Fréttablaðið - 20.09.2012, Page 56
20. september 2012 FIMMTUDAGUR44
sport@frettabladid.is
ÍSLAND verður í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í umspil fyrir EM 2013 á morgun ásamt liðum
Rússlands og Spánar. Stelpurnar mæta því liði úr neðri styrkleikaflokknum en hann skipa Úkraína, Skotland og
Austurríki. Leikið verður heima og að heiman og fara leikirnir fram eftir rúman mánuð.
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
Þegar vinna hefst við gerð aðalskipulagsbreytingar skal taka saman lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram
kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hafi við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu
og fyrirhugað skipulagsferli.
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að lýsingu skipulags fyrir eftirfarandi aðalskipulags-
breytingu:
1. Breyting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 á spildu úr landi Vorsabæjar 1.
Landbúnaðarsvæði breytist í Iðnaðarsvæði til orkuvinnslu og íbúðarsvæði.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar eftirfarandi tillögur að breytingu á aðalskipulagi:
2. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 á svæði úr landi Stóru-Borgar í Grímsnes-
og Grafningshreppi. Smábýli í stað frístundabyggðar við Höskuldslæk.
3. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 á spildu úr landi Ásgarðs við Skógarholt.
Svæði fyrir frístundabyggð í stað opins svæðis til sérstakra nota.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
4. Deiliskipulag smábýlasvæðis við Höskuldslæk í landi Stóru-Borgar í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Skagamýri, smábýlasvæði.
5. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fjölgun lóða við
Skógarholt og Vesturbrún.
6. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Öndverðarness í Grímsnes- og Grafningshreppi. 7 lóðir við
Ferjubraut í framhaldi af Kambsbraut.
7. Deiliskipulag tveggja frístundahúsalóða úr landi Iðu í Bláskógabyggð. Hamarsvegur 1 og 3.
8. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli (lnr. 212210) úr landi Kjóastaða í Bláskógabyggð.
9. Breyting á deiliskipulagi þéttbýlisins Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Færsla á endurvarpsstöð.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags og skrifstofu skipu-
lagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast
nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á http://www.granni.is/uppsveitirogfloahr/auglysingar.htm.
Skipulagstillaga nr. 1 er í kynningu frá 20. til 28. september 2012 en skipulagstillögur nr. 2 til 9 eru í kynningu frá
20. september til 2. nóvember 2012. Athugasemdir og ábendingar við tillögu nr. 1 þurfa að berast skipulagsfull-
trúa í síðasta lagi 28. september en athugasemdir við tillögur nr. 2 til 9 þurfa að berast í síðasta lagi 2. nóvember
2012. Athugasemdir skulu vera skriflegar.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Meistarakeppni HSÍ
Karlar: Haukar - HK 29-23 (12-12)
Mörk HK (skot): Bjarki Már Elísson 9 (13/1), Leó
Snær Pétursson 7 (11), Garðar Svansson 4 (5),
Bjarki Már Gunnarsson 3 (5), Atli Karl Bachmann
3 (8), Eyþór Magnússon 2 (7), Daníel Berg
Grétarsson 1 (1), Vilhelm Gauti Bergsveinsson (1),
Varin skot: Arnór Fr. Stefánsson 14 (37/2, 38%),
Hraðaupphlaup: 6 (Bjarki Már 3, Leó Snær 3)
Fiskuð víti: 1 (Garðar 1)
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Hauka (skot): Stefán Rafn Sigurmannsson
9/2 (15/3), Freyr Brynjarsson 5 (5), Elías Már
Halldórsson 4 (8), Gísli Kristjánsson 3 (3), Gylfi
Gylfason 2 (2), Adam Haukur Baumruk (1), Árni
Steinn Steinþórsson (2), Tjörvi Þorgeirsson (2),
Gísli Jón Þórisson (3),
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 12/1 (29/1,
41%), Giedrius Morkunas 9 (21, 43%).
Hraðaupphlaup: 8 (Stefán Rafn 2, Freyr 2, Gísli
2, Gylfi 2)
Fiskuð víti: 3 (Elías Már 1, Gylfi 1, Adam 1)
Utan vallar: 4 mínútur.
Konur: Valur - ÍBV 29-19 (14-15)
Mörk Vals: Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 6,
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Hrafnhildur Ósk
Skúladóttir 5, Karólína B. Lárudóttir 4, Dagný
Skúladóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 2, Íris Ásta
Pétursdóttir 1, Hildur Marín Andrésdóttir 1.
Mörk ÍBV: Grigore Gorgata 9, Drífa Þorvalsdóttir
4, Simona Vintale 3, Sóley Haraldsdóttir 2, Ivana
Mlenovic 1.
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL
Chelsea-Juventus 2-2
1-0 Oscar (31.), 2-0 Oscar (33.), 2-1 Arturo Vidal
(38.), 2-2 Fabio Quagliarella (80.).
Shaktar Donetsk-Nordsjælland 2-0
F-RIÐILL
Bayern Munchen-Valencia 2-1
1-0 Bastian Schweinsteiger (38.), 2-0 Toni Kroos
(76.), 2-1 Nelson Valdez (90.).
Lille-BATE Borisvo 1-3
0-1 Aliaksandr Volodko (6.), 0-2 Vitali Rodionov
(20.), 0-3 Edgar Olekhnovich (43.), 1-3 Aurelien
Chedjou (60.)
G-RIÐILL
Barcelona-Spartak Moskva 3-2
1-0 Cristian Tello (14.), 1-1 Dani Alves, sjm (29.),
1-2 Romulo (58.), 2-2 Lionel Messi (71.), 3-2
Lionel Messi (80.).
Celtic-Benfica 0-0
H-RIÐILL
Braga-CFR Cluj 0-2
0-1 Rafael Bastos (19.), 0-2 Rafael Bastos (34.)
Man. Utd-Galatasaray 1-0
1-0 Michael Carrick (7.).
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið þarf að fara sömu leið inn
á Evrópumótið og fyrir fjórum
árum eftir 1-2 tap á móti Noregi í
Ósló í gærkvöldi. Fótboltinn getur
oft verið ósanngjarn og það fengu
íslensku stelpurnar að kynnast á
Ullevaal leikvanginum. Íslenska
liðið var lengstum með öll völd á
vellinum á meðan heimastúlkur
lögðust í skotgrafirnar og treystu
á föst leikatriði. Jöfnunarmarkið
lét ekki sjá sig en þrátt fyrir allt
svekkelsið í leikslok geta stelpurn-
ar okkar verið stoltar af leik sínum
í gær.
Allt breyttist á 39. mínútu leiks-
ins þegar Maren Mjelde, fyrir-
liði norska liðsins, fiskaði ódýra
aukaspyrnu og norska liðið fékk
stórhættulegt færi á silfurfati hjá
þýska dómaranum. Mjelde skoraði
í framhaldinu af stuttu færi eftir
flotta sendingu fyrir markið frá
Solveig Gulbrandsen. Markið stuð-
aði greinilega íslensku stelpurnar
mikið og það tók norska liðið aðeins
tæpar þrjár mínútur að bæta við
öðru marki. Elise Thorsnes skor-
aði þá með frábæru skoti. „Síðustu
fimm mínúturnar í fyrri hálfleik
voru ekki góðar og við missum
einbeitinguna tvisvar sinnum og er
refsað í bæði skiptin. Góð lið gera
það,“ sagði Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson landsliðsþjálfari. Honum
tókst þó að rífa íslensku stelpurnar
upp eftir þetta áfall.
„Við ræddum um að við þyrftum
að spýta í lófana og spila boltanum
meira. Það var of mikið af löngum
sendingum fram völlinn í fyrri
hálfleik. Við ætluðum að sýna kar-
akter í seinni hálfleik og sýna hvað
við gætum. Mér fannst liðið bregð-
ast ótrúlega vel við því. Við upp-
skárum fallegt mark og við hefðum
getað skorað fleiri. Ég var alltaf að
bíða eftir því að við myndum jafna
leikinn,“ sagði Sigurður Ragnar.
Íslenska liðið tók öll völd á vell-
inum í seinni hálfleiknum og Mar-
grét Lára Viðarsdóttir skoraði
frábært mark á 65. mínútu eftir
stórkostlega sókn. Katrín Ómars-
dóttir, besti leikmaður íslenska
liðsins, bjó á endanum til skotfærið
með sniðugri snertingu og Margrét
Lára afgreiddi boltann í bláhornið
frá vítateigslínunni.
Íslenska liðið var þar með komið
aftur inn í leikinn en gekk áfram
illa að finna leiðir í gegnum þétt-
an varnarleik norska liðsins þrátt
fyrir að vera áfram miklu meira
með boltann. Íslenska liðið fékk
nokkur ágæt skotfæri fyrir utan
teig á lokamínútunum en þetta eina
gullna tækifæri kom aldrei og því
urðu stelpurnar að sætta sig við
sárgrætilegt tap.
Eli Landsem, þjálfari norska
landsliðsins, hrósaði líka íslenska
liðinu í leikslok og viðurkenndi að
sínar stelpur hafi verið heppnar í
leiknum.
„Þetta var mjög erfiður leikur
því Ísland er með gott lið. Við erum
mjög ánægðar og um leið heppnar
að hafa unnið þennan leik. Leik-
skipulagið okkar gekk fullkom-
lega upp,“ sagði Landsem en hún
var farin að huga að breytingum í
lok fyrri hálfleiks þegar allt stefndi
í 0-0 stöðu í hálfleik. „Það var mik-
ilvægt að fá þessi mörk undir lok
fyrri hálfleiksins. Við vorum mjög
heppnar því ég var þegar farin
að hugsa um hvernig ég þyrfti að
breyta liðinu mínu til að fá mörk
því við urðum að vinna leikinn.
Eftir að við fengum þessi mörk
þá gátum við haldið áfram með
okkar skipulag,“ sagði Landsem en
hvernig heldur hún að íslenska lið-
inu gangi í umspilinu. „Ég er viss
um að ég sé íslenska liðið á EM í
Svíþjóð næsta sumar,“ sagði norski
þjálfarinn og það er vonandi að hún
hafi rétt fyrir sér.
Ég sé þær örugglega aftur í Svíþjóð
Þrjár skelfilegar mínútur í lok fyrri hálfleiks réðu úrslitum í úrslitaleik Noregs og Íslands um sigur í sínum
riðli og sæti á EM. Stelpurnar okkar þurfa því að fara í umspilið alveg eins og fyrir fjórum árum síðan.
BARÁTTA Katrín Ómarsdóttir er hér í baráttu við hina öflugu Sólveigu Gulbrandsen sem var í lykilhlutverki með norska liðinu í
gær. NORDIC PHOTOS/AFP
Óskar Ófeigur
Jónsson
ooj@frettabladid.is
NOREGUR – ÍSLAND
FÓTBOLTI Íslensku landsliðskonurn-
ar gátu ekki leynt svekkelsi sínu
eftir leik en það var ljóst á þeim
öllum að íslenska liðið er að fara
á EM í Svíþjóð þrátt fyrir tapið í
gær.
„Þetta var ótrúlega svekkjandi.
Þær nýta sér einbeitingarleysi hjá
okkur í lok fyrri hálfleiks og ná
að skora tvö mörk,“ sagði Katrín
Jónsdóttir, fyrirliði íslenska liðs-
ins. „Við vorum mikið betri en þær
í seinni hálfleiknum og við áttum
virkilega skilið að setja eitt mark
í viðbót. Maður verður svekkt-
ur í dag og kannski á morgun en
við jöfnum okkur á þessu,“ sagði
Katrín.
„Við ætlum okkur bara áfram.
Það er það sem þessi hópur vill og
það var markmiðið. Þetta verður
aðeins erfiðari leið en við höfum
farið hana áður og getum gert það
aftur,“ sagði Katrín að lokum.
Margrét Lára Viðarsdóttir skor-
aði frábært mark í leiknum en það
dugði því miður ekki til að tryggja
liðinu farseðilinn á EM.
„Við missum einbeitinguna
tvisvar sinnum í fyrri hálfleik og
þær refsa okkur. Þetta er svekkj-
andi og ristir djúpt. Við höfum
tíma til að stappa í okkur stálinu
og við ætlum á EM. Markmiðin
okkar haldast og við þurfum bara
að fara þessa frægu Krýsuvíkur-
leið,“ sagði Margrét Lára.
„Mér fannst við sýna gríðarleg-
an karakter í seinni hálfleik. Við
komum til baka og vorum í raun
hársbreidd frá því að ná þessu. Ég
held samt að það hafi verið gaman
að horfa á okkur í dag,“ sagði Mar-
grét Lára. - óój
Katrín Jónsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir:
Þekkjum þessa leið
og förum hana aftur
SKORAÐI GLÆSILEGT MARK Margrét Lára
Viðarsdóttir skoraði mark Íslands í gær
og var sérstaklega vel að því staðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN