Bjargar Helga-
dóttur, glímdi við fjárhagslega
erfiðleika.
„Við tökum ekkert eftir þessu.
Öll laun hafa verið greidd og í
raun ekkert rætt um þetta mál.
Eins og þetta er lagt upp fyrir
okkur er engin ástæða til þess að
hafa áhyggjur,“ segir Þóra Björg.
Landsliðsmarkvörðurinn vinnur
þessa dagana hörðum höndum að
lokaritgerð sinni í meistaranámi í
sjálfbærri stjórnun og þekkir því
vel til viðskiptahátta hjá fyrir-
tækjum sem íþróttafélögum.
„Fæst fyrirtæki hafa fengið
tekjur fyrir allt árið til þess að
halda þeim á floti. Þannig ganga
viðskiptin yfirleitt fyrir sig,“
segir Þóra sem segir forráða-
menn sænska liðsins hafa farið
yfir málin með leikmönnum í
kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum.
„Fjölmiðillinn velur úr orð,
hefur eftir fólki og þetta var leið-
rétt. Þeir hafa aldrei leynt stöð-
unni fyrir okkur að það vanti eina
og hálfa milljón sænskra króna.
Þeir sögðu að það hefði ekkert
breyst og staðan væri óbreytt.
Þeir hafa alltaf látið okkur vita
um stöðu mála,“ segir Þóra.
Tyresö fer aðrar leiðir
Engar fregnir hafa borist af
fjárhagsvandræðum helsta keppi-
nautarins Tyresö sem hin brasil-
íska Marta spilar með. Þóra kann
skýringar á því.
„Félagið felur peningana. Það
lætur styrktaraðilana borga leik-
mönnunum beint. Peningarnir
birtast því ekki í bókum félags-
ins. Fréttamennirnir hafa ekki
vit á því að kafa meira í það. Ég
myndi giska á að launakostnað-
ur hjá Malmö sé ekki meðal topp
þriggja félaganna í deildinni. Það
eru áhugaverðar áherslur í þess-
ari umfjöllun,“ segir Þóra.
Sara Björk á eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við sænsku meistar-
ana. Samningur Þóru rennur hins
vegar út að tímabilinu loknu.
„Ég klára ritgerðina í lok mán-
aðarins og svo fer ég að skoða
mín mál,“ segir landsliðsmark-
vörðurinn. - ktd
Þóra Björg um erkifjendurna:
Tyresö felur
peningana
Á TOPPNUM Þóra og félagar hafa tveggja
stiga forskot á toppi deildarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR