Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 88
22. september 2012 LAUGARDAGUR48 48 menning@frettabladid.is Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld er tilnefndur til hinna norrænu kvik- myndatónlistarverðlauna, Hörpu, fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Andlit norðursins, sem fjallar um ljósmyndarann Ragnar Axelsson – RAX. Verðlaunin sem hétu til skamms tíma Norrænu kvikmynda- tónlistarverðlaunin, voru nýlega endurnefnd en þau voru fyrst afhent í Noregi 2009. Hörpuverðlaunin verða veitt í fjórða sinn 6. október á veglegri athöfn í Hörpu. Verðlaunin nema 10.000 evrum, jafnvirði 1,6 milljóna króna, auk sérstaks verðlaunagrips sem Ragnar Kjartansson hefur hannað. Sérstakar sýningar verða á hinum fimm tilnefndu kvikmyndum Norð- urlandanna dagana 5. og 6. október auk þess sem gestum gefst kostur á að hlýða á tónskáldin tilnefndu fjalla um verk sín og nálganir í sér- stökum pallborðsumræðum síðdegis laugardaginn 6. október. Hilmar Örn tilnefndur HILMAR ÖRN HILMARSSON Tilnefndur til Hörpuverðlaunanna fyrir tónlist í myndinni Andlit norðursins. Víkingur Heiðar Krist- jánsson flytur tónleika í minningu Glenns Gould, frægasta píanóleikara 20. aldarinnar. Á þriðjudaginn kemur hefði kan- adíski píanóleikarinn Glenn Gould orðið áttræður. Þann dag held- ur Víkingur Heiðar Kristjánsson píanóleikari tónleika í Hörpu undir yfirskriftinni Önnur hugmynd um norðrið. Heitið kallast á við útvarps- þætti sem Gould gerði, The Idea of North, en í þeim talaði Gould við íbúa sem bjuggu á afskekktum slóð- um í Kanada. Gould er í miklu upp- áhaldi hjá Víkingi Heiðari en hug- myndin að því að hann setti saman dagskrá í minningu listamanns- ins kom frá Peter Paul Kainrath, listrænum stjórnanda Busoni-tón- listarhátíðarinnar á Ítalíu. „Hann hringdi í mig með það erindi að vinna að tónleikum tileinkuðum Gould, diskurinn minn hafði vakið með honum hugrenningartengsl við Gould og þannig varð þessi dagskrá til.“ Tónleikarnir eru nokkurs konar samtal Víkings Heiðars við píanó- leikarann sem er þekktasti píanó- leikari 20. aldarinnar. „Mig lang- aði til að gera eitthvað óvenjulegt. Og vinna þannig í anda Goulds sem stundaði mikla tilraunastarfsemi sjálfur. Þannig varð úr að annars vegar setti ég saman prógramm þar sem ég vann með einangrunarstef- ið, sem Gould hafði sjálfur unnið með í þáttum sínum um norðrið. Hins vegar fann ég til margvís- lega búta úr viðtölum við Gould og leik þá á milli verka. Ég hafði stúd- erað Gould töluvert mikið og vissi því hvar ég gat leitað fanga,“ segir Víkingur Heiðar. Gould var mjög frægur fyrir túlk- un sína á Bach og fyrri hluti tón- leikanna er helgaður verkum hans. Á síðari hluta tónleikanna verða síð- rómantísk verk eftir Brahms, Grieg, Sibelius og Wagner; verk sem á einn eða annan hátt tengjast Gould og þema útvarpsþáttarins. „Gould var mjög skapandi og fyrir utan píanóleik sinn gerði hann bæði sjónvarps- og útvarpsþætti. Þess má svo geta að hann hætti að koma fram á tónleikum 32 ára, hann vildi hafa fullkomna stjórn á aðstæðum og það er auðvitað ekki hægt á tónleikum. Að mínu mati var hann mest skapandi og túlk- andi listamaður síðustu aldar og hann hefur haft mjög mikil áhrif á mig. En það eru svo sem skiptar skoðanir á honum, ég hitti frægan píanista á dögunum sem spurði mig hvernig ég þoldi Gould,“ segir Vík- ingur Heiðar sem hefur flutt dag- skrá sína um norðrið tvisvar á áður- nefndri Busoni-hátíð og svo núna í vikunni á MITO-hátíðinni í Mílanó. Víkingur Heiðar flytur dag- skrána svo í Eskifjarðarkirkju í dag klukkan þrjú og sem fyrr segir í Norðurljósasal Hörpu klukkan átta á þriðjudag. sigridur@frettabladid.is VÍKINGUR HEIÐAR OG ÖNN- UR HUGMYND UM NORÐRIÐ TALAR TIL GOULD Víkingur Heiðar leikur tónlist sem tengist píanóleikaranum Gould á einn eða annan hátt á tónleikunum sem haldnir verða á þriðjudag. MYND/KARÓLÍNA Auk þess að sinna tónlistinni vinnur Víkingur Heiðar um þessar mundir að gerð sjónvarpsþátta um tónlist ásamt Höllu Oddnýju Magnúsdóttur sambýliskonu sinni. „Við erum á lokasprettinum, erum búin að taka upp ýmislegt og Halla er nú í Bretlandi að tala við alls konar áhugavert fólk, taugasérfræðinga, heimspekinga og þar fram eftir götunum,“ segir Víkingur Heiðar. Þættirnir fjalla um tónlist frá margvíslegum sjónarhornum. „Við ætlum til dæmis að útskýra trixin í tónlistinni í einum þættinum, hvernig tónlist virkar á fólk. Svo munum við fjalla um hlutverk flytjandans og skoða ólík sjónarmið listamanna á það, við fjöllum um ljóðasöng og nýja tónlist, svo eitt- hvað sé nefnt.“ Víkingur Heiðar segir að meðal þeirra sem hafi veitt honum innblástur við gerð þáttanna hafi verið Glenn Gould. „Gould og Leonard Bernstein gerðu báðir þætti um tónlist sem eru virkilega góðir og hafa gefið mér ótal hugmyndir.“ TRIXIN Í TÓNLISTINNI Félag fagfólks um offitu stendur fyrir rannsóknar- og málþingi Föstudaginn 28. september 2012 í sal Læknafélags Íslands í Hlíðarsmára 8, Kópavogi Rannsóknarþing 8:30 Móttaka og skráning 9:00 Rannsóknar- og málþing sett 9:10 Tengsl fæðuvals og hlutfallslegrar skiptingar orkuefnanna við langtíma þyngdarbreytingar meðal fullorðinna. Ingibjörg Gunnarsdóttir / Anna Sigríður Ólafsdóttir 9:30 Tengsl mataræðis á fyrsta aldursári við líkamsþyngdarstuðul sex ára barna. Birna Thorisdottir 9:45 Líkamsþyngdarstuðull barna á höfuðborgarsvæðinu. Breytingar og ályktanir. Stefán Hrafn Jónsson 10:00 Holdafar, menntun og mataræði karla og kvenna í borg og bæ. Hrafnhildur Guðjónsdóttir 10:15 Kaffi 10:30 Ofþyngd og offita hjá fólki á miðjum aldri 2007 – 2010 í REFINE-Reykjavík rannsókn Hjartaverndar. Bolli Þórsson 10:45 Heilsa kvenna í yfirvigt í tengslum við námskeiðið „Njóttu þess að borða“: sex og tólf mánaða eftirfylgd. Helga Lárusdóttir 11:00 Langtímaáhrif offitumeðferðar á þyngd, andlega líðan og lífsgæði. Bjarni Kristinn Gunnarsson 11:15 Áhrif hjáveituaðgerðar á maga og görnum á beinabúskap og líkamssamsetningu (frumniðurstöður). Díana Óskarsdóttir 11.30 Árangur offitumeðferðarinnar á Reykjalundi með eða án magahjáveituaðgerðar, 2 ára eftirfylgd. Anna Njálsdóttir 11:45 Matarhlé Málþing um meðferðarúrræði 12:30 Greining, ráðgjöf og meðferð ofþyngdar og offitu fyrir fullorðna ein- staklinga í íslensku heilbrigðiskerfi árið 2011. Erla Gerður Sveinsdóttir 12:50 Kynningar meðferðarúrræða frá: Heilsugæslunni á höfuðborgar- svæðinu, Heilsugæslunni á Húsavík, Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað, Heilsustofnun NFLÍ, MFM miðstöðinni, Heilsuskóla Barnaspítalans. 14:30 Kaffi Kynningar meðferðarúrræða frá: Kristnesi, Reykjalundi, LSH-hjáveitu aðgerðir og Heilsuborg. 15:30 Hvert verður hlutverk heilbrigðiskerfisins varðandi offitu? Pallborðsumræður með þátttöku stjórnmálamanna og aðila úr heil brigðisþjónustunni 16:30 Þingi slitið Þátttökugjald fyrir félagsmenn FFO og námsfólk 5.000 kr. Þátttökugjald fyrir aðra 7.500 kr Kaffi og matur í hádegi er innifalið. Látið þess getið við skráningu ef vilji er til að gerast félagi Skráning fer fram á netfanginu ffovisindi@gmail.com. Þáttökugjald greiðist við skráningu inn á reikning Félags fagfólks um offitu nr. 549 – 26 - 6401 Kt. 640103 – 2560 Mótettukór Hallgrímskirkju Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag Stjórnandi: Hörður Áskelsson 29. des. kl. 17: kantötur I-IV 30. des. kl. 17: kantötur I,II,V,VIELDBORG, HÖRPU Í H ÖR PU FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20 2. sýn: Föstudaginn 26. október 3. sýn: Laugardaginn 27. október 4. sýn: Sunnudaginn 4. nóvember 5. sýn: Laugardaginn 10. nóvember 6. sýn: Laugardaginn 17. nóvember Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is - sími 528 5050 - midasala@harpa.is WWW.OPERA.IS TEIKNISMIÐJA Í BORGARBÓKASAFNI Boðið verður upp á teiknismiðju fyrir börn á aldrinum 3-14 ára í aðalsafni Borgarbókasafnsins á morgun. Afrakstur smiðjunnar verður sendur í alþjóðlegu teiknisamkeppnina Colorful Rights. Leiðbeinandi í smiðjunni er Kristín Arngrímsdóttir, listamaður, rithöfundur og starfsmaður Borgarbókasafns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.