Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 36
12. september 2012 MIÐVIKUDAGUR20
BAKÞANKAR
Svavar
Hávarðsson
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. lappi, 6. pot, 8. mál, 9. rönd,
11. 950, 12. sneið, 14. bæ, 16. í röð,
17. nár, 18. stefna, 20. samtök,
21. eignarfornafn.
LÓÐRÉTT
1. grasþökur, 3. bardagi, 4. land í SA-
Asíu, 5. angan, 7. agn, 10. óvild,
13. hlaup, 15. hrumur, 16. rámur,
19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sami, 6. ot, 8. tal, 9. rák,
11. lm, 12. flaga, 14. bless, 16. hi, 17.
lík, 18. átt, 20. aa, 21. sitt.
LÓÐRÉTT: 1. torf, 3. at, 4. malasía, 5.
ilm, 7. tálbiti, 10. kal, 13. gel, 15. skar,
16. hás, 19. tt.
Góðan dag-
inn minn
kæri! Takk
fyrir nóttina!
Mmmmm -
mmmmh!
Nei, nei, nei!
Auðvitað
höldum við
þessu fyrir
okkur!
Takk! Það
skiptir
mig máli!
Slappaðu af
sykurpúði!
Þetta er bara á
milli okkar!
MH?
Þau virðast ekki
geta komið
sér saman um
hvaða stærð á að
kaupa!
Svona!
Veggurinn
minn er
tilbúinn!
ÚTSALA Á RÚMU
M
Stofan mín er á stærð við leikteppi tveggja ára gamals barns. Í öndvegi
stendur þar forláta túbusjónvarp af Grun-
dig-gerð, fjórtán ára gamalt. Það er á stærð
við tönn á traktorsgröfu og myndgæðin á
29 tommu skjánum eru satt best að segja
engin. Þetta tvennt, stofan mín og Grun-
digginn, eiga illa saman en einhverra hluta
vegna fæ ég það ekki af mér að skilja á
milli og bjóða nýtt sjónvarp velkomið í
húsið. Fyrir því eru fleiri en ein ástæða.
Hér verður aðeins fjallað um eina þeirra.
EINHVERN tímann á því herrans ári 1998
vantaði mig sjónvarp. Á þeim tíma voru
þessi tæki dýr en ég lét það ekki fara
í taugarnar á mér. Ég hafði í huga
orð föður míns að þegar ráðist væri í
stærri sem smærri fjárfestingar ætti
að hafa það að leiðarljósi að kaupa „einu
sinni gott“. Eins háttaði svo til á þess-
um tíma að ég hafði alveg efni á því
að kaupa mér kjörgrip, og leit því
ekki við öðru. Ég staðsetti Grundig
Megatron 100Hz í verslun einni og
gerði að því skóna að ganga frá
kaupunum. Fyrir tækið þurfti ég
að reiða fram 199.900 krónur.
ÞÁ kom inn óvæntur vinkill á
málið. Mér bauðst yfirdráttar-
heimild hjá fjármálafyrirtæki
sem ég átti ekki í neinum við-
skiptum við. Ég hafði á þessum árum
[lesist: hef] ekki nokkurt einasta vit á
fjármálum svo ég tók þessari nýju fjár-
mögnunarleið fyrir sjónvarpið mitt tveimur
höndum. Upphæðin var 200.000 svo þetta
skítsmall allt saman. Ég ætlaði svo að
greiða þetta niður með jöfnum afborgun-
um, eins og menn gera þegar þeir taka lán.
ÞETTA gekk ekki eftir. Ég keypti vissulega
sjónvarpið en yfirdráttarheimildin var allt-
af þarna fullnýtt. Það var svo á útmánuðum
ársins 2010 að ég fékk símtal frá þjónustu-
fulltrúa þar sem mér var tjáð að mér stæðu
til boða tveir kostir. Greiða yfirdráttinn
að fullu eða borga hann niður með jöfnum
afborgunum á næstu fjörutíu mánuðum. Ég
gekk að þeim síðari.
ÉG er þess vegna nýbyrjaður að borga
niður sjónvarp sem ég keypti haustið 1998,
og á töluvert eftir. Mér telst til að ég hafi
núna borgað 24 sinnum fimm þúsund kall,
en það var svipað og ég borgaði í vexti 144
mánuði þar á undan að meðaltali. Það er þá
ekki nema 80 þúsund krónur eftir og þá er
sjónvarpið loksins mitt.
900.000? Smá plús eða mínus. Nei, það
getur ekki verið. Yfirdráttarskuldir heimil-
anna hafa vaxið um marga milljarða frá
hruni. Það geta ekki allir verið jafn vitlaus-
ir og ég að reikna.
Sjónvarpið mitt
TENERIFE
GÖNGUFERÐ
Nánar á uu.is
Brottför 13. október - vika
Innifalið: flug, flugvallarskattar, akstur til og
frá flugvelli, gisting í 7 nætur, fullt fæði, drykkir
með mat, gönguferðirnar, íslenskur og erlendur
fararstjóri í gönguferðunum, allir fá afhendar
myndir úr ferðinni við heimför!
um blómaeyjuna
VERÐ AÐEINS: 188.750,-
m.v 2 fullorðna í tvíbýli á ORO NEGRO