Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 24
22. september 2012 LAUGARDAGUR24 E r Á sama tíma að ári ekki barn síns tíma, á það eitthvert erindi við okkur í dag? „Ég spurði nú sjálfa mig þessarar sömu spurn- ingar þegar þetta kom upp. Ég man líka svo vel eftir Sigga og Tinnu í þessum hlutverkum og finnst eitthvað svo stutt síðan þau léku þetta, þótt það séu víst að verða fimmtán ár. Ég hafði sem sagt smá efasemdir en svo las ég verkið og sá að þessi saga á alltaf við. Maður fer alveg með þessum persónum í gegnum litróf lífsins og þroskast með þeim á þessum tuttugu og fimm árum sem verkið spannar. Það speglar líka svo vel sjálfstæðisbaráttu kvenna, í byrj- un er hún algjörlega ómenntuð og alveg græn og bara ofboðslega ánægð með líf sitt, á þrjú börn og býr í yndislegu raðhúsi og fer í keilu þrisvar í viku. En fer svo að finna fyrir leiða, leit- ar sér menntunar og endar sem atvinnurek- andi.“ Framhjáhald er nú ekki beint fallegt umfjöllunarefni, eða hvað? „Nei, auðvitað ekki og enginn sem er fylgjandi því, en málið er að manni fer að þykja svo vænt um þau að maður gleym- ir því næstum að þau eigi annað líf og heldur alveg með þeim í þessu framhjáhaldi.“ Þú hefur ekki verið þekkt sem gamanleik- kona hingað til, hvern- ig gengur það? „Ég hef minna gert af því, já. Auðvitað er kómík alls staðar, en ég hef ekki gefið mig út fyrir að vera neitt fyndin, enda er ég það alls ekki nema í þröng- um hópi náinna vina. Ég kann til dæmis ekki að segja brandara. En Á sama tíma að ári er ekki beint gamanleikrit, allavega alls ekki farsi. Rómantískur gamanleikur með alvarlegan undirtón, lýsir því eiginlega best. Fyndnin ligg- ur í textanum og kringumstæð- unum, en ekki í neinum ærslum á sviðinu.“ Skrifin fara aldrei langt frá manni Strax að lokinni frumsýningu Á sama tíma að ári fer Nína Dögg að æfa næsta verkefni sem er upp- færsla Vesturports á Bastörðum í samvinnu við Borgarleikhúsið. Er eitthvað fleira í pípunum? „Það er alltaf alls kyns í gangi, sko. Við erum að fara til New York með Faust núna um jólin og ég Ingvar og Gísli erum að fara til London í janúar og sýna Hamskiptin á staðnum þar sem við byrjuðum, í Lyric Hammersmith-leikhúsinu þar sem verið er að setja upp The best of Lyric með alls konar sýn- ingum sem hafa verið hjá þeim í gegnum tíðina. Þar verðum við í sex vikur og svo kem ég heim og held vonandi áfram í Á sama tíma að ári og Bastörðum. Það er alltaf nóg að gera.“ Þú hefur verið einn af handrits- höfundum Vesturports í gegnum tíðina. Heillar það þig að skrifa ein? „Nei, ég hef ekki það sem þarf til þess. Mér finnst ofsa- lega gaman að fá hugmyndir og þróa þær áfram en þegar kemur að því að skrifa þær út þarf ég að fá einhvern annan í lið með mér. Við Unnur Ösp erum til dæmis búnar að vera að vinna að hugmynd saman í fimm ár sem er okkur mjög kær. Við höfum unnið mikla rannsóknarvinnu, þróað karaktera og strúktúr og nú er komið að því að barnið fari að fæðast. Það er sjónvarpssería sem ber vinnutitilinn Fangar og fjallar um konur í fangelsi og er núna að fara á fullan skrið. Við erum komnar með frábæra hand- ritshöfunda með okkur, þau Mar- gréti Örnólfs og Jóhann Ævar, og framleiðslufyrirtækið Mistery, sem hefur unnið með okkur að mörgum verkefnum, er að undir- búa framleiðslu sem væntanlega fer í gang fljótlega. Þannig að skrifin fara aldrei neitt langt frá manni og það finnst mér ógeðs- lega skemmtilegt.“ En að leikstýra, hefur þig aldrei langað til þess? „Nei. Það hefur aldrei heillað mig. Ég gekk alveg í gegnum það að velta því fyrir mér hvort það væri vegna þess að ég liti ekki nógu stórt á mig eða fynd- ist ég ekki nógu góð, en það hefur ekkert með það að gera – ég hef bara ekki áhuga á því.“ Finnst þér þú kannski standa í skugganum af eiginmanninum? „Nei, það hefur mér aldrei fundist. Við höfum alltaf verið svo sam- stíga í þessu, stundum er voða mikið að gera hjá honum og stundum hjá mér og við lögum okkur bara að því. En við vorum orðin par áður en við byrjuðum í leiklistarskólanum þannig að líf okkar hefur bara snúist um leiklistina og svo erum við auðvitað hluti af þessum stóra hópi sem er Vesturport, þar sem við vinnum öll saman og komum okkar hug- myndum á framfæri, þannig að það hefur aldrei komið til að einhver væri meiri en annar.“ Þú ert eig- inlega eina konan í toppsæti hjá Vestur- porti, er ekkert erfitt að þurfa að kljást við alla þessa karla? „Við höfum nú yfirleitt verið þrjár. Ég, Nanna Kristín, sem er reyndar í Kanada núna að læra leikritaskrif, og Rakel Garð- arsdóttir framkvæmdastjórinn okkar, sem er sko alvöru kona, þannig að þetta hefur alls ekki verið neitt erfitt. Þeir gera bara allt sem við segjum þeim að gera. Vesturport væri ekki til ef við værum ekki þarna.“ Hugsa ekki um að meika það Nú er Vesturport búið að starfa ansi lengi og hópurinn verið á miklum ferðalögum saman, eruð þið ekkert orðin leið hvert á öðru? „Nei, alls ekki. Það vinna allir í sínu út um allt og svo komum við bara öll saman í ákveðin verkefni og eigum hvort annað alltaf að. Vesturport átti fyrst og fremst að vera vettvangur til að þróa okkur sem listamenn, koma hugmyndum okkar á framfæri og fá stuðning hvert frá öðru til að láta drauma okkar rætast. Og það hefur verið þannig allan þennan tíma. Við gerðum einhvern tíma eitthvað manifestó, en við vorum fljót að henda því, þetta litla upphaflega manifestó er alveg nógu gott og hefur virkað vel fyrir okkur. Þetta er bara ótrúlega gott öryggisnet og ég er óskaplega þakklát fyrir þessa yndislegu vini mína og fjöl- skyldu, því þau eru auðvitað orðin eins og fjölskylda manns. Auðvi- tað hefur ýmislegt komið upp á en sem betur fer erum við svo flink að við höfum alltaf náð að leysa það og knúsast. Bara svona eins og gerist í eðlilegum fjölskyldum.“ Ykkur Gísla hefur aldrei dottið í hug að setjast að erlendis og reyna að skapa karríer þar? „Nei, ekki setjast að. Við höfum auðvitað verið langdvölum erlendis, vorum til dæmis ár í London og fjóra mánuði í Noregi, en ég get ekki hugsað mér að flytja alfarið frá Íslandi. Það er best að vera hér. Hér er kjarninn okkar og beisið og okkur finnst best að vinna sýn- ingarnar okkar hér og fara síðan með þær út. En það er ýmislegt í bígerð og kannski munum við fara út í eitt ár eða svo, en ekki til að búa í lengri tíma. Það myndi ég aldrei vilja.“ Hvað með kvikmyndafram- ann, heillar ekkert að reyna að ná fóstfestu í þeim bransa erlend- is? „Neeeei, held ekki. Auðvi- tað myndi ég ekki segja nei ef mér væri boðið hlutverk í Holly- wood-mynd, en að flytja þangað til að mæta í endalausar prufur og kynna sjálfan sig heillar mig ekki. Ég geri mér líka grein fyrir því að ég er orðin 38 ára og tæki- færin bíða ekkert í röðum. Ég var með Gísla í Marokkó við tökurn- ar á Prince of Persia og það var alveg dásamlegur tími. Gaman að kynnast öllu þessu fólki og fá að nasa aðeins af þessum heimi, en ég hugsa aldrei um það að meika það sem kvikmyndastjarna, það er svo óraunverulegt. Fyrir utan það að drævið mitt er hér.“ Kom einhvern tíma til greina að verða eitthvað annað en leikkona? „Eiginlega ekki. Amma mín, Sól- veig Guðlaugsdóttir, er stórkostleg kona og hún sagði við mig þegar ég var mjög lítil að ég skyldi finna mér starf sem ég hefði ánægju af, því maður eyddi svo miklum tíma í vinnunni. Það síaðist rækilega inn. Ég hef alltaf verið litli trúðurinn sem vildi bara hafa gaman, hoppa út um allt og vera hress. Þannig að leiklistin hentaði mér í alla staði. Það eru líka ótrúleg forréttindi að fá að vinna við það sem maður elskar, það gefur manni endalausan kraft.“ Auðvitað er kómík alls staðar Nína Dögg Filippusdóttir hefur verið áberandi í leiklistinni undanfarin ár, í sýningum Vesturports sem hún og maður hennar, Gísli Örn Garðarsson, stofnuðu ásamt hópi fólks, í kvikmyndum og hjá Borgarleikhúsinu. Um næstu helgi stígur hún á svið í aðalhlutverki í Á sama tíma að ári. Friðrika Benónýsdóttir ræddi við hana um sýninguna, Vesturport, skrifin og draumana. FJÖLHÆF Nína Dögg Filippusdóttir leikkona hefur nóg að gera. Hún leikur annað tveggja hlutverka í Á sama tíma að ári, semur handrit að sjónvarpsþáttaseríu, mun leika í Bastörðum og sinnir börnum, svo örfátt sé nefnt. En hana langar ekkert að meika það í Hollywood. Drævið er hér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég hef ekki gefið mig út fyrir að vera neitt fyndin, enda er ég það alls ekki nema í þröngum hópi náinna vina. Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI Höfundur: Bernard Slade Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson og Bjarni Haukur Þórsson Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson Leikmynd: Ásta Ríkharðsdóttir Búningar: Stefanía Adolfsdóttir Lýsing: Þórður Orri Pétursson og Garðar Borgþórsson Tónlistarstjórn: Frank Þórir Hall Tónlist: Tilbury Sviðshreyfingar: Guðmundur Elías Knudsen Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir og Guðjón Davíð Karlsson Frumsýning á stóra sviði Borgarleik- hússins 28. september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.