Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 17.08.2012, Blaðsíða 62
17. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR46 FÖSTUDAGSLAGIÐ „Rumour has it með Adele. Það býr bara yfir svo góðum takti og er geggjað lag.“ Bjarni Snæbjörnsson leikari Danssveitin Sometime gaf út sína aðra hljómplötu nú í sumar. Plat- an nefnist Acid Make-Out: Music from the Motion Picture og hefur sveitin þegar gert samning við tvö útgáfufyrirtæki sem munu annast útgáfu plötunnar í Bandaríkjunum og Tyrklandi. „Maðurinn sem gefur plöt- una út í Tyrklandi hefur verið vinur Danna á Facebook í mörg ár og hann vildi ólmur sjá um að dreifa plötunni í Istanbúl, Ank- ara og Izmir. Hann talaði líka um að fá okkur á túr um þessar þrjár borgir, það verður áhugavert að sjá hvernig þetta fer allt saman,“ segir Rósa Birgitta Ísfeld söng- kona sem skipar sveitina ásamt Daníel Þorsteinssyni trymbli. Daníel er búsettur í Barce- lona um þessar mundir og stundar þar hönnunarnám. Hann tók að sér að hanna plötuumslag nýju plötunn- ar og segir Rósa Birgitta það nokkuð sérstakt. „Hann vildi að umslag- ið gæti lifað áfram sem eit thvað annað þar sem við teljum að geisladiskurinn sé að deyja út. Umslagið er eins konar þrí- víddarskúlp- túr og nokkuð sérstakt.“ Hljómsveit- in heldur sína fyrstu tón- leika eftir útgáfu plötunnar á Iceland Airwaves-tón- listarhátíðinni sem hefst í lok október. Einnig eru fyrirhugaðir útgáfutón- leikar á hinum nýopnaða skemmtistað Dolly síðar í haust. - sm Tónleikaferðalag um Tyrkland VINSÆL Í TYRK- LANDI Hljóm- sveitin Sometime er komin með útgáfusamning í Tyrklandi. Nýrri plötu þeirra verður dreift þar og í Bandaríkjunum. Einar Bárðarson, athafna- og umboðsmaður, opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu á Höfðatorgi í dag. Myndirnar sem verða til sýnis voru teknar í sumar þegar Einar var á ferðalagi um landið. Einar er þekktur fyrir ýmislegt annað en ljósmyndun og er líklega þekktastur sem umboðsmaður Íslands. Hann hefur þó lengi haft áhuga á ljósmyndun en eignaðist ekki almennilega myndavél þar til í fyrra. „Ég var aldrei í fremstu víg- línu hvað tækjabúnað varðar en eignaðist mjög góða vél í fyrra og hef verið að dunda mér við að læra á hana. Ég var duglegur að taka myndir á ferðalagi mínu um landið í sumar og fékk mikið hrós fyrir og ákvað því að stíga út fyrir þægindarammann og láta á slag standa og setja upp sýningu með myndunum,“ útskýrir Einar. Á sýningunni eru um tutt- ugu myndir eftir Einar og lýsir hann þeim sem „þröngum lands- lagsmyndum“. Myndefnið er náttúra Íslands og tekur Einar nærmyndir af mold, vatni, reka- við og öðru er fyrirfinnst í nátt- úrunni. „Maður er vanur að keyra hringveginn á 90 kílómetra hraða og góna út í loftið og gleymir því oft að horfa á fegurðina í kring- um sig. Það er margt að sjá ef maður bara horfir.“ Inntur eftir því hvort hann hafi í hyggju að söðla um og leggja ljósmyndun fyrir sig segir Einar að þó hann hafi gaman af ljós- myndun sé hann enginn ljósmynd- ari. „Ég kalla mig ekki ljósmynd- ara, það væri móðgun við aðra. En það gæti vel verið að ég geri meira af þessu ef sýningin leggst vel í fólk. Það er gott og gefandi að spá svona í umhverfi sitt.“ Sýningin hefst í dag og stendur til mánaðamóta. - sm EINAR BÁRÐARSON: ÁKVAÐ AÐ STÍGA ÚT FYRIR ÞÆGINDARAMMANN Úr bransanum í listina LISTRÆNN Einar Bárðarson, athafna- og umboðsmaður, heldur sína fyrstu ljósmyndasýningu í dag. JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR Z 20 12J A Z REYKJAV ÍK 18. ÁGÚST – 1. SEPTEMBER www.reykjavikjazz.is Z 20 12J A Z REYKJAV ÍK „Ég fékk húfu sem hann var að nota og hún er með rosa mikilli reykingalykt en hann reykir vindla,“ segir hinn tólf ára Sverrir Páll Hjaltested. Hann hitti Hollywood-leikarann Russell Crowe fyrir utan heimili hans að Bjarmalandi í fyrrakvöld og fékk eftir spjall og myndatöku að eiga húfuna sem leikarinn bar. „Á húfunni stendur South Sidney. Það er rugby-lið í Ástralíu en hann er þaðan.“ Með honum í för voru þeir Ágúst Karel Magnússon og Þórir Rafn Þórisson. Þeir fengu einnig húfur sem dóttir Crowe sótti inn í húsið fyrir þá. „Við vorum fyrir utan húsið sem hann leigir og það kom svartur stór Dodge-bíll og hvítur Land Rover. Þegar bílarnir stoppuðu spurðum við hvar Russell Crowe væri og þá var hann beint fyrir framan okkur og sagði: „I‘m here“.“ Þetta segja vinirnir í kór og eru í skýjunum með tíu mín- útna spjallið sem þeir áttu við stjörnuna. „Við töl- uðum mest um hjól og fengum að taka mynd af honum með símanum,“ segir Ágúst. Auk þess gaf hann þeim oft fimmur og tók í hendurnar á þeim. „Hann gat sagt nöfnin okkar því þau eru svo ein- föld,“ segir Þórir og bera þeir fram nöfnin sín með enskum hreim. Vinirnir æfa fótbolta með fimmta flokki hjá Þrótti og búa í hverfinu. Þeir hafa oft séð Crowe við hjólreiðar og höfðu fyrr um daginn bankað upp á. „Við fórum klukkan tólf um hádegið og spurðum hvort við gætum fengið eiginhandar- áritun en þá kom konan hans til dyra og sagði að hann væri ekki heima,“ segir Ágúst. Þeir fengu þó ekki eiginhandaráritanir að lokum því þá vant- aði penna en húfur úr einkasafni leikarans skáka þeim. - hþt Fengu húfur úr einkasafni Russell Crowe GÓÐUR NÁGRANNI Vinirnir Ágúst, Sverrir og Þórir fengu mynd af sér og nágranna sínum Russell Crowe í fyrrakvöld. MYND/CHRIS FEATHER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.