Fréttablaðið - 20.09.2012, Síða 50
20. september 2012 FIMMTUDAGUR38
bio@frettabladid.is
38
Lawless verður frumsýnd
í kvikmyndahúsum annað
kvöld. Myndin er byggð á
sannsögulegum atburðum
og skartar Tom Hardy og
Shia LaBeouf í aðalhlut-
verkum.
Bondurant-bræðurnir brugga vín
á kreppu- og bannárunum í Banda-
ríkjunum þegar sala á áfengi er
ólögleg. Bræðurnir þrír eru sagðir
framleiða besta spírann í Virginíu-
fylki en þegar spilltur lögreglumað-
ur birtist í bænum og heimtar mútu-
greiðslur taka bræðurnir höndum
saman við aðra bruggara og láta
hart mæta hörðu. Þrátt fyrir hrotta-
skap sinn fara bræðurnir ekki var-
hluta af ástinni því tveir þeirra,
Forrest og Jack, verða ástfangnir,
Jack af dóttur prests og Forrest af
þjónustustúlkunni Maggie.
Fjöldi gæðaleikara fer með
aðalhlutverk í kvikmyndinni og
eru það Tom Hardy, Shia LaBeo-
uf og Jason Clarke sem leika þá
Bon durant-bræður. Guy Pearce
fer með hlutverk lögreglumanns-
ins Charlies Rakes, Gary Oldman
leikur glæpaforingjann Floyd Ban-
ner og Dane DeHaan fer með hlut-
verk vinar bræðranna, Crickets
Pate. Jessica Chastain leikur Mag-
gie Beauford og Mia Wasikowska
bregður sér í hlutverk prestsdótt-
urinnar Berthu Minnix.
Lawless er byggð á skáldsög-
unni The Wettest County In The
World eftir Matt Bondurant og er
það tónlistarmaðurinn Nick Cave
sem skrifar handrit myndarinn-
ar. Þetta er í annað sinn sem kvik-
mynd er gerð eftir handriti Cave.
Fyrri myndin kom út árið 2005 og
nefnist The Proposition. Í henni
leikur Guy Pearce einnig aðalhlut-
verkið, ástralska útlagann Charlie
Burn sem var hundeltur af lögregl-
unni.
Lawless var frumsýnd á Can-
nes-kvikmyndahátíðinni í vor og
var á meðal þeirra kvikmynda
sem kepptu um Gullpálmann, en
það var austurríska kvikmyndin
Amour sem fór með sigur af hólmi.
Lawless hefur fengið ágæta dóma
og á kvikmyndasíðunni Rotten-
tomatoes.com fær hún 65 prósenta
ferskleikastig frá gagnrýnendum
og 81 prósent frá áhorfendum.
Myndinni er lýst sem hrottalegri,
blóðugri og meingallaðri og sagt er
að hún geti seint talist epískt meist-
araverk, en að kvikmyndatakan og
leikurinn séu of áhrifamikil til að
hægt sé að afskrifa hana.
Blóðug saga um bruggara
BLÓÐUG BARÁTTA Bondurant-bræðurnir brugga spíra á bannárunum í Bandaríkjunum og láta hart mæta hörðu þegar spilltur lög-
reglumaður heimsækir heimabæ þeirra.
SKÁLDSAGA BYGGÐ Á ÆVI AFANS
Skáldsagan The Wettest County in
the World er eftir höfundinn Matt
Bondurant. Sagan var innblásin
af ævi afa höfundarins og tveggja
bræðra hans og atburði sem
kallaður er Great Franklin County
Moonshine Conspiracy. Bondurant
notaði sögu fjölskyldunnar sem
uppsprettu sagna en sótti einnig
efnivið í gamlar blaðagreinar og
dómsskjöl. Bræðurnir þrír voru taldir
ódauðlegir af þorpsbúum vegna alls
sem þeir höfðu mátt þola, og unnið
bug á, á lífsleið sinni.
Bondurant skrifaði einnig
bækurnar The Third Translation og
The Night Swimmer.
SYNGUR SEM BUCKLEY Leikarinn Penn Badgley fer með hlutverk
söngvarans Jeff Buckley í kvikmyndinni Greetings from Tim Buckley. Myndin segir
frá árunum áður en Buckley varð frægur og í henni stígur Badgley á svið og syngur.
Leikstjórinn Rupert Wyatt er
hættur við að leikstýra framhalds-
mynd Rise of the Planet of the
Apes vegna þrýstings frá fram-
leiðendum myndarinnar.
Framleiðslufyrirtækið 20th
Century Fox tilkynnti í maí að
framhaldsmyndin Dawn of the
Planet of the Apes yrði frumsýnd
þann 24. maí árið 2014. Samkvæmt
fréttum Empireonline.com hætti
Wyatt við vegna tímaskorts en vef-
síðan hafði þó ekki fengið fréttina
staðfesta. 20th Century Fox ætti
þó að hafa nægan tíma til að finna
annan leikstjóra til að taka verk-
efnið að sér.
Rise of the Planet of the Apes
varð óvæntur smellur fyrir Fox
þegar myndin var frumsýnd í
fyrra. Myndin skartaði James
Franco, Freida Pinto og John Lith-
gow í aðalhlutverkum og þénaði
um 59 milljarða um heim allan.
Hættur við apana
HÆTTUR VIÐ Leikstjórinn Rupert Wyatt er hættur við framhald Rise of the Planet of
the Apes. NORDICPHOTOS/GETTY
Dómarinn og Djúpið í bíóhús
Kvikmyndirnar Djúpið og Judge
Dredd 3D eru frumsýndar í kvik-
myndahúsum annað kvöld.
Djúpið er í leikstjórn Baltasars
Kormáks og er myndin byggð á
samnefndu leikverki Jóns Atla
Jónassonar. Verkið var innblás-
ið af atburði er átti sér stað árið
1984 þegar Guðlaugur Friðþórs-
son synti til lands eftir að skip
hans fórst. Ólafur Darri Ólafsson
fer með aðalhlutverk myndarinn-
ar og eru aðrir leikarar hennar
Jóhann G. Jóhannsson, Stefán
Hallur Stefánsson, Björn Thors,
Þröstur Leó Gunnarsson, Walter
Geir Grímsson, Þorbjörg Halla
Þorgilsdóttir, Theodór Júlíusson,
María Sigurðardóttir og Guðjón
Pedersen.
Myndin var frumsýnd á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Toronto í byrjun september og
hefur fengið frábæra dóma frá
gagnrýnendum sem og áhorf-
endum.
Hasarmyndin Judge Dredd
3D segir frá Dredd dómara sem
hefur fengið það vandasama
verk að losa borgina Mega City
One við eiturlyfið Slo-Mo. Mynd-
in er byggð á teiknimyndasyrp-
unni 2000 AD og er sjálfstætt
framhald Judge Dredd sem kom
út árið 1995 og skartaði Sylves-
ter Stallone í aðalhlutverki. Með
hlutverk dómarans fer Karl
Urban og með önnur hlutverk
fara Olivia Thirlby, Wood Harr-
is og Lena Headey.
DJÚPIÐ Íslenska kvikmyndin Djúpið verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað
kvöld. Hasarmyndin Judge Dredd 3D verður einnig frumsýnd sama kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Bíó Paradís og Afríka 20:20 bjóða
upp á afríska kvikmyndahelgi í
tengslum við þróunarverkefnið
Þróunarvinna ber ávöxt. Þrjár
afrískar kvikmyndir verða sýnd-
ar yfir helgina.
Viva Riva! eftir leikstjórann Djo
Tunda Wa Munga gerist í Kongó.
Þar ríkir bensínskortur og smá-
krimmi kemst yfir magn af elds-
neyti sem hann ætlar sér að græða
á. Myndin hlaut meðal annars
verðlaun á Kvikmyndahátíðinni
í Toronto árið 2010. Kvikmyndin
Bamako kemur frá Malí og er frá
árinu 2006. Myndin er háðsádeila
á hlutverk alþjóðastofnana í Afr-
íku. Loks er það myndin 14 Kilo-
metres frá árinu 2008. Hún er í
leikstjórn Spánverjans Gerardo
Olivares og segir frá ungu fólki
frá Afríku sem dreymir um betra
líf í Evrópu.
Perlur frá Afríku
Styrkir úr Fræðslu-
og verkefnasjóði UMFÍ
Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og
verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. október.
Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum sem er að fi nna á heimasíðu UMFÍ
(www.umfi .is) undir Framlög og styrkir fyrir 1. október.
Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmenna-
félagshreyfi ngarinnar með því að auka menntun og þekkingu
félaga innan hreyfi ngarinnar á íþróttagreinum, þjálfun,
í félagsmálum og félagsstarfi .
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmenna-
félögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags
eða sambands til að afl a sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði
sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmenna-
félagshreyfi ngunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir
UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan
þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum.
Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin
frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna
hreyfi ngarinnar.
Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ
í síma 568-2929.
AFRÍSK KVIKMYNDAHELGI Myndin
Viva Riva! er ein af myndunum sem
sýndar verða um helgina. Hún segir frá
smákrimma sem kemst yfir magn af
eldsneyti.