Fréttablaðið - 20.09.2012, Qupperneq 26
20. september 2012 FIMMTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KARL SIGURÐSSON
bifreiðarstjóri, Hvammstanga,
lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga að
kvöldi 2. september. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey.
Jóhanna Birna Ágústsdóttir
Birgir Karlsson
Kolbrún Karlsdóttir
Ómar Karlsson Harpa Vilbertsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT KRISTÍN ÞÓRHALLSDÓTTIR
frá Sæborg, Hjalteyri við Eyjafjörð,
lést á Landspítalanum að morgni 11.
september 2012. Útför hennar verður
gerð frá Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn
21. september, kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Hjartavernd.
Þórhallur Jósepsson Herdís Ólafsdóttir
Karólína Jósepsdóttir Gunnar Jónsson
Skarphéðinn Jósepsson Stefanía Björnsdóttir
Ævar Örn Jósepsson Sigrún Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðursystir okkar og stjúpmóðir,
KRISTÍN S. KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Heynesi,
Munkaþverárstræti 44, Akureyri,
verður jarðsungin frá Möðruvallakirkju
í Hörgárdal laugardaginn 22. sept. kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Heimahlynningu Akureyrar.
Óskar Líndal, Þórður Gíslason, Sesselja Gísladóttir,
Kristín Jónsdóttir, Rudolf Ágúst Jónsson, Hermann Jón
Jónsson, Karl Friedrich Jónsson og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
DÓRÓTHEA M. BJÖRNSDÓTTIR
Keldulandi 19,
lést á Landspítalanum aðfaranótt
16. september. Útför hennar fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn 21. september
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga, FAAS.
Birgir Ólafsson
Guðrún Björk Birgisdóttir Hörður J. Oddfríðarson
Birna Birgisdóttir Kristján Sverrisson
barnabörn, langömmubörn og systkini hinnar látnu.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT MARÍA JÓNSDÓTTIR
frá Hnífsdal,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
sunnudaginn 16. september. Útförin fer
fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
22. september klukkan 14.00.
Guðmundur Jónasson
Jónas Guðmundsson Anh-Dao Tran
Arnfríður Guðmundsdóttir Gunnar Rúnar Matthíasson
og barnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
PETREA VILHJÁLMSDÓTTIR
frá Þorlákshöfn,
lést sunnudaginn 16. september
á Hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum.
Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
laugardaginn 22. september kl. 11.00.
Vilhjálmur Knútsson Jerine Egede
Petra Vilhjálmsdóttir Ingvar Arnarson
Jerine Knutsson Lars Peter Lennert
Knut Knutsson
Kristján Þórir, Örn Ingi og Máni
Silja Isadora og Siri Ásta
Guðrún, Margrét, Sigurður og Helgi
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VIGDÍS MARTA MAGNÚSDÓTTIR,
áður húsfreyja að Herjólfsstöðum
í Álftaveri,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þann
17. september. Jarðarförin fer fram frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 24. september
og hefst athöfnin kl. 13.00.
Elín Hjartardóttir Jón Björnsson
Hanna Hjartardóttir Vigfús Ólafsson
Hannes Hjartarson Ingibjörg Þórisdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og besti vinur,
ÓLÖF HÓLMFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
FRÍÐA SIG.
Hörgshlíð 8,
lést sunnudaginn 16. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þór Gunnarsson Sigrún Ása Sturludóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir Harpa Másdóttir
Embla Þórsdóttir Klaus Wallberg Andreasson
Sturla Þórsson
Guðlaug Ýr Þórsdóttir Magnús Már Guðjónsson
Askur Wallberg Klausson og Ísabella Ýr Klausdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
Magnússkógum III, Dalabyggð,
andaðist laugardaginn 15. september.
Hún verður jarðsungin frá Hvammskirkju
í Dalabyggð laugardaginn 22. september
kl. 14.00.
Dagný Ósk Halldórsdóttir G. Reynir Georgsson
Anna Berglind Halldórsdóttir Ólafur Bragi Halldórsson
Kristín Halldórsdóttir Árni Geir Sigvaldason
Sigrún Margrét Halldórsdóttir Almar Týr Haraldsson
og ömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
MARTEINN HERBERT KRATSCH
járnsmiður,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 14. september. Útförin fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 21.
september kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningarsjóð líknardeildar LSH, sími 543-1159.
Sigríður Marteinsdóttir Guðjón Steinsson
Walter M. Marteinsson Ingibjörg Ú. Sigurðardóttir
Gunnar Þór Marteinsson Guðrún I. Gunnarsdóttir
Margrét Björg Marteinsdóttir Jóhann Rúnar Guðbjarnason
Árný Marteinsdóttir Sæmundur Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
„Afmælisdagurinn verður rólegur hjá
mér. Ég mæti sennilega í stafgöngu
síðdegis og ver svo kvöldinu með fjöl-
skyldu og nánustu vinum,“ segir Guðný
Aradóttir sem er sextug í dag. Tíma-
mótunum ætlar hún hins vegar að fagna
með sérstökum hætti á laugardaginn.
„Ég ætla að bjóða þeim sem gengu
með mér eina sumarnótt frá Þingvöll-
um til Reykjavíkur og öðrum vinum og
vandamönnum upp á haustlitagöngu
um Laugardalinn klukkan hálf tólf á
laugardag og í kjötsúpu við þvottalaug-
arnar á eftir,“ upplýsir hún og er beðin
að lýsa aðeins þessari næturgöngu.
„Þetta var styrktarganga sem ég efndi
til á Facebook 15. júní á vegum átaks-
ins Göngum saman og í hana mættu 70
manns. Tilgangurinn var að safna fjár-
munum til grunnrannsókna á brjósta-
krabbameini. Við gengum Nesjavalla-
leiðina og vissulega voru brekkur í
kambinum sem tóku alveg í en við skil-
uðum okkur öll í bæinn, komum niður
í byggð hjá Rauðavatni, löbbuðum um
Elliðaárdalinn og enduðum í Laugar-
dalnum eftir tólf tíma með stoppum og
öllu. Það var blíða allan tímann.“
Yfir kjötsúpupottinum við þvotta-
laugarnar ætlar Guðný að afhenda
afraksturinn af göngunni en vill ekki
gefa upp á þessari stundu hver hann
er, en kveðst afar ánægð með hann.
„Að fá að vera hraust og geta lagt eitt-
hvað til vísindasamfélagsins þannig að
við getum fundið leiðina að lækningu á
brjóstakrabbameini, fyrir það ætla ég
að þakka á þessum tímamótum,“ segir
hún.
Ástæðu þess að Guðný berst fyrir
auknum grunnrannsóknum á brjósta-
krabbameini segir hún þá að hún hafi
bæði misst systur sína og vinkonur úr
þeim vágesti. Góðu fréttirnar séu þær
að vísindunum fleygi ört fram og bata-
horfur séu allt aðrar í dag en fyrir tutt-
ugu árum. „Bara á síðustu fimm árum
hefur heilmikið gerst,“ segir hún.
Fyrsta afmælisveislan sem Guðný
man eftir henni til heiðurs var á Egils-
stöðum þar sem hún sleit barnsskón-
um. Hún kveðst hafa flutt í bæinn fyrir
þrjátíu árum, eftir ellefu ára viðkomu
á Eskifirði.
Guðný starfar við tölvu- og upplýs-
ingakerfi Íslandspósts. Hreyfing hefur
verið henni áhugamál allt frá því hún
stundaði skíðaíþróttina í Oddsskarði.
Hún stóð á tindi Kilimanjaró fyrir
fimm árum og hefur stundað einka-
þjálfun með fram vinnu síðustu ár
ásamt því að stjórna stafgöngu í Laug-
ardalnum með annarri konu. „Maður
sér það alltaf betur og betur að hreyf-
ing innan skynsamlegra marka er
nauðsynleg bæði sem forvörn og end-
urhæfing,“ segir Guðný og þar með er
hún rokin af stað í göngu.
gun@frettabladid.is
GUÐNÝ ARADÓTTIR GÖNGUGARPUR: ER SEXTUG Í DAG
Býður til haustlitakjötsúpu
ELDHRESS Guðný heldur mikið upp á Laugardalinn þar sem hún ætlar að halda upp á tímamót á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VILHJÁLMUR HJÁLMARSSON fyrrverandi ráðherra á afmæli í dag.
„Mín skoðun er sú að þótt stundum megi benda á pappírsflóð og tildur í
menningarsamskiptum þjóðanna þá séu þau í heild góð og gagnleg.“
98