Fréttablaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 53
FIMMTUDAGUR 20. september 2012 41
Eitt er ljóst. Will Ferrell er ekki
allra. Þeir eru meira að segja til
sem hefur aldrei þótt hann fynd-
inn. Aðrir höfðu gaman að honum
framan af en fannst hann svo allt-
af eins, alltaf að leika saman fífl-
ið. En svo eru það hinir sem halda
því fram fullum fetum að Will Fer-
rell sé einhver fyndnasti maður í
heimi, tryllingslega fyndinn snill-
ingur í allri sinni glúrnu geggjun
og víðáttuvitleysu. Þessi mynd er
fyrir þá. Og aðeins þá.
Hér nýtur Ferrell sín í ræmur
enda fær hann loksins tækifærið
til að þróa áfram einn sinn allra
fyndnasta karakter, forheimska
pólitíkusinn, sem hann gerði fyrst
í óborganlegu gervi Bush yngri
forseta í Saturday Night Live. Hér
gengur hann skrefi lengra og kynn-
ir til sögunnar algjöran erkipólitík-
us, eins vafasaman og bandarískir
pólitíkusar geta orðið (vonandi) og
tekst um leið að kokka upp hreint
geggjaða blöndu af Bush og Clinton.
Cam Brady er ósnertanlegur
öldungadeildarþingmaður þótt
gerspilltur sé, forheimskur og
kvensamari en Jagger. Öllum að
óvörum fær hann mótframbjóð-
anda, hinn hjartahreina og ein-
falda Marty Haggins (Galifianak-
is), sem kostaður er af vondum
auðmönnum sem hafa í hyggju að
opna kínverska þrælaverksmiðju
mitt í Miðríkjunum. Upphefst þá
hatrömm og kostuleg kosningabar-
átta þar sem öllum bellibrögðum í
bókinni er beitt.
Svekkelsið við annars fyrir-
taks upplegg að góðri grínmynd er
að í stað þess að reyna að búa til
snjalla pólitíska satíru í anda The
Daily Show og bresku þáttanna Já
ráðherra! og Thick of it er gripið
til klisjunnar og reynt að klæða
geggjunina í hefðbundinn sögu-
þráð með veikburða boðskap um að
til þess að bjarga heiminum verði
pólitíkusar að gerast heiðarlegir og
ganga sannleikanum á hönd. Ein-
mitt. En Ferrell er í essinu sínu
og Galifianakis líka og saman
eiga þeir allan heiðurinn að fínni
grínmynd í allri hennar geggjun
og grófleika. Og inn á milli slæð-
ast/slysast svo með glettilega beitt
skot á meint grafalvarlegt og rotið
ástand bandarískra stjórnmála í
aðdraganda forsetakosninga. Sem
er viðeigandi. Skarphéðinn Guðmundsson
Fyndni forsetinn Ferrell í essinu sínu
Bíó ★★★ ★★
The Campaign
Niðurstaða: Ekki hárbeitta pólitíska
satíran sem einhverjir vonuðust eftir
en himnasending fyrir aðdáendur
Wills Ferrell.
Leikstjóri: Jay Roach Leikarar:
Will Ferrell, Zack Galifianakis,
Dylan McDermott, Dan Aykroyd,
John Lithgow
Tónlistarmaðurinn og fyrrum
glaumgosinn Robbie Williams
varð faðir í vikunni. Williams
deildi gleðifregnunum á bloggi
sínu en hann og eiginkona hans,
Ayda Fields, urðu stoltir foreldr-
ar lítillar stúlku á þriðjudaginn.
„Gjöriði svo vel, þetta er Theo-
dora Rose Williams, betur þekkt
sem Teddy. Fæddist 15.33 þann
18.9.12. Barni, móður og föður
heilsast vel. Takk fyrir ham-
ingjuóskirnar.“
Williams bað Fields í beinni
útsendingu í útvarpsþætti í Ástr-
alíu árið 2010 og þrátt fyrir að
talsmaður tónlistarmannsins
héldi því fram að bónorðið hefði
verið grín giftust þau nokkrum
mánuðum síðar í Los Angeles.
Eignaðist
litla stúlku
HAMINGJUSAMUR Tónlistarmaðurinn
Robbie Williams eignaðist litla stúlku á
þriðjudaginn með eiginkonu sinni Aydu
Fields. NORDICPHOTOS/GETTY
Plan B og Richard Hawley eru
líklegastir hjá breskum veð-
möngurum til að hreppa Merc-
ury-verðlaunin í ár. Líkurnar hjá
báðum flytjendum eru fjórir á
móti einum að þeir hljóti þessi
virtu tónlistarverðlaun þar sem
plata ársins er verðlaunuð.
Meðal annarra sem hlutu til-
nefningu eru Django Django,
sem spilar á Iceland Airwaves í
haust, The Maccabees, Micha-
el Kiwanuka og Alt-J. Tilkynnt
verður um sigurvegarann 1.
nóvember. Sá fær tæpar fjórar
milljónir króna í verðlaunafé.
Plan B fékk
tilnefningu
Opið laugard. kl. 10-14