Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN
Körfuboltavefurinn Karfan.is og körfuknattleiksdeild ÍR standa fyrir árlegu Íslandsmóti í stinger
sunnudaginn 30. september. Mótið
var haldið í fyrsta sinn í fyrra og þá
sigraði frjálsíþróttamaðurinn Trausti
Stefánsson. Jón Björn Ólafsson, ritstjóri
Körfunnar.is, er í forsvari fyrir mótið og
einn af upphafsmönnum þess. „Mótið
er opið öllum áhugasömum einstak-
lingum. Sigurmöguleikarnir eru gígan-
tískir og því tilvalin leið til að næla sér í
Íslandsmeistaratitil.“
Stinger er vinsæll skotleikur sem allir
áhugamenn um körfubolta þekkja. Um
er að ræða skotleik þar sem körfubolta
er skotið í körfuna frá þriggja stiga
línunni. Tveir boltar eru í umferð og
skiptir þá engu máli hversu margir
keppendurnir eru. Markmið leiksins er
að hitta í körfuna á undan þeim sem er
framar í röðinni. Takist það er sá aðili
úr leik og svoleiðis gengur leikurinn þar
til einn stendur uppi sem sigurvegari.
„Allir áhugamenn um körfubolta þekkja
auðvitað leikinn sem er bæði einfaldur
og skemmtilegur. Körfuboltaæfingum er
gjarnan lokað með stinger, sérstaklega
hjá yngri iðkendum, og þá fer vana-
lega allt á hliðina. Enda mættu nokkrir
stubbar í fyrra sem stóðu sig vel og lifðu
meira að segja af fyrstu umferðina.”
Keppendur mótsins eru af öllum
gerðum að sögn Jóns. „Í fyrra kepptu
bæði leikmenn meistaraflokka og yngri
flokka auk áhugamanna um körfubolta.
Ég saknaði þó þess að sjá ekki fleiri
leikmenn keppa og skora nú opin-
berlega á gamlar þjóðhetjur eins og
Guðjón Skúlason úr Keflavík og Friðrik
Rúnarsson, framkvæmdastjóra körfu-
knattleikssambandsins, til að taka þátt
í ár. Því skal einnig haldið til haga að
sigurvegari síðasta árs er örvhentur. Ég
trúi því ekki að rétthentir körfubolta-
menn ætli að láta það viðgangast aftur.“
Íslandsmótið hefst kl. 15, sunnudag-
inn 30. september, í Hertz-hellinum í
Breiðholti (áður íþróttahús Seljaskóla)
og er þátttökugjaldið 500 kr. „Ef kepp-
endur eru með undirstöðuna þokkalega
á hreinu eru líkur á sigri yfirgnæfandi.
Það eru a.m.k. góðar tölfræðilíkur á Ís-
landsmeistaratitil. Líkurnar minnka að
vísu með fjölgun þátttakenda en þessi
leikur er mjög aðgengilegur fyrir alla.“
Nánari upplýsingar má finna inn á
vefnum www.karfan.is. ■ starri@365.is
LÍKUR Á SIGRI ERU
YFIRGNÆFANDI
SKOTKEPPNI Íslandsmeistaramótið í skotleiknum stinger fer fram næstu
helgi. Mótið er einn liður í upphitun fyrir körfuboltaveturinn.
STINGER
Allir geta keppt í stinger
enda einfaldur og
skemmtilegur leikur fyrir
alla aldurshópa.
MYND/ÚR EINKASAFNI
ÁRBÍTUR HJÁ PABBA
Á sumum heimilum er hefð fyrir því að fjölskyldufaðirinn sjái um morgun-
matinn um helgar. Þá er óþarfi að lauma sér í bakaríið því pabbar geta vel
brætt mömmuhjörtu og glatt krakkamaga með góðglaðningi úr eldhúsinu.
FYRIR FJÖR-
IÐ Ávaxtasalat
er frískandi
vítamínbomba
á morgunverðar-
borðið og eitthvað
sem allir ráða við að
útbúa. Niðurskornir
uppáhaldsávextir og
ber í fallegri skál fela
einnig í sér einlæga ástar-
játningu til fjölskyldunnar.
FYRIR SÁLINA Pönnukökur
eru yndislegur morgunmatur.
Íslendingar kunna best að strá
yfir þær sykri eða sultu og
rjóma en þær eru líka lostætar
með eggjum, osti, pylsum og
grænmeti og þá bakaðar í ofni.
Góð pönnukökuuppskrift er til
á hverju heimili en munið að
deigið á að vera þunnt og að
gott er að kreista ögn af sítr-
ónusafa yfir sykraðar pönnsur.
FYRIR KRAFTINN Spænsk eggjakaka er
sneisafull af prótíni og alltaf jafn bragðgóð.
Hana er líka sáraeinfalt að matreiða. Skerið
sex meðalstórar kartöflur í þunnar sneiðar og
steikið í ólífuolíu þar til mjúkar og fulleld-
aðar. Saxið miðlungsstóran lauk og tvö stór
hvítlauksrif og steikið áfram með kartöflunum
í þrjár mínútur. Hrærið eggin saman, saltið,
piprið og hellið yfir kartöflurnar á pönnunni.
Stráið saxaðri steinselju yfir. Eldið við vægan
hita þar til eggin eru nánast hlaupin en snúið
þá eggjakökunni við með góðum spaða og
steikið á hinni hliðinni í stutta stund.
Hér gefast hugmyndir og uppskriftir að dásamlegum árbít sem
hæglega gæti fest sig í sessi
þegar dagur rís um helgar.
Allar eru þær staðgóðir
gleðivaldar sem gera morgun-
verð með pabba að tærri til-
hlökkun.
■ thordis@365.is
Auðbrekku 2, 200 Kópavogur
Vefsíða: maggy.is - Upplýsingar í síma 821 7482
Yogavin
Yoga með Maggý
Byrjar á nýjum stað með:
meðgöngujóga
mömmujóga og
rólegt morgunjóga.
Kennsla hefst 1. október
samkvæmt stundaskrá.
Yoga hefst 2. okt
Y o g a v i n
Fjölbreyttir yogatímar
Byrjendanámskeið
Dans og yoga
Djúpslökun
Yoga kennaranám
Krakkar og unglingar
Innsæis hugleiðsla
Ásta Arnardóttir Yogavin, Auðbrekku 2
s: 862 6098 • www.this.is/asta • asta@this.is
Skipholti 29b • S. 551 0770
AFTUR
Á ÍSLANDI !
Max Mara og Marina Rinaldi
Opið laugardag
11:00-15:00
MAGNAÐAR
RITDEILUR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir