Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 32
22. september 2012 LAUGARDAGUR32 betu Erlingsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þar slysaðist ég til að sjá mynd af afa mínum, Tómasi Alberts- syni, uppi á vegg í hópi fleiri karla. Ég spurði Elísabetu hverjir þetta væru. Þá sagði hún að þetta væru „postularnir“. Þessir menn hefðu komið sér saman um að stofna Hljómsveit Reykjavíkur sem hefði verið grunnurinn að Sinfón- íuhljómsveitinni. Þeir hefðu líka staðið að stofnun Tónlistarfélagsins í Reykja- vík sem síðan stofnaði Tónlistarskólann í Reykjavík, þannig að þetta voru miklir frumkvöðlar. Afi vann sem setjari hjá Alþýðuprentsmiðjunni og var óbóleikari í sínum frítíma. Pabbi hafði ekkert verið að fræða mig um þetta. Ein systir pabba heitir Messíana og er mikil leikhúskona, krakkarnir hennar spiluðu á hljóðfæri og voru miklu meðvitaðri um tónlistar- iðkun afa en ég. Önnur systir pabba er Bryndís Tómasdóttir píanóleikari, lík- lega mesti músíkantinn í fjölskyldunni heima.“ Ekki of stressaður Rödd Tómasar kallast dramatísk barí- tónrödd, eða hetjubarítón. „Fyrstu árin á ferlinum söng ég sem bassi og var til dæmis í bassahlutverkinu í tveimur mismunandi uppfærslum af Il Trovatore, fyrst í Antwerpen í Belgíu og svo í London, á Covent Garden. Það er til DVD-diskur af síðari uppfærsl- unni. Áður en Stefán Baldursson hafði samband við mig og bað mig að syngja Luna greifa í sýningunni heima var ég búinn að ákveða að vera í því hlutverki næsta vor í Houston í Texas,“ segir Tómas sem er með bókaða dagskrá nokkur ár fram í tímann. Tómas fer ótal ferðir yfir Atlants- hafið á ári því hann kveðst syngja æ meira vestanhafs. „Mín rödd virðist passa ágætlega í amerísku húsin,“ segir hann og telur sinn fjörutíu og fimm ára aldur ágætan fyrir barí- tónrödd eins og sína. „Stærstu nöfn- in í þeim hlutverkum sem ég er að syngja eru menn sem eru komnir yfir sextugt, þannig að ég á að geta átt góð tuttugu ár enn ef ég held heilsu.“ Hann hlær að spurningunni um hvort hann sé heilsufrík. „Nei, alls ekki – ég reyni bara að fara sæmilega með mig og vera ekki of stressaður yfir hlut- unum.“ Kvef getur valdið vandræðum hjá söngvurum eins og Tómas lýsir í lokin. „Á einni af sýningunum hér í Berlín á síðasta ári var ég svolítið kvefað- ur. Oftast hef ég ekki alltof miklar áhyggjur af slíku og syng samt sem áður. Í þetta sinn var ég í erfiðasta hlutverki sem ég hef tekist á við og gat ekki leyft mér að taka neina sénsa og svo kom í ljós að ég var ekki sá eini sem var illa fyrir kallaður. Ég var í hlutverki Hans Sachs í Meistarasöngv- urunum eftir Wagner og kollegar mínir sem voru í hlutverkum Walters og Beckmessers voru líka kvefaðir svo leikhússtjórnin fékk þrjá söngvara til að vera til staðar ef á þyrfti að halda. Allt gekk nokkuð vel í fyrsta þætti en í öðrum þætti þurfti varasöngvari að syngja úr hliðarvængnum fyrir ten- órinn sem hélt áfram að leika á svið- inu. Þriðji þátturinn byrjaði sæmilega fyrir okkur hina, en svo fór í lokin að við þurftum báðir að viðurkenna ósig- ur í baráttunni. Þessir þrír karakter- ar syngja mest í lok óperunnar og þá vorum við kvefaðir og vandræðalegir í þöglum leik á sviðinu en prúðklæddir varasöngvarar okkar stökkvandi inn og út af hliðarsviðinu, syngjandi okkar hlutverk. Það merkilega var að áhorf- endur voru himinlifandi yfir að hafa verið viðstaddir svona sérkennilega uppákomu!“ H arpa var ekki til þegar ég var síðast á Íslandi árið 2008 svo ég hef ekki séð hana,“ segir Tómas Tómasson óperusöngvari í síma- viðtali og kveðst spenntur fyrir að koma í tónlistarhúsið á hafnarbakkanum. „Það hafa allir hrósað Hörpu í mín eyru. Við Kristinn Sigmundsson sungum saman í Houston fyrir skömmu, hann hafði þá flutt Vetrarferðina í Hörpu og sagði að það væri alger draumur að syngja þar. Ég hlakka mikið til að prófa þegar óper- an Il Trovatore verður frumsýnd.“ Verður að eiga heimili Tómas er búsettur í Berlín. „Það eru tvö ár síðan ég flutti til Berlínar og kann mjög vel við mig hér. Ég var í Suður- Frakklandi áður. Hvorutveggja fínir staðir að búa á,“ segir hann og kveðst hvergi fastráðinn sem söngvari. „Snemma á minni starfsævi var ég tvö sýningarár í Kaupmannahöfn. Það var samkomulag. Ég var þar í fjórum eða fimm uppsetningum á hvoru sýning- arári, annars hef ég aldrei verið fast- ráðinn.“ Spurður hvort hann búi þá hálfgert í ferðatösku svarar hann: „Já, það má segja það. Á fyrstu starfs- árunum var ég eiginlega ekki með neitt heimili en það er alltof tætingslegt. Maður verður að eiga einhvers staðar heima.“ Þrátt fyrir heimilið í Berlín verða næstu vikur töluvert tætingslegar hjá Tómasi og tími til æfinga hér heima er knappur. „Mig minnir að ég eigi að verða á minni fyrstu æfingu heima 9. október og frumsýning er þann 20.,“ segir hann. „Ég er í einni uppsetningu í Zürich í Sviss áður, það er samningur sem ég var búinn að skrifa undir fyrir löngu. Því er ekki hjá því komist að hafa stuttan tíma heima. Ég verð líka bara á fyrstu sýningunum í Hörpu því svo eru æfingar hjá mér í Mílanó í byrj- un nóvember. Þar fer ég með hlutverk Friedrich von Telramund í Lohengr- in eftir Wagner. Það er í fyrsta skipti sem ég syng á La Scala sem er eitt af allra bestu húsum í heiminum svo það er mjög spennandi.“ Með óperunni Lohengrin opnar La Scala sýningarárið þann 7. desember. „Það er dálítið sérstakt hvernig sýning- arárið er á Scala og einhverjar sögu- legar ástæður fyrir því,“ segir Tómas. „Það byrjar alltaf 7. desember en samt eru sýningar þar september, október og nóvember, en þær eru hluti af fyrra sýn- ingarári.“ Hann kveðst hafa sungið hlut- verk Telramund í Bayreuth í fyrra en á Scala séu miklar hetjur með honum. „Jonas Kaufman er í titilhlutverkinu og Anja Harteros syngur Elsu. Ég er líka spenntur að vinna með bassanum, Rene Pape, hann er víst magnaður, og svo er hljómsveitarstjórinn hinn heimsfrægi Daniel Barenboim,“ segir söngvarinn og kveðst reikna með að sýningum ljúki á verkinu í kringum áramótin. Dorgaði á Grandanum Tómas ólst upp í Reykjavík, í vestur- borginni, og segir Grandann og Slipp- inn hafa verið vinsæl leiksvæði. Þar hafi hann dorgað eftir fiski. „Slippurinn var algert ævintýraland. Hann var minn leikskóli,“ segir hann. En er langt síðan hann flutti út? „Já, eins og þú heyr- ir. Það er pínulítið erfitt fyrir mig að setja saman setningar á íslensku.“ (Það er langt frá því að vera áberandi.) „Ég flutti til London 1993 til framhaldsnáms í söng og hef lítið komið heim eftir það.“ Ekki kveðst Tómas geta sagt að hann hafi snemma byrjað að syngja en dreg- ur svo aðeins í land með það. „Ég var reyndar sísyngjandi sem barn en fór ekki í neitt tónlistarnám eða þannig. Sú músík sem ég heyrði var í útvarp- inu og minn söngur fólst í að hlusta á Lög unga fólksins, kópíera þau í koll- inum og syngja úti á róló. Ég kynntist tónlist fyrst eitthvað að ráði þegar ég byrjaði í kór Menntaskólans við Hamra- hlíð hjá henni Þorgerði Ingólfsdóttur og var þá orðinn átján ára. Ég fór í fyrsta söngtímann tuttugu og eins árs og var orðinn tuttugu og tveggja þegar ég byrj- aði í einhverju alvöru námi hjá Elísa- Þá vorum við kvefaðir og vand- ræðalegir í þöglum leik á sviðinu. ÚR PAGLIACCI Tómas í hlutverki Tonio og Kristján Jóhannsson í hlutverki Canio. MYND/GÍSLI EGILL HRAFNSSON Skiptir sér milli Scala og Hörpu Tómas Tómasson barítón er orðinn meðal fremstu óperusöngvara Íslands. Í haust fer hann með burðarhlutverk í Lohengrin eftir Wagner í Scala-óperunni í Mílanó, ásamt Jonasi Kaufman. Áður en að því kemur syngur hann í Zürich í Sviss og í Il Trova- tore í Íslensku óperunni. Gunnþóra Gunnarsdóttir hringdi í kappann og forvitnaðist um sönglífið og frægðina. Á HEIMSFRUMSÝNINGU Tómas Tómasson sem Mefistófeles í nútímaóperunni Faust- bal eftir Leonardo Balada í Teatro Real í Madrid. MYND/ JAVIER DEL REAL ÓPERUSÖNGVARINN „Stærstu nöfnin í þeim hlutverkum sem ég er að syngja eru menn sem eru komnir yfir sextugt þannig að ég á að geta átt góð tuttugu ár enn ef ég held heilsu.“ MYND/ KRISTJÁN MAACK Dagskráin næstu mánuði hjá Tómasi September 2012 - júlí 2013 Jochanaan í Salome í óperunni í Zürich í Sviss Október - nóvember 2012 Il Conte di Luna í Il Trovatore í Íslensku óperunni Desember 2012 Friedrich von Telramund í Lohengrin í La Scala í Mílanó Janúar 2013 Tomsky í Pikovaya Dama í Vín Febrúar 2013 Le Grand Pretre í Samson et Dalila í óperunni í San Diego Mars 2013 Hollendingurinn í Hollend- ingnum fljúgandi í óperunni í Los Angeles Apríl - maí 2013 Il Conte di Luna í Il Trovatore í Houston
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.