Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 53

Fréttablaðið - 22.09.2012, Side 53
LAUGARDAGUR 22. september 2012 13 Tollstjóri leitar að öflugum verkefnastjóra til liðs við þá starfsmenn sem hafa umsjón með gæða- og verkefnastjórnun hjá embættinu. Verkefnastjórnun í umfangsmiklum verkefnum, einkum hugbúnaðarverkefnum. >> Greining og áætlanagerð. >> Samskipti við hagsmunaaðila. >> Framkvæmd verkefnis á líftíma þess, að markmiðum sé náð og afurðum skilað. >> Eftirlit með framvindu. Umsjón með breytingum og betrumbætandi aðgerðum, til dæmis þegar frávik verða frá áætlun. >> Skýrslugerð. >> Háskólamenntun, til að mynda á sviði verkfræði, tölvunarfræði eða viðskiptafræði. Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar (MPM) eða sambærilegt nám og/eða alþjóðleg vottun á sviði verkefnastjórnunar er kostur. >> Reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði. Reynsla af stjórnun hugbúnaðarverkefna er kostur. >> Þekking á aðferðafræði og stöðlum verkefnastjórnunar. >> Þekking á hugbúnaði til verkefnastjórnunar, t.a.m. MS Project og MindManager. >> Leiðtoga- og stjórnunarfærni ásamt þjónustulund, jákvæðni og sjálfstæði. >> Færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti, hvoru tveggja á íslensku og ensku. Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Rut Benediktsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og gæðamála, í síma 560-0385. Umsókn merkt „Verkefnastjóri hugbúnaðarverkefna“ skal skila rafrænt á netfangið starf@tollur.is fyrir 8. október nk. Við verndum samfélagið og tryggjum ríkinu tekjur Traust - Samvinna - Framsækni starf@tollur.is Gildi Tollstjóra eru traust, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá embættinu munu taka mið af þessum gildum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðeigandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Eftirlit með fisksjúkdómum og sérgeinadýralæknir loðdýrasjúkdóma Matvælastofnun óskar eftir að ráða dýralækni í eftirlit með fisksjúkdómum og jafnframt í starf sérgreinadýralæknis loðdýrasjúkdóma. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu MAST á Selfossi. Helstu verkefni: • Vinna að bættu heilbrigði og velferð lagardýra • Almennt eftirlit og sýnatökur í fiskeldisstöðvum • Vinna að bættu heilbrigði loðdýra og sjúkdómavörnum • Umsjón eftirlits með innflutningi loðdýra • Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt vottorða- og skýrslugerð • Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir • Frumkvæði að framkvæmd nauðsynlegra rannsókna • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í dýralækningum • Þekking á fisk- og loðdýrasjúkdómum • Reynsla af opinberu eftirliti æskileg • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum • Góð kunnátta í íslensku-, ensku- og einu norðurlandamáli • Góð almenn tölvukunnátta Nánari upplýsingar um starfið veita Halldór Runólfsson (halldor.runolfsson @mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.hannesson@mast.is) í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upp- lýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum „Fisksjúkdómar“ eða á starf@mast.is, en umsóknarfrestur er til og með 30. september 2012. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfs- manna. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is. Starfssvið · Sala og þjónusta við viðskiptavini · Birgðahald og umhirða búðar · Eftirfylgni við þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins · Verkstjórn í fjarveru verslunarstjóra Hæfniskröfur · Reynsla af verslunarstörfum er nauðsynleg · Reynsla af verkstjórn er æskileg · Frumkvæði og metnaður í starfi · Góð framkoma og rík þjónustulund · Góð hæfni í mannlegum samskiptum · Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg · Reynsla af Navision er æskileg Stefna ÁTVR er að vera framúrskarandi þjónustufyrirtæki og þekkt fyrir samfélagslega ábyrgð. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur þar sem þjónusta og samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. vinbudin.is Aðstoðarverslunarstjóri Vínbúðin á Ísafirði leitar að aðstoðarverslunarstjóra Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Gildi ÁTVR eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu munu taka mið af þessum gildum. Nánari upplýsingar veita: Elísabet Sverrisdóttir, elisabet@hagvangur.is Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 7. október nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinbudin.is Héraðsdýralæknir í Norðvesturumdæmi Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf héraðsdýralæknis í Norðvesturumdæmi frá og með 1. janúar 2013. Um er að ræða fullt starf og er umdæmisskrif- stofan staðsett á Sauðárkróki. Helstu verkefni: • Skipulag eftirlits með heilbrigði og velferð dýra • Skipulag eftirlits með framleiðslu matvæla • Framkvæmd opinbers eftirlits • Sóttvarnir og varnir gegn smitsjúkdómum dýra • Gerð eftirlitsáætlana og skýrslugerðir • Skipulag vaktþjónustu í umdæminu • Umsjón með rekstri umdæmisskrifstofu • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í dýralækningum • Reynsla af eftirliti og opinberri stjórnsýslu æskileg • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum • Góðir skipulagshæfileikar • Góð íslensku- og enskukunnátta • Góð almenn tölvukunnátta Nánari upplýsingar um starfið veita Jón Gíslason (jon.gislason@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.hannesson@mast.is) í síma 530-4800. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögnum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum „Héraðsdýralæknir“ eða með tölvupósti á starf@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 10. október 2012. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfs- manna. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.