Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 32

Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 32
KYNNING − AUGLÝSINGKaffi FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 20122 MEXÍKÓKAFFI Gott er að nota sérstök Irish coffee-glös undir þennan drykk eða önnur falleg glös. 30 ml Kahlua-kaffilíkjör 15 ml tekíla (tequila) 140 ml sterkt kaffi 2 msk. þeyttur rjómi Setjið fyrst líkjör, síðan tekíla og loks kaffi. Rjóminn settur ofan á. ÍRSKT KAFFI Irish coffee er í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Hér er grunnuppskrift að þessum vinsæla drykk. Margir hafa síðan prófað að breyta honum, til dæmis með því að setja smávegis kanil saman við. 1 bolli gott og sterkt kaffi 1 msk. púðursykur 30 ml írskt viskí Þeyttur rjómi Setjið heitt kaffi í glas, bætið sykri og viskíi út í og hrær- ið. Setjið síðan þeyttan rjóma ofan á. Sumum finnst betra að nota heita skeið til að setja rjómann út í en þá linast hann. JAMAÍKAKAFFI Þessi drykkur er borinn fram í fallegu glasi. 20 ml dökkt romm 20 ml Kahlua eða annar kaffilíkjör 235 ml sterkt kaffi 2 msk. þeyttur rjómi 1 súkkulaðibaun Romm og kaffilíkjör í botninn og þar á eftir kemur kaffi. Þeyttur rjómi settur ofan á og ein kaffibaun til skreyt- ingar. ST. MICHAEL‘S IRISH AMERICANO Þetta er vinsæll drykkur eftir mat og borinn fram eins og Irish coffee. 90 ml espresso-kaffi 90 ml írskt viskí 1 msk. sykur 1 msk. rjómi 175 ml heitt vatn 2 msk. þeyttur rjómi Setjið espresso í uppáhaldsbollann, bætið viskíi saman við, sykri, rjóma og heitu vatni og hrærið. Skreytið með þeyttum rjóma. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir elsaj@365.is sími 512 5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Á Ítalíu er drukkið espresso-kaffi eftir máltíð. Það er í mjög litlum kaffibolla, kaffið vel sterkt og sykrað ríku- lega vilji fólk það. Cappuccino er sömuleiðis ítalskur kaffidrykk- ur en þar í landi þykir dónaskap- ur að biðja um það eftir mat. Cap- puccino er fremur morgundrykk- ur á Ítalíu. Íslendingar þekkja latte-kaffi en það er ítalskur kaffi- drykkur með mikilli mjólk. Flest- ir þekkja orðið vel þessi ítölsku kaffidrykkjanöfn, enda eru þau orðin alþjóðleg. Írskt kaffi með viskíi hefur ávallt verið vinsæll drykkur um allan heim. Þróaðar hafa verið ýmsar útgáfur af honum og eru þá notaðar mismunandi vín- eða líkjörstegundir út í kaffið. Vel má nota líkjöra eins og Tia Maria og Amaretto í kaffidrykk. Hér eru uppskriftir að nokkrum þekktum kaffidrykkjum með mis- munandi bragðtegundum. Hægt er að gera Irish coffee á sama hátt en sleppa áfenginu. Í staðinn má setja kaffibragðefni sem fást í flestum kaffiverslunum. Vinsælir og hressandi kaffidrykkir Kaffidrykkir eru ljúffengir, hvort sem þeir eru óáfengir eða áfengir. Áfengur kaffidrykkur getur komið í stað eftirréttar eftir góða máltíð. Margar tegundir eru til af áfengum kaffidrykkjum en þekktastur er Irish coffee. KAFFIBAUNARÆKT Í HEIMINUM Bestu ræktunarskilyrði kaffiplöntunnar er að finna við miðbaug þar sem hitabeltisloftslag er ríkjandi. Helstu ræktendur kaffibauna eru Kólumbía, Víetnam og Brasilía en til samans rækta þessi þrjú lönd um helming kaffibauna í heiminum. Umfangsmesta framleiðsla kaffibauna fer fram í löndum Mið- og Suður-Ameríku en auk Brasilíu og Kólumbíu eru Mexíkó, Perú, Gvatemala og Hondúras meðal stærstu kaffibauna- ræktenda heims. Indónesía, Eþíópía og Indland eru einnig umfangsmiklir kaffibaunaræktendur. Kaffibaunir eru ræktaðar í meira en 85 löndum í dag og talið er að rúmlega 20 milljónir manna hafi atvinnu af ræktun og framleiðslu kaffibauna og sölu þeirra um allan heim. Kaffibaunir hvers lands hafa sín sérkenni þar sem birtuskilyrði og loftslag skipta miklu máli. Tveir helstu stofnar kaffibauna eru Robusta og Arabica. Þær eru líkar í útliti en bragðmunur- inn er mikill. Uppruna Robusta-kaffibaun- arinnar má rekja til vestur- hluta Afríku. Baunirnar eru hrjúfari en Arabica-baunirnar og eru aðallega notaðar í iðnaðar- og skyndikaffi. Um þriðjungur kaffifram- leiðslunnar í heiminum er úr Robusta-kaffi- baunum og þær innihalda um helmingi meira magn koffíns en Arabica- baunirnar. Arabica-kaffibaunirnar eru hins vegar taldar mun bragðbetri baunir en uppruna þeirra má rekja til Afríkuríkjanna Eþíópíu og Jemen. Viðskipti með kaffibaunir eru þau næstumfangsmestu í heiminum í dag á eftir olíunni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.