Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 37

Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 37
Víetnamski veitingastaðurinn Pho var opnaður í sumar í Ármúla 21 í Reykjavík. Pho er fyrsti víetnamski veitingastaðurinn sem er opnaður hér- lendis og hafa mataráhugamenn fagnað opnun hans. Eigandi Pho er Quang Le sem búið hefur hér á landi um margra ára skeið. Hann segir víetnamska mat- reiðslu meðal annars einkennast af bragðgóðum kryddjurtum og fersku grænmeti. „Við notum einnig kjúkling, nautakjöt og svínakjöt í matreiðslu okkar og gott úrval af sjávarfangi,“ segir Le. Hrísgrjón og núðlur eru einnig ómissandi þáttur í víetnamskri matargerð. Le segir litla olíu vera notaða í réttum frá Víetnam en víetnamskur matur er af mörgum tal- inn einn hollasti matur heims. Sérréttur Pho er víetnömsk núðlusúpa. „Við sjóðum nautakjötið í tíu klukku- tíma ásamt grilluðum engifer, mariner- uðum lauk og ýmsum kryddjurtum. Þessi uppskrift er búin að vera í fjölskyldunni minni í margar kynslóðir og hefur tekið breytingum gegnum árin en hún er alltaf að vera betri og betri.“ Með súpunni er borið fram sætt basil, baunaspírur og lime. Le segir súpuna vera einn vinsæl- asta réttinn á matseðli veitingarstaðar- ins. „Aðrir vinsælir réttir eru meðal annars grillaður sítrónukjúklingur, ýmsar gerðir af núðlusúpum auk rétta sem inni- halda vorrúllurnar vinsælu.“ Samhliða rekstri veitinga staðarins Pho rekur Le víetnamskan markað á Suður- landsbraut 6 sem ber nafnið Vietnam Market. Þar fæst mikið úrval af austur- lensku hráefni til matargerðar. „Við bjóðum upp á mikið úrval af grænmeti, kryddjurtum, núðlum, olíum, grjónum og mörgu öðru hráefni. Við seljum ekki bara hráefni í víetnamska matargerð heldur líka hráefni sem er notað í kínverska, taílenska, japanska og indverska rétti.“ Veitingastaðurinn og markaðurinn hafa fengið góðar viðtökur enda gefst nú loksins kostur á að kynnast ljúffengri víetnamskri matargerð. Sjá nánari á www.pho.is og á Facebook undir Vietnam Market. EINN HOLLASTI MATUR HEIMS PHO KYNNIR Nú geta Íslendingar loksins notið víetnamskrar matargerðar á veitingastaðnum Pho í Reykjavík. Sömu eigendur reka líka markað þar sem spennandi hráefni fæst til matargerðar. ILMANDI Víetnömsk núðlusúpa er einn af sérréttum Pho. MYND/GVA FJÖLBREYTNI Pho býður m.a. upp á vorrúllur, núðlusúpur, svínakjöt, kjúkling og ljúffenga eftirrétti. MYND/GVA LJÚFFENGT Bragðgóðar krydd- jurtir og ferskt grænmeti ein- kenna víetnamska matreiðslu. MYND/GVA RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Í HÖRPU Kvartett söngkonunnar Ragnheiðar Gröndal kemur fram á áttundu tónleikum djasstónleikaraðar veitingastaðar- ins Munnhörpunnar í Hörpu í dag. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og standa til 17. Aðgangur er ókeypis. Laugavegi 82 (á horni Barónsstíg) • Sími 551 4473 Stofnuð 1916 NÝ SENDING AF UNDIRFATNAÐI ÚR 100% SILKI. Stærðir s- xxl. Herrapeysur. Skart,leggings (s- xxl) Töskur o.f.l. 1500 kr sláin með ýmsu girnilegu LOGY ehf. Lyngháls 10 • sími 661 2580 (húsið við hlið Heiðrúnar, ÁTVR að neðanverðu) Jóla og haust- vörurnar komnar Aðeins opið þessa helgi Laugardag 13-17 Sunnnudag 13-16 Veiti börnum og foreldrum sálfræðilega ráðgjöf og meðferð. PMT-foreldrafærnimeðferð við hegðunarvanda, meðferð við kvíða og ADHD. Íris Stefánsdóttir sálfræðingur, Sálfræðistofa Skútuvogi 1a, 104 Reykjavík, netfang: irisstef.stofa@gmail.com, sími: 690 1569 BESTU BROTIN ÚR ÍSLANDI Í DAG FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.