Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 27
LAUGARDAGUR 22. september 2012 27
ALGENGUSTU NÖFN
KVENNA 1. JANÚAR 2012
Guðrún er algengasta nafn kvenna
sem fyrr. Staða fyrri árs er innan
sviga.
1. Guðrún (1)
2. Anna (2)
3. Sigríður (3)
4. Kristín (4)
5. Margrét (5)
6. Helga (6)
7. Sigrún (7)
8. Ingibjörg (8)
9. Jóhanna (9)
10. María (10)
ALGENGUSTU NÖFN
KARLA 1. JANÚAR 2012
Jón er algengasta nafn karla sem fyrr.
Staða fyrri árs er innan sviga.
1. Jón (1)
2. Sigurður (2)
3. Guðmundur (3)
4. Gunnar (4)
5. Ólafur (5)
6. Einar (6)
7. Kristján (8)
8. Magnús (7)
9. Stefán (9)
10. Jóhann (10)
VINSÆLUSTU NÖFN
STÚLKNA FÆDDRA 2011
Emilía er vinsælasta nafn stúlkna
annað árið í röð. Staða fyrri árs er
innan sviga.
1 Emilía/Emelía (1)
2 Lilja (14-18)
3 Sara (2)
4-5 Elísabet (21)
4-5 Emma (12-13)
6-7 Katrín (4-6)
6-7 Kristín (7-8)
8-9 Anna (4-6)
8-9 Eva (3)
10 María (7-8)
VINSÆLUSTU NÖFN
DRENGJA FÆDDRA 2011
Aron er vinsælasta nafn drengja
annað árið í röð. Staða fyrri árs er
innan sviga.
1 Aron (1)
2-3 Alexander (6-9)
2-3 Guðmundur (20-23)
4-5 Sigurður (6-9)
4-5 Viktor (2)
6 Daníel (24-30)
7 Jón (3)
8 Stefán (17-18)
9 Róbert (36-41)
10 Kristófer (4-5)
TOPPLISTAR 2012
Guðrún Kvaran, pró-fessor við Stofnun
Árna Magnússonar, hefur
rannsakað siði og venj-
ur í íslenskum nöfnum og
segir ekkert einkennilegt
þó Jón og Guðrún séu enn
þá algengustu nöfnin hér á
landi.
„Það er skiljanlegt þegar
haft er í huga að á 19. öld hét
kannski fimmti hver karl Jón
og fjórða hver kona hét Guð-
rún. Það er enn í dag svo
mikið af fólki sem ber þessi
nöfn og er enn á lífi, þann-
ig að það mun taka nokkurn
tíma fyrir þessi nöfn að fara
úr efstu sætunum.“
Aðspurð um fjölbreyttari
flóru íslenskra mannanafna
segir Guðrún það tengjast
samfélagslegum þáttum.
„Sá siður sem hér tíðkað-
ist lengi, að nefna eftir afa
og ömmu, byrjaði að riðlast
að einhverju marki undir lok
sjöunda áratugarins, með
hippatímanum og stúdenta-
uppreisnunum. Þá fór fólk að
vilja hafa hlutina öðruvísi og
hefðirnar hafa síðan verið á
undanhaldi.“
Guðrún segir að á síðustu
árum hafi fólk sótt innblást-
ur í nafngiftir víða að, bæði
innanlands og erlendis.
„Það er til dæmis næstum
búið að hreinsa upp öll nöfn úr
Snorra-Eddu og Eddukvæðum
og þess háttar ritum. Svo er
líka verið að leita í erlend nöfn
í auknum mæli og mér sýnist
vera meira af stúlkunöfnum
sem hafa erlendan blæ en
strákanöfnum.“
Er ekki spennandi að
stunda rannsóknir í nafna-
fræðum á tímum sem þess-
um?
„Jú, en líka nokkuð erfið-
ara. Bæði er fólk af íslensk-
um uppruna að velja börn-
um sínum erlend nöfn og svo
erum við líka með fólk af
erlendum uppruna sem ger-
ist íslenskir ríkisborgarar
og gefur börnum sínum oft
nöfn úr heimalandi sínu. Ef
þau falla að íslenskum lögum
koma þau sjálfkrafa inn á
mannanafnaskrá og þau verð-
ur að rekja og fjalla um eins
og hvert annað íslenskt nafn.“
Guðrún segir þróun síð-
ustu tuttugu ára hafa verið
einstaka.
„Við Sigurður Jónsson
gáfum út Nöfn Íslendinga
1991 og ég gaf hana út aftur
árið 2011, og á þessum tutt-
ugu árum höfðu bæst við tvö
þúsund nöfn.“
En eru Jón og Gunna þá á
undanhaldi?
„Ef maður horfir á listann
yfir nýgefin nöfn sér maður
að hefðbundnu nöfnin færast
sífellt neðar. Svo fellur sífellt
meira frá af eldra fólki með
sömu afleiðingum. Þau munu
hins vegar eflaust verða ofar-
lega á listum næstu áratug-
ina hið minnsta að mínu
mati.“
■ TVÖ ÞÚSUND NÝ NÖFN Á TUTTUGU ÁRUM
Guðrún Kvaran prófessor segir hefðirnar í mannanöfnum á undanhaldi
Hlutverk mannanafnanefndar
er, þvert á það sem margir
halda, ekki að leggja mat á
hvort nöfnin séu smekkleg eða
ekki. Ákvarðanir nefndarinnar
fara einfaldlega eftir því hvort
nöfnin séu í samræmi við hefð
eða íslenskan rithátt. Eftirfar-
andi nöfn hafa komið til kasta
mannanafnanefndar í ár:
Hafnað:
Ektavon (samþykkt sem millinafn),
Nicoletta, Morgan, Xenía, Alpine,
Borghild, Julia, Ekene, Damien, Lís-
beth, Aðalvíkingur, Tanija, Auðberg,
Jean, Baltazar, Pedro og Jerry.
Samþykkt:
Úlftýr, Helgfell, Voney, Amír, Siv,
Ermenga, Vili, Friedrich, Evan,
Atlanta, Marella, Benidikta, Nátt-
úlfur, Bestla, Maximus, Nikoletta,
Þórsteinunn, Nóri, Matta, Dante,
Rorí, Linddís, Eldmar, Ebonney, Ein-
björg, Aría, Ramóna, Gísela, Gíta,
Alína, Kæja, Pedró.
■ NEI EÐA JÁ