Fréttablaðið - 12.09.2012, Qupperneq 10
12. september 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Velferðarráðuneyti
233. 557
Fjármálaráðuneyti
62.824
Iðnaðarráðuneyti
7.412
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti
4.119
Umhverfisráðuneyti
8.895
Vaxtagjöld ríkissjóðs
88.097
Æðsta stjórn ríkisins
3.650
Forsætisráðuneyti
1.040
Mennta- og menningarráðuneyti
66.274
Utanríkisráðuneyti
11.051
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
20.057
Innanríkisráðuneyti
66.089
Heildarútgjöld
ríkissjóðs
573,145
milljarðar
Heildartekjur
570.345
Heildarjöfnuður
-2.800
Útgjöld ríkissjóðs eftir málaflokkum í fjárlagafrumvarpi 2013
Minni þörf á niðurskurði en síðustu ár
Ríkisstjórnin hefur frá hruni verið með veltutengd aðhaldsmarkmið eftir mála-
flokkum, en auk þeirra hefur verið gripið til margvíslegra sértækra aðhaldsráð-
stafana. Að þessu sinni er velferðarþjónustu og löggæslu hlíft við niðurskurði.
Alm. opinber stjórnsýsla 5% 2% 10% 9% 3% 1,8%
Stjórnsýslu og eftirlitsst. 5% 2% 10% 9% 3% 1,8%
Framhaldsskólar 3% 1,6% 7% 5% 1,5% 1%
Háskólar 3% 1,6% 7% 7,5% 1,5% 1%
Löggæslustofnanir 3% 2% 5% 5% 1,5% 0%
Sjúkrahús 3% 1% 5% 5% 1,5% 0%
Heilbrigðis- og öldrunarst. 3% 1% 5% 5% 1,5% 0%
Málefni fatlaðra 3% 1% 5% 5% 1,5% 0%
Fjárlög
2009
Fjárlög
2010
Fjárlög
2011
Fjárlög
2012
Frum-
varp
2013
Fjár-
aukalög
2009
Fjármálaráðherra segir
fjárlagafrumvarpið fyrir
árið 2013 marka tímamót
þar sem nú hillir undir að
ríkissjóður verði rekinn
með afgangi. Gert er ráð
fyrir 2,8 milljarða halla
næsta ár en afgangi 2014.
Í fjárlagafrumvarpinu 2013 sem
Oddný Harðardóttir fjármálaráð-
herra kynnti í gær er gert ráð fyrir
2,8 milljarða halla á ríkissjóði á
næsta ári. Ef vaxtatekjur og -gjöld
eru undanskilin er útkoman jákvæð
um 4,3 milljarða. Stefna ríkisstjórn-
arinnar er að ná jafnvægi í ríkis-
rekstri árið 2014. Hallinn fór allt
niður í tæpa 140 milljarða árið 2009,
en í ár er gert ráð fyrir að hallinn
verði tæpir 26 milljarðar.
Ráðherra boðaði nýjar áherslur
í ríkisframlögum í krafti bættrar
rekstrarstöðu ríkissjóðs, þar sem
9,5 milljörðum verður varið til
stuðnings við barnafjölskyldur og
til atvinnusköpunar.
3,8 milljarðar fara í verkefni á
fjárfestingaráætlun ríkisstjórnar-
innar, 1,3 milljarðar í styrkingu
rannsókna- og tæknisjóða, 2,5 millj-
arðar í samgönguframkvæmdir
og 4,3 milljarðar fara í að styðja
fjölskyldur í greiðsluvanda vegna
bankahrunsins, meðal annars gegn-
um barnabætur, fæðingarorlof og
auknar vaxta-/húsnæðisbætur.
Frá hruni hefur verið dregið
verulega úr útgjöldum ríkisins,
en í frumvarpinu nú er mun lægri
krafa um aðhald í flestum mála-
flokkum. 1,75% niðurskurður er í
almennri stjórnsýslu, 1,2% af veltu
bótakerfa og sjúkratrygginga, 1%
af veltu háskóla og framhaldsskóla
og hálft prósent af veltu löggæslu-
stofnana. Engin niðurskurðarkrafa
verður að þessu sinni gerð í rekstri
sjúkrahúsa, heilsugæslu, heilbrigðis-
stofnana og öldrunarstofnana.
Ráðherra tiltók tvo meginóvissu-
þætti í ríkisfjármálunum. Annars
vegar er ekki hægt að áætla kostnað
sem gæti fallið á ríkið vegna Ice-
save-málsins, og hins vegar er
eigin fjárstaða Íbúðalánasjóðs veik
og stendur nú yfir úttekt á fjárhags-
stöðu sjóðsins.
Til framtíðar litið er helsta verk-
efni ríkissjóðs að grynnka á skuld-
um og að nú sé tímabært að útfæra
langtímamarkmið í þeim efnum.
Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi
í gær og er fullvíst að það tekur
breytingum í meðförum þingsins.
Áherslan á barnafólk og atvinnusköpun
Minnkandi halli í ríkisrekstri:
Heildarjöfnuður ríkissjóðs 2009-2013 (milljarðar króna)
0
-30
-60
-90
-120
2009 2010 2011 2012 2013
-2,8-25,8-89,4-123,3-139,3
Perudagar
Nú þegar hausta tekur og landsmenn verða
áþreifanlega varir við myrkrið, ætlar Glóey
að efna til svokallaðra perudaga sem standa
munu dagana 10.-14. september.
Verslunin býður þá viðskiptavinum sínum
aðstoð og lausnir við val á ljósaperum og
verða allar perur seldar á sérstökum
afslætti.
Boðið verður upp á ráðgjöf varðandi orku-
sparnað í inni- og útiljósum og hvað er til
ráða vegna glóperubannsins.
Þessa dagana brenna ýmsar spurningar á
fólki.
Er hægt að dimma sparperur?
Fæ ég perur í gömlu ljósakrónuna mína?
Fást sérperur áfram sem glóperur?
Eru allar sparperur með blárri/gulri birtu?
Verslunin Glóey er til húsa í Ármúla 19.
Réttlæti
Jafnrétti
Réttlæti
Mætum öll í Ráðhús Reykjavíkur
13. september kl. 16.00 til 18.00
Baráttumál ÖBÍ
– kynningarfundur
Ekkert um okkur án okkar
Jafnrétti
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Fjárlagafrumvarpið 2013