Fréttablaðið - 12.09.2012, Síða 46
12. september 2012 MIÐVIKUDAGUR30
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„The Killing er mjög fín þátta-
röð sem ég var að klára.“
Ásgeir Trausti Einarsson tónlistarmaður
gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn á
þriðjudag.
GULLMOLI Í TOPPSTANDI
Skoda Octavia ´01
1600 Vél, beinskiptur, ek. 190þ.km. Ný heilsársdekk,
skoðaður 2013 án ath.
Engin skipti - Tilboðsverð 490 þ.
Sími 615-4349
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Stílistun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í
innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og
línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni
sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og
litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig
einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og
stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá
fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl.
Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum
ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í
Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
Anna F. Gunnarsdóttir
Stílisti
Helga Sigurbjarnadóttir
Innanhúsarkitekt
Þorsteinn Haraldsson
Byggingafræðingur
INNANHÚSSTÍLISTANÁM
Kvikmynd Baltasars Kormáks,
Djúpið, var frumsýnd á Alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni í Tor-
onto sem stendur nú yfir. Myndin
hefur fengið góða dóma og sagði
gagnrýnandi Screen Daily mynd-
ina fallega og að hún væri líkleg til
að falla í kramið hjá áhorfendum.
„Það er frábært að fá svona góða
dóma. Það skemmtilega við dóm-
inn í Screen Daily er að gagnrýn-
andinn fer dýpra í túlkun sinni
á myndinni en gengur og gerist í
kvikmyndadómum og tengir hana
meðal annars íslensku hugarfari og
kreppunni, sem var akkúrat ætlun
mín,“ segir Baltasar um dóm How-
ards Feinstein hjá Screen Daily. Sá
telur að þrátt fyrir tragískan sögu-
þráð myndarinnar muni hún slá í
gegn hjá kvikmyndagestum víða
um heim.
Djúpið var sýnd fimm sinnum í
Toronto, tvisvar fyrir kaupendur
og þrisvar fyrir hátíðargesti og var
uppselt á þær síðarnefndu. Myndin
hefur þegar verið seld til dreif-
ingar í Skandinavíu, Bretlandi og
Frakklandi og eiga aðstandendur í
samningaviðræðum við dreifingar-
aðila í Bandaríkjunum, Japan og
Ástralíu.
Djúpið verður frumsýnd hér
á landi þann 27. september og á
Baltasar ekki von á að Guðlaugur
Friðþórsson sæki sýninguna, en
myndin er byggð á leikverki sem
var innblásið af þrekraun Guðlaugs
sem synti í land eftir að skip hans
fórst við Vestmannaeyjar árið 1984.
„Ég bauð honum fyrir löngu en á
ekki von á því að hann komi. Ég skil
ástæður hans mjög vel en vissi því
miður ekki af þeim fyrr en of seint.
Sagan fjallar þó ekki bara um hann,
heldur um alla íslenska sjómenn.“
Baltasar dvelur hér á landi í
þrjár vikur og heldur að þeim tíma
loknum aftur til Bandaríkjanna þar
sem hann mun ljúka vinnu við kvik-
myndina 2 Guns. - sm
Frábært að fá svona góða dóma
GÓÐAR MÓTTÖKUR Kvikmynd Baltasars
Kormáks, Djúpið, fær góða dóma eftir
að hún var sýnd á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Toronto.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Indía Salvör Menuez og móðir hennar Jóhanna
Metúsalemsdóttir vöktu mikla athygli í nóvember í
fyrra er þær sátu fyrir í auglýsingaherferð bandaríska
nærfataframleiðandans The Lake & Stars. Misjöfn
viðbrögð voru við herferðinni þar sem mæðgurnar
sátu fyrir á nærfötunum einum saman. Til að mynda
skrifaði blaðamaður The Huffington Post pistil um
herferðina þar sem hann gat ekki ákveðið hvort hún
væri snilldarlega framsett eða hreinlega vandræðaleg.
Viðbrögðin komu Jóhönnu á óvart sem sagði þá í sam-
tali við Fréttablaðið að sér þætti herferðin einungis
endurspegla ást, hlýju og einlægni milli mæðgnanna.
MÆÐGURNAR VÖKTU ATHYGLI Í AUGLÝSINGU
„Þetta var í fyrsta sinn sem ég
geng eftir rauða dreglinum og það
var skemmtileg upplifun en líka
svolítið yfirþyrmandi,“ segir hin
hálfíslenska leikkona Indía Salvör
Menuez sem er nýkomin af kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum.
Indía leikur eitt aðalhlutverk-
anna í frönsku myndinni Après
Mai, eða Something in the Air, í
leikstjórn Olivier Assayas. Myndin
var ein þeirra sem kepptu um aðal-
verðlaun hátíðarinnar sem fór fram
dagana 29. ágúst til 8. september.
Myndin fékk prýðisgóðar viðtökur
og hreppti meðal annars verðlaun
fyrir besta handritið á hátíðinni.
Indía var í skýjunum yfir ferðinni
til Feneyja og hátíðinni í heild sinni.
Hún var nýkomin aftur til New
York, þar sem hún er búsett, þegar
Fréttablaðið náði af henni tali. „Fen-
eyjar eru virkilega töfrandi staður.
Það er eitthvað við það að ferðast
um í bátum svo ekki sé minnst á
hvað maturinn er góður,“ segir
Indía sem náði að kanna borgina
á milli þess sem hún var að vinna.
„Ég var mest í því að fara í viðtöl
og myndatökur til að kynna kvik-
myndina en fékk líka samt smá
útsýnistúr um Feneyjar.“
Indía klæddist eigin hönnun á
rauða dreglinum en kjólinn saum-
aði hún úr silkisjali sem faðir
hennar, Ross Menuez, hannaði
fyrir hönnunar merki sitt Salvor
Projects. Indía hefur ekki langt
að sækja hönnunarhæfileika því
móðir hennar er skartgripahönn-
uðurinn Jóhanna Metúsalems dóttir
sem hannar undir merkinu Kría.
„Efnið er silkiklútur sem átti að
henda en ég ákvað að útbúa kjól úr.
Nú er kjóllinn því sýnishorn fyrir
nýja línu sem okkur pabba langar
að láta framleiða í nánustu framtíð.“
Après Mai fjallar um stúdenta-
mótmælin í París árið 1968 og er
hlutverkið frumraun Indíu á hvíta
tjaldinu. Hún er búsett í New York
og ætlar sér að láta reyna á leik-
listina í framtíðinni. „Ég var að
ljúka við að leika í tveimur myndum
í Kaliforníu, Mall og Claires Cam-
bodia, og báðar eru í umsóknaferli
fyrir Sundance-kvikmyndahátíðina.
Svo þarf ég bara að fara að koma
mér í leikprufur á milli þess sem
ég tek að mér verkefni úr ýmsum
áttum til að eiga fyrir leigu og mat.“
alfrun@frettabladid.is
INDÍA SALVÖR MENUEZ: SKEMMTILEG OG YFIRÞYRMANDI UPPLIFUN
Frumraun á dreglinum
„Ég hafði aldrei klárað textann svo mér fannst
ég verða að gera það þegar það átti að fara að
taka lagið upp,“ segir söngvarinn Jón Jónsson.
Jón verður í þætti Bubba Morthens, Beint
frá býli, næstkomandi laugardag þar sem
hann heldur tónleika fyrir ábúendur á sveita-
bænum Meðalfelli. Þegar hann mætti í upptöku
á þáttunum í upphafi sumars fannst honum
tímabært að ljúka við texta lagsins All,
You, I, áður en það yrði tekið upp og
fékk því að bregða sér í tölvuna á
bænum og rumpa textanum af. „Ég
var búinn að vera að spila lagið á
tónleikum síðasta vetur en bull-
aði þá alltaf bara textann hverju
sinni. Það voru samt nokkur orð
sem ég var kominn með sem ég
sagði alltaf aftur og aftur en annars var hann
ókláraður. Ég samdi alveg millikaflann og ein-
hver tvö erindi þarna á sveitabænum,“ segir
Jón.
Svo virðist sem þessi aðferð hafi gert góða
hluti fyrir Jón því lagið hefur notið gríðar-
legra vinsælda og er hans fyrsta lag til að kom-
ast í toppsæti vinsældarlistans. „Hver veit
nema ég banki aftur upp á hjá þeim
þarna á Meðalfelli næst þegar ég
lendi í veseni með texta,“ segir Jón
og hlær. - trs
Kláraði textann á sveitaloftinu
BULLAÐI TEXTANN Jón segist hafa bullað
textann við vinsælasta lag sitt, All, You, I,
á tónleikum allan síðasta vetur.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Í EIGIN HÖNNUN
Indía Salvör
Menuez skemmti
sér vel á rauða
dreglinum á kvik-
myndahátíðinni í
Feneyjum.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar