Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 18
22. september 2012 LAUGARDAGUR18 K osningar verða í vor og ljóst er að aðild- arviðræður við Evr- ópusambandið (ESB) verða þá ekki til lykta leiddar. Jóhanna Sig- urðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir ESB verða kosningamál. Samfylk- ingin sé sannfærð um að hagsmun- um Íslendinga sé best borgið innan sambandsins og með evruna sem gjaldmiðil. „Ég vona að þegar kemur að kosningum munum við hafa góða yfirsýn yfir þau mál sem eru á borð- inu í aðildarviðræðunum í erfiðustu köflunum; landbúnaðar- og sjávar- útvegsmálunum. Mín sýn á aðildina og upptöku evrunnar er mjög skýr. Ég geri mér auðvitað fulla grein fyrir því að staðan í Evrópu er mjög erfið núna. Hún snýr aðallega að nokkrum löndum þar sem skulda- vandi er mikill og ríkisfjármál hafa verið í ólestri og hefur haft áhrif á öll aðildarríkin. Ég hef hins vegar fulla trú á að sambandið geti unnið sig út úr þessum erfiðleikum og þegar kemur að því að taka afstöðu til aðildar verði staðan allt önnur.“ Jóhanna segir skýrslu Seðla- bankans sýna ótvírætt að einhliða upptaka annars gjaldmiðils sé ekki valkostur. Eftir standi upptaka evru eða áframhaldandi króna í einhvers konar höftum. „Ég tel reyndar að hvort sem við tökum upp evru eða ekki þurfum við að setja ákveðinn ramma utan um krónuna og styrkja hér efna- hagsstjórn. Við munum þurfa að búa við krónuna í einhver ár, þó við gerðumst aðilar að ESB, þar sem upptaka evru tekur einhvern tíma. Skýrslan sýnir ótvírætt að evran er okkur hagstæð. Þjóðartekjur gætu aukist um tugi milljarða, allt að 160 milljarða, og viðskiptakostn- aður myndi lækka um 5 til 15 millj- arða króna og vextir lækka, sem væri búhnykkur fyrir heimilin og fyrirtækin. Þá mundi kostnaður við gjaldeyrisvaraforðann hverfa og aukinn stöðugleiki fást í efna- hagslífið. Ég vona bara að þessi skýrsla, sem og sú sem væntan- leg er frá fulltrúum allra flokka, geti leitt okkur inn í málefnalega umræðu um framtíðargjaldmiðil þjóðarinnar.“ Viðræðuslit ekki valkostur En er það ekki erfið staða fyrir Samfylkinguna að fara í kosningar með ófullgerða samninga? „Málið hefur náttúrulega skýrst heilmikið og búið er að opna marga kafla. Ég treysti því líka, sem Stef- an Füle hefur sagt, að allt sem máli skipti í þessum efni verði uppi á borðum um áramótin. Það er hins vegar óþægilegt að ekki hafi verið hægt að opna kaflann um sjávarút- veginn því fyrir mörgum mun nið- urstaðan úr honum ráða úrslitum varðandi afstöðu til aðildar.“ Jóhanna segir þjóðina eiga heimtingu á að greiða atkvæði um fullkláraðan samning og að Sam- fylkingin leggi gríðarlega áherslu á það. „Ég held að það sé alveg ljóst að Samfylkingin mun aldrei sætta sig við að starfa með þeim sem krefj- ast þess að viðræðum verði hætt með einhverjum hætti áður en fyrir liggur samningur sem þjóð- in fær að greiða atkvæði um. Ég tel að þjóðin eigi heimtingu á að greiða atkvæði um þá niðurstöðu sem fæst og að það sé vanvirðing við fólkið í landinu að stjórnmála- mennirnir taki það vald í sínar hendur. Við munum aldrei sætta okkur við að það verði niðurstaðan.“ Áframhald samstarfsins En hvernig finnst Jóhönnu ríkis- stjórninni hafa tekist til, vill hún halda samstarfinu við Vinstri- hreyfinguna – grænt framboð? „Ég tel að þetta stjórnarsamstarf, sem Best ef ríkisstjórnin situr áfram Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist ekki mega hugsa til þess að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda með sína óheftu frjálshyggju eftir næstu kosningar. Hún vill að núverandi ríkisstjórn sitji áfram og hvetur Framsóknarflokkinn til að standa með stjórnarflokkunum. Jóhanna segir Kolbeini Óttarssyni Proppé frá því að Evrópumálin verði stórt kosningamál í vor. FORSÆTISRÁÐHERRANN Jóhanna segir valkostina skýra í næstu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn bjóði upp á óhefta frjálshyggju en Samfylking og Vinstri græn upp á félags- hyggju og jöfnuð. Framsóknarflokkurinn ætti að stilla sér upp við hlið ríkisstjórnarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jóhanna hefur sterkar skoðanir á næstu ríkisstjórn, en hyggst hún leiða flokkinn áfram og vera í þeirri stöðu að ráða ferðinni varðandi samstarf Samfylkingarinnar? „Það fer að koma að því að ég láti félaga mína vita um afstöðu mína í þeim efnum. Það eru prófkjör fram undan og fundir hjá flokknum í næsta mánuði. Það er ljóst að mín afstaða mun liggja fyrir nokkuð fyrir þann tíma.“ Það þýðir þá á næstu dögum eða vikum? „Já, ég held að óhætt sé að segja það.“ ENGIN ÁKVÖRÐUN Jóhanna segir að ákvörðun Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um að hækka laun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, hafi ekki brotið í bága við lög um að enginn embættismaður skuli hafa hærri laun en forsætisráðherra. Um hafi verið að ræða hækkun á læknishluta starfa hans. „Engu að síður orkaði ákvörðunin tvímælis og var verulega gagnrýnd. Ég held að mestu skipti að fallið hafi verið frá henni með sameiginlegri ákvörðun Björns og Guðbjarts. Guðbjartur hefur viðurkennt að þetta hafi verið mistök og ég tel hann mann að meiru eftir það.“ Ertu sammála því að þetta hafi verið mistök? „Já, ég held að þetta hafi verið mistök enda viðurkenndi Guðbjartur það. En allir geta gert mistök og Guðbjartur nýtur fulls trausts hjá mér eftir sem áður.“ LAUNAHÆKKUN FORSTJÓRANS VAR MISTÖK er fyrsta meirihlutastjórn félags- hyggjufólks og jafnaðarmanna, hafi verið mjög árangursríkt og farsælt og þess verði minnst í sögunni fyrir það. Við höfum end- urreist efnahagslífið eftir þetta skelfilega hrun, á tiltölulega stutt- um tíma, ásamt því að koma í höfn mjög stórum umbótamálum á mörgum sviðum, svo sem hvað varðar mannréttindi og félagsleg- ar umbætur. Að sjálfsögðu tel ég því að það sé farsælast fyrir þá sem aðhyllast jafnaðarstefnuna, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð að flokkarnir vinni áfram saman eftir kosningar. Ég vil mjög gjarnan sjá það gerast og mér finnst það óbæri- leg tilhugsun að Sjálfstæðisflokk- urinn komist aftur til valda eftir kosningar, hugsanlega með Fram- sóknarflokknum. Reyndar trúi ég að það muni ekki gerast.“ Óheft frjálshyggja Jóhanna segist hugsi yfir því hve Sjálfstæðisflokkurinn mælist hátt í könnunum. Ískyggilegt sé að horfa upp á umbúðalaust og vax- andi frjálshyggjutrúboð flokks- ins, sem fyrrum varaformaður hans líkti við Teboðshreyfinguna í Bandaríkjunum, og spyr hvort menn séu búnir að gleyma að ein- mitt sú frjálshyggja hafi leitt þjóð- ina í þær hremmingar sem raun ber vitni. „Hvað á ég við? Jú, þeir telja að ekki sé skorið nægilega mikið niður í ríkisútgjöldum. Hvar ætla þeir að skera meira niður? Ætla þeir að hætta við áform ríkis- stjórnarinnar um auknar barna- bætur og eflingu Fæðingaror- lofssjóðs? Ætla þeir að skera niður bætur til lífeyrisþega eða atvinnulausra eða draga úr þjón- ustu á sjúkrahúsum og í skólum? Þeir tala um að lækka skatta á auð- menn og hina tekjuhærri. Hvernig ætla þeir að gera það og á hverju mun það bitna? Þeir vilja afnema veiðigjaldið og eru mjög áfram um stóriðjueinstefnu. Ég spyr: Hvaða afleiðingar mun þetta hafa, afnám veiðigjalds og lækkun skatta? Þýðir það að hætta þarf við Norðfjarðargöng, Dýra- fjarðargöng, nýjan Herjólf, Land- eyjahöfn, nýtt fangelsi, tvöföldun framlaga í vísinda- og tæknisjóð, eflingu Græna hagkerfisins og sóknaráætlanir landshluta? Þetta byggir allt á fjárfestingar- áætlun sem við fáum að hluta til með fjármagni úr veiðigjaldinu. Síðan segjast þeir vilja hætta við umsókn um aðild að ESB og úti- loka þar með upptöku evru með öllum þeim kostum fyrir samfé- lagið. Hvað er þá orðið eftir? Ég sé ekki að það sé neitt annað en óheft frjálshyggja. Við erum komin inn að beini í niðurskurði og komumst ekki lengra. Við erum að ná jöfnuði í rík- isfjármálum, sem er stórkostlegt, og því að breyta vöxtum í velferð með því að minnka vaxtakostnað.“ Skýrir valkostir Jóhanna segir fjárlögin fyrir 2013 marka tímamót. Í þeim sjáist móta fyrir því samfélagi sem jafnaðar- og félagshyggjufólk vilji byggja. Svig- rúm upp á tugi milljarða sé nýtt til hækkunar barna- og vaxtabóta, breytingar verði á húsnæðisbótum og almannatryggingakerfið einfald- að og gert skilvirkara. „Þarna erum við að sýna það þjóð- félag félagshyggju og jafnaðar sem við viljum sjá og fólk sér það svart á hvítu hvað við munum gera kom- umst við í ríkisstjórn. Mér finnst að á umliðnum mán- uðum hafi valkostir fólks í næstu kosningum skýrst mjög. Annars vegar eru það sjálfstæðismenn, sem hafa grímulaust sýnt sitt rétta frjálshyggjuandlit eins og ég hef lýst og hins vegar við jafnaðar- menn og Vinstri græn sem höfum með verkum okkar sýnt hvað við viljum gera. Tekjujöfnuður hefur stóraukist, konur komist til aukinna áhrifa og aldrei hefur verið lögð jafn mikil áhersla á umhverfismál og hjá núverandi ríkisstjórn. Síðan virðast framsóknarmenn, sem betur fer, vera að skilja sig frá Sjálfstæðisflokknum. Ég held að þeir hafi tapað á því að standa svo þétt með þeim og það sést á því að þeir eru fastir í ákveðinni prósentu- tölu í skoðanakönnunum.“ Jóhanna segir Framsóknar- flokkinn hafa barist af ábyrgð með minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna fyrir breytingum á stjórnarskrá, en Sjálfstæðismenn stöðvað það mál. „Ég held að framsóknarmenn eigi að sýna að þeir vilji í raun og sann skilja sig frá sjálfstæðismönnum með því að stilla sér meira upp við okkar hlið, til dæmis að því er varð- ar breytingar á stjórnarskrá. Það tel ég vera stóra málið sem þarf að ná saman um á kjörtímabilinu. Ég held líka að þeir hafi fært sig allt of nálægt íhaldinu að því er varðar breytingar á fiskveiði- stjórnunarkerfinu. Ég fagna því að svo virðist sem breytingar séu að verða á afstöðu framsóknarmanna í ýmsum málum.“ Að sjálfsögðu tel ég því að það sé farsælast fyrir þá sem aðhyllast jafnaðarstefnuna, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð að flokkarnir vinni áfram saman eftir kosningar. […] mér finnst það óbærileg tilhugsun að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur til valda eftir kosningar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.