Fréttablaðið - 20.09.2012, Page 19
FIMMTUDAGUR 20. september 2012 19
Ímyndum okkur að líkam-legt, andlegt og kynferðislegt
ofbeldi gegn fólki af erlendum
uppruna væri stjórnlaus sam-
félagsvandi á Íslandi. Ímyndum
okkur að vandamálið næði slíku
stigi að það yrði að opna sérstakt
útlendingaathvarf sem fólk af
erlendu bergi gæti flúið í þegar
ofbeldið gengi fram af því.
Ímyndum okkur að árásir
og ógn við líf samkynhneigðra
væri svo útbreitt samfélags-
mein að það yrði að opna sér-
stakt hommaathvarf í miðbæ
Reykjavíkur. Eða að íslam-fóbí-
an myndi ná því stigi að mús-
límar þyrftu að flýja í sérstakt
múslímaathvarf til að bjarga sér
og börnum sínum frá ofbeldi og
kúgun.
Flestir fá eflaust óbragð í
munninn við tilhugsunina.
Opnun athvarfs til að skýla þol-
endum frá skefjalausu ofbeldi
er auðvitað þrautalending. Það
ræðst ekki að rót vandans. Bygg-
ing og rekstur athvarfs uppræt-
ir ekki hatrið og fordómana sem
liggja til grundvallar ofbeldinu.
Engu að síður er staðan sú
að í dag rekum við kvennaat-
hvarf á Íslandi. Ég ætti að vita
það, ég er stjórnarformaður
þess. Og mér finnst tilvist þess
alveg fjarstæðukennd. Jafn fjar-
stæðukennd og mér þætti hug-
myndin um hommaathvarf eða
útlendingaathvarf. En burtséð
frá afstöðu minni til hugmynd-
arinnar um kvennaathvarf er
raunveruleg og knýjandi þörf
fyrir slíkt athvarf á Íslandi í
dag. Sorglegt en satt. Ekki nóg
með það, heldur annar Kvenna-
athvarfið varla eftirspurn, þrátt
fyrir frábært og óbilandi starf
þeirra sem þar vinna. Fjöldi
kvenna og barna sem sækja
í athvarfið hefur aukist svo
mikið undanfarin ár að húsnæð-
ið er sprungið utan af núverandi
starfsemi.
Áður en ég settist í stjórn
Kvennaathvarfsins vissi ég
ýmislegt um kynbundið ofbeldi
og hafði skrifað heila bók um
málefnið. Samt skorti mig
ímyndunarafl til að sjá fyrir
mér börn, allt niður í fimm
vikna gömul, með ofbeldis-
áverka. Nú veit ég af tilvist þess-
ara barna. Þau koma nefnilega í
Kvennaathvarfið með mæðrum
sínum þegar þær flýja óbærilegt
ofbeldisástand heima fyrir. Á
álagstímum í athvarfinu er jafn-
vel ekki hægt að bjóða þeim rúm
til að sofa í. Þá eyða þau nóttinni
á dýnu á gólfinu, eða fjölmenna
ásamt mæðrum sínum og ókunn-
ugu fólki í einu herbergi. Staðan
er óviðunandi á allan hátt. Allt
er gert til að koma í veg fyrir að
vísa þurfi fólki frá, enda er það
einörð afstaða Kvennaathvarfs-
ins að það sé alltaf pláss fyrir
alla, þótt herbergin séu full.
Dyrnar standa ávallt opnar fyrir
þá sem þurfa aðstoð.
En einhvers staðar brugðumst
við, sem samfélag. Við þurfum
að ráðast að rótum vandans.
Þegar á hólminn er komið felst
lausnin ekki í því að stækka hús-
næði Kvennaathvarfsins, þótt
þörfin sé æpandi, heldur með
því að taka kynbundið ofbeldi
fastari tökum. Markmiðið ætti
að vera að útrýma því, svo einn
góðan veðurdag verði hugmynd-
in um kvennaathvarf jafn fjar-
stæðukennd og hugmyndin um
hommaathvarf eða útlendinga-
athvarf.
Þangað til þurfum við að
horfast í augu við blákaldan
veruleikann. Konur og börn
flýja ofbeldi á heimilum sínum
í hundraðatali á ári hverju.
Þau verðskulda mannsæmandi
aðstæður, sem núverandi hús-
næði Kvennaathvarfsins býður
ekki upp á. Þess vegna stendur
nú yfir tölusala í þágu Kvenna-
athvarfsins undir yfirskriftinni
Öll með tölu. Ég skora á alla að
kaupa sér tölu svo við getum
leyst skammtímavanda Kvenna-
athvarfsins. Í kjölfarið biðla ég
til þjóðarinnar að leita að lang-
tímalausn – svo einn daginn
verði engin þörf fyrir kvenna-
athvarf.
Hommaathvarf
í miðbænum
Tungumál ljúka upp heimum er titill bókar sem Stofnun Vig-
dísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum gaf út árið 2010. Tit-
ill bókarinnar er fenginn að láni
hjá Pétri Gunnarssyni rithöfundi.
Hann, ásamt 26 öðrum rithöfund-
um, birtir í bókinni hugleiðing-
ar um gildi tungumálaþekkingar
og -færni. Pétur gerir að umtals-
efni hvernig þekking á erlendum
tungumálum opnar okkur sýn inn
í menningarsamfélög sem annars
væru okkur hulin eða við ættum
einungis aðgengi að fyrir tilstuðl-
an þýðinga. Vigdís Grímsdóttir
segir í sömu bók: „Tungumála-
kunnátta er lykill sem gengur að
öllum heimsins skrám, hún opnar
allt og víkkar allt og stækkar allt.
[…] hún breytir andstæðum í sam-
heiti […] og hún eyðir deilum og
heimsku og nefndu bara hvað ger-
ist þegar þú snýrð lyklinum og
leggur af stað“ (bls. 100).
Þegar samfélagsþróun á Íslandi
á síðustu árum er skoðuð blas-
ir við að þekking á sem flestum
tungumálum verður æ mikilvæg-
ari í ljósi þess að samsetning íbú-
anna breytist, þátttaka Íslands
og Íslendinga á alþjóðavettvangi
eykst og hingað flykkjast hundruð
þúsunda ferðamanna ár hvert. Við
höfum einsett okkur að veita þess-
um gestum fyrirmyndarþjónustu
og -aðgengi að landinu, menningu
þess og þjóðlífi. En þessir gestir
tala ekki íslensku og margir þeirra
tala ekki annað en eigið móðurmál.
Dæmin eru fjölmörg og það kemur
mörgu því kornunga fólki sem
vinnur við ferðaþjónustu á Íslandi
í opna skjöldu að uppgötva að fólk
frá nágrannalöndum okkar eins og
Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu og
Spáni skuli ekki tala annað en sitt
eigið móðurmál. En sú er raunin
og það er á okkar ábyrgð að und-
irbúa starfsfólk ferðaþjónustunn-
ar fyrir móttöku þeirra með því
að kenna íslenskum ungmennum
sem flest tungumál – og það vel.
Við munum njóta meiri virðingar
og velvilja fyrir vikið.
Grunnur að tungumálafærni
Íslendinga er lagður í grunn- og
framhaldsskólum og þar má ekki
slá slöku við því að við Deild
erlendra tungumála, bókmennta
og málvísinda á Hugvísindasviði
Háskóla Íslands eru kennd 13
og stundum 14 erlend tungumál.
Þar er að finna langar og stuttar
námsleiðir, einvalalið sérmennt-
aðra kennara sem allir hafa dvalið
langdvölum við erlenda háskóla og
þekkja menningu, þjóðlíf og sögu
fjölmargra landa, þjóða, málsvæða
og heimsálfa. Við þurfum ekki að
leita langt yfir skammt því að við
höfum allt sem til þarf við hönd-
ina.
Mikilvægi tungumálanáms
og -kennslu
Samfélagsmál
Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir
stjórnarformaður
Kvennaathvarfsins
Áður en ég settist í stjórn Kvennaat-
hvarfsins vissi ég ýmislegt um kynbund-
ið ofbeldi og hafði skrifað heila bók um
málefnið. Samt skorti mig ímyndunarafl til að sjá
fyrir mér börn, allt niður í fimm vikna gömul, með
ofbeldisáverka.
Menntun
Hólmfríður
Garðarsdóttir
prófessor
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
th
.hhhh.
. .
th
..hth
.
th
.
th
..hth
.h.hthhthhthhthhthhttttttttt
ð
ve
að
ve
ð
ve
ð
ve
að
v
e
ð
v
e
að
v
e
ð
ve
ð
v
e
að
ve
að
ve
að
v
evee
ð
ve
að
v
eveeee
að
v
ee
að
veveeveve
að
v
ev
að
v
ð
v
ð
vvv
að
vv
ð
vvvv
ð
vv
ððaððððððaððððaa
g
e
ð
g
e
ð
g
e
g gggggg
ð
ggggggggggg
ð
g
rð
g
ð
ggggggg
ðð
ggggggggggg
rð
gggggg
rð
g
rð
gggggggggg
ð
gg
ð
g
rð
g
ð
g
ð
rð
rð
ð
ð
rð
rð
ðrð
rðrððrððððððððrðrðrðrðrðrðrðrðrðrrrrrrrrrrr
bbbbbbbbbbbbb
ur
b
tu
r
b
tu
r
bbbbbbbbbbbbb
r
bb
r
bbbbbbb
r
bb
tu
r
tu
re
ys
t
ey
st
re
ys
re
ys
re
yy
re
yy
re
yeyrerrrrrrrrr
á
n
f
á
irvirvirvirvvrir
v
rir
vvv
rir
v
rir
virrirrirririiiiiiiiiiiriiriririririririrryryryryryyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyy
arararararrraaaaa
B
irt
m
eð
f
rv
yr
irv
ar
a
u
ar
e
m
p
re
nt
vi
l
nt
v
nt
v
lu
r.
H
e
H
ei
m
s
im
ð
i
ð
i
fe
rð
ir
ás
k
r
á
r
á
ilj
a
r
rr
r
r
ér
rr
sé
r ésé
tt
t
tttt
t
t
t tt
ét
tttét
t
étéééé
eeeeeeee
il
lee
il
lee
il
lell
e
l l
el
iiiiiiii
ré
tétttététététéréréréééréréréérérérrrr
ið
rrrrrr
ð
r
ið
r
ð
r
ið
r
ð
rr
iðiðiðððiðiððiii
ng
a
g
a
g
tin
ggnggtin
g
tintinntinit
ll
á
sll
á
s
á
á
. . u
ík
u.ku
.
ík
u
ík
u
ttttt
A
tttt
A
t
A
t
A
t
A
tttt
A
t
A
t
A
ttt
A
tt
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
aaa.a.a.aaa
E
N
N
E
M
M
E
/
S
IA
•
N
M
5
00
44
0
0
frá kr. 79.900
með allt innifalið í 7 nætur
Heimsferðir bjóða frábært verð á allra
síðustu sætunum til Tenerife 27. sept.
í viku. Í boði er einkar hagstætt verð á
Villa Adeje Beach íbúðahótelinu með
öllu inniföldu.
Athugið að mjög takmörkuð gisting
er í boði!
Frá 79.900 kr.
Villa Adeje Beach – allt innifalið í 7 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára,
í íbúð með einu svefnherbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í studio íbúð kr. 99.900 á mann.
Sértilboð 27. september í viku.
Tenerife
27. sept. – 7 nætur
Afmaeli
15% 25%
www.sonycenter.is
100 Hz X-Reality myndvinnsla
Dynamic EDGE LED baklýsing
Tilboð 169.990.-
400 Hz X-Reality myndvinnsla
Dynamic EDGE LED baklýsing
Tilboð 289.990.-
40” LED SJÓNVARP KDL40EX653 46” LED SJÓNVARP KDL46HX753
5 ára ábyrgð
að verðmæti 12.000.- fylgir með í kaupunum
Sony Center I Verslun Nýherja Borgartúni I 569 7700 Sony Center I Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri I 569 7645