Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 34
KYNNING − AUGLÝSINGKaffi FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 20124
MIKILVÆGUR DRYKKUR
Kaffi er mörgum mikilvægt og
sumum finnst þeir ómögulegir
áður en þeir fá fyrsta bolla
dagsins. Margar hefðir eru í
kringum kaffidrykkju og mörgum
frasanum verið fleygt. Hér eru
nokkrar tilvitnanir frá þekktum
og óþekktum aðilum um kaffi og
mikilvægi þess.
● Morgunn án kaffis er eins og
svefn. (höf. óþekktur)
● Allt of mikið af kaffi. En án þess
hefði ég óþekkjanlegan persónu-
leika. (David Letterman)
● Svefn er einkenni kaffiskorts.
(höf. óþekktur)
● Eins og allir sem gera þau
mistök að eldast byrja ég daginn
á kaffibolla og lestri minningar-
greina. (Bill Cosby)
● Kaffi er drykkur sem lætur fólk
sofna þegar hann er ekki drukk-
inn. (Alphonse Allais)
● Eilífð: tíminn sem það tekur að
hella upp á fyrsta bolla morguns-
ins. (höf. óþekktur)
● Taka starfsmenn Lipton ein-
hvern tíma kaffipásur? (Steven
Wright)
● Koffínlaust kaffi er eiginlega
eins og að kyssa systur sína. (Bob
Irwin)
● Ég hef mælt líf mitt í skeiðum
af kaffi. (T.S. Eliot)
● Væri ég kona held ég að ég
myndi nota kaffi sem ilmvatn.
(John Van Druten)
● Ég hlæ aldrei fyrr en ég hef
fengið kaffið mitt. (Clark Gable)
HEFUR ÝMIS ÁHRIF Á LÍKAMSSTARFSEMINA
Flestum þykir hressandi að fá sér kaffibolla í morgunsárið. Ástæðan er sú að koffín hefur
örvandi áhrif á miðtaugakerfið, hjartað og vöðvana. Þreytutilfinning minnkar og einbeiting eykst.
Hjartsláttur verður hraðari, blóðþrýstingur hækkar og grunnefnaskiptahraðinn eykst. Þvaglát
verða tíðari og stundum slaknar á vöðvaspennu.
Einn til tveir kaffibollar á dag virðast ekki hafa slæm áhrif á fólk en þeir sem drekka mikið kaffi
geta fundið fyrir óreglulegum hjartslætti, höfuðverk, flökurleika, vöðvaspennu og svefnleysi.
Koffín er ekki eingöngu að finna í kaffi heldur líka í tei, kakói, orkudrykkjum og súkkulaði. Í 200
millilítrum af uppáhelltu kaffi eru 100 milligrömm af koffíni en í sama magni af svörtu tei eru
35 milligrömm af koffíni. Í 100 grömmum af mjólkursúkkulaði eru 15 milligrömm af koffíni en í
dökku súkkulaði eru 65 milligrömm. Rannsóknir hafa sýnt að fólk hættir að finna fyrir svefnleysi
eftir þrjá 400 milligramma skammta af koffíni á dag í heila viku. Af ofansögðu má þó sjá að það
þarf að innbyrða ansi mikið magn af kaffi og öðrum afurðum sem innihalda koffín til að ná 1.200
milligrömmum á dag.
VINSÆL KAFFIHÚS
Kaffihús eru vinsæl í bíómynd-
um og sjónvarpsþáttum. Mörg
fræg atriði gerast einmitt á kaffi-
húsum. Hver þekkir ekki Central
Perk úr
Friends-þátt-
unum? Það
er talið hafa
vakið upp
mikla kaffi-
húsamenn-
ingu víða um
heim. Central
Perk á að vera í Greenwich Village
í New York, nálægt íbúð Monicu,
en hún starfaði þar um tíma.
Helsti þjónn fimmmenningana í
Friends var Gunther en Phoebe
lék oft á gítarinn sinn á staðnum.
Mörg þekkt atriði úr þáttunum
voru einmitt tekin á appelsínu-
gula sófanum sem stóð úti á
miðju gólfi á staðnum.
Café Nervosa er annað þekkt
sjónvarpskaffihús. Það kom fyrir
í þáttunum um Frasier en þeir
bræður, Frasier og Niles, skegg-
ræddu málin þar yfir kaffibolla.
Mismunandi kaffiþjónar koma
þar við sögu. Café Nervosa átti
að vera staðsett í Seattle. Nú má
finna kaffihús með þessu nafni
víða um heim.
Fjórði hver Íslendingur velur Senseo kaffi.
Kannski er það mjúka froðulagið.
Kannski er það lauflétti framreiðslumátinn.
Kannski er það úrval ómótstæðilegra bragðtegunda.
Sjötíu þúsund seldar Senseo vélar tala sínu máli.
Íslendingar vilja Senseo kaffi.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
4
3
7
1