Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 18
| 2 12. september 2012 | miðvikudagur
Fróðleiksmolinn
Heildarútlán íslenska bankakerfisins rétt fyrir bankahrun voru 4.891 ma.kr.
Eftir setningu neyðarlaganna lækkuðu heildarútlán kerfisins í 2.172 ma.kr
sem var þá lækkun uppá 2.714 ma.kr. Frá þeim tíma hafa heildarútlán í
kerfinu staðið nokkuð í stað og eru nú um 2.000 ma.kr.
Þrír stærstu útlánaflokkar bankakerfisins í júlí 2012 voru verðtryggð, óverð-
tryggð og gengisbundin lán. Frá bankahruni hafa gengisbundin skulda-
bréfalán lækkað um 2.447 ma.kr. eða 86%. Verðtryggð lán hafa aukist um
232 ma.kr og óverðtryggð lán um 390 ma.kr. Breytinguna á óverðtryggðum
lánum má að mestu rekja til nýrra húsnæðislána sem bankarnir hafa verið
að bjóða frá bankahruni.
Útlán innlánsstofnana
Þróun helstu útlánaflokka
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Miðvikudagur 12. september
➜ Greiðslumiðlun hagtölur SÍ
➜ Fjarskipti á náttúruhamfaratímum
Fimmtudagur 13. september
➜ Vísitala launakostnaðar á 2. Árs-
fjórðungi 2012
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir
hagtölur SÍ
➜ Útboð ríkisvíxla
Föstudagur 14. september
➜ Atvinnuleysi í ágúst 2012
➜ Smásöluvísitala RSV
➜ Fiskafli í ágúst 2012
➜ Tryggingafélög hagtölur SÍ
Mánudagur 17. september
➜ Velta skv. virðisaukaskatts-
skýrslum jan.-jún. 2012
➜ Samræmd vísitala neysluverðs í
ágúst 2012
➜ Valkostir Íslands í gjaldmiðils-
og gengismálum útgáfa SÍ
Þriðjudagur 18. september
➜ Vísitala íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu
➜ Mannanöfn 1. janúar 2012
Miðvikudagur 19. september
➜ Upplýsingar um leiguverð íbúða-
húsnæðis
➜ Verðmæti sjávarafla janúar-júní
2012
Fimmtudagur 20. september
➜ Vísitala byggingakostnaðar
október 2012
Föstudagur 21. september
➜ Mánaðarleg launavísitala í ágúst
2012
➜ Greiðslujöfnunarvísitala 2012
➜ Útboð verðbréfa
➜ Útboð ríkisbréfa
Skoða nánar: http://data.is/Onb8nT
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
5
4
3
2
1
0
ÞÚ
SU
N
D
M
IL
LJ
AR
Ð
AR
VERÐTRYGGÐ LÁN 743 39% 232 45%
ÓVERÐTRYGGÐ LÁN 547 28% 390 248%
GENGISTRYGGÐ LÁN 408 21% -2.447 -86%
88%
Ma.kr. Ma.kr.
Br. í
prósent
Stærð
útlánafl okka
Staðan í lok júlí 2012:
Breyting frá bankahruni:
(6. okt 2008)
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
3
2,5
2
1,5
1
0,5
0
ÞÚ
SU
N
D
M
IL
LJ
AR
Ð
AR 6. OKTÓBER 2008
BANKAHRUNIÐ OG
NEYÐARLÖGIN SETT
Skoða nánar: http://data.is/RBUjWx
ÓVERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF
VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF
GENGISBUNDIN SKULDABRÉF
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
SAGA CLASS
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta
þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og
ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju
fyrirtæki.
Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla
daga ársins.
Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða
Icelandair.
Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
39
19
0
3
/2
01
1
SJÁVARÚTVEGUR
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
Bókfært virði lána Landsbankans,
Íslandsbanka og Arion banka til
sjávarútvegsfyrirtækja hefur
dregist saman um samtals 39,2
milljarða króna frá því að bank-
arnir voru settir á fót. Langstærsti
hluti þeirrar lækkunar hefur átt
sér stað hjá Landsbankanum en
bókfærð útlán Arion banka til
geirans hafa staðið í stað. Stór
ástæða þessarar breytingar er
sú að stærri sjávarútvegsfyrir-
tæki landsins hafa verið að borga
skuldir sínar mjög hratt niður.
Hjá Íslandsbanka einum saman
nema afborganir stærri fyrir-
tækja í sjávarútvegi um fimm-
tíu milljörðum króna frá stofnun
bankans. Bankarnir tjá sig ekki
um einstaka viðskiptavini og því
er ekki hægt að fá sundurliðun á
því hvaða fyrirtæki hafa verið að
greiða niður skuldir sínar.
Landsbankinn er stærsti lán-
veitandi sjávarútvegsfyrirtækja á
Íslandi. Í svari bankans við fyrir-
spurn Fréttablaðsins kemur fram
að útlánasafn bankans til þessa
geira hafi staðið í 172 milljörðum
króna í lok árs 2008 en hafi verið
139 milljarðar króna um mitt
þetta ár. Það hefur því lækkað
um 33 milljarða króna. Að sögn
Kristjáns Kristjánssonar, upplýs-
ingafulltrúa Lands bankans, eru
nokkrir þættir sem hafa áhrif til
hækkunar eða lækkunar. „Það eru
gengisdómar, af skriftir, endur-
greiðslur, ný lán og svo endurmat
lána. Gengið er á svipuðum stað
á báðum tímapunktum og hefur
því ekki veruleg áhrif. Við erum
ekki með sundurliðun á áhrifum
annarra þátta en endurgreiðslur
skulda eiga þar verulega stóran
hlut að máli.“
Hjá Íslandsbanka fengust þau
svör hjá Guðnýju Helgu Her-
bertsdóttur, upplýsingafulltrúa
bankans, að afborganir lána
stærri fyrirtækja í sjávarútvegi
„nema um 50 milljörðum króna
frá stofnun bankans og á sama
tímabili hefur bókfært virði lána-
safnsins lækkað um 6,2 millj-
arða króna. Skýringin á því að
safnið minnkar ekki meira felst
aðallega í nýjum lánveitingum,
endur mati á lánasafni, verðbót-
um og gengisbreytingum.“ Bók-
fært virði allra útlána Íslands-
banka til sjávarútvegs nam 72,7
milljörðum króna um mitt ár
2012. Slík lán eru um þrettán pró-
sent af heildarút lánum bankans.
Eini geirinn sem fær meira lánað
frá bankanum eru fasteignafélög,
sem fá um fjórtán prósent af
heildarútlánum.
Í svari Haraldar Guðna Eiðs-
sonar, upplýsingafulltrúa Arion
banka, við fyrirspurn Markað-
arins segir að upphafsstaða lána
til sjávarútvegs þegar bankinn
var settur á fót hafi verið um 73
milljarðar króna. „Nettó útlán
til þeirra félaga sem stóðu að
baki upphafsstöðunni eru í dag á
svipuðum slóðum, eða rúmir 73
milljarðar króna, að teknu tilliti
til nýrra útlána, uppgreiðslna og
afskrifta. Hins vegar hafa bæst
við útlán til nýrra viðskiptavina í
sjávarútvegi og fela þau í sér ríf-
lega fjórðungs aukningu í útlán-
um bankans til sjávarútvegsfyr-
irtækja,“ segir Haraldur Guðni.
Stórar útgerðir greiða
skuldir hratt niður
Bókfært virði útlána stóru bankanna til sjávarútvegs hefur lækkað
um 40 milljarða frá því að þeir voru settir á fót. Uppgreiðslur
stórra fyrirtækja á lánum hafa skipt sköpum í því samhengi.
ARÐBÆRT Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja hefur verið mikill á síðustu árum. Stærstu
fyrirtækin hafa nýtt sér góðærið til að greiða niður skuldir sínar við íslenska banka.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Hreinn hagnaður sjávarútvegs var samtals 62 milljarðar króna á árunum
2009 og 2010, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Ljóst er að afkoman
í fyrra, og það sem af er árinu 2010, verður enn betri hjá mörgum fyrir-
tækjum í þessum geira.
Skuldir sjávarútvegs lækkuðu um 63 milljarða króna á milli áranna 2009
og 2010 og stóðu í 500 milljörðum króna í árslok 2010. Miðað við þá þróun
sem sést í ársreikningum þeirra stóru sjávarútvegsfyrirtækja sem skilað hafa
uppgjöri er ljóst að þessi skuldastaða hefur minnkað enn frekar í fyrra.
HB Grandi, eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, er eina slíka fyrir-
tækið sem er skráð á markað. Í uppgjöri þess fyrir fyrstu sex mánuði ársins í
ár kemur fram að hagnaður HB Granda fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta
(EBITDA) var 4,5 milljarðar króna. Slíkur hagnaður nam 8,8 milljörðum króna
á árinu 2011 og 6,4 milljörðum króna árið 2010. Samtals hefur EBITDA-
hagnaður HB Granda á síðasta tveimur og hálfa árinu numið 19,7 milljörðum
króna miðað við gengi dagsins í dag. Á sama tíma hefur félagið greitt skuldir
sínar hratt niður. Í árslok 2010 skuldaði HB Grandi 25,4 milljarða króna.
Skuldir fyrirtækisins um mitt þetta ár voru hins vegar 19,7 milljarðar króna.
Þær höfðu því lækkað um 5,7 milljarða króna á einu og hálfu ári.
GRÍÐARLEG HAGNAÐARAUKNING