Fréttablaðið - 20.09.2012, Qupperneq 42
20. september 2012 FIMMTUDAGUR30 30
menntun@frettabladid.is
STUNDUÐU NÁM Í ARKITEKTÚR Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2011.
Það nám er kennt í Listaháskóla Íslands.44
62 nemendur settust í 10. bekk Valhúsaskóla í haust en í
skólanum eru um 300 nemendur.
Fjóla Stefánsdóttir er í tíunda
bekk í Valhúsaskóla. Hún segir
töluverða ábyrgð fylgja því að
vera tíundu bekkingur. „Það er
dálítil breyting sem fylgir því
að byrja í tíunda bekk,“ segir
hún. „Ekki beint meira stress, en
við þurfum að vera fyrirmynd-
ir yngri krakkanna og gefa þeim
gott fordæmi. Námið er líka orðið
þyngra.“ Já, skólaárið hófst á sam-
ræmdum prófum, var það ekkert
undarleg tilfinning? „Jú, það var
mjög skrítið og erfitt. Maður er
ekki kominn í neinn prófgír í sept-
ember, en vonandi gekk það vel.“
Ertu búin að ákveða í hvaða fram-
haldsskóla þú vilt fara á næsta
ári? „Já, mig langar í Kvenna-
skólann og vona að það takist. Það
er orðið svo erfitt að komast inn í
þann framhaldsskóla sem maður
vill helst, þarf megagóðar ein-
kunnir, en ég held ég ráði nú alveg
við það.“
Fjóla segir félagslífið í skólan-
um vera mjög gott og það sé mikil
samheldni meðal krakkanna. „Það
er mjög mikið lagt í félagslífið hjá
okkur,“ segir hún. „Það er hérna
félagsmiðstöð sem heitir Selið og
þar eru alls konar klúbbar, alltaf
einhverjar samkomur og eitthvað
skemmtilegt í gangi.“
Hvaða námsgrein finnst þér
skemmtilegust? „Tungumálin eru
uppáhaldið mitt. Mér finnst mjög
gaman að læra þau öll, en stærð-
fræðin er leiðinlegust. Ég er ekki
góð í henni.“
Hvað stefnirðu á að verða í fram-
tíðinni? „Mig langar til að verða sál-
fræðingur og snyrtifræðingur. Ég
þekki konu sem er sálfræðingur og
er alltaf að spyrja hana út úr. Mér
finnst það mjög spennandi grein.“
- fsb
Tíundu bekkingar eru fyrirmyndir
ÁBYRGÐ Fjóla Stefánsdóttir, nemandi í Valhúsaskóla, segir töluverða breytingu fylgja
því að byrja í tíunda bekk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kennsla í fjármálalæsi
hefst í Menntaskólanum
við Sund eftir áramót. Þar
fá nemendur leiðsögn í að
greina valkosti í fjármálum
og gera áætlanir til fram-
tíðar. Ingvar Freyr Ingvars-
son hagfræðingur er skipu-
leggjandi námsins.
„Fjármálalæsi er valáfangi þriðja
og fjórða árs nemenda í Mennta-
skólanum við Sund á vorönninni
2013 og undirtektir við honum
eru mjög góðar. Þetta efni höfð-
ar mjög til unga fólksins og nem-
endurnir sem hafa skráð sig eru
af hinum ýmsu kjörsviðum skól-
ans innan náttúrufræði og félags-
fræðibrauta,“ segir Ingvar Freyr
Ingvarsson sem hefur útbúið
umgjörð fyrir kúrs í fjármálalæsi
og mun kenna hann ásamt Sigmari
Þormar. Báðir eru þeir kennarar
við Menntaskólann við Sund, Ing-
var Freyr í hagfræði og Sigmar í
félagsfræði. Ingvar Freyr kennir
einnig hagfræði við Menntaskól-
ann í Reykjavík og Kvennaskólann.
Hann segir Kvennaskólann spennt-
an fyrir námskeiðinu í fjármála-
læsi líka. „Vonandi tekst að koma
þessu efni víðar inn í framhalds-
skólana því það á erindi við alla,“
segir hann og telur varnarleysi
ungs fólks við lánagylliboðum og
annarri fjárplógsstarfsemi verða
best mætt með aukinni fræðslu í
stað boða og banna.
En er eitthvert kennsluefni til
sem þeir félagar, Ingvar Freyr og
Sigmar getið vaðið í?
„Já, það hafa ýmis fræðslurit og
leiðbeiningar um fjármál einstak-
linga komið út. Við munum meðal
annars styðjast við ritið Ferð til fjár
– Leiðarvísir um fjármál fyrir ungt
fólk, eftir Breka Karlsson og bók
Ingólfs Ingólfssonar, Þú átt nóg af
peningum. Þar er að finna mörg góð
ráð. Íslandsbanki gaf líka út ritið
Verðbréf og áhætta á árum áður
sem gott er að glugga í og ýmislegt
fleira mætti nefna. Einnig munum
við sýna ýmis myndskeið úr fjár-
málalífinu, fara yfir það hvað gerð-
ist í hruninu og afleiðingar þess,
Gylliboðum best mætt
með fræðslu um fjármál
VIÐ KENNSLU Í HAGFRÆÐI Ingvar Freyr telur mikilvægt að fræða unga fólkið um
fjármál til að auka mögleika þess á réttum ákvörðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fyrsta íslenska kennslubókin í
tónfræði á punktaletri og punkta-
letursnótum er komin út. Hún er
einnig með hefðbundnu letri.
Til þessa hafa blindir tónlistar-
nemendur ekki átt þess kost að
læra nótur á íslensku punktaletri.
Bókin er því stórt skref í þá átt
að þeir hafi jöfn tækifæri og sjá-
andi á því sviði. Punktaletursnótur
hafa verið til nánast jafn lengi og
punktaletrið sjálft eða í um það bil
200 ár. Þær notast við sama sex-
punkta kerfi og venjulegt punkta-
letur en merking táknanna breyt-
ist.
Það voru þeir Eyþór Kamban
Þrastarson og Hlynur Þór Agn-
arson, tónlistarmenn og félagar í
Blindrafélaginu, sem settu náms-
efnið saman. Verkefnið var unnið
með stuðningi frá Stuðningi til
sjálfstæðis – styrktarsjóði Blindra-
vinafélags Íslands og Blindra-
félagsins og Þjónustu- og þekk-
ingarmiðstöðinni fyrir blinda,
sjónskerta og daufblinda einstak-
linga. - gun
Fyrsta tónmennta-
bókin fyrir blinda
STÓR STUND Snorri Örn Snorrason, aðstoðarskólastjóri FÍH, og Íva Marín Adrichem
nemi fengu fyrstu eintök. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra stendur á milli
höfundanna Hlyns Þórs Agnarssonar og Eyþórs Kamban Þrastarsonar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
■ Grundvöllur góðs lífs er að hafa fjármálin í lagi.
■ Hver og einn einstaklingur er ábyrgur fyrir
sínum fjármálum. Aðrir eiga ekki að bera
ábyrgð á þínum fjármálum.
■ Hver og einn þarf að huga miklu betur að því
að sækja sér fræðslu um fjármál.
■ Mikið er af gylliboðum á fjármálamarkaði.
Mikilvægt er að velja vel.
■ Helsti árangur þess að læra fjármálalæsi og
hafa stjórn á sínum eigin fjármálum er að geta
sofið vært á nóttunni.
HEILRÆÐI INGVARS FREYS
Í tilefni af útgáfu ljóðabókarinnar
BROT AF STAÐREYND eftir Jónas
Þorbjarnarson verður haldið útgáfuhóf í
Bókabúð Máls og menningar í dag
fimmtudaginn 20. september kl. 17.
Ástráður Eysteinsson segir nokkur orð um
skáldið og rithöfundarnir Bjarni Bjarnason
og Óskar Árni Óskarsson lesa ljóð úr bókinni.
Verið velkomin!
ræða um viðskiptasiðferði og þess
háttar, kostnað við lántökur, um líf-
eyrissjóðina, smálánafyrirtækin,
verðtrygginguna og útskýra ýmis
hugtök í fjármálaumræðunni,“ lýsir
Ingvar Freyr og lofar að fjalla líka
um gildi sparnaðar og kynna unga
fólkinu hvaða kostir eru þar í boði.
Ingvar Freyr útskrifaðist úr hag-
fræði í febrúar 2011 og hefur starf-
að sem aðstoðarkennari í Háskóla
Íslands en segir námskeið af þessu
tagi nýjung innan framhaldsskóla-
stigsins. „Hingað til hefur fjármála-
læsi aðeins verið kennt á lífsleikni-
námskeiðum og þá bara í tveggja
vikna kúrsi á fyrsta ári. Nú verð-
ur þetta heildstætt símatsnám-
skeið sem verður tekið til prófs á
vorönn.“ Hann segir námið verða
með heimspekilegu ívafi því sál-
ræni þátturinn megi ekki gleym-
ast. Fólk þurfi til dæmis að setja
sér markmið í sambandi við fjár-
málin. „Þess vegna er svo gott að
hafa félagsfræðikennarann Sigmar
með í þessu,“ segir hann.
Hugmyndin er að koma þessu efni
inn í námsskrá ef vel gengur og að
allir árgangar skólans geti notið
þessarar kennslu.
„En fyrst verðum við að prófa
bæði námskeiðið og námsefnið og
helst að gefa út kennslubók í faginu,
staðfærða að íslenskum veruleika.“
gun@frettabladid.is