Fréttablaðið - 22.09.2012, Qupperneq 18
22. september 2012 LAUGARDAGUR18
K
osningar verða í vor
og ljóst er að aðild-
arviðræður við Evr-
ópusambandið (ESB)
verða þá ekki til lykta
leiddar. Jóhanna Sig-
urðardóttir, forsætisráðherra og
formaður Samfylkingarinnar, segir
ESB verða kosningamál. Samfylk-
ingin sé sannfærð um að hagsmun-
um Íslendinga sé best borgið innan
sambandsins og með evruna sem
gjaldmiðil.
„Ég vona að þegar kemur að
kosningum munum við hafa góða
yfirsýn yfir þau mál sem eru á borð-
inu í aðildarviðræðunum í erfiðustu
köflunum; landbúnaðar- og sjávar-
útvegsmálunum. Mín sýn á aðildina
og upptöku evrunnar er mjög skýr.
Ég geri mér auðvitað fulla grein
fyrir því að staðan í Evrópu er mjög
erfið núna. Hún snýr aðallega að
nokkrum löndum þar sem skulda-
vandi er mikill og ríkisfjármál hafa
verið í ólestri og hefur haft áhrif á
öll aðildarríkin. Ég hef hins vegar
fulla trú á að sambandið geti unnið
sig út úr þessum erfiðleikum og
þegar kemur að því að taka afstöðu
til aðildar verði staðan allt önnur.“
Jóhanna segir skýrslu Seðla-
bankans sýna ótvírætt að einhliða
upptaka annars gjaldmiðils sé ekki
valkostur. Eftir standi upptaka evru
eða áframhaldandi króna í einhvers
konar höftum.
„Ég tel reyndar að hvort sem við
tökum upp evru eða ekki þurfum
við að setja ákveðinn ramma utan
um krónuna og styrkja hér efna-
hagsstjórn. Við munum þurfa að
búa við krónuna í einhver ár, þó við
gerðumst aðilar að ESB, þar sem
upptaka evru tekur einhvern tíma.
Skýrslan sýnir ótvírætt að evran
er okkur hagstæð. Þjóðartekjur
gætu aukist um tugi milljarða, allt
að 160 milljarða, og viðskiptakostn-
aður myndi lækka um 5 til 15 millj-
arða króna og vextir lækka, sem
væri búhnykkur fyrir heimilin og
fyrirtækin. Þá mundi kostnaður
við gjaldeyrisvaraforðann hverfa
og aukinn stöðugleiki fást í efna-
hagslífið. Ég vona bara að þessi
skýrsla, sem og sú sem væntan-
leg er frá fulltrúum allra flokka,
geti leitt okkur inn í málefnalega
umræðu um framtíðargjaldmiðil
þjóðarinnar.“
Viðræðuslit ekki valkostur
En er það ekki erfið staða fyrir
Samfylkinguna að fara í kosningar
með ófullgerða samninga?
„Málið hefur náttúrulega skýrst
heilmikið og búið er að opna marga
kafla. Ég treysti því líka, sem Stef-
an Füle hefur sagt, að allt sem máli
skipti í þessum efni verði uppi á
borðum um áramótin. Það er hins
vegar óþægilegt að ekki hafi verið
hægt að opna kaflann um sjávarút-
veginn því fyrir mörgum mun nið-
urstaðan úr honum ráða úrslitum
varðandi afstöðu til aðildar.“
Jóhanna segir þjóðina eiga
heimtingu á að greiða atkvæði um
fullkláraðan samning og að Sam-
fylkingin leggi gríðarlega áherslu
á það.
„Ég held að það sé alveg ljóst að
Samfylkingin mun aldrei sætta sig
við að starfa með þeim sem krefj-
ast þess að viðræðum verði hætt
með einhverjum hætti áður en
fyrir liggur samningur sem þjóð-
in fær að greiða atkvæði um. Ég
tel að þjóðin eigi heimtingu á að
greiða atkvæði um þá niðurstöðu
sem fæst og að það sé vanvirðing
við fólkið í landinu að stjórnmála-
mennirnir taki það vald í sínar
hendur.
Við munum aldrei sætta okkur
við að það verði niðurstaðan.“
Áframhald samstarfsins
En hvernig finnst Jóhönnu ríkis-
stjórninni hafa tekist til, vill hún
halda samstarfinu við Vinstri-
hreyfinguna – grænt framboð? „Ég
tel að þetta stjórnarsamstarf, sem
Best ef ríkisstjórnin situr áfram
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist ekki mega hugsa til þess að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda með sína
óheftu frjálshyggju eftir næstu kosningar. Hún vill að núverandi ríkisstjórn sitji áfram og hvetur Framsóknarflokkinn til að
standa með stjórnarflokkunum. Jóhanna segir Kolbeini Óttarssyni Proppé frá því að Evrópumálin verði stórt kosningamál í vor.
FORSÆTISRÁÐHERRANN Jóhanna segir valkostina skýra í næstu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn bjóði upp á óhefta frjálshyggju en Samfylking og Vinstri græn upp á félags-
hyggju og jöfnuð. Framsóknarflokkurinn ætti að stilla sér upp við hlið ríkisstjórnarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Jóhanna hefur sterkar skoðanir á næstu ríkisstjórn, en
hyggst hún leiða flokkinn áfram og vera í þeirri stöðu að
ráða ferðinni varðandi samstarf Samfylkingarinnar?
„Það fer að koma að því að ég láti félaga mína vita um
afstöðu mína í þeim efnum. Það eru prófkjör fram undan
og fundir hjá flokknum í næsta mánuði. Það er ljóst að
mín afstaða mun liggja fyrir nokkuð fyrir þann tíma.“
Það þýðir þá á næstu dögum eða vikum?
„Já, ég held að óhætt sé að segja það.“
ENGIN ÁKVÖRÐUN
Jóhanna segir að ákvörðun Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um að hækka laun Björns
Zoëga, forstjóra Landspítalans, hafi ekki brotið í bága við lög um að enginn embættismaður skuli
hafa hærri laun en forsætisráðherra. Um hafi verið að ræða hækkun á læknishluta starfa hans.
„Engu að síður orkaði ákvörðunin tvímælis og var verulega gagnrýnd. Ég held að mestu skipti
að fallið hafi verið frá henni með sameiginlegri ákvörðun Björns og Guðbjarts. Guðbjartur hefur
viðurkennt að þetta hafi verið mistök og ég tel hann mann að meiru eftir það.“
Ertu sammála því að þetta hafi verið mistök? „Já, ég held að þetta hafi verið mistök enda
viðurkenndi Guðbjartur það. En allir geta gert mistök og Guðbjartur nýtur fulls trausts hjá mér
eftir sem áður.“
LAUNAHÆKKUN FORSTJÓRANS VAR MISTÖK
er fyrsta meirihlutastjórn félags-
hyggjufólks og jafnaðarmanna,
hafi verið mjög árangursríkt og
farsælt og þess verði minnst í
sögunni fyrir það. Við höfum end-
urreist efnahagslífið eftir þetta
skelfilega hrun, á tiltölulega stutt-
um tíma, ásamt því að koma í
höfn mjög stórum umbótamálum
á mörgum sviðum, svo sem hvað
varðar mannréttindi og félagsleg-
ar umbætur.
Að sjálfsögðu tel ég því að það
sé farsælast fyrir þá sem aðhyllast
jafnaðarstefnuna, kvenfrelsi og
aukinn jöfnuð að flokkarnir vinni
áfram saman eftir kosningar.
Ég vil mjög gjarnan sjá það
gerast og mér finnst það óbæri-
leg tilhugsun að Sjálfstæðisflokk-
urinn komist aftur til valda eftir
kosningar, hugsanlega með Fram-
sóknarflokknum. Reyndar trúi ég
að það muni ekki gerast.“
Óheft frjálshyggja
Jóhanna segist hugsi yfir því hve
Sjálfstæðisflokkurinn mælist hátt
í könnunum. Ískyggilegt sé að
horfa upp á umbúðalaust og vax-
andi frjálshyggjutrúboð flokks-
ins, sem fyrrum varaformaður
hans líkti við Teboðshreyfinguna
í Bandaríkjunum, og spyr hvort
menn séu búnir að gleyma að ein-
mitt sú frjálshyggja hafi leitt þjóð-
ina í þær hremmingar sem raun
ber vitni.
„Hvað á ég við? Jú, þeir telja
að ekki sé skorið nægilega mikið
niður í ríkisútgjöldum. Hvar ætla
þeir að skera meira niður? Ætla
þeir að hætta við áform ríkis-
stjórnarinnar um auknar barna-
bætur og eflingu Fæðingaror-
lofssjóðs? Ætla þeir að skera
niður bætur til lífeyrisþega eða
atvinnulausra eða draga úr þjón-
ustu á sjúkrahúsum og í skólum?
Þeir tala um að lækka skatta á auð-
menn og hina tekjuhærri. Hvernig
ætla þeir að gera það og á hverju
mun það bitna? Þeir vilja afnema
veiðigjaldið og eru mjög áfram um
stóriðjueinstefnu.
Ég spyr: Hvaða afleiðingar mun
þetta hafa, afnám veiðigjalds og
lækkun skatta? Þýðir það að hætta
þarf við Norðfjarðargöng, Dýra-
fjarðargöng, nýjan Herjólf, Land-
eyjahöfn, nýtt fangelsi, tvöföldun
framlaga í vísinda- og tæknisjóð,
eflingu Græna hagkerfisins
og sóknaráætlanir landshluta?
Þetta byggir allt á fjárfestingar-
áætlun sem við fáum að hluta til
með fjármagni úr veiðigjaldinu.
Síðan segjast þeir vilja hætta við
umsókn um aðild að ESB og úti-
loka þar með upptöku evru með
öllum þeim kostum fyrir samfé-
lagið.
Hvað er þá orðið eftir? Ég sé
ekki að það sé neitt annað en óheft
frjálshyggja. Við erum komin inn að
beini í niðurskurði og komumst ekki
lengra. Við erum að ná jöfnuði í rík-
isfjármálum, sem er stórkostlegt, og
því að breyta vöxtum í velferð með
því að minnka vaxtakostnað.“
Skýrir valkostir
Jóhanna segir fjárlögin fyrir 2013
marka tímamót. Í þeim sjáist móta
fyrir því samfélagi sem jafnaðar- og
félagshyggjufólk vilji byggja. Svig-
rúm upp á tugi milljarða sé nýtt
til hækkunar barna- og vaxtabóta,
breytingar verði á húsnæðisbótum
og almannatryggingakerfið einfald-
að og gert skilvirkara.
„Þarna erum við að sýna það þjóð-
félag félagshyggju og jafnaðar sem
við viljum sjá og fólk sér það svart
á hvítu hvað við munum gera kom-
umst við í ríkisstjórn.
Mér finnst að á umliðnum mán-
uðum hafi valkostir fólks í næstu
kosningum skýrst mjög. Annars
vegar eru það sjálfstæðismenn,
sem hafa grímulaust sýnt sitt rétta
frjálshyggjuandlit eins og ég hef
lýst og hins vegar við jafnaðar-
menn og Vinstri græn sem höfum
með verkum okkar sýnt hvað við
viljum gera. Tekjujöfnuður hefur
stóraukist, konur komist til aukinna
áhrifa og aldrei hefur verið lögð
jafn mikil áhersla á umhverfismál
og hjá núverandi ríkisstjórn.
Síðan virðast framsóknarmenn,
sem betur fer, vera að skilja sig frá
Sjálfstæðisflokknum. Ég held að
þeir hafi tapað á því að standa svo
þétt með þeim og það sést á því að
þeir eru fastir í ákveðinni prósentu-
tölu í skoðanakönnunum.“
Jóhanna segir Framsóknar-
flokkinn hafa barist af ábyrgð með
minnihlutastjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna fyrir breytingum á
stjórnarskrá, en Sjálfstæðismenn
stöðvað það mál.
„Ég held að framsóknarmenn eigi
að sýna að þeir vilji í raun og sann
skilja sig frá sjálfstæðismönnum
með því að stilla sér meira upp við
okkar hlið, til dæmis að því er varð-
ar breytingar á stjórnarskrá. Það tel
ég vera stóra málið sem þarf að ná
saman um á kjörtímabilinu.
Ég held líka að þeir hafi fært
sig allt of nálægt íhaldinu að því
er varðar breytingar á fiskveiði-
stjórnunarkerfinu. Ég fagna því að
svo virðist sem breytingar séu að
verða á afstöðu framsóknarmanna
í ýmsum málum.“
Að sjálfsögðu tel ég því að það sé farsælast fyrir þá sem
aðhyllast jafnaðarstefnuna, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð
að flokkarnir vinni áfram saman eftir kosningar. […] mér
finnst það óbærileg tilhugsun að Sjálfstæðisflokkurinn
komist aftur til valda eftir kosningar.