Fréttablaðið - 12.09.2012, Síða 2
12. september 2012 MIÐVIKUDAGUR2
MENNTAMÁL Á Íslandi ljúka hlutfallslega færri fram-
haldsskólanemar námi á tilskyldum tíma en í öðrum
OECD-löndum. Aðeins 44% íslenskra nema hafa
lokið prófi eftir fjögur ár; eftir sex ár hafa 58%
brautskráðst.
Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD) um stöðu mennta-
mála í aðildarríkjunum árið 2010 sem gefin var út í
gær.
Þegar litið er til annarra landa til saman burðar
kemur í ljós að í öllum löndum nema Íslandi og
Mexíkó hafa yfir sextíu prósent lokið námi tveimur
árum eftir tilskilinn tíma. Í hinum Norður löndunum
er hlutfallið yfir sjötíu prósent. Á móti kemur að
hvergi nema í Portúgal ljúka fleiri framhaldsskóla-
prófi seinna á lífsleiðinni en á Íslandi.
Skýrsla OECD leiðir í ljós að menntunarstaða
Íslendinga hefur batnað jafnt og þétt frá alda-
mótum. Árið 2010 höfðu 33% fólks á aldrinum 25-64
ára á Íslandi lokið háskólaprófi og 33% höfðu ekki
lokið neinu prófi eftir grunnskóla samanborið við
21% og 45% um aldamótin.
Árleg útgjöld vegna hvers nemanda á Íslandi, að
meðaltali fyrir öll skólastig árið 2009, var um 1,2
milljónir íslenskra króna miðað við gengi í lok árs
2009. Það er hærra en meðaltal OECD-landanna en
lægra en á hinum Norðurlöndunum. - shá
Menntunarstaða Íslendinga hefur batnað jafnt og þétt frá aldamótum:
Fara sér hægt í framhaldsskóla
Í FRAMHALDSSKÓLA Íslensk ungmenni fara sér hægt við að
ljúka framhaldsskólanámi. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
SLYS Slys tengd íþróttum eru
um tíu prósent þeirra slysa sem
skráð eru í Slysaskrá Íslands.
Alls voru skráð 3.882 íþrótta-
tengd slys árið 2010, sem er 10,5
prósent af heildarfjöldanum.
Hlutfall íþróttameiðsla hefur
hækkað jafnt og þétt á síðustu
árum, en árið 2007 var hlutfallið
af heildarfjölda slysa 7,4 prósent.
Árið 2009 var það komið upp í
tíu prósent. Samkvæmt Slysa-
skrá er algengast að fólk slasist
í íþróttum á kvöldin, á milli
klukkan 18 og 22. Þá eru helm-
ingi fleiri karlmenn sem slasa sig
við íþróttaiðkun en konur. - sv
Um 4.000 íþróttaslys á ári:
Íþróttameiðsl
10,5% af slysum
ÍÞRÓTTIR Sérstök hátíðardagskrá í
tilefni þess að nú eru fjörutíu ár
frá heimsmeistaraeinvígi Boris
Spassky og Bobby Fischers árið
1972 verður kynnt í borgarráði á
morgun.
Halda á málþing og fjöl-
mennt barnaskákmót og efna
til sérstakrar afmælisdagskrár
og sýningarhalds í samvinnu
Reykja víkur borgar og tafl- og
skákfélaga. Borgarráð hefur
þegar samþykkt að verja 1.270
þúsund krónum í verkefnið. Fisc-
her lést í Reykjavík í janúar 2008.
Spassky er heilsuveill og mun
halda til í Rússlandi um þessar
mundir. Hann er 75 ára. - gar
40 ár frá einvígi aldarinnar:
Einvígis minnst
í Laugardalshöll
SPASSKY OG FISCHER Gömlu meistar-
arnir tefldu saman að nýju árið 1992.
INDÓNESÍA, AP Hvergi í heiminum
reykja karlar meira en í Indó-
nesíu. Tveir af hverjum þremur
körlum eldri en fimmtán ára
stunda þar reykingar. Alls búa 80
prósent landsmanna á heimilum
þar sem reykt er.
Þegar konur eru taldar með
kemur að vísu í ljós að Rússar
reykja mest allra þjóða. Reyk-
ingahlutfallið þar er 39 prósent,
en Indónesía er í öðru sæti með
35 prósent.
Sígarettur eru ódýrar í Indó-
nesíu, tóbaksauglýsingar eru út
um allt, og lítið er um reglur sem
takmarka reykingar. - gb
Mest reykt í Indónesíu:
Tveir þriðju
karla reykja
SUÐUR-AFRÍKA, AP Þúsundir námu-
verkamanna fögnuðu ákaft
þegar Julius Malema, fyrrver-
andi leiðtogi ungliðahreyfingar
Afríska þjóðarráðsins, hvatti til
alls herjar verkfalls námuverka-
manna í landinu.
„Það verður að efna til alls-
herjarverkfalls,“ sagði Malema
og gagnrýndi eigendur námanna
fyrir að láta ekki verkamenn
njóta þess að verðið á málmunum
hefur hækkað: „Þetta fólk hefur
verið að græða milljarða á nám-
unum.“ Upp úr sauð í síðasta mán-
uði þegar lögreglumenn urðu 34
námuverkamönnum að bana við
eina af platínunámum landsins. - gb
Ólgan vex í Suður-Afríku:
Hvatt til alls-
herjarverkfalls
Reykti ölvaður í flugvél
Rúmlega fimmtugur maður var í
byrjun viku staðinn að því að reykja
inni á salerni flugvélar Icelandair.
Hann var að koma frá Noregi og var
verulega ölvaður. Í yfirheyrslu hjá
lögreglu sagðist hann sjá eftir athæfi
sínu, sem myndi ekki endurtaka sig.
Honum var síðan sleppt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Morðingi Kristjáns Hinriks
Þórssonar, átján ára íslensks pilts sem var
skotinn til bana í borginni Tulsa í Banda-
ríkjunum um helgina, er enn ófundinn.
Kristján Hinrik var skotinn ásamt 37 ára
fjölskylduvini, John White, aðfaranótt laugar-
dags á bílastæði við verslunina QuikTrip.
White lést af sárum sínum í fyrrakvöld. Ekki
liggur fyrir hvert tilefni árásarinnar var.
Amma Kristjáns Hinriks, Helena Mawby,
segir í viðtali við staðarmiðilinn NewsOn6.
com að fjölskylda hans sé enn í áfalli yfir
þessu, að því er virðist, handahófskennda
ofbeldisverki. „Þetta var svo ónauðsynlegt
– maður skilur ekki af hverju þetta gerist,“
segir Helena, sem er dóttir Alberts Guð-
mundssonar, fyrrverandi þingmanns og ráð-
herra. „Hinrik var dálítið flókinn. Hann var
mjög listrænn, frábær teiknari og elskaði að
semja ljóð, en hann var líka mjög óöruggur
vegna þess að hann stamaði,“ segir amma hans,
sem kveður hann auk þess hafa haft mjög smit-
andi hlátur. Haft er eftir Helenu að fjöl skyldan
sé hrærð yfir stuðningnum sem hún hefur
fengið frá vinum og skólafélögum Hinriks og
að jafnvel honum hefði komið á óvart hversu
mörgum hefði þótt vænt um hann. Kristján
Hinrik verður jarðaður á föstudag. - sh
Morðingi átján ára íslensks pilts gengur enn laus í bandarísku borginni Tulsa:
Amma segir Hinrik hafa verið ljóðelskan teiknara
ENN Í ÁFALLI Helena Mawby, áður Helena Þóra Alberts-
dóttir, segir fjölskyldu Kristjáns Hinriks enn í áfalli.
MYND/NEWSON6
Hera, eru þetta ekki örugglega
allt tólf stiga lög?
„Þau spanna allan skalann.“
Hera Ólafsdóttir hjá Ríkisútvarpinu segir
lög í undankeppni Eurovision-keppnina
þegar byrjuð að streyma inn. Skilafrestur
er til 8. október.
SPURNING DAGSINS
LANDBÚNAÐUR Útflutningur á
lambakjöti til ríkja innan Evr-
ópusambandsins (ESB) minnkaði
úr 640 tonnum fyrstu sex mán-
uði síðasta árs
í 250 tonn á
sama tímabili
í ár. Ástæðan
er sam dráttur
í efna hags -
kerfi ríkjanna.
Á sama tíma
jókst útflutn-
ingur lítil lega
til landa utan
ESB, eins og
Noregs og Færeyja.
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda, segir evrópska
markaði hafa verið sérstaklega
erfiða undanfarin misseri, en þó
náist yfirleitt að koma afurðunum
í verð þó þær séu ekki fluttar úr
landi.
„Það hefur verið allt í lagi.
Auðvitað leita menn alltaf leiða
til þess og heimamarkaðurinn er
enn þá sterkastur,“ segir hann.
„En það er ansi mikill munur á
því hvað er flutt til ESB í ár og
eins og þetta var í fyrra og það er
klárlega kreppan í Evrópu sem er
að hafa þar áhrif.“
Árið 2010 var metár í útflutn-
ingi á lambakjöti hér á landi, en
um leið og efnahagskreppan fór
að láta sjá sig í Evrópu, drógu
menn saman seglin.
„Það er annað neyslumynstur
þar,“ segir Sigurður. „Lamba-
kjötið er að keppa við annað kjöt
hér, en í Evrópu eru menn fljótari
að skera það út af matseðlinum
þegar harðnar í ári. Og þetta á við
um fleiri afurðir en lambakjöt.“
Íslenskir sauðfjárbændur stofn-
uðu regnhlífarsamtök fyrir mark-
aðssetningu á betra lambakjöti
fyrir smærri og dýrari heims-
markaði í fyrra.
Samtökin heita Iceland Lamb og
halda utan um markaðssetningu
sjö íslenskra lambakjötsfram-
leiðenda.
Sigurður segir að með slíkri
markaðssetningu sé verið að
hafa áhrif á markaði sem gefi
betra verð og fylgi kjötinu allt til
enda, en uppruni íslensks lamba-
kjöts týnist víðast hvar í söluferli
erlendis og er kjötið því einungis
selt sem innflutt, nema á dýrari
mörkuðum.
„Neytandinn verður með vitaður
um að varan komi héðan og myndar
tengsl við hana og framleiðslu-
landið,“ segir Sigurður. Frétta-
blaðið greindi frá því í síðustu
viku að mikil eftirspurn væri á
mörkuðum í Asíu og Ameríku eftir
betra lambakjöti og verið væri að
horfa til landa eins og Sádi- Arabíu,
Singapúr og Kanada til útflutnings,
en Bandaríkjamarkaður og smærri
markaðir í Rússlandi hafa flutt
inn íslensk lambakjöt í nokkur ár.
sunna@frettabladid.is
Evrópa tekur lambið
af matseðli í kreppu
Útflutningur á íslensku lambakjöti til ESB-ríkja dróst saman um meira en
helming fyrstu sex mánuði ársins. Kreppan í Evrópu gerir útflutning erfiðari.
Framleiðendur hafa stofnað markaðssamtök fyrir dýrari erlenda markaði.
ÍSLENSKT LAMB Í WHOLE FOODS Bandaríkjamenn hafa flutt inn íslenskt lambakjöt undanfarin ár og er það selt þar sem íslensk
vara í mörkuðum Whole Foods.
SIGURÐUR
EYÞÓRSSON