Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 12
12 22. september 2012 LAUGARDAGUR Stjórnmálaumræða á Íslandi tekur nú að mestu mið af kosn- ingunum sem eru fram undan. Þá er enn nauðsynlegra en fyrr að stjórnmálamenn raði verkefn- um ekki einungis eftir því hvern- ig þau falla að stefnuskrá þeirra, heldur líka eftir því hversu brýn þau eru. Eitt brýnasta verkefni stjórnmálamanna í dag er að tryggja að hér verði stöðugt fjár- málakerfi, bæði til að hægt verði að losa höftin en ekki síður til að bregðast við breyttu eignarhaldi á bönkunum. Þetta skiptir gríðar- lega miklu máli fyrir framtíðina, því það eru veigamiklar breyting- ar í farvatninu. Gjaldeyrishöftin og AGS Gjaldeyrishöftunum á Íslandi var komið á fyrir tilstuðlan Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Höftin hafa ekki einungis staðið í vegi fyrir fjárfestingum á Íslandi, heldur einnig hindrað kröfuhafa föllnu bankanna í að koma eignum sínum í alþjóðlegt verð. Margir kröfuhafar munu vilja koma pen- ingum sínum úr landi, enda er það ekki markmið fjárfestinga þeirra að reka bankastofnanir. Það er ekki trúverðugt hjá AGS að halda erindi, skrifa skýrslur og hrósa sjálfum sér fyrir vel unnið verk fyrr en búið er að leysa úr þeirri haftapólitík sem var inn- leidd af hálfu sjóðsins á Íslandi. AGS vildi að höftin yrðu tíma- bundin, en stöðugt er verið að festa þau í sessi, og þarf að finna lausn á þeim vanda. Þeirra verki lýkur ekki fyrr en lausn finnst. Neyðarlögin og nýju bankarnir Neyðarlögin voru ákvörðun íslenskra stjórnvalda og á næstu vikum, eða mánuðum, munu nauðasamningar Glitnis og Kaup- þings klárast. Það þýðir að stjórn gömlu bankanna færist úr hönd- um slitastjórna og í hendur kröfu- hafa. Með því fá kröfuhafar loks yfirráðarétt yfir eignum sínum, en á meðal eignanna eru Íslands- banki og Arion banki, sem hafa mikla þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf. Kröfuhafar gömlu bankanna eru ekki lengri tíma fjárfestar, heldur er stærsti hluti þeirra vog- unarsjóðir og skuldabréfasjóðir sem sérhæfa sig í kröfum á gjald- þrota fyrirtæki. Þeir ætla sér ekki að stunda bankastarfsemi á Íslandi um ókomna tíð, heldur vilja fyrst og fremst fá fjármuni sína sem hraðast aftur til baka enda bíða þeirra næg fjárfest- ingaverkefni í gjaldþrota fyrir- tækjum um allan heim um þessar mundir. Neyðarlögin hafa hald- ið kröfuhöfum frá stjórn eigna sinna og hefur stjórn bankanna í raun verið í höndum stjórnenda þeirra sem hafa langtímahags- muni sína og starfsmanna sinna að leiðarljósi, en ekki endilega markmið eigenda um útgreiðslur. Hugmyndir Íslendinga um útgreiðslur Þær hugmyndir sem aðilar vinnumarkaðar, SFF og SA, kynntu á lokuðum fundum til að losa um gjaldeyrishöftin gengu út á það að kreista kröfuhafa, láta þá yfirgefa eignir sínar á Íslandi með miklum afslætti. Það er augljóst hversu lítt móttæki- legir kröfuhafar eru fyrir slíkum hugmyndum. Þau skilaboð sem Seðlabanki Íslands kom með um skiptigengi krónu við evru, 135- 155, í skýrslu sinni á mánudag ýtir hins vegar enn frekar undir væntingar kröfuhafa um að þeir þurfi ekki að sæta slíkum afar- kostum. Samkvæmt íslenskum lögum væri hægt að binda útgreiðslur úr þrotabúum við íslenskar krón- ur og festa þannig erlenda kröfu- hafa enn lengur á landinu. En það er þó aðeins hægt að gera áður en nauðasamningar eru undirritað- ur, ekki eftir á. Hugmyndir erlendra fjárfesta um útgreiðslur Við yfirfærslu stjórnar á gömlu bönkunum til kröfuhafa er þeim ekkert lengur að vanbúnaði en að loka starfsemi þrotabúanna á Íslandi og færa þau úr landi. Kröfuhafarnir eru alþjóðlegir aðilar og geta fært rök fyrir því að þeir geti sjálfir séð um rekst- urinn, með hagkvæmari hætti, og í öflugra rekstrarumhverfi, en einnig að samrekstur á t.d. Kaup- þingi og Glitni geti sparað vinnu og tíma. Slík færsla myndi færa þrotabúin út fyrir íslenska lög- sögu. Þar með yrði íslensk lög- gjöf, sem hefur hingað til stýrt því að litlar sem engar greiðslur hafa átt sér stað, áhrifalaus. Nýju bankarnir yrðu þó enn á Íslandi, en nú nánast að fullu undir stjórn erlendra aðila. Til að fá fjármagn úr nýju bönkun- um gætu kröfuhafar óskað eftir arðgreiðslu, enda eru hlutföll eiginfjár þeirra vel yfir lögboðn- um mörkum. En ef stjórnvöld á Íslandi legðust gegn slíku þá eru aðrar leiðir mögulegar. Erlend- ir kröfuhafar geta einfaldlega boðið nýju bönkunum upp á fjár- mögnun á lánasöfnum, svokölluð sértryggð skuldabréf. Slík lána- söfn eru aldrei fjármögnuð upp í topp. Ef við tökum einfalt dæmi, þá gætu eigendur bankanna boð- ist til að fjármagna tryggustu lánin, sem nú eru á efnahags- reikningi bankanna, ónotuð ef svo má segja, upp að 70%. Ef svo óheppilega vildi til að bank- inn færi í þrot þá myndi kröfu- hafinn alltaf fá sína fjármuni til baka, enda þyrfti hann bara að innheimta 70% af undirliggjandi veði til að tryggja það, en fengi að öðru jöfnu 100% eða meira en hann lánaði fyrir. Staða inn- lánseiganda í bankanum yrði þó miklum mun verri enda eru bank- arnir í dag fjármagnaðir um 80% af innlánum, og þær eignir bank- ans sem færðar eru lánveitandan- um að veði minnka líkurnar á að heildareignir dugi fyrir heildar- skuldum. Þá félli reikningurinn á íslenskan almenning, miðað við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um innstæðutryggingar. Lokaorð Það er nauðsynlegt að lengri tíma sjónarmið komist að á Íslandi. Það þarf að tryggja að kerfið standist álag og skapi verðmæti. Deilur á milli aðila vinna á móti báðum markmiðum. Hættan er sú að ef kröfuhaf- ar undirrita nauðasamninga án þess að tryggt sé að þeir geti ekki komið eignum sínum út á undan öllum landsmönnum, þá skapist hér lögfræðilegt stríðsástand. Kröfuhafar munu stefna ef reynt verður að hefta útgreiðslur frá Íslandi eftir nauðasamninga og einnig mun innheimta lána á Íslandi leiða af sér erjur lántaka og lánardrottna. Ísland má síst af öllu við slíku þegar uppbygging- artími þarf að fara í hönd. Stjórnvöld bera ábyrgð á því ástandi sem verður á næstunni. Gjaldeyrishöftin og neyðarlögin eru staðreynd, hvernig unnið er úr núverandi verkefnum skipt- ir miklu fyrir komandi ár. Það er ekki forsvaranlegt að leyfa ákveðnum aðilum að fara út með miklar fjárhæðir fyrr en búið er að finna lausn á neyðarlögun- um og gjaldeyrishöftunum. Allir eiga að sitja við sama borð í þeim efnum. Að ganga ekki frá hálfkláruðu verki Fjármál Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur Það er ekki forsvaranlegt að leyfa ákveðnum aðilum að fara út með miklar fjárhæðir fyrr en búið er að finna lausn á neyðarlögunum og gjaldeyrishöftunum. Allir eiga að sitja við sama borð í þeim efnum. islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Fáðu allt að 4,7% vexti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.