Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 2
22. september 2012 LAUGARDAGUR2 SPURNING DAGSINS AÐEINS Í DAG! ÖFLUGT NUDDTÆKI VERÐ ÁÐUR 9.995,- NÚ 5.995,- kíktu inn á www.pfaff.is Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 Opið í dag, laugardag kl. 11-16. 40% UMHVERFISMÁL Stjórn Viðeyinga- félagsins hefur biðlað til Faxa- flóahafna að fyrirbyggja land- brot við suður- og austurströnd Viðeyjar. Í bréfi Viðeyingafélagsins eru leiddar líkur að því að tíðar komur stórra skemmtiferðaskipa eigi þátt í landbrotinu á Viðey. Íslensku kaupskipin séu smáfleyt- ur í samanburði við hin erlendu risaskip. „Vélstjórar á kaupskipunum taka undir það álit okkar að vél- arkraftur skemmtiferðaskipanna hafi niðurbrotsáhrif á strönd eyj- arinnar,“ segir í bréfi stjórnarinn- ar sem vísar til þess að á kynning- arfundi fyrir nokkrum mánuðum hafi Gísli Gíslason hafnarstjóri skýrt frá því að komum skemmti- ferðaskipa myndi fjölga verulega á næstu árum. Skipin myndu þar að auki stækka; fara úr því að vera tvö hundruð metrar á lengd í það að vera þrjú hundruð metrar. „Að gefnu tilefni vakti Örlygur Hálfdanarson máls á landbroti á suður- og austurströnd Við- eyjar sem hefði haldist í hendur við dýpkun Viðeyjarsunds, upp- byggingu Sundahafnar og aukna skipaumferð,“ segir Viðeyinga- félagið. Auk landbrotsins er vakin athygli á ástandi gamla hafnar- bakkans í Viðey sem sé fyrsta hafskipahöfnin við Faxaflóa. „Í sjálfu sér verður ekkert full- yrt um ástæður landbrots við Viðey, sem hefur staðið lengi, enda kemur það sjónarmið fram í erindi Viðeyingafélagsins að orsakir landbrots eru fleiri en ein,“ segir Gísli hafnarstjóri. Aðalatriðið sé hins vegar að það sé rétt hjá félaginu að landbrot eigi sér stað á eynni austanverðri auk þess sem minjar sæta ágangi sjávar. „Verkefnið er því að hefta land- brotið,“ segir Gísli. „Reykjavík- urborg er eigandi eyjunnar, en það er sjálfsagt mál að Faxaflóa- hafnir í samvinnu við Reykjavík- urborg láti skoða hvernig vinna skuli gegn landbrotinu. Það er fyrsta skrefið í því að koma til móts við ábendingar Viðeyinga- félagsins og Örlygs Hálfdánar- sonar, sem bent hefur á vandann um langa hríð.“ Viðeyingafélagið kveðst ekki gera lítið úr því að auk vélarafls skipanna þá valdi margir sam- verkandi þættir álagi á bakka Viðeyjar. „En þar sem ekki virð- ast vera neinar áætlanir uppi um heildarstrandvörn í Sundunum og þróun landbrotsins talar stöðugt sínu máli finnst okkur að hafnar- stjórn ætti að láta náttúruna njóta vafans,“ segir stjórn Viðeyinga- félagsins sem er félag brottfluttra Viðeyinga og afkomenda þeirra. „Brottfluttir Viðeyingar hafa um árabil bent á afleiðingar sem þeir telja að hægt sé að rekja til dýpkunar Viðeyjarsunds og hafn- argerðar Reykjavíkurmegin en enga áheyrn hlotið.“ gar@frettabladid.is Skemmtiferðaskipin brjóta land Viðeyjar Viðeyingafélagið segir vélarafl sífellt fleiri og stærri skemmtiferðaskipa auk hafnarframkvæmda og dýpkunar Viðeyjarsunds stuðla að niðurbroti eyjunnar. Hafnarstjóri segir bæði land og minjar í hættu. Verkefnið sé að hefta landbrot. LANDBROT Í VIÐEY Viðeyingafélagið sendi margar myndir til stjórnar Faxaflóahafna til að sýna fram á landeyðinguna í Viðey. MYND/VIÐEYINGAFÉLAGIÐ NEYTENDUR Bandaríkjamaðurinn Wayne Watson, sem um árabil naut þess að gæða sér reglu- lega á örbylgjupoppi, hefur fengið 7,6 milljónir dollara í bætur eða sem nemur nálægt milljarði íslenskra króna. Dóm- stóll staðfesti að efnið diacetyl, sem notað er til að gefa örbylgju- poppi smjör- bragð, hefði eyði- lagt lungu Wat- sons. Skaðleg áhrif efn- isins hafa verið þekkt lengi en þetta er í fyrsta sinn sem neytandi fær bætur, að því er segir á vefnum Business.dk. Poppkornsframleiðandinn Gilster-Mary Lee Corp á að greiða 80 prósent bótanna en verslanakeðjan King Soopers 20 prósent. Engin viðvörun um skaðsemi efnisins voru á umbúðum. - ibs Með skemmd lungu: Milljarður í bætur vegna poppkornsáts PAKISTAN Að minnsta kosti sautján létu lífið og tugir særðust þegar til átaka kom í Pakistan milli mótmæl- enda og lögreglu. Mótmælendurnir mættu þúsundum saman út á götur margra helstu borga landsins til að lýsa andúð sinni á bandarísku myndbandi um Múhameð spá- mann. Margir þeirra köstuðu grjóti og kveiktu í húsum, en lögreglan brást sums staðar við með því að skjóta á fólkið og nota táragas. Mest varð mannfallið í borginni Karachi, þar sem að minnsta kosti tólf manns létu lífið. Efnt var til sams konar mótmæla í nokkrum öðrum löndum, þar á meðal Afganistan, Indónesíu, Írak og í Þýskalandi, þar sem nokkur hundruð manns söfnuð- ust saman í Freiburg til að mótmæla myndbandinu. Mótmælin gegn þessu myndbandi og ofbeldi í tengslum við þau hafa alls kostað nærri fimmtíu manns lífið þessa ellefu daga, sem liðnir eru frá því að hlutar úr því voru settir inn á Youtube í arabískri þýðingu. Bandaríkin hafa varið sjötíu þúsund dölum í sjónvarpsauglýsingar, sem sýndar hafa verið í Pak- istan, þar sem bandarískir ráðamenn sjást fordæma myndbandið. - gb Mótmæli gegn bandarísku Múhameðsmyndinni snerust upp í mannskæð átök: Kostuðu nærri tuttugu lífið MÓTMÆLI Í PAKISTAN Mótmælandi í Rawalpindi dregur logandi hjólbarða úti á götu. NORDICPHOTOS/AFP VEIÐI Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að rjúpnaveiðar verði heimilar í níu daga líkt og haustið 2011 og dreifist veiðitímabilið á fjór- ar helgar líkt og þá. Í mati Náttúrufræðistofnunar kemur fram að rjúpnastofninn sé nú á niðurleið um allt land. Viðkoman 2012 var góð, sem bætir bága stöðu stofnsins, og hann mælist því stærri en haustið 2011 þrátt fyrir minni varpstofn. Stærð rjúpnastofnsins sveiflast reglubundið og hafa 10 til 12 ár verið á milli hámarksára. Miðað við fyrri sveiflur má búast við rjúpnaþurrð næstu ár; stofninn nær væntanlega lágmarki á árun- um 2015-2018 og næsta hámark verður 2020-2022. Verði mikil afföll í rjúpna stofninum viðvarandi á næstu árum er hins vegar ekki búist við að hin náttúrulega upp- sveifla í lok þessa áratugar verði veruleg. Áætlaður veiðistofn nú er um 390.000 fuglar, en talið að veiði- þol sé 34.000 fuglar. Umhverfisstofnun leggur áherslu á að farið verði að ráðgjöf Náttúru- fræðistofnunar um ráðlagða veiði upp á 34.000 fugla, sem geri um sex rjúpur á veiðimann, miðað við þann fjölda veiðimanna sem að jafnaði fer til rjúpnaveiða. Telur Umhverf- isstofnun einnig rétt að viðhalda sölubanni á rjúpu. - shá Veiðiþol rjúpnastofnsins er metið vera 34 þúsund fuglar þennan veturinn: Rjúpnaveiðar með sama sniði RJÚPUR Stofninn er talinn þola 34 þúsunda fugla veiði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMGÖNGUR Bíllausi dagurinn í Reykjavík er í dag. Í tilefni dags- ins verða sumargötur endurvakt- ar og gestir og gangandi hvattir til að heimsækja miðborgina og kynna sér stæðaæði, menningu og iðandi líf miðborgarinnar. Lækjargata verður lokuð fyrir bílaumferð á milli Vonarstrætis og Hverfisgötu en þó aksturs- fær fyrir strætó um strætórein- ar. Laugavegi og Skólavörðustíg verður lokað fyrir bílaumferð við Bergstaðastræti, Bankastræti verður göngugata og Pósthús- stræti sömuleiðis frá Kirkju- stræti til Hafnarstrætis. - shá Sumargötur endurvaktar: Fólk hvatt til að skilja við bílinn UMHVERFISMÁL Svandís Svavars- dóttir umhverfisráðherra hefur staðfest samning milli Umhverf- isstofnunar og Mosfellsbæjar um rekstur og umsjón sveitarfélagsins með friðlandinu við Varmárósa. Varmárósar voru fyrst friðlýst- ir árið 1980 í kjölfar þess að þar fannst plöntutegundin fitjasef en plantan er á válista og er einnig friðlýst sem tegund. Við Varmárósa er einnig að finna mýrar og flóa sem njóta sérstakrar verndar sem og sjávarfitjar og leir- ur. Þá er í friðlandinu að finna far- fugla eins og margæsir, rauðbryst- inga og lóuþræla auk sjaldgæfra tegunda svo sem gargönd, grafönd og jafnvel haferni. - shá Samningur um friðland: Sami háttur á við Varmárósa HAFÖRN Sjaldgæfir fuglar gera sig heimakomna við Varmárósa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI NOREGUR Fulltrúar sjávarútvegs- fyrirtækja í Noregi hafa áhyggjur af ákvörðun norskra yfirvalda um að setja á prósentutoll í stað krónu- tolls til þess að vernda ýmsar land- búnaðarvörur. Samningaviðræður Noregs og ESB um tollfrjálsa kvóta hefjast innan skamms og óttast talsmenn sjávarútvegsins viðbrögð ESB við breyttum landbúnaðartollum. János Herman, sendiherra ESB í Noregi, segir tollabreytingarnar brjóta í bága við anda 19. gr. EES- samningsins. - ibs Norðmenn breyta tollum: Áhyggjur innan sjávarútvegsins Kamilla, verður þetta ekki bara leyst með svefnpokaplássi í Hörpu? „Ég er að bíða eftir svari frá Marriot. Þeir ætla að sofa á þessu.“ Kamilla Ingibergsdóttir, kynningarstjóri Iceland Airwaves, er að reyna að ráða úr skorti á gistirúmum fyrir hina fjölmörgu listamenn sem sækja landið heim til að spila á tónlistarhátíðinni. LÖGREGLUMÁL Hópur Íslendinga var handtekinn í Kaupmanna- höfn í gær í tengslum við fíkni- efnamál sem sagt er teygja anga sína víða um Evrópu. Þetta kom fram á vef DV í gær. Í frétt DV sagði að í hópnum væru sjö til átta manns, sem sumir hverjir hefðu áður komið við sögu lögreglu vegna fíkni- efnamisferlis. Engar upplýsingar var að fá um málið hjá íslensku lögregl- unni í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. - sh Fregnir frá Danmörku: Íslenskur hópur handtekinn Vélstjórar á kaup- skipunum taka undir það álit okkar að vélarkraftur skemmtiferðaskipanna hafi niðurbrotsáhrif á strönd eyjarinnar. STJÓRN VIÐEYINGAFÉLAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.