Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 42
12. september 2012 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Eftir draumabyrjun Lars
Lagerbäck með íslenska lands-
liðið fyrir helgi var liðið vakið af
værum blundi sínum á Kýpur í
gær. Þar töpuðu strákarnir, 1-0, og
verða úrslitin að teljast sanngjörn.
„Þetta eru gríðarlega mikil von-
brigði fyrir okkur,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn og fyrirliðinn Aron
Einar Gunnarsson tók undir það.
„Við erum allir svekktir eins og
fólkið heima. Það þýðir samt ekk-
ert að leggjast í jörðina og grenja.
Við verðum að halda áfram.“
Kýpverjar skoruðu eina mark
leiksins á 57. mínútu og kom það
eftir að legið hafði á íslenska liðinu
í nokkurn tíma. Markið kom eftir
vel útfærða sókn Kýpverja þar
sem varnarleikur liðsins alls brást,
einu sinni sem oftar í leiknum.
Kantmaðurinn Dimitris Christofi
var skilinn einn eftir í teignum og
lagði hann upp markið fyrir Con-
stantinos Makridis sem skoraði
með hnitmiðuðu skoti.
Tveimur mínútum síðar kom
besta færi Íslands þegar varamað-
urinn Alfreð Finnbogason skaut í
slá. Það reyndist eina marktilraun
Íslands í öllum síðari hálfleiknum.
Leikmenn Íslands voru yfir-
leitt skrefi á eftir og gegn betra
liði hefði þeim verið refsað mun
oftar. En ein góð sókn og eitt gott
mark dugði til að þessu sinni og
vilja strákarnir sjálfsagt gleyma
þessum leik sem allra fyrst.
Vantaði flæði í okkar leik
„Okkur gekk illa að ná upp okkar
spili og því sem var lagt upp með
að gera fyrir leikinn. Við vildum
fá ákveðið flæði í okkar leik, nota
kantana því við vissum að þeir
væru þéttir og myndu færa liðið
sitt allt yfir,“ sagði fyrirliðinn
Aron Einar Gunnarsson.
„En við náðum aldrei takt við
þeirra tempó í leiknum og ég held
að það hafi verið fyrst og fremst
það sem skipti sköpum,“ bætti
hann við.
Ragnar Sigurðsson tók í svip-
aðan streng eftir leikinn og sagði
leikmennina aðeins geta sjálfum
sér um kennt. „Það er óþolandi að
hafa tapað þessum leik. Þetta er lið
sem við eigum að vinna að mínu
mati,“ sagði Ragnar. „Við vorum
með mikla trú og væntingar fyrir
leikinn. Það er ömurlegt að hafa
ekki náð að vera betri en þetta í
dag. Við vorum einfaldlega ekki
nógu góðir.“
Það var margt sem amaði að
leik Íslands í gær. Kýpverjar áttu
auðvelt með að finna svæði á milli
varnar og sóknar og þó svo að það
hafi ekki oft reynt mikið á Hannes
Þór Halldórsson í markinu komu
Kýpverjar mörgum skotum að
marki og voru mikið í kringum
vítateig íslenska liðsins.
Þegar kom að því að sækja
virtist þessu unga, ákveðna og
sókndjarfa liði okkar ganga hreint
bölvanlega að byggja upp almenni-
lega sókn. Sérstaklega kom lítið úr
kantmönnum okkar í leiknum og
þeir sem fremstir voru fengu úr
litlu sem engu að moða á löngum
köflum í leiknum.
Gekk illa að stjórna okkar spili
„Við náðum aldrei að verjast nógu
vel og þá verður erfitt að byggja
upp sóknir. Þeir gerðu vel með
því að spila grimman sóknarleik
og pressuðu okkur stíft. Það gerði
okkur erfitt fyrir,“ sagði Lager-
bäck.
„Við vorum að vinna boltann á
erfiðum stöðum og fyrir vikið varð
lítið úr því. Engu að síður hefðum
við mátt hafa betri stjórn á spilinu
okkar og sendingum. Þeir gerðu
vel með því að loka á okkur en það
kom meira til. Meira að segja föstu
leikatriðin voru léleg hjá okkur en
þau hafa verið góð hingað til.“
Útlitið fyrir næstu leiki dökkn-
aði enn þegar varnarmaðurinn
Sölvi Geir Ottesen fékk beint rautt
spjald fyrir tæklingu fimm mín-
útum fyrir leikslok. Hann verður
því í banni gegn Albaníu þann 12.
október en þá verður annar erfiður
leikur á útivelli. Lagerbäck segir
að liðið hafi dregið lærdóm af
leiknum í gær sem muni nýtast
liðinu í næstu verkefnum.
„Kannski vorum við fullbjart-
sýnir fyrir leikinn, bæði ég og
leikmenn, eftir leikinn gegn Nor-
egi. Við náðum aldrei að verjast
vel í leiknum og þá var erfitt
að hafa aðra þætti í lagi. Það er
erfiðara að spila mótsleiki en vin-
áttulandsleiki og við þurfum að
draga okkar lærdóm af þessu.
Þetta var bara ekki okkar dagur,“
sagði Lagerbäck.
eirikur@frettabladid.is
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR er komin inn í landsliðshóp Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar fyrir leikina mikil-
vægu gegn Norður-Írum 15. september og Noregi 19. september. Margrét Lára var búin að afboða sig vegna meiðsla
en spilaði síðan síðustu 20 mínúturnar með Kristianstad-liðinu í fyrrakvöld. Sigurður Ragnar bætti henni því við hópinn.
Þetta eru góðar fréttir fyrir kvennalandsliðið enda er Margrét Lára aðalmarkaskorari liðsins undanfarin ár.
Það er óþolandi að
hafa tapað þessum
leik. Þetta er lið sem við
eigum að vinna.
RAGNAR SIGURÐSSON
LEIKMAÐUR ÍSLANDS
A-RIÐILL
Serbía-Wales 6-1
Belgía-Króatía 1-1
Skotland-Makedónía 1-1
B-RIÐILL
Búlgaría-Armenía 1-0
Ítalía-Malta 2-0
1-0 Mattia Destro (5.), 2-0 Federico Peluso (90.).
C-RIÐILL
Svíþjóð-Kasakstan 2-0
1-0 Rasmus Elm (37.), 2-0 Marcus Berg (90.)
Austurríki-Þýskaland 1-2
0-1 Marco Reus (44.), 0-2 Mesut Özil, víti (52.), 1-2
Zlatko Junuzovic (57.)
D-RIÐILL
Rúmenía-Andorra 4-0
Tyrkland-Eistland 3-0
Ungverjaland-Holland 1-4
1-0 Jeremain Lens (4.), 1-1 Balazs Dzsudzsak (7.),
1-2 Bruno Martins Indi (19.), 1-3 Jeremain Lens
(53.), 1-4 Klaas-Jan Huntelaar (74.)
E-RIÐILL
Kýpur-Ísland 1-0
Noregur-Slóvenía 2-1
0-1 Marko Suler (16.), 1-1 Markus Henriksen (26.).
2-1 John Arne Riise, víti (94.).
Sviss-Albanía 2-0
1-0 Xherdan Shaqiri (22.) , 2-0 Gökhan Inler (68.).
STAÐAN Í RIÐLINUM:
Sviss 2 2 0 0 4-0 6
Ísland 2 1 0 1 2-1 3
Albanía 2 1 0 1 3-3 3
Kýpur 2 1 0 1 2-3 3
Noregur 2 1 0 1 2-3 3
Slóvenía 2 0 0 2 1-4 0
F-RIÐILL
Ísrael-Rússland 0-4
Norður-Írland-Lúxemborg 1-1
Portúgal-Aserbaídsjan 3-0
1-0 Silvestre Varela (64.), 2-0 Hélder Postiga (85.),
3-0 Bruno Alves (88.).
G-RIÐILL
Bosnía-Lettland 4-0
Slóvakía-Liechtenstein 2-0
Grikkland-Litháen 2-0
H-RIÐILL
San Marinó-Svartfjallaland 0-6
Pólland-Moldóvía 2-0
England-Úkraína 1-1
0-1 Yevheniy Konoplyanka (38.), 1-1 Frank
Lampard, víti (86.)
I-RIÐILL
Georgía-Spánn 0-1
0-1 Roberto Soldado (86.)
Frakkland-Hvíta-Rússland 3-1
1-0 Etienne Capoue (49.), 2-0 Christophe Jallet
(68.), 2-1 Oleg Poutilo (72.), 3-1 Franck Ribéry
(80.).
UNDANK. HM 2014
1-0 Constantinos Makridis (57.)
Skot (á mark): 18-3 (8-2)
Varin skot: Kissas 1 - Hannes 7
Aukaspyrnur fengnar: 16-9
Horn: 3-2
Rangstöður: 5-4
ÍSLAND (4-4-2):
*Hannes Þór Halldórsson 8
Birkir Már Sævarsson 6
Sölvi Geir Ottesen 5
Ragnar Sigurðsson 6
Bjarni Ólafur Eiríksson 4
(63., Ari Freyr Skúlason 4)
Rúrik Gíslason 4
Aron Einar Gunnarsson 5
Helgi Valur Daníelsson 4
(77., Jóhann Berg Guðmundsson -)
Emil Hallfreðsson 3
(46., Alfreð Finnbogason 5)
Gylfi Þór Sigurðsson 5
Birkir Bjarnason 4
Larnaca, áhorfendur: 1.600 Sébastien Delferiere (6)
1-0
LIÐ UMFERÐA 10 TIL 18 Frá vinstri: Kayley Grimsley, Katrín Ásbjörnsdóttir, Sandra María Jessen, Guðrún Arnardóttir, Glódís Perla
Viggósdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Elín Metta Jensen og Arna Sif Ásgrímsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Þór/KA
söfnuðu að sér verðlaunum þegar
KSÍ gerði upp 10. til 18. umferð
Pepsi-deildar kvenna í gær. Kay-
ley Grimsley, leikmaður Þórs/KA,
var valin best og þjálfari hennar,
Jóhann Kristinn Gunnarsson, var
útnefndur þjálfari umferðanna
alveg eins og í fyrri hlutanum.
Kayley Grimsley hlaut afger-
andi kosningu sem leikmaður
umferðanna og þær Sandra María
Jessen, liðsfélagi hennar, fengu
atkvæði í lið umferðanna frá
öllum í valnefndinni eða fullt hús.
Jóhann Kristinn hlaut líka fullt
hús sem þjálfari umferðanna.
Norðanfólk var mjög sigur-
sælt því stuðningsmannaverð-
launin hlutu stuðningsmenn Þórs/
KA og auk Grimsley og Söndru
voru í úrvalsliðinu Chantel Jones,
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Katrín
Ásbjörnsdóttir. Sex leikmenn eru
í liði umferðanna nú sem einnig
voru í liði umferða 1-9. Þetta eru
þær Arna Sif, Katrín, Grimsley,
Sandra María auk Dönku Podo-
vac úr ÍBV og Gunnhildi Yrsu
Jónsdóttur úr Stjörnunni. Marka-
drottningin Elín Metta Jensen úr
Val og þær Glódís Perla Viggós-
dóttir úr Stjörnunni, Guðrún
Arnar dóttir úr Breiðabliki og
Shaneka Gordon úr ÍBV voru líka
valdar í liðið. - óój
KSÍ verðlaunaði í gær fyrir bestu frammistöðuna í seinni hluta Pepsi-deildar kvenna:
Þór/KA sópaði að sér verðlaunum
KÖRFUBOLTI Íslenska landsliðið
tapaði í gær, 58-80, í Eistlandi í
lokaleik sínum í undankeppni EM
í körfubolta. Íslensku strákarnir
héldu í við Eistana í fyrsta leik-
hlutanum en töpuðu öðrum leik-
hlutanum 10-23 og misstu Eistana
þá frá sér.
Jón Arnór Stefánsson var enn
á ný stigahæstur í íslenska liðinu
en hann skoraði 13 stig í leiknum.
Jakob Örn Sigurðarson var með
12 stig, fyrirliðinn Hlynur Bær-
ingsson skoraði 11 og tók 10 frá-
köst og Haukur Helgi Pálsson var
með 10 stig. - óój
Undankeppni EM í körfu:
22 stiga tap
Vekjaraklukkan hringdi á Kýpur
Ísland náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Noregi þar sem liðið tapaði, 1-0, fyrir Kýpur ytra í gær. Allt
annar og verri bragur var á leik liðsins. „Ef til vill ríkti of mikil bjartsýni fyrir leik,“ sagði Lars Lagerbäck.
ELTINGALEIKUR Gylfi Þór Sigurðsson horfir hér á eftir Kýpverjanum Mriois Nicolaou í leiknum í gær. Gylfi Þór og aðrir í sóknarleik
Íslands náðu sér aldrei almennilega á strik. NORDICPHOTOS/AFP