Fréttablaðið - 22.09.2012, Síða 4
22. september 2012 LAUGARDAGUR4
TYRKLAND, AP Dómstóll í Tyrk-
landi hefur sakfellt 330 fyrrver-
andi yfirmenn í hernum fyrir að
hafa reynt að steypa ríkisstjórn
landsins árið 2003.
Sumir herforingjanna fá allt að
18 ára fangelsisdóm. Reiknað er
með að þeir myndu allir áfrýja
úrskurðinum.
Réttarhöldin gegn herforingj-
unum undanfarin ár hafa orðið til
þess að draga verulega úr þeim
miklu áhrifum sem herinn hefur
haft á stjórnmál í Tyrklandi ára-
tugum saman. - gb
330 herforingjar dæmdir:
Fengu allt að
átján ára dóm
RECEP TAYYIP ERDOGAN Með málaferl-
unum hefur forsætisráðherra Tyrklands
styrkt stöðu sína. NORDICPHOTOS/AFP
Taka undir áhyggjur lögreglu
Bæjarráð Árborgar kveðst taka undir
áhyggjur lögreglunnar í Árnessýslu,
sem komið hafi fram í fjölmiðlum,
um stöðu löggæslumála í sýslunni
og hvetur stjórnvöld til að tryggja
nægjanlegt framlag til löggæslumála.
ÁRBORG
EFNAHAGSMÁL Kaupmáttur launa
hækkaði um 0,2 prósent í ágúst frá
fyrra mánaði. Kaupmáttur launa
hefur þá hækkað um 1,7 prósent á
síðustu tólf mánuðum. Þetta kemur
fram í tölum frá Hagstofu Íslands.
Launavísitalan í ágúst var 433,7
stig og hækkaði um 0,1 prósent
frá fyrri mánuði. Launavísital-
an hefur hækkað um 5,9 prósent
síðustu tólf mánuði. Kaupmáttur
launa er mælikvarði á breytingar
á launum umfram verðbólgu, en
launavísitala mælir þróun nafn-
launa. - kóp
Launavísitala hækkar enn:
Kaupmáttur
launa hækkaði
LÍBÍA, AP Um þrjátíu þúsund
manns gengu fylktu liði um götur
borgarinnar Bengasí í austan-
verðri Líbíu til að mótmæla
hópum herskárra ofríkismanna,
sem grunaðir eru um morð á
sendiherra Bandaríkjanna í land-
inu í síðustu viku.
Vopnaðir hópar manna, sem
sumir hverjir eru arftakar upp-
reisnarsveitanna sem steyptu
Moammar Gaddafí af stóli, hafa
tekið að sér að gæta öryggis fólks
en eru líka sakaðir um að haga
sér eins og glæpagengi.
„Hvar er herinn, hvar er lög-
reglan?“ stóð á einu mótmæla-
skiltanna. - gb
Íbúar Bengasí mótmæla:
Vilja ekki láta
vígasveitir ráða
MÓTMÆLI Í BENGASÍ Hafa fengið nóg af
ofríkismönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
23°
14°
13°
17°
19°
12°
12°
29°
15°
27°
26°
31°
13°
19°
15°
12°
Á MORGUN
5-10 m/s.
MÁNUDAGUR
8-15 m/s, hvassast S-
lands.
11
11
11 10
10
10
10
12
10
10
6
7
7
8
5
6
5
6
7
8
7
10
10
10
12
12
7
8
9
10
11
BLAUTT SYÐRA
Heldur vætu-
samt um helgina
einkum sunnan-
og suðaustantil en
þurrt að mestu fyrir
norðan og norð-
vestan. Á mánudag
styttir upp og léttir
til suðvestan- og
vestanlands. Milt í
veðri næstu daga.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
RÚSSLAND, AP Lögreglan í Moskvu
rannsakar nú hundadráp í borg-
inni. Í þessari viku hafa um sjötíu
dauðir hundar fundist og virðist
sem eitrað hafi verið fyrir þeim
flestum.
Reglum um dýravernd hefur
ekki verið fylgt vel eftir í
Moskvu, en hundadrápin hafa
vakið óhug. Grunur hefur vaknað
um að hópur manna stundi þau
sér til skemmtunar. - gb
Eitrað fyrir hundum í Moskvu:
Sjötíu hundar
fundist dauðir
GENGIÐ 21.09.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,2413
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,87 123,45
200,01 200,99
159,85 160,75
21,438 21,564
21,534 21,660
18,846 18,956
1,5707 1,5799
189,84 190,98
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Helga Þórey Jónsdóttir, mannfræð-
ingur og einn fyrirlesara á málþinginu
Iðkun kyns og þjóðar í Reykjavíkuraka-
demíunni, var rangfeðruð í blaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á því.
LEIÐRÉTT
Laus við Lús
á 1 klukkustund
Fæst í apótekum
LANDBÚNAÐUR Öllum fjármunum
Bjargráðasjóðs, um 25 til 30 millj-
ónum króna, verður ráðstafað til
að bæta bændum á Norðurlandi
tjónið sem hlaust eftir fárviðrið
10. og 11. september. Líklegt þykir
að frekari fjármunum verði varið
til aðgerðanna, en engin leið er að
vita umfang tjónsins eins og er.
Um er að ræða allar eftirstöðvar
A-hluta sjóðsins eftir eldgosin í
Eyjafjallajökli og Grímsvötnum.
Árni Snæbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Bjargráðasjóðs,
segir ljóst að núverandi innistæða
sjóðsins dugi ekki til að bæta
bændum það tjón sem þeir hafa
orðið fyrir, heldur þurfi að koma
til aukafjárframlags frá ríkinu.
Um sé að ræða svo margþætt-
ar skemmdir að of snemmt sé að
segja nokkuð til um fjárhæðir.
„Eftir að tjónið hefur verið
metið verður að leita leiða til að
afla frekari peninga,“ segir hann.
„Svo þarf að ákveða hvort bæt-
urnar verði greiddar að fullu eða
hvort það verði að skerða þær eitt-
hvað vegna peningastöðu.“
Tekjur Bjargráðasjóðs koma af
búnaðargjaldi frá bændum og tíu
milljónum árlega úr ríkissjóði.
Árni útskýrir að þó ómögulegt
sé að meta umfang tjónsins nú,
sé ljóst að um sé að ræða umtals-
verðan missi á búfé og tjón á girð-
ingum. „Þetta er alvarlegt ástand,“
segir hann. „Við höfum skyldur í
þessum málum og við munum
bregðast við.“
Engar tölur liggja fyrir um
fjölda fjár sem hefur drepist í
hamförunum á Norðurlandi und-
anfarnar tvær vikur. Þó er ljóst
að hundruð ef ekki þúsundir fjár
komast aldrei heim á bæ.
Steingrímur J. Sigfússon
atvinnuvegaráðherra sagði í ræðu
sinni á Alþingi í vikunni að ríkis-
stjórnin hefði samþykkt að nýta
eftirstöðvar Bjargráðasjóðs til að
bæta tjónið og að vonast væri til
að þær fjárhæðir dygðu. Að sjálf-
sögðu yrði fjármunum þó bætt við
ef þyrfti til.
Steingrímur vildi þó ekki gefa
fyrir fram loforð eða yfirlýsing-
ar um nákvæmlega hvernig tekið
yrði á afleiddu tjóni bænda, eins
og tjóni á girðingum, en gert væri
ráð fyrir að bæta það sem hægt
yrði. sunna@frettabladid.is
Sjóðurinn dugir ekki
fyrir bótum til bænda
Þeim 25 til 30 milljónum sem Bjargráðasjóður hefur yfir að ráða verður varið í
að bæta bændum tjónið eftir óveður. Ljóst er að aukafjármagns er þörf. Engin
leið að vita umfang tjónsins í dag. Ráðherra gefur grænt ljós á aukafjárveitingu.
VIÐSKIPTI Kaupþing hefur frest-
að framlagningu nauðasamnings
fram á síðasta ársfjórðung árs-
ins 2012. Áður stóð til að leggja
nauðasamninginn fram á þriðja
ársfjórðungi, sem lýkur í lok sept-
embermánaðar. Þetta kemur fram
í tilkynningu á vef þrotabús Kaup-
þings sem birt var í gær.
Í tilkynningunni segir að mörg
útistandandi mál, sem sum séu
ekki á valdi slitastjórnarinnar,
valdi þessum töfum. Finnist lausn
í þessum málum, sem eru ekki til-
greind frekar, verði nauðasamn-
ingurinn lagður fram fyrir árslok.
Eftir nauðasamning verður
Kaupþing íslenskt eignarhalds-
félag í eigu, og undir stjórn,
almennra kröfuhafa bankans. Þeir
eru að langstærstu leyti erlendir
aðilar. Einnig er mögulegt að sér-
stakt eignastýringarfyrirtæki
verði sett á laggirnar til að fara
með áframhaldandi eignastýr-
ingu fyrir Kaupþing. Þetta kemur
fram í kynningu sem slitastjórn
bankans hélt fyrir kröfuhafa hans
31. maí síðastliðinn. Eignarhalds-
félagið yrði meðal annars eigandi
að 87 prósentum hlutafjár í hinum
íslenska Arion banka. - þsj
Ýmis óleyst og útistandandi mál valda töfum á slitaferli Kaupþings:
Kaupþing frestar nauðasamningi
KAUPÞING Eignir þrotabúsins munu
verða undir stjórn kröfuhafa bankans
ef nauðasamningur verður samþykktur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bændur halda nákvæmt bókhald
yfir allan búpening sinn. Sam-
kvæmt Árna er öllu haldið til
haga um hvað var á fóðrum í vor,
hvað fór á fjall og hversu mörg
lömb fæddust. Það er svo starf
ráðunauta á hverjum stað að fara
yfir hvaða kindur skila sér af fjalli.
Þegar bændur svo sækja um bætur
fer ákveðið vinnuferli í gang.
„Svo þurfa trúnaðarmenn að
staðfesta orsakir tjónsins, sem er
tiltölulega auðvelt í þessu tilfelli,“
segir Árni. „Búfjáreftirlit sér um
forðagæslu þar sem búpeningur er
talinn á haustin. Svo er spurning
hvort því verði flýtt í ár vegna
aðstæðna. Menn eru bara enn að
ná áttum.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Búgarði, ráðgjafafyrirtæki á Akur-
eyri, er stofnkostnaður við girðingar
á bilinu 300 til 600 þúsund krónur
á kílómetrann. Erfitt sé að leggja
verðmat á féð, en dilkaverð til
sláturhúsa er á bilinu tíu til tólf
þúsund krónur. Hafa verður í huga
að kindur sem enn eiga eftir að
bera lömb í nokkur ár, eru vissu-
lega framleiðslutæki og drepist
þær getur hlotist af því umtalsvert
fjárhagslegt tjón.
Hátt í hundrað sauðfjárbændur
eru á þeim svæðum sem verst
fóru úti í fárviðrinu. Ætla má að
hver bóndi haldi að meðaltali um
600 fjár og er mikill hluti þess enn
týndur á fjöllum.
Halda nákvæmt bókhald um allt fé
ENN FINNST FÉ Á LÍFI Bændur í Þing-
eyjasýslum voru enn að finna fé á lífi
í gær, en ljóst er að mikill hluti þess
sem hefur ekki fundist er dauður.
MYND/BRYNGEIR JÓNSSON