Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 40
20. september 2012 FIMMTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. sælgæti, 6. tveir eins, 8. fornafn,
9. bein, 11. leita að, 12. þyrping, 14.
urga, 16. tveir eins, 17. bókstafur, 18.
drulla, 20. tveir eins, 21. urmull.
LÓÐRÉTT
1. iðja, 3. umhverfis, 4. peninga-
græðgi, 5. af, 7. endalaus, 10.
framkoma, 13. atvikast, 15. sálar, 16.
starfsgrein, 19. ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ee, 8. mér, 9. rif,
11. gá, 12. klasi, 14. ískra, 16. ff, 17.
enn, 18. aur, 20. dd, 21. grúi.
LÓÐRÉTT: 1. verk, 3. um, 4. fégirnd,
5. frá, 7. eilífur, 10. fas, 13. ske, 15.
anda, 16. fag, 19. rú.
Ég sá fyndið
myndband á
YouTube í dag...
Þú??
Ég held að
þú hafi vakið
aðdáun hans.
Ég held að ég, einn
míns liðs, sé búinn
að gera YouTube
hallærislegt.
Horfir þú á
YouTube?
Þú?
ÞÚ?
Ég er búinn að segja
þér það þúsund
sinnum,
ég meðhöndla ekki
sjúklinga sem þjást
af minnisleysi!
Finnst
þér enn
þá að
þau hafi
ekkert við
hund að
gera?
Klapp
klapp
klapp
Hann
hefur átt
erfiða tíma í
vinnunni!
Jæja … nú
skal hann fá
langa hvíld!G-strengs Gulli
er að skokka
með Mjónasi...
Passaðu
þig!
GARG!
Þetta er bara svona: Konur vilja öryggi.“ Vinur minn dæsir makindalega og kemur
sér betur fyrir í sófanum sannfærður um
að þessi fleyga setning muni binda enda á
reiðiraus mitt yfir því að nær allar bækur og
bíómyndir sem beint er að konum skuli snú-
ast um það eitt að ná sér í mann. Alveg sama
hversu miklir töffarar kvenpersónur skáld-
skaparins eru, allar fá þær í hnén og kasta
sér flötum um leið og einhver déskotans
draumaprins birtist. Það er fullkom-
lega óhugsandi að kona öðlist ham-
ingju öðruvísi en í gegnum sam-
band við karlmann. „Þetta er
bara svona.“
SÚ STAÐREYND að æ fleiri konur
kjósa að búa einar hefur ekki ratað
inn í afþreyingariðnaðinn, enda yfir-
leitt ekki tekið mark á slíkri vit-
leysu. Kona sem býr ein gerir það,
samkvæmt skilgreiningu, í neyð.
Annaðhvort er hún ekki „gengin
út“ og á sífelldum höttum eftir
álitlegu mannsefni, eða að hún er
„á milli manna“, nýkomin úr einu
sambandi og þráir ekkert heitar
en að komast í annað. Já, eða þá
hreinlega bara lesbía sem þorir
ekki að koma út úr skápnum. Einu
undantekningarnar eru ekkjur
sem komnar eru á virðulegan
aldur. Þær hafa leyfi til að njóta
þess að vera loksins einar með sjálfum sér,
frjálsar að því að sinna ekki öðru en eigin
lífi. Maður fær helst á tilfinninguna að sam-
búð og hjónaband sé einhvers konar afplánun
sem konur verði að ljúka áður en þeim er
frjálst að sinna sjálfum sér.
KVENLEGU EÐLI er jafnan borið við ef
hreyft er mótmælum við þessari algildu
skoðun. Konur þurfa fjölskyldu til að sjá
um, dútla við og hjúkra, mann til að líta
upp til og láta vernda sig gegn áföllum
lífsins. Kjósi þær annað lífsform eru þær
eigingjarnar, kaldrifjaðar tíkur sem hugsa
ekki um neitt nema sjálfar sig. Karlmað-
ur í sömu stöðu er framagjarn eða glaum-
gosi eða hreinlega giftur vinnunni sinni og
– merkilegt nokk – ekkert ámælisvert við
það. Piparsveinn er eftirsóknarverður feng-
ur sem konur eiga að berjast um að koma
böndum á. Piparjúnka er aumkunarverð
kona sem enginn hefur viljað líta við. Og,
já, þessi hugsun lifir góðu lífi á því herr-
ans ári 2012. Piparjúnka er auðvitað ekki
leyfilegt orð í rétthugsunarkirkjunni, en
hugsunin er sú sama þótt orðum sé breytt
og afþreyingariðnaðurinn rær að því öllum
árum að viðhalda þeirri ímynd að hamingja
kvenna felist í hjónabandinu, þvert á vax-
andi vinsældir einbýlisformsins. Nóra skal
með góðu eða illu koma sér heim aftur og
halda sig þar. Hvað var hún líka að vilja út
í lífið?
Vildi fá sér vænan mann