Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 32
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, alþingismaður.
ERLENT MYNDBAND
Nýsköpun
í blóði Pólverja.
Hin
hliðin
Það var árið 1997 sem Tom Peters,
einn dálkahöfunda hjá Fast Comp-
any, skrifaði grein undir yfirskriftinni
„THE BRAND CALLED YOU!“ eða
„Vörumerkið þú!“ Greinin vakti
viðbrögð um allan heim og opnaði
augu fólks fyrir því að verða með-
vitaðra um fyrir hvað það stendur,
fyrir hvað það vill verða þekkt og
hvaða tilfinningu það vill kveikja í
hugum samferðafólks síns. Hvort
sem okkur líkar það betur eða
verr, þá erum við þegar komin
með ákveðið orðspor, við erum
þegar komin með ákveðna ímynd í
hugum fólks þegar nafn okkar ber
á góma. Spurningin er hvort það sé
sú ímynd sem við viljum vera þekkt
fyrir? Þetta var árið 1997, löngu fyrir
tíma Facebook, LinkedIn, Twitter og
hundruða annarra samfélagssíðna,
bloggsíðna og annarra netmiðla. Í
dag lifum við í heimi þar sem allt
gengur út á gegnsæi einstaklingsins
og þátttöku hans á samfélags-
miðlum. Orð, athafnir okkar og
atferli sem einstaklingar hafa aldrei
verið sýnilegri fyrir alheiminum og
um leið haft úrslitaáhrif á þá ímynd
sem við höfum og allt gerist þetta í
rauntíma.
Hvað segja Google-
niðurstöður um þig og
fyrirtækið þitt „ÉG ehf.“?
Hvort sem þú ert að fara á blint
stefnumót eða á viðskiptafund með
nýjum aðilum, þá er viðmælandi
þinn að öllum líkindum búinn að
gúgla nafnið þitt til að kanna nánar
hver þú ert og fyrir hvað þú stendur.
Rannsóknir hafa sýnt að það tekur
undirmeðvitund okkar innan við
mínútu að ákveða hvort okkur líkar
eða líkar ekki við eitthvað/einhvern.
Við tökum ákvörðun á augabragði
hvort við treystum viðkomandi
eða ekki, og traust er vissulega ein
nauðsynlegasta undirstaða í öllum
viðskiptum.
Hvað segir LinkedIn-prófíllinn
þinn um þig?
Með því að vera með vel útfærðan
prófíl á LinkedIn ertu hluti af
alþjóðlegu samfélagi 175 milljóna
manna og kvenna í atvinnulífinu
um heim allan. Þar sem íslenskt
atvinnulíf er samtengt alþjóðlegu
atvinnulífi getur þessi eini prófíll
opnað ný viðskiptatækifæri fyrir
þig og vörumerki þitt! Vel upp-
settur og útfærður LinkedIn-prófíll,
sem sýnir sérstöðu þína á sam-
keppnismarkaði, verður að uppfylla
sjö lykilatriði innan leitarkerfis
LinkedIn svo að þitt nafn komi upp
í leitarniðurstöðum vefsins. Slíkur
prófíll er að mínu mati eitt af því
nauðsynlegasta sem þú þarft að
huga að til að vinna að því að efla
orðspor þitt og ímynd í atvinnu-
lífinu, skapa þér traust og byggja
upp það persónulega vörumerki
sem þú vilt standa fyrir.
Fyrir hvað stendur ÉG ehf.?
Forstjórinn ÞÚ í
fyrirtækinu „ÉG“
RÚNA
MAGNÚSDÓTTIR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Á Íslandi þurfa nokkur börn að takast á við ólæknandi sjúkdóma og erfiðleika sem
mörgum hinna fullorðinna væri um megn. Öll fjölskyldan berst og þjáist með og
enginn veit hvar illvíga sjúkdóma ber næst niður. En við getum hjálpað þessum
ungu hetjum í baráttunni og með því að kaupa Á allra vörum gloss frá Dior leggur
þú þitt lóð á vogarskálarnar!
Eftirtaldir staðir selja Á allra vörum gloss
Fríhöfnin, Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Snyrtivöruverslanir Hagkaups um land allt
Lyf og heilsa um land allt
Lyfja um land allt
Hygea, Kringlunni og Smáralind // Sigurboginn // Snyrtivöruverslunin Glæsibæ // Ólöf snyrtistofa, Selfossi // Jara, Akureyri
Einnig er hægt að kaupa gloss á www.aallravorum.is
Eitt, tvö, þrjú
og það varst þú...
www.aallravorum.is