Fréttablaðið - 20.09.2012, Page 31
KAFFI
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012
Kynningarblað
kaffidrykkir
kaffihús
kaffigerð
kaffinautn
kaffinýjungar
kaffiáhrif
Sænski kaupsýslumaðurinn Victor Theodore Engwall var svo ákafur áhugamaður um
kaffi að hann ákvað að helga líf sitt
leitinni að hinni fullkomnu kaffi-
baun. Hann stofnaði því sérstakt
fyrirtæki í kringum kaffiástríðu
sína og gaf því latneskt heiti heima-
bæjar síns, Gävle (Gevalia).
Í dag hvílir Gevalia á traust-
um grunni aldagamalla hefða og
býður enn upp á sömu klassísku
vörurnar sem neytendur um víða
veröld njóta á hverjum degi. Auk
þess leggur Gevalia mikið upp
úr vöruþróun og er ötult við að
kynna spennandi nýjungar. Fyrir
skemmstu kynnti fyrirtækið meðal
annars nýja kaffilínu þar sem neyt-
andanum er boðið í sannkallaða
heimsreisu, allt frá skógum Suður-
Ameríku til víðáttu Indlands.
Monsoon Storm heitir önnur
af nýju tegundunum sem nú eru
seldar hér á landi. Um er að ræða
dökkristað, kraftmikið kaffi með
keim af súkkulaði. Abyssian Dawn
er léttristað kaffi með mikilli fyll-
ingu sem á uppruna sinn í Eþíópíu,
fæðingarstað kaffisins. Sem aðili
að Rain Forrest Alliance (samtök-
um fyrirtækja sem vinna að vernd-
un regnskóga) hefur Gevalia sjálf-
bærni ræktarsvæða ávallt að leið-
arljósi. Gevalia hefur auk þess
unnið um árabil að uppbyggingu
innviða samfélagsins í Perú og Kól-
umbíu, innlendum kaffiframleið-
endum til hagsbóta og aukinna
lífsgæða.
„Baunir og malað úrvalskaffi
frá Gevalia hafa verið á boðstól-
um hérlendis í áratugi og Íslend-
ingar hafa alltaf kunnað að meta
gott kaffi,“ segir Þórður Þórisson
sem hefur verið vörumerkjastjóri
hjá Innnes undanfarin 6 ár.
„Kaffi er svo miklu meira en
bara neysluvara. Kaffi er saga,
menning, lífsstíll og hefðir allt í
senn og að sjálfsögðu taka neyt-
endur ástfóstri við sína tegund.
Andi Gevalia hefur alltaf verið
skemmtilegur og svolítið stríðn-
islegur. Það er enginn tilbúning-
ur að Gevalia fær fólk til að tala.
Ég rifja gjarnan upp ummæli sem
höfð voru eftir kaffisérfræðingi hjá
Gevalia: „Þessi baun býr yfir meiri
ilmi og sterkara bragði en svo að
einum manni endist ævin til þess
að skilgreina hana.“ En við höfum
þá nóg um að tala á leiðinni og þar
hjálpar Gevalia til.“
Traustar hefðir og heillandi
nýjungar hjá Gevalia
Gevalia hefur um árabil verið eitt af þekktari vörumerkjum á kaffimarkaði á Íslandi. Kaffið á sér
merka sögu og uppruni þess kemur mörgum á óvart.
Þórður Þórisson vörumerkjastjóri hjá Innnes segir engan tilbúning að Gevalia fái fólk til að tala.
MYND/GVA