Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 32
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, alþingismaður. ERLENT MYNDBAND Nýsköpun í blóði Pólverja. Hin hliðin Það var árið 1997 sem Tom Peters, einn dálkahöfunda hjá Fast Comp- any, skrifaði grein undir yfirskriftinni „THE BRAND CALLED YOU!“ eða „Vörumerkið þú!“ Greinin vakti viðbrögð um allan heim og opnaði augu fólks fyrir því að verða með- vitaðra um fyrir hvað það stendur, fyrir hvað það vill verða þekkt og hvaða tilfinningu það vill kveikja í hugum samferðafólks síns. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þá erum við þegar komin með ákveðið orðspor, við erum þegar komin með ákveðna ímynd í hugum fólks þegar nafn okkar ber á góma. Spurningin er hvort það sé sú ímynd sem við viljum vera þekkt fyrir? Þetta var árið 1997, löngu fyrir tíma Facebook, LinkedIn, Twitter og hundruða annarra samfélagssíðna, bloggsíðna og annarra netmiðla. Í dag lifum við í heimi þar sem allt gengur út á gegnsæi einstaklingsins og þátttöku hans á samfélags- miðlum. Orð, athafnir okkar og atferli sem einstaklingar hafa aldrei verið sýnilegri fyrir alheiminum og um leið haft úrslitaáhrif á þá ímynd sem við höfum og allt gerist þetta í rauntíma. Hvað segja Google- niðurstöður um þig og fyrirtækið þitt „ÉG ehf.“? Hvort sem þú ert að fara á blint stefnumót eða á viðskiptafund með nýjum aðilum, þá er viðmælandi þinn að öllum líkindum búinn að gúgla nafnið þitt til að kanna nánar hver þú ert og fyrir hvað þú stendur. Rannsóknir hafa sýnt að það tekur undirmeðvitund okkar innan við mínútu að ákveða hvort okkur líkar eða líkar ekki við eitthvað/einhvern. Við tökum ákvörðun á augabragði hvort við treystum viðkomandi eða ekki, og traust er vissulega ein nauðsynlegasta undirstaða í öllum viðskiptum. Hvað segir LinkedIn-prófíllinn þinn um þig? Með því að vera með vel útfærðan prófíl á LinkedIn ertu hluti af alþjóðlegu samfélagi 175 milljóna manna og kvenna í atvinnulífinu um heim allan. Þar sem íslenskt atvinnulíf er samtengt alþjóðlegu atvinnulífi getur þessi eini prófíll opnað ný viðskiptatækifæri fyrir þig og vörumerki þitt! Vel upp- settur og útfærður LinkedIn-prófíll, sem sýnir sérstöðu þína á sam- keppnismarkaði, verður að uppfylla sjö lykilatriði innan leitarkerfis LinkedIn svo að þitt nafn komi upp í leitarniðurstöðum vefsins. Slíkur prófíll er að mínu mati eitt af því nauðsynlegasta sem þú þarft að huga að til að vinna að því að efla orðspor þitt og ímynd í atvinnu- lífinu, skapa þér traust og byggja upp það persónulega vörumerki sem þú vilt standa fyrir. Fyrir hvað stendur ÉG ehf.? Forstjórinn ÞÚ í fyrirtækinu „ÉG“ RÚNA MAGNÚSDÓTTIR F í t o n / S Í A Á Íslandi þurfa nokkur börn að takast á við ólæknandi sjúkdóma og erfiðleika sem mörgum hinna fullorðinna væri um megn. Öll fjölskyldan berst og þjáist með og enginn veit hvar illvíga sjúkdóma ber næst niður. En við getum hjálpað þessum ungu hetjum í baráttunni og með því að kaupa Á allra vörum gloss frá Dior leggur þú þitt lóð á vogarskálarnar! Eftirtaldir staðir selja Á allra vörum gloss Fríhöfnin, Flugstöð Leifs Eiríkssonar Snyrtivöruverslanir Hagkaups um land allt Lyf og heilsa um land allt Lyfja um land allt Hygea, Kringlunni og Smáralind // Sigurboginn // Snyrtivöruverslunin Glæsibæ // Ólöf snyrtistofa, Selfossi // Jara, Akureyri Einnig er hægt að kaupa gloss á www.aallravorum.is Eitt, tvö, þrjú og það varst þú... www.aallravorum.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.